Dagblaðið - 14.03.1979, Blaðsíða 23
FJORAR OUKAR
LEIKHÚSGREINAR
„Það verða fjögur atriði á dagskrá
Vöku í kvöld og öU tengjast þau leik-
húsinu. Hér er um fjórar ólíkar leik-
húsgreinar að ræða,” sagði Andrés
Indriðason.
„Fyrsta atriðið er sýning sem er að
koma á fjalirnar hjá Leikfélagi Reykja-
víkur sem nefnist Steldu bara milljarði
eftir spánska höfundir.n Arrabal. Sýnt
verður stutt brot úr þessu verki og Þór-
hildur Þorleifsdóttir leikstjóri segir
frá.
Þá verður kynnt sýning íslenzka
dansflokksins á Tófuskinninu, sem er
leikdans byggður á sögu eftir
Guðmund G. Hagalín. Rætt verður við
Finnann Marjo Kuusela sem hefur
samið þennan dans sérstaklega fyrir
flokkinn.
Því næst verður litið inn í Leik-
brúðuland sem hefur sýningar á
Frikirkjuvegi 11 en þessa viku stendur
yfir leikbrúðuvika. Sýnt verður stutt
brot úr Gauksklukkunni sem er
rússneskt verk.
Síðasta en ekki sízt verður litið inn á
æfingu á óperunni II Pagliacci.
Nokkur atriði úr óperunni verða sýnd
og spjallað verður við Garðar Cortes,
Ólöfu Harðardóttur og Elínu Sigur-
vinsdóttur en þær fara til skiptis með
kvensönghlutverkið í leiknum.
-GAJ-
„Þetta er fyrsti þátturinn af þremur
sem allir fjalla um áfengismál á
Norðurlöndum. Þættirnir fjalla um
rannsóknir sem hafa verið gerðar á
áfengisneyzlu og sambandi neyzlunnar
við sjúkdóma,” sagði Jón O. Edwald
þýðandi þáttanna.
„Gífurleg aukning hefur orðið á
áfengisneyzlu á Norðurlöndum og
hefur neyzlan tvöfaldazt frá styrjaldar-
lokum en skaðleg áhrif fjórfaldazt, og
er það fundið út með að bera saman við
dánarskýrslur.
Þetta eru fræðsluþættir, og greint er
sundur hvernig drykkjan er og
drykkjusiðir.
ísland er ekki með í þessari mynd en
neyzlan á að vera minnst hér. Það eru
þó villandi tölur þegar reiknað er yfir í
hreinan vínánda. Þannig mundi sú tala
hækka mjög fyrir ísland ef þeir sem
drekka fengju sér einn bjór á dag án
þess að hægt væri með því að tala um
að áfengisneyzlan hefði aukizt.”
-GAJ-
Skaðleg áhrif áfengisneyzlunnar fjór-
faldast þegar neyzlan tvöfaldast.
DB-mynd RagnarTh. Sig.
Atriði úr óperunni II Pagliacci.
ÚR SKÓLALIFINU — útvarp í kvöld kl. 20.00:
UM FULLORÐINSFRÆÐSLU
„Þessi þáttur verður helgaður
fullorðinsfræðslu og mun ég
heimsækja Námsflokka Reykjavíkur
og ræða við Guðrúnu Halldórsdóttur,
skólastjóra Námsflokkanna um
nauðsynina á fullorðinsfræðslunni,”
sagði Kristján E. Guðmundsson,
umsjónarmaður útvarpsþáttarins Úr
skólalífinu.
„Við munum spjalla almennt um
fullorðinsfræðslu i ljósi frumvarps til
laga um samræmda framhaldsskóla.
Þar var tekin inn ný grein um
fullorðinsfræðsluna. Við munum ræða
um nauðsyn þessa í ljósi breyttra þjóð-
félagshátta og hvernig námsflokkarnir
koma þarna inn í dæmið.
Guðrún er með ýmsar hugmyndir um
aukningu á fullorðinsfræðslunni og
munum við ræða um þær.
Námsflokkarnir skiptast nú í tvo
þætti. Annars vegar eru námskeið sem
gefa ákveðin réttindi í skólakerfinu og
hins vegar eru námskeið sem menn
sækja meira af forvitni og sér til
Ég mun forvitnast um hvernig náms- þar tekið ákveðna áfanga til að nota sér
flokkarnir tengjast framhaldsskólun- í frekara námi.”
um í framtíðinni og hvort menn geti -GAJ-
gamans.
Miðbæjarskólinn gamli. Þar eru Náms-
flokkar Reykjavíkur nú tii húsa.
DB-mynd Bj.Bj.
\_______________________________
Útvarp
Miðvikudagur
14. marz
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veöurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13.20 Litli barnatíminn. Sigríður Hyþórsdóttir
stjórnar. Sagt frá Færeyjum, leikin þjóölög
þaöan og lesin tvö færeysk ævintýri.
13.40 Viö vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdeglssagan: „Fyrir opnum tjöldum”
eftir Grétu Sigfúsdóttur. Herdís Þorvaldsdótt-
ir leikkona les (7).
15.00 Miödegistónleikar: Kjell Bækkelund og
Robert Levin lcika Tilbrigði i es-moll op. 2
fyrir tvö pianó cftir Christian Sinding / Ger-
vase de Peyer og Daniel Barcnboim leika
Sónötu í Es-dtir op. 120 fyrir klarinettu og
píanóeftir Johannes Brahms.
15.40 Íslenzk! mák Endurtekinn þáttur Gunn-
laugs Ingólfssonar frá 10. þ.m.
16.00 Fréttír. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregn-
ir).
16.20 Popphorn: Halldór Gunnarsson kynnir.
17.20 Útvarpssaga barnanna: „PolU ég og allir
hinir” eftlr Jönas Jónasson. Höfundur byrjar
lesturinn.
