Dagblaðið - 02.05.1979, Síða 8

Dagblaðið - 02.05.1979, Síða 8
8 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. MAl 1979. Leonid Brésnef mataðist aðeins með skeið i veizlu sem haldin var f siðustu viku til heiðurs Frakklandsforseta. TEFIA VEIKINDI BRÉSNEFS LOK SALTSAMNINGA? Versnandi heilsufar Leonid ■Brésnefs forseta Sovétríkjanna hefur að undanförnu valdið æðstu mönnum í Washington nokkrum óróa og ótta um að sjúkleiki hans gaeti valdið töfum á frágangi hinna svonefndu Saltsamninga. Þeir fjalla um takmörkun kjarnorkuvopna í heiminum. Áður var hugmyndin að bíða með lokafrágang Salt II þar til á fundi forsetanna Leonid Brésnefs og Jimmy Carters. Bandaríkjamenn hafa nú farið fram á að gengið verði frá öllum atriðum samninganna áður en þjóðarleiðtogarnir hittast. Munu Sovétmenn hafa fallizt á þá beiðni, sem mun fram komin vegna lélegs heilsufars Brésnefs forseta. Hann mun hafa gengið óstuddur upp á grafhýsi Lenins við 1. maí- hátiðahöldin í Moskvu í gær. Þó mun forsetinn hafa farið sér mjög hægt. Að sögn franskra fréttamanna, sem sáu Brésnef við heimsókn Valery Giscard d’Estaing forseta Frakklands til Moskvu í fyrri viku, er Brésnef jorðinn mjög hrumur líkamlega. Sögðu þeir hann hafa látið mikið á ,sjá siðustu tvö árin. Notaði hann aðeins skeið við matborðið í veizlu sem haldin var Frakklandsforseta til heiðurs. Indónesía: ÁTTATÍU FAR- AST í ELDGOSI —auk þess tugir slasaðir í öðru eldgosinu sem ríður yf ir Indónesíu f rá áramótum Að minnsta kosti áttatiu manns fórust í eldgosi á Vestur-Sumatra í gær. Vitað er auk þess um nokkra tugi sem slösuðust og óttazt er að tala látinna eigi eftir að hækka. í eldgosinu, sem varð í fjallinu Merapi sem ekki hefur látið á sér bæra um langa hríð, brast 'ifln sent var af náttúrurunnar hetuii. Flóði þá vatn sem verið hafði i ^ignurn niður fjallshlíðina og bar með sérbjörg ogjarðveg. Hundruð heimila eyddust og vatns- flóðið tók með sér sjö þorp, auk þess sautján brýr og vegi. Fundizt höfðu sextíu og fimm lík í morgun, auk þess sem talið var víst að fjórtán aðrir hefðu farizt, að sögn opinberra aðila. Mörg líkanna sem fundust voru illa farin. Höfðu þau grafizt undir aurskriðunum og vantaði bæði útlimi og höfuð á mörg líkanna. Lík eins fórnardýranna barst þrjátíu og fimm kílómetra frá heimili sínu. í febrúar síðastliðnum fórust eitt hundrað og fjörutíu manns af gas- eitrun, sem barst frá svonefndu Sinila eldfjalli á Mið-Jövu eftir að þar hafði gosið. Jarðfræðingar í Indónesiu benda á að þeir sem fórust í gær hafi ekki orðið fórnardýr sjálfs eldgossins, heldur flóðsins sem á eftir kom. Heimastjórn Margrét Danadrottning var viðstödd er Grænlendingar fengu heimastjórn við hátíðlega athöfn i gær. Danir hafa ráðið Grænlandi síðan 1721, er trúboðinn Hans Egede kom þar til að endurkristna landsbúa. Finlux Litsjónvörp \m FISHER Hljómtæki ^____ MallorY Rafhlöður ZENITH ZORKI - KIEV MYNDAVÉLAR TEC STEREO - FERÐAKASS- ETTUTÆKI MEÐ ÚTVARPI LW - MW - FM - SW. MED 4 HÁTÖLURUM AÐEINS KR. 102.000.- SJÓNVARPSBÚMN BORGARTÚN118 REYKJAVÍK SÍMI27099 SEKONIC Ljósmælar W audio technica Pickup Heyrnartól Astra Music Útvarpsklukkur Kvikmyndatöku Ijós og Sýningartjöld Þrifætur GINO Ljósmynda töskur SPECTRUM Sjónvarps leiktæki SUPER ZENITH Sjónaukar Danmörk: Mikil fækkun fóstureyðinga Fóstureyðingar í Danmörku voru færri í fyrra en nokkru sinni áður síðan hinn 1. október 1972, þegar þær voru gefnar frjálsar þar í landi. Fóstur- eyðingar í fyrra vöru framkvæmdar hjá 19,8 af hverjum eitt þúsund dönskum konum á aldrinum 15 ára til 49 ára. . Árið áður var samsvarandi tala 21,7. Danskir sérfræðingar telja, að jafn- vægi hafi aftur komizt á fæðingartölur eftir mikla fækkun á árunum 1975 til .1977. Flestar fóstureyðingar voru fram- kvæmdar í Danmörku árið 1975. Þá voru slíkar aðgerðir tæplega tuttugu og átta þúsund en fæðingar tæplega sjötiu og sex þúsund. í fyrra fæddust um það bil sextíu og tvö þúsund börn en fóstur- eyðingar voru rétt tæplega tuttugu og fjögur þúsund. Er það í fyrsta skipti síðan árið 1975, að fæðingum fækkar ekki fráárinu á undan. 1. maí, hátíðisdagur verkalýðsins: HERMENN í M0SKVU, VERKALÝÐSFÉLÖG BÖNNUÐ f M0SAMBIK Hermenn voru í fyrsta skipti í hátíðargöngunni á Rauða torginu í Moskvu á 1. maí hátíðahöldunum í gær. í Mosambik fyrrum portúgalskri nýlendu var hins vegar tilkynnt að hér eftir væri öll starfsemi verkalýðsfélaga bönnuð. Vinstri menn voru handteknir í.Istanbul í Tyrklandi, er þeir ætluðu að hafa bann við kröfugöngum að engu. Kurt Waldheim aðalritari Sam- einuðu þjóðanna tók þátt í göngu í Peking en þar er hann í opinberri heim- sókn. í Albaníu bar mest á for- dæmingarspjöldum. gegn Sovétríkjun- um, Kína og Bandaríkjunum. Hundruð þúsunda gengu í íran í tilefni dagsins. Auk þess var einn helzti trúarleiðtogi landsins drepinn á götu í Teheran í gærkvöldi. Þykir það bein ógnun við Khomeini trúarleiðtoga. Kröfur um meiri atvinnu settu mikinn svip á kröfugöngur í vestræn- um ríkjum. Talilð er að ein milljón manna hafi tekið þátt í fyrstu hátíða- höldum, sem haldin eru 1. maí á Spáni síðan hin nýja stjórnarskrá gekk í gildi. Þar var krafan um rétt verkamanna og fulla atvinnu efst á blaði.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.