Dagblaðið - 14.03.1979, Side 24
!
— segir Lúðvík Jósepsson. „ Alþýdubandalagið hefur Iff stjórnarinnar í hendi
sér,” segir Steingrímur Hermannsson dómsmálaráðherra
ii. i_1*:i i,n>.n:nno *» ponAi CioUvotnr RiArmrínccnn formartnr Kinoi á Ptnin cníitnr AIKvAnflnlrtc. hi
„Allt bendir til kosninga,” sagði
Lúðvik Jósepsson, formaður
Alþýðubandalagsins, í viðtali við DB
í morgun. ,,Við munum aldrei standa
að þessu frumvarpi óbreyttu og ekki
geta verið í stjórn, verði frumvarpið
samþykkt.”
„Þarna er gert ráð fyrir 6,6%
kauplækkun miðað við 1. júní,”
sagði Lúðvík. Hann sagði að nýir
aðilar gætu myndað meirihluta, en
var vantrúaður á þann möguleika.
„Það er náttúrlega ljóst, að eftir
síðstu atburði hefur Alþýðubanda-
lagið líf þessarar ríkisstjómar í hendi
sér,” sagði Steingrímur Hermanns-
son dómsmálaráðherra i viðtali við
DB í morgun. „Hvort kosningar
verða í vor vil ég ekkert segja um að
svo stöddu, það eru svo margir
möguleikar sem koma til greina. En
ef Lúðvík og félagar láta hafa eftir
sér að þeir vilji kosningar, þá sé ég
ek ki annað en s vo verði”.
Sighvatur Björgvinsson, formaður
þingflokks Alþýðuflokksins, sagði í
viðtali við DB í morgun, að það
kæmi í ljós, hvort Alþýðubandalagið
yrði í þessari ríkisstjóm eða færi,
þegar efnahagsfrumvarpið yrði
komið fram á þingi. Alþýðubanda-
lagsmenn væru nú illir og reiðir en
ómögulegt að spá hvað þeir kynnu að
gera.
Ráðherrar Alþýðubandalagsins
gengu af ríkisstjórnarfundi i gæT,
þegar ekki var gengið að nýjum
tillögum þeirra í vísitölumálinu, sem
DB skýrði frá í gær. Alþýðubanda-
lagsmenn vildu fella olíukaflann úr
frumvarpinu og setja vísitöluna í 100
einu sinni en ekki á 3ja mánaða
fresti. Þeir vildu ekki að áfengi og
tóbak kæmi inn í vísitölu sem fastur
þáttur, sem ekki yrði látinn hækka,
og þeir höfðu annan hátt á um,
viðskiptakjaravísitölu en var í fram-
varpinu. Forsætisráðherra mun
leggja frumvarpið fram á morgun á
þingi á eigin spýtur. Alþýðuflokks-
og framsóknarmenn segja að ráð-
herrar Alþýðubandalagsins hafi í
ríkisstjórninni á laugardag verið
búnir að samþykkja megnið af þeim
vísitöluatriðum sem eru í frum-
varpinu.
-HH
Lúðvík gengur
á f und Olafs
Lúðvík Jósepsson gekk í gær á
fund Ólafs Jóhannessonar forsætis-;
ráðherra og viðraði við hann hug-
myndir sem upp hefðu komið í flokki
sínum um að draga svolítið úr
kröfunum í sambandi við
vísitölukaflann.
Mun Ólafur hafa tjáð Lúðvík að
slíkar tillögur yrðu skoðaðar ef þær
bærust, enda þótt menn væru
óneitanlega orðnir þreyttir á
samningum fram og til baka.
Tillögur í þessa átt. frá
Alþýðubandalaginu höfðu ekki
borizt, þegar síðast fréttist.
-HP.
Alþýðubandalagsráöherrar ganga af rlkisstjórnarfundi í gærkvöld — ekki beinlinis glaðlegir
-DB-mynd: Hörður
Enn eitt flugfélagið býður vildarkjör á N-Atlantshafsleiðinni:
„ALLT BENDIR
TIL KOSNINGA”
Skæðasti keppinautur
Flugleiða til þessa
—Skytrain, Skysaver og óskírt „barn” North West, munu
skera úr um líf N-Atlantshaf sf lugs Flugleiða í sumar
Enn eitt risaflugfélagið boðaði
fyrir skömmu með heilsíðuauglýs-
ingu í The New York Times, vildar-
kjör á flugleiðinni yfir N-Atlantshaf-:
ið. Er það leiguflugfélagið Capitol
International Airways, sem hyggst
hefja fyrsta reglubundna flug sitt
meðþessarileið.
