Dagblaðið - 02.05.1979, Síða 11
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR MAÍ 1979.
11
fjarvistir. Þykir nokkrum það skritið
þó farmaður taki sér frí umfram
sumarfrí, til að vera með fjölskyldu
sinni, þar sem maður í landi vinnur
ekki nema 7 1/2 mánuð á ári og
kemur heim til sín á hverju kvöldi
eftir vinnu? Tilfellið er að fjarvistir
sjómannsins virðast einskis metnar
sem og starf hans, nema á sjómanna-
daginn.
Gaspur
Er nokkuðósanngjarnt, þótt beðið
sé um, að Þorsteinn Pálsson og hans
menn hætti nú þessu kjaftæði meðað
jafna saman farmönnum og flug-
mönnum, hætti að segja mér og
starfsbræðrum mínum að við séum
með 5—700 þúsund á mánuði fyrir
eðlilega vinnu, því að það fáum við
ekki.
En það er eins með sjómenn og
aðra vinnandi menn að með því að
vinna um helgar og fram á nótt má
hækka kaupið — með því að þræla
Kjallarinn
Birgir Bachmann
STVRIMANNAFELAG fSLANDS Borgartúni 18 - Sfmi: 29933 K A U P No. 10 - Kaup stýrimanna ó forskipum samkv. kiorosamningi dogs. 25/7 1977 og lögum. Hœkkun ó kaupskró No. 9 = 6.9%
Byrj.l. kr. E. 1 ór kr. E. 2 ór kr. E. 3 ór kr. E. 5 ór kr. Voktotill. kr. Yfirvinno A m. orlofi B
1 . flokkur
1. stýrimaBur 232.373 239.891 247.415 264.435 274.709 132.350 2.612 1.632
2. " 213.518 220.379 227.243 242.769 252.140 121.507 2.398 1.499
2. flokkur
1 . stýrimaður 239.465 247.236 255.002 272.585 283.197 132.350 2.612 1.632
2. " 219.987 227.074 234.162 250.203 259.880 121.507 2.398 1.499
3. flokkur
1 . stýrimoður 246.789 254.816 262.843 281.003 291.966 132.350 2.612 1.632
2. " 226.668 233.992 241.314 257.883 267.879 121.507 2.398 1.499
3. flokkur, olfuskip
1 . stýrimoSur 268.840 277.637 286.438 306.344 318.362 132.350 2.612 1.632
2. " 246.785 254.812 262.864 280.998 291.957 121.507 2.398 1.499
4. flokkur
1. stýrimoður 254.357 262.647 270.942 289.703 301.024 2.612 1.632
2. " 233.573 241.137 248.700 265.818 276.146 2.398 1.499
3. " 223.851 231.073 238.299 254.651 264.501 2.298 1.436
5. flokkur
1. stýrimoður 262.175 270.737 279.304 298.686 310.382 2.612 1.632
2. " 240.703 248.516 256.332 274.010 284.683 2.398 1.499
3. " 231.497 238.403 245.585 262.470 272.662 2.298 1.436
6. flokkur
1. stýrimaöur 270.249 279.098 287.944 307.964 320.046 2.612 1.632
2. " 248.067 256.140 264.211 282.478 293.498 2.398 1.499
3. " 237.696 245.402 253.112 270.554 281.080 2.298 1.436
FasSispeningar kr. 1.487 ó dog. Risno 1. stýrimonns kr. 3.750. Sjólfvirkniþóknun ó þrfskiptum Kaupskró þessi gildir fró
vöktum kr. 441 og a tviskiptum vöktum kr. 538. Mistalningsfe kr. 43 skroningordog. ASstoSar- og me5 1. mors 1979.
laun a m.s. Goðinn kr. 20.820 og kr. 10.407.
T
sérút!
Ráðherrar hafa látið málið til sín
taka og opinberað hug sinn í fjöl-
miðlum. Þar dæma þeir Steingrímur
Hermannsson og Magnús H.
Magnússon yfirmenn hátekjumenn
og brandarakarla, að því er virðist án
þess að háfa kynnt sér málin á
nokkurn hátt. Mér detta nú í hug
nokkrar línur úr Hávamálum:
„Ærna mælir,
sás æva þegir,
staðlausu stafi.”
Ef önnur mál eru meðhöndluð á
sama hátt hjá þessum ráðherrum, þá
skal mig ekki undra þótt erfiðleikar
steðji að í þjóðfélaginu.
Birgir Bachmann
stýrimaður.
hvað þykjast vita um þá hluti. Þó
býður mér í grun, að komi til heims-
ófriðar enn á ný, myndi það þýða
endalok alls lífs á jörðu.
Ég vil gjarnan reyna að rökstyðja
að nokkru þessar skoðanir, og tökum
þá fyrst fyrir ummæli ráðherranna.
Það er ekki hægt að verja nokkurt
land, ef sú tækni í hernaði, sem nú er
fyrir hendi, yrði öll notuð. Enda ekki
að ófyrirsynju að menn tala um ger-
eyðingarvopn. Hvað þýðir gereyð-
ing? Það liggur því beint við að
álykta, að ekkert land yrði varið,
annars væri orðið gereyðingarvopn
marklaust.
