Dagblaðið - 06.04.1979, Page 19

Dagblaðið - 06.04.1979, Page 19
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1979. 23 Það er unnið eftir bónuskerfi. Grunnlaunin geta allt að því fjór- faldazt ef staðið er fram á nóttina og hamazt hverja stund. iIrji»ÉEr~ fi iJb i \ í » 1 Li 1 WR' I mkwSL m I Ir® f 1- / JShH [';,;X y —JS \m* mm 11 ■■ aldri. Þar ofan á kemur bónus. Sverrir Guðmundsson verkstjóri sagðist halda að meðallaun væru um 70 þúsund krónur á viku (miðað við um 50stundir). En þær sem væru harðastar í bónusnum mundu komast upp í 100 þúsund. Ef um verulega kvöld og næturvinnu er að ræða geta vikulaunin farið upp í 150 þúsund. Þrátt fyrir allan þann glæsileik sem prýðir húsið og ekki sízt hinn óveniu- skemmtilega matsal virtist ráða- mönnum um og ó að hleypa inn ljós- myndurum. Okkur var tekið með fyllstu kurteisi, en mikilli tortryggni. Var þvi líkast sem við værum að ráðast inn í stofnun sem annaðhvort væri fangelsi eða leynileg vopnaverk- smiðja, sem ísbjörninn er að sjálf- sögðu ekki. Máske hafa þeir haldið að við ætluðum að skemma færi- ‘böndin með þvi að lauma hand- Fólkið skilur eftir slorug stígvélin áður en það fer inn i matsalinn. Loftið er mjög gott i húsinu og allt hreinlæti til fyrirmyndar. Þær eru á ýmsum aldri konurnar sem vinna þama og virðist samt koma vel saman. Okkur heyrðist þessar heita f.v. Astrid, Katla og Elísabet, og vonum að það sé rétt. A leið niður i vinnusalinn. Þung handriðin gefa húsinu sérstakan blæ. Það er teiknað af Ingimundi Sveinssyni og Garðari Halldórssyni. sprengjum undir þau. Eða halda æsingaræður móti bónuskerfinu, en andstæðingar þess telja, að það brjóti niður líkamlega og andlega heilsu verkafólksins. En okkur var ekkert slikt í huga Við vorum aðeins að heiðra blessað- an þorskinn, sem við öll byggjum af- komu okkar á, með því að heim- sækja staðinn þar sem vinnsia hans er starfrækt af hvað mestum myndar- skap og hagsýni. Svo vonum við að sólin haldi áfram að skína á okkur og þorskinn. -IHH. Ihsxi INSTANT pxq vinnupallar Hinir velþekktu Instand ál-vinnupallar voru fyrst framleiddir áriö 1947 og hafa því veriö notaðir yfir 30 ár meö góöum árangri. Instant ál-vinnupallar eru settir saman úr einingum, sem vega 25 kg hver. Tvær gerðir eru af hjólum er nota má eftir undirlagi. Samskeyti eru öll kaldpressuð, er gefa þrisvar sinnum meiri styrkleika en soöin samskeyti. Engar lausar súlur, skrúfur eöa rær. Grindin er oþin og auðveldar þaö flutning á efni. Samsetning þaö fljótleg aö tveir menn geta slegiö upp 10 m turni á hálftíma. 15 cm öryggislisti um fótpall. Einstaka hluti sem slitna, má auöveldlega skipta um. Instant ál-vinnupallar eru viöurkenndir af norska, sænska og danska öryggiseftirlitinu. Okkar vinnupallar tryggja fullkomiö öryggi. / flPr m OPIN GRIND SAMSKEYTI OPIN SAMSKEYTI LOKUÐ ENGAR LAUSAR STENGUR, SKRUFUR EÐA RÆR. ÞEGAR GAFLARNIR ERU KOMNIR RÉTTA STÖDU LÆSIST HORNSTAGIÐ MEO FJÖÐUR. pflLmn/on & val//o(i Ltd Ægisgötu 10. Sími 27745.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.