Dagblaðið - 02.05.1979, Side 1

Dagblaðið - 02.05.1979, Side 1
5. ÁRG. - MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ1979- 98. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÍJLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl 1 l.-AÐALSÍMI 27022. SEX ESKFIRDINGAR DRUKKNUÐUIFYRRINÓTT — bátur þeirra, Hrönn SH149, sökk skyndilega innan Vattarness í Reyðarfirði Sex menn frá Eskifirði fórust fyrrinótt er skip þeirra Hrönn SH 149, 41 lestar eikarbátur smiðaður 1956, fórst þá er það var komið nokkuð inn fyrir Vattarnes í Reyðar- firði á leið frá Breiðdalsvík heim til Eskifjarðar. Sendu skipverjar út neyðarkal! kl. 22.55 á mánudags- kvöldið og beindu kallinu til annars báts, m.b. Magnúsar frá Neskaup- stað, sem var skammt undan. Skipverjar á Magnúsi og Sigurður Úlfarsson bóndi í Vattarnesi höfðu séð bátinn og liðu ekki nema 15—20 mínútur þar til Magnús var kominn á þann stað er Hrönn sökk. Fannst þar þegar margs konar brak út bátnum en ekkert lífsmark. Félagar i SVFÍ deildinni Brimrún á Eskifirði voru mjög fljótir á vett- vang, 15—20 menn komnir til starfa 10 mínútum eftir að neyðarkallið barst. Fimm bátar frá Neskaupstað og tveir frá Reyðarfirði hófu leit ásamt Magnúsi og síðar kom varðskipið Týr til leitar og gæzluvélin í birtingu. SVFÍ menn frá Eskifirði hófu leit með norðanverðri strönd Reyðar- fjarðar en Reyðfirðingar leituðu sunnanmegin. Eftir að skip höfðu komið á slys- staðinn og fundið brakið, lestarlúg- ur, lunningabrot, brak úr lúkar, neta- hringi, belgi, bjarghringi o.fl. þótti ljóst að óþarft væri að leita á stóru svæði með ströndinni að einhverju er úr bátnum ræki. Var aðstaðan og erfið, um eða yfir 8 vindstig, sjógang- ur talsverður og ísing mikil bæði út á sjó og í fjörum.. Yfirumsjón með leitinni hafði Skúli Magnússon for- maður Brimrúnar. Um hádegi í gær fannst lík eins skipverjanna, Stefáns V. Guðmunds- sonar stýrimanns. Það var mb. Vota- berg sem fann líkið um hálfa mílu SV af Skrúð. Á sömu slóðum og jafnvel talsvert sunnar fundust netaflot- hringir og þykja straumar hafa haft mjög mikil áhrif árek þessara hluta. í nött voru björgunarsveitarmenn til skiptis meðfram allri strandlengj- unni frá Vattarnesi til Stöðvarfjarð- ar. í morgun var varðskip og fjórir bátar við leit strax í birtingu en þegar mest var voru 14 skip og fiugvél við leit í gær. Ekkert er með vissu vitað um hver orsök slyssing er. Á það er bent að is- ing var þarna mjög mikil og þegar inn fyrir Vattarnes er komið breytist stefna skipsins gagnvart vindátt og ís- ingarátt. —ASt/Regína, Eskifirði. íslendingar í átökum vjð danska ,raggara’: Ábatavegi eftir hníf- stungu íkvið „Þetta hefur ekkert komið til kasta sendiráðsins nema hvað við lásum urn árásina og batahorfur piltsins í blöðum hér,” sagði ritari í íslenzka sendiráðinu í Kaupmannahöfn, er hann var inntur nánar eftir árás danskra ,,r.iggara” (óróa- og árásarseggja) á hóp íslcnd- inga á skemmtistað i Höfn sl. laugar- dag. Lyktaði átökunum með því að einn íslendinganna var stunginn í kvið með hnífi, en er nú úr lífshættu og á góðum batavegi á sjúkrahúsi. Upptökin urðu á dansleik og forðuðu landarnir sér fljótt þaðan. Sátu þá ' rggararnir fyrir þeim með fyrrnefndum afleiðingum. F.r á slysa- varðstofu.ia kom, réðust rjgg.irarnir enn til atlögu, en lög-eglun skarst í leik-nn ogstuggaði þeim á brott án þc^s að