Dagblaðið - 10.04.1979, Page 23
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. APRIL 1979.
Ci
23
Útvarp
Sjónvarp
i
UMHEIMURINN - sjénvarp í kvöld kl. 21,25:
Kjarnorkuver, Úganda og
utanríkisráðherrafundir
n r.
Umheimur sjónvarpsins í kvöld
verður í umsjón Boga Ágústssonar
fréttamanns. Hann sagðist að öllum
líkindum taka fyrir þrjú mál, nema
eitthvað breyttist stórlega.
Fyrsta málið er umræða um
kjarnorkuver. Eftir atburðina í Harris-
burg í Bandaríkjunum vilja eflaust
flestir fá að vita meira um þessi
mikilvirku tæki sem geta verið svo
hættuleg. Til að fræða fólk nánar um
málið verður rætt við Einar Júlíusson
starfsmann raunvísindastofnunar Há-
skólans.
Annað málið er utanríkisráðherra-
fundur Norðurlanda sem haldinn var
nýlega. Rætt verður við Benedikt
Gröndal utanríkisráðherra um það ti!
hvers þessir fundir séu og hvað við
íslendingar getum hugsanlega fengið
út úr þátttöku í þeim.
Atburðirnir I Harrisburg ollu skelfingu um allan heim. En á meðan verið var að ræða
um geislavirkni sáði þessi bóndi eins og ekkert væri fræi sinu við vegg kjarnorkuvers-
ins.
Síðustu á dagskránni er siðan mynd
frá Úganda. Myndin lýsir ástandinu
þar undanfarið og þeirri ógnarstjórn
sem Idi Amin beitti landsmenn. -DS.
KJARNORKUBYLTINGIN — sjónvarp í kvöld kl. 20,30:
Sprengjan á Hirosima
Þættirnir um atómbyltinguna halda
áfram i dag í sjónvarpi. Óhætt er að
segja að fyrsti þátturinn sem fluttur var
á þriðjudaginn fyrir hálfum mánuði,
var verulega athyglisverður og útskýrði
kjarnorku á þann hátt að venjulegt
fólk gat skilið.
í öðrum þætti Atómrannsóknir á
styrjaldartímum er fjallað um sögu
atómrannsókna meðan á seinni heims-
styrjöldinni stóð, en yfir þeim var eins
og kunnugt er mikil leynd. 1 Banda-
ríkjunum hefjast rannsóknirnar aðal-
lega við háskólann í Chicago þar sem
Fermi og samstarfsmönnum hans tekst
fyrstum að koma af stað keðjuverkun í
kiofningu úransins. Árið 1942 fékk
herinn yfirumsjón með öllum þessum
rannsóknum og þær urðu að Manhatt-
an áætluninni sem miðaði beint að
smíði kjarnorkusprengju. Að þessari
miklu áætlun unnu 150 þúsund manns
og kostaði hún um 2 milljarða dala.
Fóru rannsóknirnar aðallega fram í
eyðimörkinni í Nýju Mexico undir
stjóm Roberts Oppenheimers og tókst
þeim að fullgera sprengju á um tveim
og hálfu ári. Um það leyti lézt
Roosevelt og Truman tók við. Hann
hafði þá enga hugmynd um þessa
áætlun, en ákvað strax að varpa
Fyrsta bandaríska kjarnorkusprengjan.
sprengjunni á Japan, og var fyrsta
tilraunin með þessa nýju sprengju gerð
í eyðimörkinni í Nýju Mexico þann 16.
júlí 1945. Þættinum lýkur með uppgjöf
Japana eftir að kjarnorkusprengjum
hafði verið varpað á Hiroshima og
Nagasaki.
í þriðja þætti er lýst vitfirringslegu
vígbúnaðarkapphlaupi stórveldanna
eftir styrjöldina, sem engan veginn sér
fyrir endann á ennþá og síðasti
þátturinn er helgaður hagnýtingu
kjarnorkunnar í friðsamlegum tilgangi.
-DS.
Útvarp
Þriðjudagur
10. apríl
12.25 Veðurfregnir. Fréttir.Tilkynningar.
Á frívaktinni. Sigrún Sigurðardóttir kynnir
óskalög sjómanna.
14.30 Námsgrelnar 1 grunnskóla; — (jórði og
síóasti þáttur. Birna G. Bjarnleifsdóttir tekur
fyrir heimilisfrœði og liffræö*. Rætt við náms-
stjórana Bryndisi Steinþórsdóttur og Hrólf
Kjartansson.
15.00 Miódeglstónleikar: Noðl Lee lcikur
„Myndir", pianólög eftir Claude Debussy. /
Dietrich Fischer-Dieskau s>mgur „Grafhvclf-
ing elskendanna”, ballöðu eftir Carl Loewe;
Jörg Demus leikur á pianó.
15.45 TO umhugsunar. Karl Helgason lög
fræðingur sór um þáttinn, þar sem fjallað
verður um AA-samtökin og rætt við fólk úr
fcrða-ogskemmtiklúbbnum Bata.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veður-
frcgnir).
16.20 þjódleg tónlist frá ýrasum löndum. Áskell
Másson kynnir á ný rúmenska tónlist.
16.40 Popp.
17.20 Tónlistartími barnanna. Egiil Friðieifsson
stjómar tímanum.
17.35 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Hvemig getum vió eflt félagslega aóstoó
vió aldraó fólk? Séra lngimar Ingimarsson i
Vík i Mýrdal fly tur erindi.
