Dagblaðið - 10.04.1979, Page 24
Hundraðföldun krónunnar f restast til 1981:
N
„Alþingi ekki stimpil-
stofnun Seðlabankans”
— segir Ólafur Ragnar Grímsson, sem á sæti í þingnefnd þar sem afgreiðsla
málsins hef ur strandað
„Seðlabankastjóri getur ekki
gengið út frá, að Alþingi sé stimpil-
stofnun fyrir Seðlabankann,” sagði
Ólafur Ragnar Grímsson, sem á sæti
í fjárhags- og viðskiptanefnd efri
deildar, í viðtali við DB í morgun.
Ólafur taldi að dr. Jóhannes
Nordal seðlabankastjóri hefði lýst
yfir, að ekkert væri eftir til að taka
tvö núll aftan af krónunni annað en
formlegt samþykki Alþingis. „Þessi
lítilsvirðing seðlabankastjóra á
Alþingi mun hafa farið í taugarnar á
nefndarmönnum,” sagði Ólafur
Ragnar.
Ólafur sagði að í nefndinni hefðu
komið fram tvö meginsjónarmið um,
hvort raunhæft væri að framkvæma
V .............
hundraðföldun krónunnar um næstu
áramót. Annars vegar það sjónar-
mið, að breytingin yrði að gerast í
hagstæðum efnahagslegum kringum-
stæðum. í öðru lagi hefði það
sjónarmið komið fram, að breytingin
yrði að gerast á sem breiðustum
grundvelli, með stuðningi bæði
stjórnar og stjómarandstöðu.
Til viðbótar áðurnefndum sjónar-
miðum hefði það tafið meðferð
málsins, að síðustu vikur hefði efna-
hagsfrumvarpið tekið allan tíma fjár-
hags- og viðskiptanefndar efri
deildar. Með þeim hætti var frem-
varp Svavars Gestssonar viðskipta-
ráðherra um hundraðföldun krón-
unnar um næstu áramót ekki afgreitt
úr nefndinni fyrir páskafrí.
Gjaldmiðilsbreytingin virðist því
frestast til 1981.
Viðskiptaráðherra
samþykkir frestun
um eitt ár
„Málið hefur dregizt fyrir þinginu,
og eiginlega er komið fram á eindaga
að koma því í framkvæmd á þessu
ári,” sagði dr. Jóhannes Nordal
seðlabankastjóri í viðtali við DB í
morgun. „Viðskiptaráðherra hefur
fyrir sitt leyti samþykkt, að frum-
varpinu verði breytt og framkvæmd
frestað um eitt ár, en engin formleg
ákvörðun hefur verið tekin,” sagði
Jóhannes Nordal.
,,Eins og ástandið er núna er
það mín persónulega skoðun að þetta
verði varla framkvæmanlegt 1.
janúar næstkomandi. Þetta tækifæri
er úr greípum oklcar gengið. ”
Jóhannes Nordal sagðist vísa á bug
staðhæfmgum um að Seðlabankinn
hefði sýnt Alþingi lítilsvirðingu.
Bankinn hefði ekki tekið neina
endanlega ákvörðun og ekki staðfest
neinar pantanir. Tæknilegur undir-
búningur, sem gerður hefði verið,
mundi koma að notum í sambandi
við útgáfu nýrra seðla og mynta,
hvort sem gjaldmiðilsbreyting yrði
eðaekki. -HH.
Þorskveiðibannið hefst f dag
Á hádegi í dag gengur í gildi bann við þorskveiðum og verður bannað að hafa
nokkur þorskfisknet í sjó frá 10.—17. apríl. Þá má hlutfall heildarafla skuttogara
ekki verða yfir 15% þorskur í 7 daga á tímabilinu 10.—20. apríl.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur hins vegar gefið undanþágur frá þessu banni.
Ná undanþágur þessar til báta frá Norður- og Norðausturlandi. Er bátum sem
þar eru skráðir heimilt að stunda veiðar þennan tíma þar sem hafís hefur hindrað
veiðar þeirra. Gildir þetta um báta sem skráðir eru á svæðinu frá Horni að Gerpi,
enda hafi þeir tafizt frá veiðum um a.m.k. viku. Undanþágan nær þó ekki til skut-
togara.
1 gærkvöldi og morgun hafa bátarnir smám saman verið að tínast inn fyrir
bannið. Þessi mynd var tekin síðdegis í gær, er Hrólfur AK 29 kom inn til Akra-
ness. -GAJ- DB-mynd Sv. Þorm.
