Dagblaðið - 02.05.1979, Side 12

Dagblaðið - 02.05.1979, Side 12
12 VORNÁMSKEIÐ HEFST2.MAÍ Kennslugreinan pianó, harmónika, munnharpa, gitar, melódíka og rafmagnsorgel. Hóptfmar, einkatfmar. INNRITUN í SÍMA16239. EMIL ADÓLFSSON NÝLENDUGÖTU 41. Laus staða Staða tómstundarráðunautar er laus til umsóknar. Umsóknum sé skilað á skrifstofu Æskulýðsráðs að Fríkirkjuvegi 11 á eyðu- blöðum sem þar fást fyrir 1. júní. Þar eru og veittar allar nánari upplýsingar. Æskulýðsráð Reykjavíkur UMBOTSMENN D.A.S. í Reyfejavík og nágrenni Aöalumboö Vesturveri Aöalstræti 6 Verzl. Neskjör Nesvegi 33 Sjóbúöin Grandagaröi Verzl. Roöi Hverfisgötu 98 Bókabúö Safamýrar Háaleitis- braut 58—60 Hreyfill Fellsmúla 24 Paul Heide Glæsibæ Verzl. Rafvörur Laugarnesvegi 52 Hrafnista, skrifstofa Laugarási Verzl. Réttarholt Réttarholtsvegi 1 Bókaverzl. Jónasar Eggertssonar Rofabæ 7 Arnarval Arnarbakka 2 Straumnes Vesturbergi 76 Képavogi Litaskálinn Kópavogi Borgarbúðin Hófgeröi 30 Garðabæ Bókaverzl. Gríma Garöaflöt 16—18 Hafnarfirði Hrafnista Hafnarfiröi Kári og Sjómannafélagiö Strand- götu 11 — 13 NÝTT HAPPDRÆTTISÁR 79-80 MARGIR STÓRVINNINGAR MIÐIER MÖGULEIKI Sala á lausum miöum og endur- nýjun flokksmiöa og ársmiöa stendur yfir. Dregiö í 1. flokki 3. maí. ^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^DAGBLAÐI&MIÐVIKUDAGUR£MAn97!L BSRB-félagar Styrkjum stöð- una — fellum samkomulagið BSRB-félagar ganga til atkvæða- greiðslu 3.—4. maí nk. um sam- komulag forystu BSRB og ríkis- stjórnarinnar. Veruleg andstaða hefur skapast innan BSRB gegn þessu samkomulagi og nokkrir BSRB-fé- lagar tóku frumkvæði að Andófi '19 innan BSRB. Andóf '19 hefur aðeins starfað frá því um páska og náð á þeim tíma að gera andstöðuna heyrinkunna vitt um landið, enda þótt allir þeir sem þátt taka í starfi Andófs '19 geri það i sínum frítíma. Fylgjendur samkomulagsins með for- ystu BSRB í fararbroddi þeysa um landið þvert og endilangt til að kynna samkomulagið einhliða út frá sinu sjónarmiði í sínum vinnutíma. Skortur á lýðræði „Við leggjum samkomulagið í dóm félagsmanna,” segir forysta BSRB. ,,Um samkomulagið hefur verið fjallað af fjölmennu forystuliði innan bandalagsins og það samþykkt af miklum meirihluta.” Er þetta ekki til marks um lýðræðisleg vinnubrögð og er gagnrýni Andófs '19 á vinnu- brögð forystunnar ekki haldlaus? Gagnrýni Andófs '19 á vinnubrögð forystu BSRB beinist ekki að þessum atriðum fyrst og fremst. Það skyldi bara vanta að félagsmönnum BSRB gæfist kostur á að greiða atkvæði um það hvort halda beri gerða samninga eða þeim breytt. Vonandi kemur aldrei að því að réttur okkar til að samþykkja eða fella samningstillögur verði af okkur tekinn eða hann snið- genginn af sjálfri forystunni. Gagnrýni Andófs '19 beinist að þeim vinnubrögðum að fela samn- ingamakkið í lokuöum kjarna foryst- unnar og að því að gera andstöðunni við samkomulagið ekki jafn hátt undir höfði og fylgjendum þess í fundarherferð BSRB. I þeirri herferð hefur forystan valið þá leið að kynna málið algerlega út frá sínu sjónar- miði, einhliða og án nokkurra mót- röksemda. í þessum tveim atriðum einkum felst gagnrýni Andófs '19. Sú gagnrýni er mjög réttmæt. Það er engin ástæða til þess að þakka BSRB- forystunni fyrir einhliða fundarher- ferð, né heldur ber að þakka svo sjálfsagðan hlut sem atkvæðagreiðsla um samkomulagið er. Minna gat for- ystan ekki gert til að uppfylla skyldur sínar við félagsmenn. Fjárhagsvandi sjónvarpsins óþarfur? - Það hefur sennilega ekki farið fram hjá neinum að fjárráð ríkisfjöl- miðlanna á þessu ári munu vera heldur lítil og hrökkva skammt mið- að við óbreyttan rekstur. Sjónvarpið mun hafa farið fram á 35% hækkun afnotagjalda og var m.a. haft eftir einum af forráðamönnum sjónvarps að ef sú hækkun fengist ekki fram yrðúeinu úrræðin að „þynna” dag- skrána og/eða fækka útsendingar- dögum. Síðan hefur komið á daginn að aðeins fékkst samþykkt 15% hækkun afnotagjalda af svarthvítum sjónvarpstækjum, en 17% af litsjón- varpstækjum (sbr. Alþingis-formúl- an: fjárþörf—50% = fjárveiting). Hvað verður nú gert? Verður staðið við fyrrnefndar hótanir? í frétt í einu dagblaðanna 25. apríl sl. staðfestir Arni Gunnarsson