Dagblaðið - 06.04.1979, Blaðsíða 29

Dagblaðið - 06.04.1979, Blaðsíða 29
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1979. 33 SITTLÍTIÐ AFHVURJU Kate Bush, söngkonan unga, hefur ekkert gert að því að fara í hljómleikaferðalög fyrr en nú, þrátt fyrir miklar vinsældir. Nú er hún nýlögð af stað um heimaland sitt, England, með nýstofnaðri hljómsveit. í henni er meðal ann- ars bróðir Kötu, Paddy Bush, sem leikur á mandólin og syngur. Meðal annarra i hljómsveit Kate Bush eru Preston Hayman trommuleikari og gítaristinn Alan Murphy. Þeir eru íslandi og ís- lendingum ekki með öllu ókunn- ir, því að þeir voru um nokkurt skeið í slagtogi með Jakobi Magnússyni. Þeir ferðuðust meðal annars með honum um landið í hljómsveitinni White Bachman Trio og léku inn á tveggja laga plötu sömu hljóm- sveitar. Þá var Preston einnig i Stuðmönnum frægu um nokk- urt skeið. Æfingar hjá Kate Bush og hljómsveit hennar hafa staðið yfir í nokkra mánuði. Aðeins verða haldnir ellefu hljómleikar að þessu sinni. Hljómsveitin SMOKIE hefur loksins látið verða af þvi að flýja frá Englandi vegna skattpíningar. Þetta hefur staðið til hjá piltun- um fjórum undanfarín ár. Þeir eru með vinsælustu tónlistar- mönnum í Evrópu, sér i lagi i Vestur-Þýzkalandi, og þiggja laun samkvæmt þvi. Smokie fer þó ekki i fótspor Led Zeppelin og fleiri góðra enskra hljómsveita og flýr til Bandarikjanna, hvað þá heldur að stinga af til Frakklands eins og Rolling Stones gerðu á sínum tíma. Hawaii eða Bahama? Nei, ekki aldeilis. Maneyja á írlands- hafi varð fyrir valinu. Allir helztu popparar Kefía- víkur saman á einni plötu Keflavík í poppskurn nefnist hljómpiata sem er að koma út þessa stundina. Á henni leika og syngja flestir þeir keflvískir tónlistarmenn sem frægir hafa orðið á síðari árum. Þeirra á meðal eru Gunnar Þórðar- son, Rúnar Júlíusson, Jóhann G. Jóhannsson, Magnús Sigmundsson, Jóhann Eiríksson og margir fleiri. „Við getum orðað það svo að þessi plata komi út i tilefni þrjátíu ára af- mælis Keflavíkurbæjar,” sagði Rúnar Júlíusson útgefandi plötunnar í samtali við DB. „Nú, og svo er meðalaldur þeirra sem koma fram þrjátíu ár, þrjátíu ár eru liðin frá því að íslendingar gengu í NATO og þannig mætti lengi telja,” bætti hann við. Óvenju hljótt hefur verið um útgáfu plötunnar Keflavík í popp- skurn. Þó er engin fljótaskrift á Meðalaldur tónlistarmannanna sem koma fram á plötunni Keflavik i poppskurn er að sögn út varð kaupstaður. — Hér eru nokkrir af þeim stóra hópi sem leikur, syngur og semur tónlistina á plötunni. DB-myndir. henni heldur hefur hún verið í vinnslu síðustu mánuði. Tónlistin sem leikin er er öll ný og hefur ekki verið gefin út áður. Til dæmis er þar að finna iag Gunnars Þórðarsonar, Strætin í Keflavík, sem hann samdi fyrir Stjörnumessu DB og Vikunnar og frumflutti þar. Keílavík í poppskurn er fyrsta platan sem Geimsteinn, fyrirtæki Rúnars Júljussonar, sendir frá sér á þessu ári. Dreifingu annast Steinar hf. Erlendu vinsældalistamir DOOBIE BROTHERS A TOPPNUM íBANDARÍKJUNUM Gloria Gaynor heldur fyrsta sætinu á enska vinsældalistanum eina vikuna enn. Nokkur lög eru þó á hraðri uppleið, sem