Skömmu fyrir kl. 3 í gær varð
enn eitt slysið á mótum Vestur-
landsvegar og Höfðabakka. Vöru-
bíU sem ók Vesturlandsveginn frá
Reykjavík og hugðist sveigja til
vinstri niður Höfðabakkann ók
hreinlega á fólksbíl sem kom í átt
til bæjarins á aðalbrautarakrein.
Má fólksbíllinn kallast ónýtur.
Kona sem honum ók hlaut skurð á
enni og höfuðhögg, en mun
hafa fengið að fara heim eftir að
gert var að sárum hennar. Fólks-
blllinn lenti eftir áreksturinn á
Broncobil sem beið færis að
komast yfir við gatnamótin.
^ ASt/DB-mynd R.Th.Sig.^
Úr tillögu á aðalf undi Flugleiða í dag:
Sameiningin jók
vanda félaganna
- stjórnarformaður og aðalforstjóri reyndu að hafa áhrif á flutningsmann
„Að vísu er samkeppnin úr sög-
unni en í stað hennar hafa komið
önnur vandamál, sem segja má að
séu bæði margvíslegri og flóknari en
hin eldri vore,” segir m.a. í tillögu
Kristjönu Millu Thorsteinsson, konu
Alfreðs Elíassonar, Flugleiðafor-
stjóra, sem hún mun leggja fram á
aðalfundi félagsins i dag.
í ljósi þessa leggur hún til að félög-
unum verði aftur skipt í hlutföllunum
liðlega 46,4% til Flugfélags íslands
og liðlega 53,5% til Loftleiða.
Félögin haldi þeim flugleiðum sem
þau höfðu fyrir sameiningu og
hugsanlega einhverri samvinnu þar'
sem henta þykir.
Telur Kristjana Milla sameining-
una ekki hafa náð þeim þjóðhagslegu
markmiðum í rekstri sem vænzt var.
DB er kunnugt um að mjög skiptar
skoðanir eru innan stjómarinnar um
þessa tillögu og í gær héldu Kristján
Guðlaugsson stjórnarformaður og
Örn Johnson aðalforstjóri lokaðan
fund með Millu um málið þar sem
talið er að þeir hafi reynt að fá hana
ofan af tillöguflutningnum.
- GS
fijálst, nháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR10. APRÍL 1979
Bankaráð
kærði ekki
bankastjóra
Alþýðu-
bankans
„í skýrslu formanns stjórnar
Alþýðubankans siðastliðinn laugardag
kom fram, að hvorki fyrrverandi né
núverandi bankaráð hefðu ákært fyrr-
verandi bankastjóra,” sagði einn
fundarmanna, er fréttamaður DB
spurði að því, hvort eldri mál bankans
hefði borið á góma á aðalfundinum.
Viðmælandi blaðsins bætti við, að
einnig hefði komið fram, að allur mála-
tilbúnaður hefði verið af hendi ríkis-
saksóknara. Hvort hann svo áfrýjaði
dómsniðurstöðunni til Hæstaréttar,
lægi ekki fyrir. -BS
Aðalfundur Flugleiða
ídag:
Enn deilt
um merkið
Einn hluthafa Flugleiða, Úlfar
Nathanaelsson, mun á aðalfundi Flug-
leiða í dag bera fram tillögu þess efnis
að efnt verði til samkeppni um gerð nýs
merkis fyrir félagið, bæði innanlands
og eriendis.
Skuli stjórnin svo á aðalfundi að ári
bera tíu beztu tillögurnar undir aðal-
fund.
- GS
Játaði tvö
innbrot sömu
nóttina
24 ára gamall Hafnfirðingur hefur
viðurkennt innbrot í skrifstofur bæjar-
fógeta og sýslumanns í Hafnarfirði 24.
marz sl. Þar voru aðallega skemmdir
unnar en litlu einu stolið, aðallega gam-
alli mynt. Sömu nótt fór sami maður
óboðinn inn í Snekkjuna, þar sem
Skiphóll var áður. Þar stal hann
nokkrum flöskum af áfengi.
- ASt.
Hleðslumenn
ívinnuáný
Hleðslumenn innanlandsflugs Flug-
leiða lögðu í gær niður vinnu í nokkum
tíma til að funda um kjaramál sín.
Deilt er um það hvort þeir sem farið
hafa á námskeið að loknu 12 mánaða
starfi eigi rétt á 5% launahækkun að
því loknu. Ekki náðist endanlegt sam-
komulag um þetta í gær en þó bundu
menn svo miklar vonir við að sam-
komulag næðist að ákveðið var að taka
upp vinnu að nýju og vinna sleitulaust
fram yfir páska.
- DS