Dagblaðið - 14.03.1979, Blaðsíða 2
2
/■
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1979.
Hugsar enginn um aðstand-
endur fómarlamba?
Raddir
lesenda
Að gefnu
tilefni
Lesandi hringdi í tilefni umkvört-
unar systur einnar stúlkunnar sem
situr nú í gæzluvarðhaldi í Kaup-
mannahöfn vegna meints eiturlyfja-
smygls þar. Hún segir: „Ég veit að
það er oft óafturkallanleg og sorgleg
staðreynd að manns eigið skyldfólk
skuli gera sig sekt um jafn hræðileg-
an glæp sem það er að hagnast á sölu'
eiturlyfja. Ég hitti fyrir fáeinum
árum danskan lögreglumann sem
vann að rannsóknum eiturlyfjamála
þar. Hann sagði mér margar átakan-
legar sögur um fórnarlömb eiturlyfj-
anna. Því er mér nú spurn, hvenær er
tekið tillit til aðstandenda þeirra
fórnarlamba sem verða eiturlyfjum
aðbráð?
Til hvers er
þá menntun-
ar aflað?
Hjúkrunarkona hringdi vegna
greinar er birtist i Morgunblaðimi
sunnudaginn 4. marz um Dag\istun
fyrir fatlaða sem nú mun vera að
hefjast hjá Sjálfsbjörg.Segist hún i
meira lagi undrandi á því að Stein-
unn Finnbogadóttir skuli hafa verið
ráðin forstöðukona fyrir stofnun
þessari. Bendir hún t.d. á þá hjúkrun
arfræðinga sem nú þurfa að hafa há-
skólapróf til þess að verða deildar-
hjúkrunarkonur. Það er því algjör-
lega óskiljanlegt hvernig þessi kona,
sem ekki hefur einu sinni próf úr
hjúkrunarskólanum getur tekið við
stöðu forstöðukonu slíkrar stofnun-
ar. Er ekki verið að ganga framhjá
einhverjum hér?
Hjálparsveitarmenn eru ávallt reiðubúnir til leitar og annarra hjálparstarfa
þegar þcirra er þörf.
V
glæsikg Kilarkyuiií
Getum boðið til afnota ný og glæsileg salarkynni fyrir
hvers konar fundi og mannfagnaði, stóra og smáa. Erum
staðsettir við Reykjanesbrautina í Hafnarfirði. Tengt
salnum er stórt fullkomið eldhús, þar sem við getum
framreitt Ijúffenga matarrétti við allra hæfi.
Einnig útbúum við allskonar mat fyrir veislur eða smá-
boð sem haldin eru annarsstaðar.
Maturinn frá okkur svíkur engan — spyrjið þá sem reynt
hafa. • . ..
GAPi-mn
V/REYKJ ANESBRAUT - SÍMI 54424
Látiö fara vel um ykkur í þægilegu umhverfi í
nýjasta veitingahúsi Hafnarfjarðar.
I
Draga einhverjir
atvinnurekendur
laun af meðlimum
hjálparsveita?
Lesandi hringdi og og kvaðst
gjarnan vilja vita hvort atvinnurek-
endur almennt drægju frá launum
meðlima hjálparsveita sem kallaðir
væru út til leitar í vinnutíma.
Dagblaðið hafði samband við
Landssamband Hjálparsveita skáta
og fékk þær upplýsingar að það væri
í sárafáum tilvikum gert og að all-
flestir atvinnurekendur veittu fúslega
leyfi frá vinnu án þess að draga laun
affólki.
Það hefur löngum
þótt afleitt að fá
ekki að verja
mannorð sitt
Sveinn Sveinsson Sólvallagötu 3
skrifar:
Ég sendi víðlesnu blaði fyrir
nokkrum dögum nokkrar línur við-
víkjandi ummælum Einars Jónss.
um mig og skrif mín um nokkra
strætisvagnabílstjóra á leið 6. Einar
segist hafa beztu kynni af þeim og hef
ég ekkert við það að athuga. Aðeins
hef ég veitzt að bílstjórum þeim sem
mér hefur fundizt ástæða til að finna
að við. Utan þriggja persóna á
þeirri leið sem ég hef dáð vegna prúð-
mennsku eru tveir herrar og ein frú
sem leyst hefur af á þeirri leið og
leið 2. Hún vinnur starf sitt með
mestu prýði.
