Dagblaðið - 10.04.1979, Side 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1979.
7
Óskarsverdlaunin voru afhent ínótt
Coming Home og The Deer
Hunter hlutu flest verölaun
Mótmæli fyrirutan leikhúsiö vegna The Deer Hunter
Kvikmyndin The Deer Hunter með
leikarann Robert De Niro í aðalhlut-
verki hlaut óskarsverðlaunin í ár. At-
höfnin fór fram í Los Angeles í nótt og
hófst klukkan tvö að íslenzkum tíma.
Það var gamla kúrekahetjan John
Wayne, sem afhenti verðlaunin og
hlaut frábærar viðtökur er hann gekk
fram.
Leikkonan Jane Fonda hlaut óskars-
verðlaunin sem bezta leikkona í aðal-
hlutverki,' fyrir. hlutverk sitt í kvik-
myndinni Coming Home. Hún flutti
ræðu sína á fingramáli og sagði meðal
annars að hún væri mjög glöð að fá
þessi verðlaun. Hún kvað myndina
Coming Home vera sér ákaflega hug-
leikna, bæði vegna efnisins og ekki
síður vegna þess að hún hefði kynnzt
svo stórkosdegu fólki við gerð myndar-
innar. — Þar átti leikkonan við þann
hóp fólks, sem slasaðist í Vietnam-
stríðinu og hlaut örkuml af.
Óskarsverðlaunin fyrir aðalhlutverk
karla féllu Jon Voight í skaut. Hann
lék sömuleiðis í kvikmyndinni Coming
Home — hetju, sem kemur heim úr
striðinu í hjólastól.
Kvikmyndin Coming Home hlaut
sömuleiðis óskarsverðlaunin fyrir bezta
handrit ársins.
The Deer Hunter hlaut ekki síður
mörg verðlaun en Coming Home. Auk
þess að vera verðlaunuð sem bezta
kvikmynd ársins, hlaut Michael
Cimino leikstjóri óskar fyrir sitt fram-
lag. Þetta er aðeins önnur kvikmyndin
sem hann leikstýrir.
The Deer Hunter hlaut einnig verð-
laun fyrir beztu klippingu og beztu
hljóðupptöku.
Kvikmyndalag ársins varð lagið Last
Dance úr kvikmyndinni Thank God
It’s Friday, sem Stjörnubíó tekur ein-
mitt til sýninga nú um páskana. Bezta
kvikmyndatónlistin var að dómi
bandariku kvikmyndaakademíunnar í
myndinni Midnight Express. Hún er
eftir Giorgio Moroder.
Bezta endurútsetning á kvikmynda-
tónlist er í kvikmyndinni Buddy Holly
Story. Leikarinn, sem fer með hlutverk
Hollys í myndinni, hlaut tilnefningu til
óskarsverðlauna sem leikari í aðalhlut-
verki, en varð ekki heppinn að þessu
sinni.
Leikarinn og leikkonan, sem hlutu
verðlaun fyrir bezta leik í aukahlut-
verki voru þau Christopher Walken
(The Deer Hunter) og Maggie Smith
(California Suite).
Kvikmyndin The Deer Hunter er af
mörgum talin full af kynþáttafordóm-
um. Hún gerist að hluta í Vietnam og
eru framleiðendurnir taldir mála full
svarta mynd af íbúum þess lands.
Nokkur mótmæli urðu fyrir utan leik-
húsið þar sem verðlaunin voru afhent
og voru meðal annars þrettán manns
handteknir.
Kvikmyndaleikkona ársins, Jane
Fonda, var spurð álits á The Deer
Hunter. Hún sagðist ekki hafa séð
myndina sjálf, en einmitt á þeirri ,
stundu væru margir vinir sínir fyrir
utan að mótmæla myndinni. Þeir teldu |
The Deer Hunter ómannlega og draga i
upp ranga mynd af Vietnam og íbúum |
þess lands. 1
Myndin Death On The Nile — jóla-
mynd Regnbogans — hlaut ein verð-
laun; fyrir beztu leikbúninga.