„Við verzlum ekki með varnir
landsins.” Það er nú einmitt það sem
við gerum, þ.e.a.s. þetta sem kall-
aðar eru varnir.
„Hlutleysi er engin vernd,” segja
þessir fjörulallar, og miða þá við
þetta, sem sagt var um Frakkana,
einu stríði á eftir tímanum. í síðasta
ófriði voru hervarnir heldur engin
vernd. Þýzka árásarríkið réðst fyrst á
þá, sem þóttust hafa góðar varnir.
Meira að segja réðust þeir á stærsta
ríki Evrópu, sem hafði miklu stærri
her og fleiri vopn. En sum ríki sluppu
alveg við árás, þótt hlutlaus væru,
svo sem Sviss, Svíþjóð og fleiri. Auð-
vitað er hlutleysi skásta úrræðið sem
fyrir hendi er. Þvi fleiri hlutlaus ríki
þvi betra, og minni varnir myndu
þýða, að spennan í alþjóðamálum
minnkaði og friðarhorfur bötnuðu.
Kjallarinn
f Æmmmmw'-* \
Kristján Jónsson
Eða hvers vegna skyldu þessi stór-
veldi alltaf vera að tala um takmörk-
un gereyðingarvopna, fækkun i herj-
um og því um líkt, nema til að ná ein-
hverjum árangri í átt til friðar. Þau
vita sem er, að alheimsstríð þýddi út-
rýmingu alls. Þess vegna virkar það
óhugnanlega þegar þessir VL gaukar
tala og skrifa um ágæti hervarna og
hælast um þegar Ameríkanar eru
komnir með fullkomnustu flugvélar,
sem þeir eiga yfir að ráða, hingað til
Keflavíkurflugvallar. Líklega af
ofurást á okkur íslendingum, eða
hvað?
Þegar flett er dagblöðum frá fyrri
tima, t.d. um Keflavíkursamninginn
1946, aðild að NATO 1949 og að-
draganda þess, frá 1951 þegar banda-
ríski herinn kom hingað í annað sinn
verður maður undrandi á hversu
miklu var logið að þjóðinni á ekki
lengri tíma og hversu fólk var ginn-
keypt fyrir áróðursmoldviðrinu.
Ekki aðeins þá, heldur allar götur
síðan hefur áróðurinn fyrir nauðsyn
herverndar dunið í eyrum okkar svo
að segja látlaust. Og keyrir um þver-
bak þegar einhvers konar afmælis
skal minnzt, nú síðast 30 ára af-
mælis NATO.
Það voru hörmuleg tíðindi þegar
tugir þúsunda manna skrifuðu undir
áskorun Varins lands 1974. Hvílíkt
hneyksli. Manni datt í hug sú gamla
setning: „íslands óhamingju verður
allt aðvopni.”
Ef þessir menn tryðu því raunveru-
lega, sem þeir segja um nauðsyn á
hervörnum fyrir landið, þá finnst
mér lágmarkskrafa, að við greiddum
sjálfir kostnaðinn við þær, a.m.k. að
hálfu leyti. Við getum ekki verið
þekktir fyrir að snikja. Það væri
aftur á móti gaman að sjá, hversu
margir myndu þá skrifa undir slik
plögg aftur. Ég myndi taka ofan fyrir
þeim hópi manna sem það gerði, því
þeir vildu þá eitthvað á sig leggja
fyrir þessa hugsjón sína.
Það mætti skrifa um þetta langt
mál, mjög langt, en ég læt þetta
nægja. Á þessu vandamáli er ein-
ungis ein lausn. Að segja þessum
smánarsamningi upp strax, eða svo
fljótt sem verða má. Láta herinn fara
til síns heima. Við eigum ekki að vera
neitt „fríholt” fyrir Bandarikjamenn
til að taka af þeim fyrsta stuðið.
Okkar hlutverk á að vera að stuðla að
friði og sátt milli þjóða eftir beztu
getu. Sýna öllum þjóðum vinsemd.
Eitt er óyggjandi. Almenningur
allra þjóða vill frið.
Kristján Jónsson
loftskeytamaður.
„Viö eigum ekki ad vera neitt
„fríholt” fyrir Bandaríkja-
nenn.”
Af hverju —
Hvað er til úrbóta?
Samhliða því sem þjóðfélagið allt
verður flóknara í sniðum, sérhæfing
eykst og heildaryfirsýn í stjórnmálum
þjóðarinnar verður æ erfiðari þá
kallar þessi þróun á aukið starf og
meiri virkni á löggjafarþinginu. Segja
verður eins og er, að Alþingi hefur
ekki aðlagað sig breyttum aðstæðum.
Þess ber að geta að margir þingmenn
eru enn uppteknir af ýmsum hliðar-
og aukastörfum sem þingstörfum eru
óskyld. Þeir sækjast t.d. mjög
gjarnan eftir sætum i stjórnum,
ráðum og nefndum á vegum ríkisins,
ef til vill í leit að nýju valdi sem ekki
er fyrir á Alþingi. Þessu til rök-
stuðnings má t.d. nefna Byggðasjóð.