Á leið 1 tel ég alla vagnstjórana
fyrsta flokks af allri prúðmennsku og
bera nafn með réttu, númer 1. Einnig
hef ég mætt prúðmennsku á leið 2 og
4.
Jón Jónsson nr. 71 skrifaði Hka
prýðisgrein fyrir nokkrum dögum og
taldi mig hafa nokkuð til míns máls.
Málflutningur hans var rökvís og
benti hann mér á margt sem hef ekki
tekið með í reikninginn. Honum færi
ég þakkir minar. Hann benti á að
okkur sem stundum strætisvagna-
ferðir væri hentara að koma 1—2
minútum fyrr en lagt er af stað. Þar
hefur hann rétt að mæla. En
stundum getur staðið svo á hjá okkur
að við erum á síðustu stundu vegna
anna. Aftur á móti mótmæli ég harð-
lega þeim málflutningi Einars Jóns-
sonar að ég hefði tilhneigingu til að
þrefa og skammast. Það þekkja bezt
þeir sem þekkja mig. Hann (Einar)
þekkir mig ekki neitt ogégekkihann
og hef ég enga löngun til að þekkja
hann. Þetta verða mín síðustu skrif
um þessi mál.
Anna Guðmundsdóttir Hagamel 27,
n. 0333—2160, hringdi:
Lesendabréf um heilsuhæli NLFÍ í
Hveragerði birtist í Þjóðviljanum 24.
fyrri mánaðar og síðan að hluta í
'Dagblaðinu. Bréftð var undirritað af
nafnnúmeri sem bendir á ákveðið
heiti. Að gefnu tilefni vil ég taka
fram, að grein þessi var ekki rituð af
mér.
Til athug-
unar fyrir
forsvars-
menn...
Ingólfur Pétursson skrifar:
Ef þið getið ekki stjómað lands-
fólki nú og fjármálum öllum innan
30% verðbólgu á ári næstu 3 árin, þá
skammizt ykkar og hverfið frá póli-
tísku kukli þegar í stað og komið ekki
nærri slíkum málum næstu lOárin.
Bankinn
fyrir
fólkið
— eða fólkið fyrir
bankann
Lesandi hringdi og var mjög
óánægður með þjónustu bankanna í
hádeginu.
Kvaðst hann einn daginn hafa æd-
að að eyða matartíma sínum í að
greiða gíróseðil. Bankinn sem næstur
honum var var Verzlunarbankinn við
Grensásveg. Hann reyndist vera lok-
aður milli kl. 12 og 13. Næsti banki
var Iðnaðarbankinn við Háaleitis-
braut.Hann reyndist einnig lokaður á
þeim tíma og sömu sögu var að segja
um Samvinnubankann við Háaleitis-
braut. Er augljóst mál að mjög baga-
legt er að allir þessi bankar á svæðinu
eru lokaðir á sama tíma. Ekkert póst-
hús er heldur í Fossvogs- og Bú-
staðahverfinu þannig að ibúar þess
neyðast til þess að gera sér ferð niður
í Pósthússtræti ef þeir þurfa að fara í
pósthús.
Að vísu skal bent á að opið er i
Múlaú tibúi í hádeginu en sökum þess
að hann er eini bankinn á stóru svæði
sem opinn er á þessum tíma er yfir-
leitt svo mikið að gera þar að of lang-
an tíma tekur að fá afgreiðslu.
Eru það vinsamleg tilmæli lesanda
að úr þessu verði bætt hið bráðasta.
(ítikíT)
/æknir
Raddir lesenda taka við
skilaboðum til umsjónar-
manns þáttarins „Heimil-
islæknir svarar" í síma
27022, kl. 13-15 alla
virka daga.