Dagblaðið - 02.05.1979, Page 14

Dagblaðið - 02.05.1979, Page 14
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. MAl 1979. 14 Jafnvel Njála er þrungin kven- fyrirlitningu Í— rætt við Helgu Kress sem undanf arin sex ár hef ur kennt íslenzk f ræði og kvennabókmenntir við háskólann í Björgvin Helga Kress: „Jafnvel þótt kvæði séu greinilega ort af konum, eins og Völuspá, kemur ekki til greina að játa það.” DB-mynd Ragnar. Elzta prentuð bók eftir konu á íslandi er „Einfalt matreiðslukver fyrir heldri manna húsfreyjur” eftir Mörtu Stephensen. Hún kom út árið 1800. En svo rótgróin er vantrú manna (og kvenna) á.því, að persóna af hinu svokallaða veikara kyni geti skrifað bækur, að vísindamenn hafa almennt talið að bókin hlyti að vera annaðhvort eftir mann hennar eða mág! Menntaðir karlmenn, og það eru þeir sem skrifa skólabaekurnar, þangað sem við sækjum hugmynd- irnar um hvernig hlutirnir séu og eigi að vera, já, þessir menntamenn nefna aldrei konur á nafn. Og ritverk kvenna kalla þeir „kellingabækur” eða reyna með öllum ráðum að „feðra” þau. En fyrir nokkrum árum gekk Ijós- hærður og grannvaxinn kvenmaður, Helga Kress, fram fyrir skjöldu og kom miklu róti á hugina með því að halda því fram að ýmis af dáðustu skáldverkum þjóðarinnar, t.d. Njála, væru gagnsýrð af kvenfyrirlitningu Og til að mótmæla því að konur gæti ekki skrifað gaf hún út bók meí sögum um og eftir 23 íslenzkar konur, ,,Draum um veruleika” Formálinn ætti að vera skyldulestur vera skyldulestur í öllum skólum þar sem saga er kennd. Þar rekur hún af fyndni og rökfestu hvernig það hefur ævinlega þótt lítil prýði á konum að yrkja. Meira að segja hinn kostulegi Grunnavíkur-Jón afsakaði að hann skyldi telja konur með skáldum. Þó var fyrsti Islendingurinn sem freistaði þess að gera ritstörf að at- vinnu kona, Torfhildur Hólm. Barnlausekkja. Helga Kress hefur undanfarin sex ár kennt íslenzk fræði og kvennabók- menntir við háskólann í Björgvin. Hún ætlar að flytjast heim i sumar og kom hingað í stutta ferð um páskana. Við hittum hana á Landsbókasafninu og hún benti okkur strax á að sú stað- reynd að safnið er lokað á kvöldin og um helgar sýni að það er hvorki hugsað fyrir húsmæður né verka- menn. Eiginlega ekki nema fyrir skðlafólk og karlmenn sem eru á launum við að grúska. Karlmennirnir dæma um hvað séu góðar og vondar bókmenntir „Það eru einmitt þeir karlmenn sem dæma hvað séu vondar eða góð- ar bókmenntir og þeir gera sér enga grein fyrir að konur hafa sjaldan það næði til að hugsa, sem nauðsynlegt er til aðskapa miklar bókmenntir. Bara það að þurfa sífellt að hugsa um hvað á að vera í matinn er hræði- lega truflandi! Enda hafa margar konur helzt skrifað á nóttunni. Og það er áber- andi að þær eru oft komnar yfir fertugt þegar þær senda frá sér fyrstu bókina (eins og til dæmis Jakobína Sigurðardóttir _og Guðrún frá Lundi). Þáeru börnin uppkomin.” Helga hlær. Hún er ekki alls kostar laus við að vera sigurreif, því hún er nýbúin að kveða Sigurð A. Magnús- son i kútinn. Þannig var að árið 1%4 komu út 13 bækur eftir konur, flestar yfir miðjan aldur. Sigurður skrifaði þá grein þar sem hann lét að þvi liggja að illa horfði fyrir íslenzkum bókmenntum, þetta væru tómar „kerlingabækur. Nafngiftin var mikið notuð næstu árin. Aldagömul hefð að ekki sé tekið mark á konum Helga benti á það í skörulegri grein (tímarit Máls og menningar, 4—1978) að þetta skammaryrði sýndi áþreifanlega þá aldagömlu hefð að ekkert mark væri takandi á konum. ,,Og ég er búin að fá bréf frá Sig- urði, þar sem hann fellst á að ég hafi rétt að mæla! Mér varð mikið um, því mér hafði aldrei tekizt að sann- færa nokkurn mann fyrr — og datt ekki í hug aðéggæti það!” ,,Ég áttaði mig heldur ekkert á því sjálf hvað menning kvenna er bæld niður,” sagði Helga,” fyrr en ég kom til Björgvinjar. Þar er geysimikil umræða um stöðu konunnar. Reyndar eru kvennabókmenntir og kvennasaga orðin kennslugrein við háskóla á öllum Norðurlöndum nema íslandi. (Því má skjóta hér inn að Helga hélt nýlega fyrirlestur við Hafnarhá- skóla um kvenlýsingar i ísl. fornbók- menntum og Svava Jakobsdóttir hélt fyrirlestra við háskólana í Osló og Björgvin um stöðu kvenrithöfundar. Væri