varaformaður út- varpsráðs að framundan væri „þynn- ing” dagskrárinnar og yrði byrjað á því að skera niður skemmtiþætti og íslenskt efni almennt, en þetta er lík- lega jafnframt vinsælasta efnið í þessum fjölmiðli. Þó að við gerðum ráð fyrir að allir sem nú eiga sjónvarpstæki ákveði að þrauka áfram og láti ekki innsigla tæki sín þrátt fyrir „þynninguna”, þá má áætla að ófáir ákveði að slá þvi á frest að skipta úr svarthvítu yfir í litsjónvarp og einnig að færri nýir notendur muni bætast við heldur en ella og þar af leiðandi færri ný tæki verða keypt. Af þessu sjáum við að notendum sjónvarps færi hlutfallslega fækkandi og um leiö mundi gildi sjónvarpsauglýsinga minnka og þar með eftirspurn auglýsenda eftir þeim. Einnig mundu tekjur ríkissjóðs af tollum nýrra sjónvarpstækja dragast saman (ca 1200 milljónir í fyrra) svo og söluskattur af seldum tækjum, auglýsingum og afnotagjöldum. Þynning vatns Segjum sem svo að sjónvarpinu takist að „halda uppi útsendingum” með fyrrnefndum aðgerðum, en þá stöndum við bara frammi fyrir ná- kvæmlega sama vandamáli næsta ár og jafnvel stærra vegna aðgerða þessa árs. Á þá að grípa til sömu ráða (þynna meir o.s.frv.)? öll vitum við að vatn er ekki hægt að þynna enda- laust, né heldur sjónvarpsdagskrána (af sömu ástæðu). Og þrátt fyrir lé- legt verðskyn neytenda getur verð (afnotagjald) ekki hækkað enda- laust, eins og rikisstjórnin komst loks að við síðustu verðhækkun áfengis. Á endanum verðum við því að finna varanlega lausn á þessum árlega, sívaxandi vanda, og borgar sig að hefjasthandastrax. Rekstrarmarkmið fyrirtækis eins og sjónvarpsins á ekki að vera há- mark gróða, heldur öryggis- og menningarsjónarmið. Þar með er ekki sagt að tapið þurfi að vera sem mest, eins og sumt bendir til að ráða- menn sjónvarps haldi, og á ég þar við aðgerðir þeirra til að draga úr auglýs- ingargildi sjónvarpsauglýsinga, eða réttara sagt, skortur á aðgerðum til að auka auglýsingagildið. Auglýsingatekjur eru helsta tekju- lind sjónvarpsins auk afnotagjalda og tolla, og hingað til hafa möguleik- ar þeirrar tekjulindar verið langt frá því fullnýttir. Þar hefur mestu ráðið þröngsýni ráðamanna, eða áhuga- leysi þeirra, og andstaða almennings gegn þvi m.a. að rjúfa þætti með auglýsingum. Nú er hins vegar svo komið að almenningur verður að gera upp hug sinn um það hvort hann vilji heldur horfa á lélega dagskrá „ótruflaður” eða góða dagskrá með stuttum hléum. Þessar auglýsingar mundu verða viðbót við auglýsingar milli þátta og finnst mér ekki óeðli- legt að þær séu dýrari, en þó læt ég aðra um slíka útreikninga. Sjón- varpsmenn hafa sagt að ástæðan fyrir því að þeir hafi ekki notað þessa tekjulind og þá möguleika sem hún býður uppá sé sú að þeir vilji ekki að sjónvarpið sé „háð” auglýsendum. Þetta finnst mér vægast sagt léleg af- sökun. Hvernig getur fyrirtæki verið annað en háð viðskiptavinum sínum? Þar að auki fara hagsmunir fyrir- tækja i þessu tilfelli saman við hags- muni neytenda og um leið sjónvarps- ins og því lítil hætta á að sjónvarpið missi sjálfstæði sitt, sjálfstæði sem það öðlast ekki fyrr en það getur reitt sig á eigin tekjustofna, sem það getur stjórnað að nokkru sjálft. Sjónvarpsauglýsingar og sölu þeirra má nota til að tryggja að dag- skráin sé í sem bestu samræmi við óskir áhorfenda með þvi t.d. að láta lista liggja frammi yfir það efni sem sjónvarpinu stendur til boða hverju sinni og auglýsendur gætu þá látið í ljós í hvaða efni þeir myndu vilja auglýsa og hve mikið og væri þannig hægt að tryggja fyrirfram að tekjur yrðu umfram kaupverð og beinan kostnað. Þannig væri líka kominn grundvöllur fyrir því að lengja dag- skrána og ná meiri hagkvæmni í rekstri, þ.e. betri nýtingu á vélum, húsnæði o.s.frv. Áður en dagskráin er lengd ber þó að taka tillit til félags- legra atriða og hvort eftirspum eftir auglýsingumsénæg. 30% menningarlegt? Eins og áður sagði á rekstrarmark- mið sjónvarps ekki að vera hámark gróða heldur t.d. menningarsjónar- mið. Til að fjarlægjast það markmið ekki um of mætti setja reglur um að menningarlegt efni skuli t.d. vera a.m.k. 30% af útsendingartíma á

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.