Dagblaðið - 02.05.1979, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 02.05.1979, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ. MIDVIKUDAGUR 2. MAt 1979. frfálst, úhád dagblað «■ DaglMHð hf. FtanHivwndastíóri: Svslnn R. EyjóHsson. Rttstjóri: Jónas Kristjónmson. rittlsstjftrt- Jór. BtrgH Pétursson. Rttstjómsrfultrtjt: Haukur Hstgóson. Skrifstofustjóri ritstjómar Ifthsnnss RsyfcdsL ijuóttlr. Halur Stmonarson. Aóstoðarfróttasfjórar Attl Statnarsson og 6mar Valdl- marsaon. Marmkigannól: Aðaktslnn IngóHsaon. HsndrtC Asgrimur Pilsson. Blsðamsnn: Anna Bjamason. Asgair Tómasson, Bragl Slgufðsson. D6rs Stsfónadóftlr, Gbsur Slgurðs- son, Gurmlaugur A. Jónsson, HaHur Halbson, Halgl Pótumson, Jónas Hsrsldsson. Ólsfur Qslrsson, Ólafur Jónsson. Hðnnun: Quðjón H. Pólsson. gósmyndlr Aml Pó> Jóhannsson, BjamlsHur BjamlsHsaon, Hörður Vlhjólmsson, Ragnar Th. Stgurðs- son, Svsinn Pormóðason. Sfcrifstofustjóri: Ólsfur EyjóHsson. Gjaldkarl: Þrólnn PoriaHsson. Sökistjórt Ingvar Svalnsson. DrsHlng- aratjóri: Mór E.M. Haðdórsson. Rltst|óm Slóumúla 12. AfgrslSsla. óskriftadsld, sugtýslngar bg skrifstofur Þvsrtiotti 11. Aðatsknl hlaðskis sr 27022 (10 inurl. Askrift 3000 kr. ó mónuðl Innanlands. I lausaaðki 150 kr. skHaklð. Satnkig og umbroc Dagblaðlð hf. Stðumóla 12. Mynda- og plðtugarð: Hlmk hf. SMumVóa 12. Prsntun: Arvakur hf. Skatfunnl 10. Þeirgimast egg og öl Egg og ölgerðarefni eiga það sam- eiginlegt að vera nýjustu fórnardýr til- rauna í ríkisstjórninni til að láta ríkisj verzlun taka við af frjálsri verzlun. í báðum tilvikum eru ráðherrar Fram- sóknarflokksins að verki, enda hefur sá flokkur jafnan verið veikur fyrir öflugu miðstjórnarvaldi. Hingað til hafa egg verið seld á frjálsum markaði. Margir framleiðendur hafa selt utan sölusamlaga og sumir hinna stærstu meira að segja í eigin umbúðum. Verðþróun eggja hefur verið neytendum hagstæð og möguleikar á góðum kaupum eru miklir. Mörgum neytendum finnst hagræði að því að fá eggin beint heim, án viðkomu í verzlun, auk þess sem þau eru þá oft ferskari en ella. Öðrum finnst hag- kvæmt að fylgjast með, hvar eggin eru ódýrust hverju sinni, og geta í kjölfarið gert betri kaup en ella. Hið frjálsa sölukerfi hefur verið neytendum og framtakssömum framleiðendum til gagns. En Stein- grímur Hermannsson landbúnaðarráðherra hefur ekki áhuga á hagsmunum þessara stétta. Hann vill, að Framleiðsluráð landbúnaðarins stjórni eggjasölu og megi koma á fót einkasölu Sambands eggjaframleið- enda. Steingrimur er að reyna að fá ríkisstjórnina til að fallast á ýtarlegt frumvarp um stóraukna miðstýringu sölu landbúnaðarafurða og stóraukna samfléttun ríkis og hagsmunastofnana bænda. Samkvæmt frumvarp- inu eiga alveg að hverfa hin litlu ítök, sem neytendur hafa í verðlagningu landbúnaðarafurða. Flokksbróðir Steingríms og sálufélagi í ríkisdýrkun- inni, Tómas Árnason fjármálaráðherra, hefur fengið ríkisstjórnina til að leggja fram frumvarp um, að Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins fái einkaleyfi á inn- flutningi tilbúinna bruggunarefna, þar á meðal lifandi