20.00 Planólelkur. Lazar Berman leikur Pianó-
sónötu nr. I i fis moll op. 11 eftir Robert
Schumann.
20.30 Otvarpssagan: „Honn fordæmdi” eftir
Kristján Bender. Valdimar Lárusson les (3)
20.55 Kvöldvaka. a. Einsöngun Anna Þórhalls-
dóttir syngur islenzk þjóðlög og leikur undir á
langspil. b. I apiil fyrir 75 árum. Gunnar M.
Magnúss rithöfundur les nokkra kafla úr bók
sinni. „Það voraði vel 1904”. c. 1 Bragatúni.
Sigurður Kristinsson kennari fer með visur og
kviðlinga eftir Héraðsbúa fyrr og slðar. d.
Njála notuó sem húslestrarbók á páskum um
borð i fiskiskipi. Guðmundur Bemharðsson
frá Ástúni á lngjaldssandi segir frá fyrstu sjó
ferð sinni. Óskar Ingimarsson lcs frásöguna.
e. Vetrarstundir. Jónas Jónsson frá Brekkna
koti flytur hugleiðingu. f. Kórsöngun Karla-
kór Akureyrar syngur. Söngstjóri: Áskell
Jónsson. Píanóleikari: Guðm. Jóhanns
son.
22.30 Fréttir. Veðurfregnir. Dagskrá morgun
dagsins.
Lestur Passiusálma (48).
22.55 Vlósjá: ögmundur Jónasson sér um þátt-
inn.
23.15 A hljóóbergi. Urasjónarmaður: Bjöm Th.
Bjömsson listfræðingur. Sir John Gielgud
leikari les úr ástarsonnettum Shaktspeares.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Miðvikudagur
11. apríl
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar.
7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturinn. Umsjónarmenn: Páil
Heiðar Jónsson og Sigmar B. Hauksson (8.0C
Fréttir).
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.).
Dagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir ýmis lög aó eigin
vali. 9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: Guðrún
Guðlaugsdóttir iýkur lestri sögunnar „Góðan
daginn, gúrkukóngur” eftir Christinc
Nöstlinger i þýöingu Vilborgaj- Auðar ísleifs
dóttur (13).
9.20 LeikfimL
9.30 Tilkynningar.Tónlcikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Morgunþulur kynnir ýmis lög frh.
11.00 Höfundur kristindómsins, bókarkafli eftir
Charles Harold Dodd. Séra Gunnar Bjömsson
i Bolungarvik les kafla um dauða og upprisu
Krists, — annan hluta af þremur.
11.25 Kirkjutónlist: Máni Sigurjónsson kikur á
Steinmeyerorgcl noröur þýzka útvarpsins i
Hamborg
I
D
Sjónvárp
Þriðjudagur
10. apríl
20.00 Fréttir og veóur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Kjarnorkubyltíngin. Franskur fræðslu-
myndaflokkur i fjórum þáttum um sögu og
þróun kjameðltsvlsindanna. Annar þdttur.
Kjarnorkan á strióstímum. Þýðandi og þuiur
Einar Júlíusson.
21.25 Umbelmurínn. Viðræðuþáttur um erknda
viðburði og mákfni. Umsjónarmaður Bogi
Ágústsson.
22.20 Hulduherinn. Annaó tækifærL Þýðandi
EUert Sigurbjörnsson.
23.10 Dagskrirtok.
HÖFUNDUR KRISTINDÓMSINS,
— útvarp ífyrramálið:
Ákaf lega skemmti-
leg og f róðleg bók
Séra Gunnar Björnsson í Bolungar-
vík les í fyrramálið annan lestur
bókarinnar Höfundur kristindómsins
eftir Charles Harold Dodd.
Gunnar sagði að Dodd væri einn af
virtustu nýjatestamentisfræðingum
sem uppi væri og að bókin Höfundur
kristindómsins hefði vakið verðskuld-
aða athygli þegar hún kom út árið
1970.
í fyrsta lestrinum sem var fyrir viku
var sagt frá því hvernig gyðinglegum
yfirvöldum í Jerúsalem geðjaðist ekki
að kenningum Krists. Þau lögðu því á
ráðin um að fá hann dæmdan til dauða
en til þess að Rómverjar, sem voru í
dauðadóminn urðu þeir að beita mikl-
um klókindum.
í lestrinum í fyrramálið verður síðan
sagt frá því er Jesús var líflátinn,
afleiðing af útsjónarsemi gyðinganna.
1 þriðja lestrinum sem verður
miðvikudaginn eftir páska er síðan sagt
fráupprisu Krists.
Heimildir Dodd að bókinni eru
byggðar á guðspjöllunum og öðrum
þeim samtímaheimildum sem tiltækar
eru. Bókin er að sögn Séra Gunnars
ákaflega skemmtileg og um leið
einstaklega fróðleg.
-DS.
SKARTGRIPIR
Fermingargjöfín í ár
SIGMAR Ó. MARÍUSSON
Hverfisgötu 16A — Sími 21355.
Lmnenition
YFIR
5500 BÍLAR
Á 3 árum hafa selzt yfir 5000
LUMENITION kveikjur á íslandi.
Þetta væri óhugsandi, nema ánægðir
kaupendur hefðu mælt með ágæti
búnaðarins.
Hefur þú kvnnt þér kosti LUMENITION platinulausu
kveikjunnar?
fim, HðBFP17hf
Skeitunni íe • Simi J