17.40 A hvitum reltum og svörtum. Guðmundur
Arnlaugsson flytur skákþátt.
18 10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfrcgnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. FréttaaukLTilkynningar.
19.35 Gestur 1 útvarpssaL Finnska ópcrusöng
konan Taru Valjakka syngur lög eftir Grana-
dos Rodrigo og Palmgren. Agnes Löve leikur á
píanó.
20.00 Úr skólallfinu. Kristján E. Guðmundsson
stjómar þættinum, sem fjallar um fullorðins-
fræðslu.
20.30 Útvarpssagan: „Eyrbyggja saga”. Þor-
varður Júlíusson les (11).
21.00 Hljómskálamúsik. Guðmundur Gilsson
kynnir.
21.30 Ljóö eftir Guömund Kamban.
Guðmundur Guðmundsson les.
21.45 íþróttir. Hermann Gunnarsson segir frá.
22.10 Sunnan jökia. Magnús Finnbogason á
Lágafeili tekur saman þáttinn. M.a. rætt við
Sigurð Eggertsson, Efri-Þverá, Þráin Þorvalds-
son, Oddakoti, og Kristínu Guömundsdóttur á
Hvolsvelli.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins.
Lestur Passiusálma (27).
22.55 Úr tónlistarlífinu. Knútur R. Magnússon
sérum þáttinn.
23.10 Svört tónlist. Umsjón Gerard Chinotti.
Kynnir: Jórunn Tómasdóttir.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Fimmtudagur
15. marz
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar.
7.I0 Leikfimi.7.20Bæn.
7.25 Morgunpósturinn. Umsjónarmenn: Páil
Heiðar Jónsson og Sigmar B. Hauksson. (8.00
Fréttir).
8.I5 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.).
Dagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir ýntis lög að eigln
vaU. 9.00 Frétlir.
9.05 Morgunstund barnanna: Geir Christensen
heldur áfram að lesa ,3telpurnar sem struku”
eftir Evsi Bögcnæs (3).
9.20 Leikfiml.
9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10. Veðurfregnir.
10.25 Morgunþulur kynnir ýmis lög; frh.
II.00 Verzlun og viöskipti. Umsjón: Ingvi
Hrafn Jónsson.
Il.l5 Morguntónleikan Dietrich Fischcr-
Dieskau syngur lög eftir Giacomo Meyerbccr.
Karl Engel lcikur á pianó / Liv Glaser leikur
Pianósónötu op. 7 í e-moll eftir Edvard Gricg.
I2.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Viö
>innuna:Tónleikar.
14.30 Nimsgreinar I grunnskóla. Birna Bjam-
ieifsdóttir tekur saman þáttinn. Fjallað um
kennslu i stærðfræði og eðlis- og cfnafræöi.
Rætt við námsstjórana önnu Kristjánsdóttur
og Hrólf Kjartansson.
15.00 MiódegLstónleikar: itzhak Pcrlman og Fil-
harmoniusveit Lundúna leika Fiðlukonsert nr.
2 i d-moll op. 22 eftir Henryk Wieniawski.
Seiji Ozawa stj.
I6.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregn-
ir).
16.20 Tónleikar.
16.40 Lagiö mitt: Helga Þ Stephensen kynnir
óskalög barna.
17.20 Útvarpssaga barnanna: „Polli, ég og allir
hinir” eftir Jónas Jónasson Höfundur les (2)
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. FréttaaukLTilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Árni Böðvarsson flytur þátt-
inn.
19.40 Islenzkir einsöngvarar og kórar syngja.
20.05 Viö erum öll heimspekingar. Þriðji þáttur
Ásgcirs Beintcinssonar um lífsskoðanir og
mótun þeirra. Rætt við Bjarna Bjamason
lektor.
20.30 Sellósónata I C-dúr op. 65 eftir Benjamin
Britten Mstislav Rostropovitsj og höfundur-
inn leika.
Miðvikudagur
14. mars
18.00 Börnin teikna. Kynnir Sigrlður Ragna Sig-
urðardóttir.
18.10 Gullgrafararnir. Lokaþáttur. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.35 Heímor dýranna. Fræðslumyndaflokkur
um dýralíf viða um heim. Þýðandi og þulur
Gylfi Pálsson.
19.00 Hlé.
20.00 Fréttlr og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Vaka. Greint verður frá leiksýningum,
leikdansi og óperuflutningi. Dagskrárgerð
Andrés Indriöason.
21.20 Will Shakespeare. Sjötti og siöasti þáttur.
Efni fimmta þáttar: Jarlinn af Essex og jarlinn
af Southampton gera misheppnaða tilraun til
uppreisnar gegn Elísabetu drottningu. Baráltu
sinni til stuðnings fá þeir Will til að setja á svið
leikritið Ríkarö annan, og þannig flækist leik-
flokkurinn óviljandi í málið. í „refsiskyni”
fyrirskipar drottning, að hún fái að sjá leikrit
Shakespeares, Hinrik fjórða, annan hiuta. Jarl
amir hljóta dauðadóm. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
22.10 Áfenglsmá! á Noróuriöndum. Hinn fyrsti
þriggja norskra fræðsluþátta um áfengismál á
Norðurlöndum. Meðal annars er fjallað um
vaxandi neyslu áfengis og varnir gegn henni.
(Nordvision — Norska sjónvarpið). Þýðandi
Jón O. Edwald.
22.55 Dagskrárlok.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1979.
VAKA—sjónvarp í kvöld ki. 20.30:
^ r
ÁFENGISMÁL Á NORÐURLÖNDUM
— sjónvarp íkvöld kl. 22.10:
Áfengisneyzlan
hefur tvöfaldazt
f rá stríðslokum