Dagblaðið - 06.04.1979, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 06.04.1979, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1979. Útvarpsauglýsendur utan höf uðborgarinnar: GREIBA HÆRRA VERD EN REYKVÍKINGAR læknir Raddir Jesenda taka við Iskilaboðum til umsjónar- manns þáttarins „Heimii- islœknir svarar" f sfma 27022, kl. 13-15 alla virka daga. Heimffis- 1230-7667 Akureyri skrífar: Ríkisútvarpið er vinsamlegast beðið að gefa skýringu á því fyrir- komulagi sem gildir við móttöku aug- jlýsinga utan af landi og ennfrem- ur hvers vegna auglýsendum utan höfuðborgarinnar er gert að greiða hærra verð fyrir auglýsingar. Þannig vill til að undirritaður starfar fyrir félagsskap sem hefur aö- setur í flestum bæjum landsins. Ný- verið þurfti að koma auglýsingu frá félagsdeildinni i útvarpið, vegna fundar, sem halda skyldi. Hringt var „suður” (að sjálfsögðu á kostnað félagsins en ekki útvarpsins) og beðið um að auglýsingin yrði lesin i útvarpi þann sama dag. Svarið sem starfs- kraftur auglýsingastofunnar gaf var á Afþreyingarblöð - klámrit? Lesandi hringdi: Þriðjudaginn 27. marz hlustaði ég á þátt í útvarpinu sem nefnist Miðlun og móttaka. f þeim þætti var m.a. rætt við tvo ritstjóra svonefndra af- þreyingarblaða eða klámblaða eins ogégvilnefnaþað. Að mínu áliti sluppu ritstjórar þessir of vel frá sínu máU. Eftir þeirra frásögn að dæma mætti ætla að slík Krakkar sem gera símaat — ættu að skammast sín Kona hringdi: „Mikið skelfing er ég orðin leið á krökkum sem eru að gera símaat. Það er einhver krakki sem hringir í mig á hverjum einasta degi með alls kyns ókurteisi og dónalegar spurn- ingar. Hvernig er það, hafa börnin ekkert annað við tímann sinn að gera en að hringja svona í Pétur og Pál til þess að ónáða þá? Þeim þykir þetta víst spennandi og skemmtilegt, en þau ættu að athuga að þeim sem þau hringja í þykir þetta á engan hátt skemmtilegt og ættu aö skammast sín fyrir tiltækið.” blöð sem þessi væru ekkert verri én hver önnur. Og ætla mætti þessi blöð ekki verri en það að i mesta lagi birtu þau fallega mynd af berum kven- manni á forsíðu sinni. En er ekki reyndin önnur? f gamia daga voru þau mál sem þessi blöð fjalla um kölluð feimnismál. Þau eru það víst ekki í dag. Eða hvað? Ef enginn hefði verið feiminn, hefði kannski spyrjandinn haft rænu á að biðja um að lesinn yrði smákafli úr einu slíku blaði í útvarpið. Ef enginn hefði verið feiminn hefði það vafa- laust verið alveg sjálfsagt og við fengið að heyra svo sem eins og eina stutta klámsögu. En það var ekki gert, einfaldiega vegna þess að þessi imál eru ennþá feimnismál. Ég segi sem betur fer, því það sem menn þora ekki aö spyrja um eða lesa upp í sam- bandi viö þessi mál er klám og það á ekkert erindi til okkar. okkar við Skúlagötuna. þá leið aö ekki mætti taka símleiðis við auglýsingum utan af landi! Hins vegar væri hægt að hringja til Reykjavíkurdeildar félagsins og þaðan mætti hringja auglýsinguna tii útvarpsins. Þessu næst var hringt til sím- stöðvar hér í bæ og beðið um að taka auglýsinguna til birtingar. Því var þar svarað til að ekki mætti taka sím- leiðis við auglýsingum. Það yrði að senda þær sem skeyti og greiða sér- stakiega fyrir skeytasendinguna, auk þess sem öll orð lengri en 10 bókstafa yrðu talin sem tvö. Hins vegar var þess getið, að í Reykjavik væri sá háttur meðal fastra v'ðskiptavina auglýsingastofunnar að hringja mætti auglýsingar inn og fá þær þar að auki skrifaðar. Því er nú útvarpið beðið að svara eftirfarandi spurningum: Nýtt! VOR-OG Hringiö ísíma 27022 milli kl. 13 og 15, eða skrifið SUMAR JAKKARNIR eftirspurðu eru komnir / fallegu úrvafí 1. Hvaðan kemur því heimild til að skattleggja sérstaklega auglýsend- ur utan Reykjavíkur? 2. Hver setur auglýsingastofunni þær starfsreglur, að taka megi simleiðis við auglýsingum frá Reykjavíkursvæðinu einu og veita gjaldfrest á þeim auglýsingum ein- um? 3. Væri ekki einfalt, til að fyrir- byggja misnotkun, að láta auglýs- ingastofuna hringja til baka í símanúmer viðkomandi auglýs- anda og staðfesta auglýsinguna? Einhvern veginn hafa menn utan Reykjavíkur það á tilfmningunni að opinberar stofnanir jafnt sem einka- fyrirtæki í Reykjavík hringi helzt ekki út á land, nema verið sé að reyna að selja eitthvaö illseljanlegt, ekki þegar veita þarf þjónustu. Það er að minnsta kosti reynsla allmargra. EINN JAKKI EÐATVEIR? Þaö orkar tví- mœlis þar sem hægt er að snúa honum við eftir vild og veðra- brigðunu Hér sameinast nýjasta tíska og þœgilegt nota- gildl Lilja Gísladóttlr, húamóðir: Mér fínnst nú dökkt hár alltaf fallegast, og þá liðað en ekki mikið hrokkið. Spurning dagsins Hvaða háralitur f innst þór fallegastur? Stella Ásgelrsdóttlr, húsmóðir: Jarpt liA"ð er langfallegast. Finnbogi Flnnbogason, nemi: Ljós- brúnt hárer fallegast. Svolltið liðað. Traustl Bertelsson, vlnnur hjá tsal: Það fer nú eftir aldri og kynferði. En almennt finnst mér svart hár og svolítið liðað fallegast. Ingibjörg Jónsdóttir, lellcari: Auðvitað Ijóst og liðað. Bára Guðmundsdóttir, vinnur á Toll- póststofunni: Mér fínnst slétt hár, kastaniubrúnt, fallegast.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.