gerla. Markmiðin eru sögð vera annars vegar að draga úr drykkjuskap og hins vegar að bæta ríkinu tekjutap Áfengisverzlunarinnar á undanförnum átta mánuðum. Hið síðara er hin raunverulega ástæða og er eins konar hefnd í garð neytenda fyrir að hafa ekki látið bjóða sér síðustu okurhækkun á áfengi. Enda er líka ánægjulegt að lesa í greinargerð frum- varpsins, að áfengistekjur ríkisins hafi í fyrra orðið 1,5 milljörðum minni en átt hefði að vera og verði á þessu ári 3 milljörðum minni en þær eigi að vera. Svoleiðis eiga neytendur einmitt að svara okurkaupmönnum. Ekki verður séð, að drykkjuskapur minnki í landinu, þótt ríkið taki að sér sölu bruggunarefna. Hins vegar má búast við, að framboðið versni, ef Áfengisverzlun- in hagar sér eins fábjánalega í innkaupum bruggunar- efna og hún hagar sér nú í innkaupum léttra vina. Sum þeirra eru beinlínis hættuleg heilsu manna. Tekjutapinu gat ríkið svo mætt á auðveldan hátt með þvi að hækka innflutningsgjöld á bruggunarefn- um til samræmis við innflutningsgjöld léttra vína. Til slíks þurfti ekki ríkiseinkasölu. Leiðin, sem ríkis- stjórnin valdi, sýnir bara ríkisdýrkun hennar og Tómasar Árnasonar sérstaklega. Framsóknarflokkurinn hefur aldrei skilið neytenda- sjónarmið frjálsrar verzlunar. Steingrímur Hermanns- son og Tómas Árnason eru að feta í fótspor Eysteins Jónssonar. Spurningin er bara sú, hvort neytendur áttunda áratugs aldarinnar láta ríkisdýrkendur komast upp með þetta. Hin spurningin er svo, í hvaða vörutegundum arftakar Eysteins Jónssonar ætla næst að níðast á neytendum. r Ekki ofsælir af mánaðarkaupinu x Áróður vinnuveitenda og þeirra manna á yfírmenn farskipa er í meira lagi ósvifinn. Þeir kalla yfirmenn hátekjumenn, nefna svimandi tölur um tekjur, án þess að segja hvaða vinna liggur að baki og virðast vilja jafna okkur við flugmenn. Áróðurinn beinist markvisst að því að dæla lygum í almenning til að fá fordæmingu hans á aðgerðum yfir- manna. Þó eru min laun, ég cr 2. stýri- :maður á byrjunarlaunum 14. flokki, 233.573 kr. á mánuði fyrir 40 stunda vinnuviku. Ég þykist viss um að maður sem vinnur í landi 40 stundir á viku þættist ekki ofsæll af þessum mánaðarlaunum. Til að öðlast þessi laun þarf lágmarksmenntun að vera gagnfræðapróf og 3 vetur í Stýri- mannaskólanum. Um yfirvinnu þarf varla mikið að fjasa því úr henni hefur verið dregið markvisst. Hún er þó ekki hærra greidd en það að heyrst hefur frá útgerðarmönnum að æskilegt sé að stýrimenn leysi ýmsa hásetavinnu af höndum, þvi stýrimenn hafa jú lægra kaup á yfirvinnutíma (lægri skali) en háseti. Er þetta heilbrigt? Yfirvinnutíminn er á 2.398 kr. hjá mér á hærri taxta en 1499 á lægri taxta. í flestöllum tilfellum er yfir- vinnan þó unnin utan dagvinnutíma. Undantekningar eru þegar stýri- maður vinnur hásetavinnu og örfá önnur tilfelli. Á lægri taxta er að meðaltali hjá mér ca 40% og gerir það meðaltalsyfirvinnutíma á 2.038 kr. Viða er þó hlutfall lægri taxta mun hærra. Hverjum finnst það mikið? Til hvers 2 taxtar? Þessu hefur víðast’verið breytt í einn taxta. Ósanngjarnt að þeir fái greitt vakta- álag