gaman, að Háskóli íslands byði þeim einnig að tala hér). „Mér datt sízt af öllu í hug að ég gæti sjálf skrifað. En skömmu áður en ég fór utan, ég man ekki hvaða ár, ég man ekkert ártal ncma fæðingarár mitt, þá urðu timamót i lifi ninu. Það var á sumardaginn fyrsta, jafnkalt og venjulega og ég stóð fyrir utan Háskólabíó eins og allir aðrir með barn við hönd og hor í nös, þegar Ólafur Jónsson vatt sér að mér og bað mig að skrifa um ljóðagerð ársins á undan í Skírni. Ég á stuðn- ingi hans heilmikið að þakka.” Ætlar að skrifa bók- menntasögu kvenna Við spyrjum Helgu hvað hún ætli að taka sér fyrir hendur þegar hún er komin heim. „Ég veit það alveg,” segir hún af mikilli ákveðni. „Ég ætla að skrifa bókmenntasögu kvenna.” Við spyrjum hvernig hún ætli að fjármagna það vafasama fyrirtæki. „Það hef ég ekki hugmynd um,” segir hún. „Ég ætla bara að gera það, hvernig sem ég fer að því. Þegar einu sinni er runnið upp fyrír manni hvernig menning kvenna er þöguð i hel þá verður ekki aftur snúið. Það gjörbreytti lífi minu. Ég fór að skoða bókmenntir í félagslegu samhengi og í stað þess að skrifa um það sem mér var sett fyrir þá vil ég nú nota alla mína krafta til að draga hinar ósýni- legu kvennabókmenntir fram í dags- ljósið.” Hún segir frá því hvernig skóla- bækurnar eigi stóran þátt í að viðhalda vantrú kvenna á sjálfum sér. „Þar eru öll skáld frá alda öðli karlkennd. Jafnvel þótt kvæði séu greinilega ort af konum, eins og Völuspá kemur ekki til greina að játa það. Þegar Sigurður Nordal fjallar um þetta listaverk fornbókmenntanna leitar hann með logandi ljósi þangað til hann finnur einhvern Völustein, sem átti völu fyrir móður. Síðan spyr Sigurður: „Hverjum stóð það nær en syni völvunnar að yrkja i orðastað kvenna?” Og nú skellihlær Helga: „Hvað með konuna sjálfa? Stóð það ekki henni næst að yrkja fyrir munn sjálfrar sín?” Við ræðum um einkenni karlveldis, m.a. að þar eru rosknir karlar dýrkaðir og hafa öll völd. En rosknar konur sæta fyrirlitningu og háði. Mikilmenni eru einungis karlmenn og eiginkonur þeirra fá hraklega útreið, ekki sízt ef þær eru eldrienhetjan. Var Ingibjörg kona Jóns forseta hallærisgagn? „Kona Jóns Sigurðssonar, Ingi- björg, er ágætt dæmi,” segir Helga. „Hún var sjö árum eldri en Jón og mikið er búið að vorkenna veslings manninum! Sagnritarar telja Ingibjörgu munu - hafa verið hallærisgagn og hinn iC Karlmenn skrifa bækur, meðan konur bera þeim kaffi og kökur til að hressa sig. En ekki verður það til að auka virðingu karlmannanna fyrir þeim. „Hugur minn er þér sem lokuð bók,” er undirskrift þessarar háðsku myndar eftir Svölu Sigurleifsdóttur. mesta kross fyrir mann sinn. Hann var svo fagur, samkvæmt hug- myndum þeirra, að allar konur horfðu eftir honum á götu. Hún trúlofast honum 29 ára og bíður í festum í tólf ár, þangað til hún er komin úr barneign. En það sjá þeir ekkert athugavert við! Þegar Jón deyr liggur þessi gamla eiginkona hans sjálf fyrir dauðanum og er lítið spennandi. Þá finna sagn- fræðingarnir upp dularfulla blæju- konu, sem kemur og hágrætur við kistuna. Slík kona hæfði betur myndinni af hetjunni. En veikindi Ingibjargar stöfuðu af því að hún hafði ofgert sér við að hjúkra Jóni. Hún var jörðuð fáum vikum seinna. Ekki birtist neinn harmi lostinn blæjumaður þá. Mig langar mikið að skrifa grein sem héti ,,Á ártíð konu Jóns Sigurðssonar. Það er búið að skrifa meira en nóg um hann” (Þau hjón dóubæðiárið 1879). Það eru mörg fleiri dæmi um þetta. Tyrkjagudda er ein. Hin danska kona Árna Magnússonar önnur. Handa Árna er búin til Snæfríður íslandssól, en eiginkonan gerð að hálfgerðum krypplingi (Hún var þó nógu góð til að borga hand- ritin, kerlingaranginn). Og við jarðarför Hannesar Haf- steins birtist enn ein blæjukonan og grét oggrét.” Formálinn fyrir þeirri bók ætti að Fundarboð Fundur til undirbúnings stofnunar Félags tæknistarfsmanna verður haldinn fimmtu- daginn 3. maí 1979 kl. 20.20 að Hótel Esju 2. hæð. DAGSKRÁ: 1. Ávarp. 2. Kosning fundarstjóra/fundarritara. 3. Umræður um stofnun félags, markmið þess og framtiðarhorfur. 4. Atkvæðagreiðslu um stofnun félags. 5. Önnurmál. UNDIRBÚNINGSNEFNDIN.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.