kunna að ryðja því burtu áður en langt um líður. Nýjasta Village People-lagið In The Navy virðist einna líklegast sem stendur. Það er þegar komið í fyrsta sæti i Hollandi og er í öðru sæti í Englandi. Þá er Art gamli Garfunkel á hraðri uppleið með lag af nýjustu plötunni Gloria Gaynor situr enn sem fastast f fyrsta sæti enska vinsældalistans. sinni. Hann er nú í sjöunda sæti. Þá er Sister Sledge til alls líkleg, — lagið He’s The Greatest Dancer er nú i tíunda sæti á hraðri uppleið. Lag ensku nýbylgjuhljómsveitar- innar Dire Straits, Sultans Of Swing, heidur áfram að hækka sig á enska vinsældalistanum jafnt . sem—þeinr bandariska og kínverska. Skemmst er þess að minnast þegar lagið var bannað í enska útvarpinu, BBC, af því að „of mörg orð eru í textanum” til að það hefði getað náð vinsældum. Soldánar svingsins urðu þvi fyrst að slá i gegn í Bandaríkjunum áður en þeir fóru að heyrast á öldum ljós- vakans í Englandi. í Bandaríkjunum hefur hljóm- sveitin Doobie Brothers tekið við toppsætinu af Bee Gees. Þar er í þriðja sæti ákaflega merkilegt lag, sem aldrei átti að verða vinsælt, lagið Music Box Dancer. Þetta lag var gefið út árið 1974 og var aldrei ætlað til annars en að verða leikið í bandariskum útvarpsstöðvum sem sérhæfa sig i rólegri tónlist. Fyrir mistök var það sent með nýjum lögum til rokkstöðvar einnar bandarískrar. Þar var lagið prófað með öðrum nýjum og sjá. . . forráðamönnum stöðvarinnar leizt ágætlega á laglin- una. — Ævintýrin gerast svo sannar- lega ennþá. Þaö er sannkölluö tilbreyting aö sjá ekki Bee Gees I efsta sæti neins af erlendu vinsældalistunum fimm öðru hvoru. Þessi gamla mynd er af þeim Barry og Robin Gibb, þar sem þeir leiða hálfbróður sinn Brian á milli sin. Vinsælustu litlu plöturnar F ENGLAND 1. (1) 1WILL SURVIVE 2. (7) IN THE NAVY Village People 3. (3) SOMETHING ELSE Sid Vicious/Sex Pistols 4. (12) COOL FOR CATS 5. (5) 1 WANT YOUR LOVE Chic 6. (9) SULTANS OF SWING 7. (20) BRIGHT EYES 8. (14) TURN THE MUSIC UP .. Players Association 9.(2) LUCKY NUMBER 10. (23) HE'S THE GREATEST DANCER .. . Sister Sledge BANDARÍKIN 1. (2) WHAT A FOOL BELIEVES 2. (1ITRAGEDY 3. (9) MUSIC BOX DANCER Frank Mills 4. (7) KNOCK ON WOOD 5. (6) SULTANS OF SWING 6. (3) DA YA THINK l'M SEXY 7. (4) 1 WILL SURVIVE 8. (8) EVERY TIME1THINK OF YOU 9. (12) HEART OF GLASS 10. (10) LADY HOLLAND 1. (5) IN THE NAVY 2. (1) FIRE 3. (2) LAY YOUR LOVE ON ME 4. (3) SHAKE YOUR BODY 5. (7) LUCKY NUMBER 6. (4) CHIQUITITA ABBA 7. (6) TRAGEDY 8. (12) AMERICAN GENERATION 9. (11) RUTHLESS QUEEN 10. (10) MAMA LEONE HONG KONG 1. (3) 1JUST FALLIN LOVE AGAIN 2. (1) TRAGEDY 3. (8) LOTTA LOVE Nicolette Larson 4. (5) SULTANS OF SWING 5. (14) MUSIC BOX DANCER 6. (2) MACHO 7. (4) Y.M.C.A 8. (9) 1 WILL SURVIVE 9. (6) A LITTLE MORE LOVE .. Olivia Newton-John 10. (7) ANAK (CHILD) VESTUR — ÞÝZKALAND 1. (1) Y.M.C.A 2. (3) CHIQUITITA ABBA 3. (2) SANDY 4. (4) 1WAS MADE FOR DANCING 5.(11) BABY IT'S YOU 6. (7) TOO MUCH HEAVEN 7. (10) WE'LL HAVE A PARTY TONITE .... 8. (5) DA YA THINK l’M SEXY 9. (6) KISS YOU ALL OVER Exile 10. (9) ACCIDENT PRONE

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.