fyrir vaktavinnu? Frídagar Maður sem vinnur i landi, 40 stunda vinnuviku, vinnur ekki um helgar og á svo auðvitað frí á öllum tyllidögum fær út úr því alls 115 daga, svo hefur hann ca 24 daga orlof „Áródurinn beinist markvisst aö því að dæla lygum í al- menning til að fá fordæmingu hans á aðgerðum yfirmanna.” Vaktaálag Ein aðalkrafa yfirmanna í núver- andi samningagerð — utan grunn- kaupshækkunar — er að fá viður- kennt vaktaálag. Slíkt er greitt í landi og þykir sjálfsagt þar sem vaktavinna er unnin. Stýrimenn og vélstjórar vinna eingöngu vaktavinnu. Er eða alls 139 daga frí á árinu 1979. Hann vinnur ekki nema 225 daga á árinu. Þá laugardaga, sunnudaga og tyllidaga þegar farmaðurinn er fjarri heimili sínu fær hann að sjálfsögðu greidda sérstaklega. í staðinn tekur hann því oft frí utan sumarfrís (Ath.: kauplaust) til að bæta sér upp þessar UMHERVERND ÍSLANDS V. r — leikmannsþankar, skrifaðir í tilefni 30 ára afmælis NATO-aðildar Það fer ekki á milli mála að hér er um þau mál að ræða, sem snerta hvern einasta íslending, bæði þau okkar sem tilheyrum svonefndri eldri kynslóð og ekki siður hina uppvax- andi og þeirra börn, og reyndar ekki sízt þau væntanlegu óbornu, sem erfa eiga þetta land. Hvernig framtíð erum við að búa þessum tilvonandi íslendingum? Einn ráðherra sagði: „Varnir landsins eru tryggðar.” Annar: „Við verzlum ekki með varnir landsins.” Þriðji: „Við verðum að tryggja öryggi landsins, það hefur sýnt sig að hlutleysi er engin vernd,” og þar fram eftir götunum endalaust. Vegna þessara ummæla datt mér í hug það sem ég las einhvers staðar: „Alltaf eru blessaðir Frakkarnir einni styrj- öld áeftir tímanum.” Sem betur fer er ég ekki sér- fræðingur í hernaði, og líklega er það enginn, kannske allra sízt þeir er eitt- Hverjir stjóma málum þjóðar- eru í þinginu eru unnin i ráðuneytum og oftast gefst lítið svigrúm til breyt- inga í meðförum þingsins. Hér er um mjög hættulega þróun að ræða því Alþingi á að vera grundvöllur lýðræðisskipunar þjóðarinnar og fólkið í landinu telur sig vera að kjósa sér fulltrúa til þess að sitja á Alþingi og stjórna málum þjóðar- innar. Styrkur lýðræðisins felst í virku og sjálfstæðu Alþingi sem er fært um að taka ákvarðanir, en veik- leiki lýðræðisins felst aftur á móti í ósjálfstæði Alþingis sem einungis er sjálfvirk afgreiðslustofnun fyrir embættismenn og þrýstihópa. innar? Allmiklar umræður hafa átt sér stað í fjölmiðlum t vetur um starfs- skipan og virkni Alþingis. Fram hafa ,komiö á Alþingi nokkrar tillögur sem miða að því að efla virkni þingsins og sjálfstæði þess gagnvart embættis- mannakerfinu og þrýstihópum i þjóðfélaginu. Þeirri skoðun hefur verið haldið á lofti að Alfiingi stjórni raunverulega ekki málum þjóðar- innar heldur sé þingið fyrst og fremst afgreiðslustofnun fyrir embættis- menn og ýmsir þrýstihópar hafi úrslitaáhrif um það hvað gert sé t.d. í efnahagsmálum. Undir þetta sjónar- mið get ég tekið eftir að hafa kynnst þingstörfum í vetur. Það er staðreynd að mikilvægustu mál sem samþykkt

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.