I undtaka nokkurn þeirra. í viNur- eigninni handleggsbrotnaði einn r iggaranna og fékk að auki heilahrist- ing. -GS. Olíustyrkur tvöfaldaður Rikisstjórnin hefur ákveðið að tvö- falda olíustyrk vegna húshitunar, að sögn Svavars Gestssonar viðskiptaráð- herra í morgun. Auknar skatttekjur rikisins vegna hækkunar verðs á bensini og olíu munu ganga til þess meðal annars. Þá verður felldur niður söluskattur af gasolíu, sem kostar ríkið 250 milljónir. Nokkurri fjárhæð verður einnig varið til orkusparandi ráðstafana. Svavar sagði, að alls mundu fara um 1200 milljónir í framangreinda þætti. Bensinverðið hefði enn ekki verið nákvæmlega ákveðið en yrði liklega um 260krónurá lítra. -HH. Albert slær loks framboðinu föstu ,,Ég hefákveðið aðgefa kost ámér í framboði til formanns á landsfundi flokksins,” sagði Albert Guðmunds- son í viðtali við DB í morgun. ,,Ég tel að það sé lýðræöislegum vinnubrögðum hættulegt að hefta flokkinn i viðjar gamalla hefða,” sagði Albert. „Slíkar viðjar seinka eðlilegri þróun, sem samrýmist kröf- um nýrra tima hverju sinni,” bætti hann við. Með framboði sínu hyggst Albert losa um þessar viðjar, ef hann nær kjöri. Þetta framboð Alberts á sér nokkurn aðdraganda eins og DB hefur greint frá. Siðast i gær mun Ingólfur Jónsson á Hellu, hafa verið hvatamaður að tilraunum til sam- komulags í fiokknum á milli stuðningsmanna Geirs Hallgrims- sonar og Alberts Guðmundssonar. Þær tilraunir báru ekki árangur. Hefur Albert nú lýst því yfir, að hann bjóði sig fram i stöðu flokksfor- manns á landsfundinum. Verða þá að minnsta kosti tveir menn í kjöri, þeir Albert og Geir. Þá er vitað um tvö framboð i stöðu varaformanns, þeirra dr. Gunnars Thoroddsen og Daviðs Oddssonar og scnnilega býður Matthias Bjarnason sig fram að auki. -BS. l.maí: Fámenn hátíðahöld í ^ kuldastrekkingi Þeirsemfórust Þeir sem fórust með Hrönn SH 149, allir frá Eskifirði: — Jóhannes Steinsson skip- stjóri, Túngötu 6, fæddur 16.9. 1935. Hann átli konu og tvö börn, 21 og 15 ára. — Eiríkur Bjarnason, vélstjóri, Bakkastíg 5, fæddur 28.2. 1942. Hann átli konu og tvö börn, 18 og lOára. — Stefán V. Guðmundsson, stýrimaður, Bakkastig 9A, fædd- ur 9.6. 1927. Ókvæntur en sá fyrir fatlaöri aldraðri móður. — Kjartan Ólafsson, háseti, Túngötu 5, fæddur 5.12. 1947. Ókvæntur og bjó hjá foreldrum. — Sveinn Eiriksson, háseti, Fossgötu 3, fæddur 6.8. 1942. Bjó i foreldrahúsum. — Gunnar Hafdal lngvarsson, háseti, Dölum í Hjaltastaðaþing- há, fæddur 18.3. 1929. Hefur bú- ið á Eskifirði s.l. 2 ár. Ókvæntur og barnlaus. Sjöundi skipverjinn fórafskip- inu á Breiðdalsvík er það hætti róðrum þar nú. Hafði hann keypt sér bíl og ók suður til Reykjavikur þar sem hann býr. —ASt/Regina, Eskifirði. Menn voru sammála um, að aldrei hefðu færri tekið þátt í kröfugöngum og útifundum í Reykjavik í gær, 1. maí. Enda hafði einhver það á orði, að það væri bara ekki hægt að standa í verkalýðsbaráttu i svona kulda! Einstaka harðir baráttumenn létu þó ekkert bíta á sig og hér er Pétur Pétursson að halda ræðu i hífandi roki á Hallærisplaninu á fundi „Sameiningar 1. maí”. Pétur álti svo að tala á fundi Rauðrar verkalýðs- einingar, en þegar hann kom í Miðbæjarskólaportið voru allir farnir heim til sín. -HP/DB-mynd Bjarnleifur. sjá „Fram þjáðir menn á þremur stöðum” á bls. 6-7 I

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.