Dagblaðið - 02.05.1979, Page 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. MAl 1979.
7
einn innifund óvart i gær. Utifund-
irnir fóru prýðilega fram, nema hvað
einn anarkisti hrópaði skammaryrði í
portinu í Miðbæjarskólanum og var
auk þess áberandi ölvaður. Þeir seldu
þar blað, baráttumálum sínum til
stuðnings, en mér fannst þaðsvolítið
skrýtið, að Coca-cola auglýsing
prýddi baksíðu blaðsins.
En ég verð lika að játa það, að ég
er hvorki vel að mér i anarkistafræð
um, néauglýsingapólitik Coca-cola.
Pétur Pétursson var maður dagsins
og sótti færri fundi en hann vildi.
Pétur talaði á Hallærisplaninu yfir
„Marxistum og Stalinistum”,sem ég
kýs að hafa innan gæsalappa af þvi
að ég veit ekki betur og sagði sögur af
Rauðhettu og úlfinum og við Bjarn-
leifur hlógum svo mikið að við
vorum að drepast.
Bjarnleifur hefur þann sið að slá
menn á bakið ef honum finnst eitt-
hvað fyndið og það hélt í inér lifinu í
kuldanum í gær.
„Hótel Borg..."
. . . sagði Bjarnleifur og hortði
ibygginn í allar áttir þegar mér hafði
loksins tekizt að koma honum í skiln-
ing um, að ég yrði að fá eitthvað heitt
í magann.
Þjónninn horfði þannig á okkur
Bjarnleif að við „værum í lagi” og
þess vegna fengum við afgreitt það
sem við báðum um: „Kaffi og koniak
á okkar reikning” og þeir eftirlits-
menn sem lesa þessar linur verða
bara að horfast i augu við þá stað-
reynd, að við Bjarnleifur munum
aldrei gefa það upp hvenær við
vorum á Hótel Borg né heldur hver
bar okkur þann forboðna drykk, sem
er kaffi og koníak, i kulda og frosti i
Reykjavík. Það verður bara að hafa
það.
Áður en ég vissi af, vorum \ið
komnir i hörkuumræður um •ang
lifsins og það sem fyrir lægi hjá mér,
hlutur, sem er erfitt að tjá sig um \ n'
mér eldri mann og miklu reyndari.
Börn.
Bjarnleifur hló bara og sló á bakið
á mér.
Ekki kvarta ég.
Svo allt í einu hóf Einar Karl
Haraldsson sem er „kommi” upp
raust sína í hljóðnema og þar með
vorum við lentir á einum fundinuni
enn. Og ekki neinum smáræðisfundi.
Hvorki nteira né minna en „árlegum
fundi okkar sem stóðum i þessuni
sporum í fyrra” — fundi og
Bjarnleifur sagði alltaf af og lil:
,,Hann var góður þessi.”
Höfði
í Höfða höfðu borgarstjórnarfull-
trúar boðið til sín verkamönnum og
starfsmönnum Rcykjavikurborgar
scm voru, búnir að \inna i 50 ár cða
meira. Bjarnleifur var óskaplega
hrifinn og ég lika.
Þetta var I. mai.
-Pólursson.