Dagblaðið - 10.04.1979, Page 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1979.
5
Seldu ísf irðingum ónýta olíumöl:
„Yfir 40 millj-
ónum var
kastað á glæ”
—segir f orseti bæjarst jórnar á ísafirði
Bæjarsjóður Isafjarðar kastaði
yfir fjörutíu milljónum á glæ í
kaupum á olíumöl frá Olíumöl h.f. í
fyrra, sagði Guðmundur H. Ingólfs-
son, forseti bæjarstjórnar á Isafirði, í
umræðum á bæjarstjórnarfundi þar
fyrir skömmú.
Fyrir fundinum lá að ræða niður-
stöður rannsóknar Rannsóknarstofn-
unar byggingariðnaðarins á olíumöl-
inni, sem kaupstaðurinn hafði keypt
til að binda með götur. Tvð sýni voru
tekin til rannsóknar sl. haust og
fjögur í febrúar sl. Niðurstaöan varð
sú, að sögn Vestfirzka fréttablaðsins,
að fimm sýni reyndust ónothæf í
bundið slitlag og það sjötta var mjög
slæmt. Viðloðunin var ekki nema um
20 gráður, en olíumöl er talin góð ef
viðloðuner80—lOOgráður.
Guðmundur H. Ingólfsson sagði á
bæjarstjórnarfundi vestra fyrir
skemmstu að þarna hefði yfir fjöru-
tíu milljónum verið kastaö á glæ með
olíumalarkaupunum og víst væri að
bæjarfélagið þyldi ekki mörg áföll af
þessutagi. -ÓV.
Samvinnuskólinn:
Fyrirtæki stof nuð og rekin —
vandamál mannlegra sam-
skipta leyst á námskeiðum
Framleiðslufyrirtæki eru stofnsett og
starfrækt af þátttakendum í nýjustu
námskeiðum Samvinnuskólans í
Bifröst.
Við stofnun og rekstur slíkra fyrir-
tækja koma fyrir margvísleg stjórn-
unarvandamál, bæði á tæknilega
sviðinu og í mannlegum samskiptum.
Fyrsta námskeið af þessari gerð var
haldið í ' marzmánuði síðasdiðnum
undir handleiðslu tveggja kennara frá
danska samvinnuskólanum. Heita þeir
Jytte Hinerup og Helge Olesen. Tókst
námskeiðið afbragðsvel, að sögn þátt-
takenda og kennara Samvinnuskólans
að Bifröst.
Tuttugu og átta verzlunarstjórar kaup-
félagsverzlana hvaðanæfa af landinu
sóttu námskeið sem haldið var síðari
hluta marzmánaðar. Var þá haldið
öðru sinni hið nýstárlega stjórnunar-
námskeið og þá af kennurum Sam-
vinnuskólans í Bifröst. Á þessu verzl-
unarstjórnarnámskeiði var einnig
kennd skiltagerð og útstillingar, skipu-
lagning verzlana, pantanir og birgða-
hald, notkun innkaupasöluskýrslna,
kassauppgjör, vinnuskipulag og fleira.
Leiðbeinendur á síðastnefnda nám-
skeiðinu voru þrír kennarar Samvinnu-
skólans, þeir Sigurður Sigfússon, Þórir
Þorvarðarson og Þórir Páll Guðjóns-
son, sem' hefur umsjón meðn ám-
Nokkrir þátttakendur á einu stjórnunarnámskeiði Samvinnuskólans i BifrösL skeiðahaldi skólans.
Mynd: Sig. Sigfússon. -BS.
Á síðastliðnu ári var tekin upp sú
nýbreytni í starfsemi skólans að farið
var að halda námskeið fyrir starfsfólk
samvinnuhreyfingarinnar i landinu.
Aðallega hafa verið haldin slík
námskeið fyrir fólk sem starfar við
verzlun. Einnig hafa verið haldin
námskeið fyrir félagskjörna endur-
skoðendur.
ivláttur góðra auglýsinga er mikill. Það myndi sannast áþreifanlega ef vissar verzlanir
hengdu upp auglýsingaskilti eins og það sem sjá má lengst til vinstri á myndinni af
þátttakendum i gerð auglýsingaskilta i Samvinnuskólanum.
Mynd: Sig. Sigfússon.
Fjörutíu námskeið hafa verið haldin
á undanförnum 11 mánuðum með um
eitt þúsund þátttakendum. Bæði eru
þetta kvöldnámskeið sem haldin hafa
verið úti í félögunum og lengri nám-
skeið sem haldin hafa verið í Bifröst.
Skólanemar og kennarar nú
í f iskvinnslu — því landburður er af fiski á Eskifirði
Landburður af fiski er nú á Eski-
firði og kemur sér vel að unglingar og
kennarar eru komnir i langt páskafrí
svo nóg er af fólki til móttöku í hrað-
frystihúsinu. Allir unglingar sem
fermdir voru í fyrra fá vinnu og eru
þeir ánægðir með að losna úr skólan-
um og vinna sér inn peninga.
Hólmatindur kom í morgun með
130—140 tonn eða fullfermi. Voru
um 100 tonn af þorski i því en hitt
ufsi ogkarfi.
Hólmanesið kemur á miðvikudag.
Var það búið að fá 140 tonn í
morgun.
Minni bátarnir fiska einnig ágæt-
lega, t.d. var Sæljónið búið að fá
500tonnfrá áramótum en fékk í fyrra
490 tonn á allri vertíðinni til 11. maí.
Tvö mjölskip koma í dag og taka
um 1100 tonn af mjöli.
Blásari annarrar vélasamstæð-
unnar í loðnubræðslunni bilaði á
sunnudaginn. Gengur verksmiðjan
nú með hálfum afköstum. Bræðsla er
langt komin, en þó eftir að bræða öll
bein sem safnazt hafa frá áramótum.
Eskfirðingar mega því búa við vondu
peningalyktina ennþá í hálfan
mánuð. Stanzlaust hefur verið brætt
frá 22. janúar í vetur.
Regina/ASt.
Járninganaglbítur stærð
Járningahamar stærð: n-
l= koparlásar
hófhlífar
Verzlið hagkvæmt
Póstsendum
Laugavegi 13
Sími13508