Dagblaðið - 06.04.1979, Page 2
2
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1979.
Fyrirspum til framkvæmdastjóra Framleiðslueftirlits sjávarafurða:
ÞAU ERU
BETRI
ÞESSI!
Gilda aðrar reglur um
höf uðbúnaðá
Suðumesjum en á
OPIÐ TIL
KL. 7 í KVÖLD
LAUGARDAG
TIL HÁDEGIS
Mikið
úrval
VESTUR-ÞÝSKU
LITSJÓNVARPSTÆKIN
HAFA ALDREI VERIÐ
ÓDÝRARI
ITI VESTUR-ÞÝSKU
LITSJÓNVARPSTÆKIN
KOMIÐ SJALF OG SJAIÐ
OM
Bræóraborgarstlg1-S(mi 20080
(Genglö Inn frá Vesturgötu)
Vor'79
Austfjörðum?
ítalskar leður-
mokkasínur
nýkomnar.
Óskar Þórarínsson, Seyöisfirði, Már
Lárusson, Neskaupstað, Haukur
Björnsson, Eskifirði, og Benedikt Jó-
hannsson, Eskifirði, skrífa:
Hr. framkvæmdastjóri Jóhann
Guðmundsson.
Okkur verkstjóra á Austurlandi
rak í rogastanz, þegar við sáum
fréttamynd í sjónvarpinu þriðjudag-
inn 3. apríl frá Fiskanesi hf. í Grinda-
vík. Ekki ein einasta kona í snyrtingu
á fiski var með höfuðskýlu.
Við viljum fáskýringu!
Gilda einhverjar aðrar reglur á
Suðurnesjum um hreinlæti en úti á
landi? — Við vitum ekki betur en að
sjái eftirlitsmaöur frá Framleiðslu-
eftirlitinu eina konu hjá okkur
höfuðskýlulausa sé settur kross við
„Höfuðbúnaður ekki í lagi” hjá
Framleiðslueftirlitinu. Eru eftirlits-
menn frá Framleiðslueftirliti sjávar-
afurða svona fáir á Suðurnesjum —
rétt við dyr eftirlitsins — að þeir geti
ekki framfylgt þessu?
Hvernig á þá einn maður að geta
framfylgt þessum reglum hér á Aust-
fjörðum, maður sem að okkar áliti
stendur sig reyndar mjög vel í starfi
sínu. Eða gengur Suðurnesjamönn-
um svona vel eftir að þeir eignuðust
sjávarútvegsráðherra?
Við væntum svars frá yður hr.
framkvæmdastjóri framleiðslueftir-
lits sjávarafurða.
Þakkir til
Gísla Sigur-
björnssonar
—fyrirstörf íþágu
aldraðra
Helgi G. skrifar:
Á meðal okkar lifir einn bezti
sonur sem íslenzka þjóðin hefur átt.
Hann hefur fómað lífi sínu fyrir þá
sem minnst mega sín og mest eiga
skilið, þ.e. fyrir gamla fólkið.
Hann hefur rekið sjálfseignar-
stofnun fyrir þetta fólk í Reykjavík,
svo myndarlega að jafnvel erlendar
þjóðir taka reksturinn sér til fyrir-
myndar. Það er því ekki að furða
þótt kerfisþrælar hins opinbera vilji
læsa krumlum sínum um svo feitan
bita. Við skulum hins vegar vona að
svo verði ekki. Þessi maður hefur
hækkað veg og viröingu Hveragerðis
meir en nokkur annar og búið svo vel
um gamla fólkið þar, að hver sem
störfum hans kynnist hlýtur að fyllast
lotningu í garð þessa manns. Þessi
maður sem ég fullyrði að sé í tölu
ódauðlegra sona íslenzku þjóðarinn-
ar lifir á meðal okkar án verðskuld-
aðs þakklætis og virðingar. Þessi
maður er Gísli Sigurbjörnsson.
Hólmanes er einn þeirra togara sem mun breyta yfir I svartolíu.
Svartolía ítogara:
Til vemdar
þorsk-
stofninum?
Regína, Eskifirði, hríngdi:
„Nýlega átti ég samtal við Hafstein
Guðvarðarson vélstjóra á Hólmanes-
inu sem er nú í fyrsta sinn í fru eftir
áramótin. Var gott hljóðið í Haf-
steini. Hólmanesið hafði fiskað vel,
sérstaklega eftir áramót. Hafsteinn er
að byggja tveggja hæða einbýUshús
eins og fieiri hér á staðnum. Þótti
mér hann óvenju áhyggjufullur og
spurði hvort það væri húsbygging-
unni um að kenna. Nei, hann sagðist
hafa áhyggjur af því að setja ætti
svartolíu í Hólmanesið. Hafsteinn
sagði að það væru hreinar línur að
olíureikningurinn sjálfur lækkaði
mikið en viðhaldskostnaðurinn ykist
líka mikið. Hafsteinn heldur því fram
að það kosti aldrei minna en 20 millj-
ónir að skipta yfir á svartolíu. Sjávar-
útvegsráðuneytið heldur því framað
það kosti 6 milljónir en Hafsteinn
segir að það sé alveg út í hött. Að
sögn Hafsteins eru þessar breytingar
aldrei reiknaöar til enda heldur er
reiknað með olíuverði eins og það er i
dag. Stjómvöld geri það af ásettu
ráði að hrinda útgerðarmönnum út í
þessar vafasömu breytingar. Mætti
ætla að þetta væri einn liðurinn í
friðunaraðgerðum til vemdar þorsk-
stofninum þar sem gefið mál sé að
frátafir verði miklar eftir breyting-
una.”
hver.
Kissaðdáendur
— vilja endilega sjá hljómsveitina í sjónvarpinu
Einlægur Kíssaðdóandi skrifar:
Mig langar til að athuga hvort ekki
sé hægt að taka til sýningar í sjón-
varpinu einhvern af þáttunum með
rokkhljómsveitinni Kiss. Það yrði
frábært að sjá þá í sjónvarpinu því
þeir em heimsfrægir fyrir stórkost-
lega sviðsframkomu.
Efni sjónvarpsins er mjög lélegt
SKARTGRIPIF?
Fermingargjöfin íár
SIGMAR Ó. MARÍUSSON
Hverfisgötu 16A - Sími 21355.
fyrir utan íslenzku skemmtiþættina á
laugardagskvöldum, Prúðu leikarana
og Skonrokkið sem er það bezta sem
hefur verið í sjónvarpinu í marga
mánuði. Sums staðar er sjónvarp
varla opnað dögum saman nema til
að horfa á fréttir og veður.
í útvarpinu eru það sinfóníur,
óperur og tilkynningar er taka mest-
an tíma. Það bjargar manni að eiga
plötuspilara þannig að maður hefur
annað en tilkynningar og óperur til
að hlustaá. En verðið á plötunum er
orðið óheyrilegt og flokkast víst
undir lúxusvarning. Hvað ætli verði
lúxus næst? Kannski kaffi?