Hefjast ferðir þess 5. maí og
kostar farið aðra leiðina 125 dollara
með mat og öllu venjulegu viðurværi.
Er það nokkru lægra en Flugleiðir
bjóða nú á leiðinni. Capitol mun
fljúga til og frá New York.
Svo sem DB skýrði frá fyrir
skömmu hyggst flugfélagið N.W.O.
hefja N-Atlantshafsflug í vor á lágum
fargjöldum á Jumbóþotum, innrétt-
uðum fyrir yfir 500 farþega. Ekkr
mun það félag hafa í hyggju að
lenda nálægt Luxemburg, en hins
vegar mun Capitol lenda í Brussel i
Belgiu, skammt frá Luxemburg, og
fljúga á DC—8 þotum, þannig að
það verður í beinni samkeppni við
Flugleiðir.
Auglýsir félagið fargjöld sín undir
nafninu Skysaver, sem óneitanlega
ber keim af Skytrain fargjöldum
Freddy Laker, sem gengur vel á milli
New York og London.
Capitol býður fargjöld sín á sömu
skilmálum og Flugleiðir, hvað
dvalartíma og annað snertir. Til
glöggvunar má geta þess að ámóta
langt er frá Luxemburg til Frankfurt
og Brussel. Báðar síðarnefndu
borgirnar togast á um að vera
kallaðar „höfuðborgir” Evrópu.
Engan bilbug er hins vegar að
finnaá Loftleiðavæng Flugleiða, þar
sem ráða á 175 flugfreyjur fyrir
sumarvertiðina. DB hefur ekki tekizt
að bera þessi nýjustu tíðindi undir
forstjóra Flugleiða þar sem þeir eru
erlendis og væntanlegir heim á
föstudag.
-GS.
Það þykir gjarnan boða nokkra
alvöru þegar fyrirtæki kaupa sér heil-
siðuauglýsingu I The New York
Tlmes.
frfálst, úháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1979
Hubnerog Anderson
enn efstir íMiinchen:
Guðmundur
að sækja í
sigveðrið
Guðmundur Sigurjónsson hefur
verið að sækja í sig veðrið að undan-
fömu á skákmótinu í Múnchen. Á
mánudag vann hann biðskák sína við
Dankert og í gærkvöldi sigraði hann
Lieb. Friðrik gerði í gær jafntefli við'
Bretann Stean sem var aðstoðarmaður
Kortsnojs í heimsmeistaraeinviginu.
Ekki var alveg rétt skýrt frá stöðunni á
mótinu í DB í gær en staðan er nú sú,
að efstir eru HUbner og Anderson með
8 vinninga. Næstir koma Rússarnir
Spassky og Balashov með 7 1/2
vinning. Friðrik er með 6 vinninga og
Guðmundur5 1/2 vinning.
-GAJ-
Ný útgáfa
„verðbólgu-
passa" til
sölu á morgun
í fyrramálið hefst sala á nýjum
flokki verðtryggðra spariskirteina ríkis-
sjóðs, samtals 1500 milljónir. Skírteini
þessi eru bundin næstu fimm árin, en
frá 25. febrúar 1984 eru þau innleysan-
leg hvenær sem er næstu fimmtán ár.
Spariskírteini af þessu tagi hafa
verið talin með betri fjárfestingum í
verðbólgulandinu. Þau verða seld frá
og með morgundeginum í bönkum,
sparisjóðum og hjá nokkrum verð-
bréfasölum í Reykjavík. Verðgildi
þeirra er tiu þúsund krónur, fimmtíu
þúsund, hundrað þúsund og fimm
hundruð þúsund og skulu þau skráð á
nafn.
-ÓV.
100 þús-
und kr.
grafnar
úr skaf li
Hundrað þúsund krónur voru í gær
grafnar upp úr snjóskafli hér í bæ.
Þessum peningum hafði ungur maður
stolið úr Tóbaksverzluninni London á
mánudagskvöld. Kom hann þar inn,
þreif peningabunkann upp úr opinni
peningaskúffu og hljóp út. Viðstaddir
gátu gefið nokkuð góða lýsingu á
manninum og haukfránir rannsóknar-
lögreglumenn fundu í gær út hver
maðurinn var. Hann geymdi allt féð og
það komst því allt til eiganda.
-ASt.