Byggðasjóður færá fjárlögum hverju
sinni fast framlag sem nemur
nokkrum milljörðum á ári, til útlána
á lágum vöxtum, til framkvæmda
víða um land. Það er ekki nóg með
að framkvæmdastjóri Byggðasjóðs
sé alþingismaður heldur er meirihluti
sjö manna sjóðsstjórnar skipaður
alþingismönnum þótt hvergi sé að
finna í lögum að þar eigi að sitja
alþingismenn fremur en aðrir.
Sömu sögu má segja um bankaráð,
ýmsar mikilvægar nefndir og
stjórnir, sérstaklega fjárfestingar-
sjóða sem útdeila styrkjum fremur en
lánum. Þannig hafa margir þing-
menn leitast eftir að komast í ýmsar
hliðarvaldastofnanir til áhrifa í þjóð-
félaginu. Þetta hlýtur að koma niður
á hinum raunverulegu þingstörfum
sem eiga að felast í löggjöf og
almennri stjómun þjóðmála en ekki í
því hvort Pétur eða Páll fær þetta eða
hitt lánið úr hinum og þessum
sjóðnum.
Þetta ástand er slæmt og hlýtur þar
með að leggja auknar stjórnunar-
kröfur á sérfræðinga og embættis-
menn á vegum hins opinbera. Sú
hefur einnig orðið raunin enda er
mikill meirihluti þeirra mála sem
fram ná að ganga í þinginu og örugg-
lega þau afdrifaríkustu embættis-
mannafrumvörp sem oft fá sjálfvirka
afgreiðslu án þess að einstökum þing-
mönnum gefist svigrúm til meiri-
háttar breytinga, oft vegna tíma-
skorts.
Önnur ástæða vegur einnig þungt
en það er svifasein uppbygging þings-
ins. Þingið starfar raunverulega í
þremur deildum, þ.e. efri og neðri
deild og sameinuðu þingi. Lagafrum-
vörp verða að fara í gegnum þrjár
umræður í hverri deild og breytingar-
tillögur einnig, eigi málið að verða að
lögum. Hugmyndir um að þingið
verði ein deild er því bráðnauðsyn-
legt mál sem hvort tveggja myndi
spara tíma og efla virkni þingsins.
Hitt er ekki síður mikilvægt að benda
á, að þrátt fyrir að fjöldi góðra mála
sé borinn fram i þinginu af þing-
mönnum þá er seinvirkni starfs-
nefnda þingsins slík að aðeins brot af
málafjöldanum kemst til annarrar
umræðu og atkvæðagreiðslu í þing-
inu. Og þegar þinginu síðan lýkur um
vorið þá falla öll hin óafgreiddu mál
niður og verða að endurflytjast á
næsta þingi, ef flutningsmenn hafa
„Valdaafsal Alþingis tíl emb-
ættísmanna eða forystumanna
þrýstíhópa er tilræði við lýð-
ræðið í landinu.”
Kjallarinn
Gunnlaugur
Stefánsson
áhuga á því að koma málinu fram.
Það er ljóst af þessu að endurtekn-
ingar af þessu tagi spilla tíma þings-
ins þegar alltaf er verið að fjalla um
sömu málin með sömu ræðunum, og
oft án þess að málið komist nokkurn
tima til atkvæðagreiðslu. Þetta mætti
leysa einfaldlega með því að hvert
kjörtímabil yrði eitt þing, þannig að
þinginu yrði ekki slitið á vori þegar
ekki eru kosningar, sem þýddi það að
ekki þyrfti að endurflytja mál þótt
það biði afgreiðslu yfir sumarið.
Stefnan hlýtur að eiga að vera sú að
hvert það mál sem fyrir þingið cr lagt
komist til endanlegrar afgreiðslu með
atkvæðagreiðslu, þannig að þjóðin
fái tækifæri til að fylgjast með hver
raunverulegur vilji þingsins er.
Lýðræði annað
en orðið tómt
Kjósendur vilja hvorki láta hafa sig
að fíflum eða láta gera grín að sér.
Þegar kjósandi gengur að kjörborð-
inu og kýs sér fulltrúa til þess að fara
með stjórn þjóðmála þá ætlast hann
til að þeir sem hann kýs stjórni, en
ekki einhverjir sjálfskipaðir herrar
úti í bæ. Valdaafsal Alþingis til
embættismanna eða forystumanna
þrýstihópa er tilræði við lýðræðið í
landinu.
Þvi ber brýna nauðsyn til þess að
breytingar verði gerðar á skipan og
starfsháttum Alþingis. Alþingi ber að
setja lög og reglur sem það siðan
felur embættismönnum að fram-
kvæma. En að Alþingi setji lög sem
alþingismenn ætla sér sjálfir að fram-
kvæma í smáatriðum stefnir starfi og
virkni Alþingis i voða. í þessu felst
framtið lýðræðis og Alþingis, virðing
þess og reisn.
Gunnlaugur Stefánsson
i alþingismaður.