Dagblaðið - 06.04.1979, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 06.04.1979, Blaðsíða 13
DAOBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1979. 13 _________Skúli Pálsson á Laxalóni segir:_ „IHÁUÐ ER HRYLUŒGT’ DISCO Hillusamstæða fyrir hljómflutn- ingstæki er nýjung í framleiðslu okkar, hönnuð af P.B. Lúthers- syni, húsgagnaarkitekt FHI'. Hillusamstæðan er uppbyggð úr einingum sem gefa mikla mögu- leika í uppröðun, hver eining er með rúmgóðum hirslum og er fáanleg úr furu, hnotu eða lituðu maghoni. ' & Hillusamstæða sem passar fyrir nær allar gerðir af hljómflutn- ingstækjum. DISCO hillusamstæðan er góð fermingargjöf. Komið og skoðið í sýningarsal okkar að Bíldshöfða 18. Simar 36501 - 36500 Gamla Kompaníið —og það er enginn botn kominn í framtíð f iskeldismála hér þó mitt mál sé Mondale til íslands Walter Mondale, varaforseti Banda- ríkjanna, kemur til íslands á miðviku- dagskvöld á leið til fleiri landa. Mondale er væntanlegur klukkan 20.20 um kvöldið. Á skírdagsmorgun mun hann ræða við forsætisráðherra klukk- an níu og væntanlega fleiri fyrirmenn og sitja veizlu forsætisráðherra þá um kvöldið. Hann heldur til Noregs klukkan níu að morgni föstudagsins langa. - HH tekið upp með skilningi a Alþingi ,,Ég vil ekkert segja um mín mál eða mál fiskeldisstöðvannnar á Laxa- lóni á meðan þau mál eru til um- ræðu hjá alþingismönnum,” sagði Skúli Pálsson á Laxalóni í símtali við DB. ,,Um mat á verðmæti stöðvar- innar vil ég ekkert segja, en ég hef mætt hjá þingnefndinni og lagt þar fram brot af þeim skjölum sem varða tilverubaráttu stöðvarinnar langt aftur í tímann.” Áður hefur það komið fram hér í DB að þær bætur sem greiða átti Skúla fyrir niðurskurð laxastofns stöðvarinnar námu að mati rúmlega 30milljónum króna. Hefur Skúli sagt að hann væri búinn að fá rúmlega helming bótaupphæðarinnar og það fé hafi hvergi nærri nægt til að halda stöðinni gangandi eftir niðurskurð- inn. „Vekið þið heldur athygli á því,” sagði Skúli, ,,að nú er mikið grobbað af mikilli laxagengd í öllum ám, svo að veiðimet eru sett á hverju ári. Veiðin í ánum í fyrra byggðist á því sem í þær var sett 1976. Frá Laxalóni voru árið 1976 sett seiði í 46 ár lands- ins og það er meirihluti þeirra áa sem fiskrækt fer fram í. Meðal jteirra eru Borgarfjarðarámar, til dæmis Þverá þar sem sett var algert landsmet í aflabrögðum á stöng. Og ég hef ekki heyrt talað um neinn sjúkdóm í þeim laxi sem fram til þessa hefur verið dreginn á land á Islandi. Hver og einn getur svo borið þennan árangur saman við endurheimtur seiða úr Kollafjarðarstöðinni,” sagði Skúli. ,,Það sem verst er að nú er svo komið að ísland er komið á alþjóða- skrár yfir það hvar ákveðnir fisksjúk- dómar hafa fundizt, þó þeir hafi aldrei verið til hér. Þetta er alvarlegt mál og getur dregið dilk á eftir sér. Það er t.d. bann við því að flytja inn Ferðamönnum fækkar — Bæði innlendum og erlendum Ferðamannastraumur til landsins, bæði íslendinga og útlendinga, er heldur að dragast saman miðað við sama tíma i fyrra, skv. skýrslum Útlendingaeftirlitsins. í marzmánuði nú komu 3355 íslend- ingar til landsins og 3124 útlendingar, eða samtals 6479 manns, á móti sam- tals 7782 í marz í fyrra, þar af 4489 íslendingum og 3293 útlendingum. TU marzloka nú hefur ferðamönnum hingað fækkað um 2.241 miðað við fyrstu 4 mánuði síðasta árs. Að vanda voru Bandaríkjamenn fjölmennastir aökomumanna í marz- mánuði nú, 1.268, þá Bretar, Vestur- Þjóðverjar og Norðurlandabúar. AUs komu hingað ferðamenn frá 41 landi. Aðeins einn ferðamaður kom frá hverju eftirtaldra landa: Bolivíu, írak, Líbíu, Marokkó, Panama, Sierra Leone og einn var ríkisfangslaus. - GS silung frá Danmörku til Bandaríkj- anna, vegna sjúkdóma sem í dönsk- um sUungastofni hafa sannanlega fundizt,” sagði Skúli. Skúli sagði að nú þegar hefði honum borizt pantanir á regnbogasil- ungshrognum fyrir á 2. hundrað milljónir króna og gæti hann selt alla framleiðslu sína mörg ár fram í tím- ann. ,,Ég hef enga möguleika til að uppfylla nema lítið brot af þeim óskum um regnbogasUungshrogn sem borizt hafa. Pantanirnar eru frá fyrirtækjum sem keypt hafa hér hrogn undanfarin ár og vita því að þeir eru að kaupa hrogn af alheil- brigðum og hraustum stofni. Nýir kaupendur bætast svo stöðugt í hóp- inn eða vilja bætast í hópinn,” sagði Skúli. „Málið allt er hryllilegt. Þess vegna fagna ég því að það skuli nú upp tekið á Alþingi og eiga þar skUn- ingi að mæta. En það er enginn botn kominn í framtíð þessa máls hér á landi. Það sem gert hefur verið hefur skaðað þjóðfélagið um milljónatugi svo vægt sé til tekið, sennUega millj- ónahundruð.” -ASt. Skúli Pálsson á Laxalóni með einum starfsmanna sinna. DB-mynd RagnarTh. BLEIKJUSEIÐI OLLISTÍFLUNNI Þeir urðu heldur betur undrandi starfsmenn Sigurplasts 1 Dugguvogi 10 þegar þeir komust fyrir stíflu sem orðið hafði í kælivatni á einni af vélum verk- smiðjunnar. Stiflan reyndist stafa af bleikjuseiði sem hafði endað sitt ævi- skeið þarna i leiðslunum og þá væntan- lega eftir langt og strangt ferðalag i gegnum vatnskerfi höfuðborgarinnar. Hörður Ijósmyndarí festi seiöið á mynd í hendi eins af starfsmönnum verk- smiðjunnar. -GAJ

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.