Deer Hunter hlaut fern
óskarsverðlaun, meðal
annars sem bezta kvik-
myndin og fyrir beztu
leikstjórnina.
Sir Laurence Olivier og Gregory Peck i hlutverkum sinum f myndinni Boys From
Brazil. Olivier hlaut sérstök heiðursverð laun fyrir framlag sitt til kvikmynda
undanfarna tjöra áratugi.
Superman fékk aðeins ein verðlaun;
fyrir tæknibrellur.
fyrir leik
Að sögn heimildarmanns Dag-
blaðsins í Los Angeles fór verðlaunaaf-
hendingin vel fram, án nokkurra
óvæntra atburða. Stærsta stund
kvöldsins var þegar Sir Laurence
Olivier tók við sérstökum heiðursóskar
fyrir framlag sitt til kvikmynda á síð-
ustu árum. Hann vann óskar fyrir
bezta leik í kvikmynd árið 1948, og var
tilnefndur til verðlauna að þessu sinni.
Hann varð að láta í minni pokann fyrir
Jon Voight, en fékk þó heiðursverð-
launin.
Þá var John Wayne sérstaklega vel
fagnað er hann steig fram til að af-
henda óskarinn Ul beztu kvikmyndar
ársins. Hann var nýlega skorinn upp
við krabbameini og tekinn burtu hluti
af maga hans.
- ÁT / Sigurjón Sighvatsson
ásamt Peter Austin
í Los Angeles
Coming Home — Jane Fonda og Jon
sinn f myndinni.
TILNEFNINGAR TIL SJÖ
VEIGAMESTU VERDLAUNA
Bezta kvikmyndin
Eftirtaldar fimm kvikmyndir voru
útnefndar til óskarsverðlauna i ár:
Coming Home
The Deer Hunter
Heaven Can Wait
Midnight Express
An Unmarried Woman
Bezta leikkona
Leikkonurnar, sem komu til álita
sem óskarsverðlaunahafar að þessu
sinni, voru þessar:
Ingrid Bergman (Autumn Sonata)
Ellen Burstyn (Same Time Next Year)
Jill Clayburgh (An Unmarried
Woman)
Jane Fonda (Coming Home)
Geraldine Page (Interiors)
Bezti leikari
Þessir leikarar þóttu standa sig
bezt í hlutveikum sínum frá því er
siðustu óskarsverðlaun voru afhent:
Warren Beatty (Heaven Can Wait)
Gary Busey (The Buddy Holly Story)
Robert De Niro (The Deer Hunter)
Laurence Olivier (The Boys From
Brazil)
Jon Voight (Coming Home)
Bezta leikkona í
aukahlutverki
Leikkonurnar í aukahlutverkum,
sem helzt komu til álita fyrir verð-
launaafhendinguna í nótt:
Dyan Cannon (Heaven Can Wait)
Penelope Milford (Coming Home)
Maggie Smith (California Suite)
Maureen Stapleton (Interiors)
Meryl Streep (The Deer Hunter)
Eftirtaldir leikarar í aukahlutverk-
um voru útnefndir til verðlauna:
Bruce Dern (Coming Homc)
Richard Farnsworth (Comes A
Horseman)
John Hurt (Midnight Express)
Christopher Walken (The Deer
Hunter)
Jack Warden (Heaven Can Wait)
Bezti leikstjóri
Þessir fimm leikstjórar bitust um
óskarsverðlaunin í nótt:
Hal Ashby (Coming Home)
Michael Cimino (The Deer Hunter)
Warren Beatty & Buck Henry
. (Heaven Can Wait)
Woody Allen (Interiors)
Alan Parker (Midnight Express)
Bezta lag
í kvikmynd
Eftirtalin fimm lög hlutu útnefningu
til óskarsverðlaunanna í ár:
Hopelessly Devoted To You —
Grease
Last Dance — Thank God It’s Friday
Thc Last Time I Felt Like This —
Same Time Next Year
Ready To Take A Chancc Again —
Foul Play
When You’re Loved — The Magic
Of Lassie
Bezti leikari í
aukahlutverki