Dagblaðið - 02.05.1979, Side 15

Dagblaðið - 02.05.1979, Side 15
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. MAl 1979. 0 Iþróttir Iþróttir 15 Iþróttir Iþróttir D — Víkingur sigraði Val 1-0 á Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu Það var ekki beint vorlegt um að litast á Melavellinum i gær þegar Valur og Víkingur mættust þar í Reykja- víkurmótinu í knattspyrnu. Hífandi rok og brunakuldi. Víkingarnir höfðu betur í viðureigninni við rokið og Valsmenn og unnu með eina markinu, sem skorað var í leiknum Gunnar örn Kristjánsson skoraði eina mark leiksins úr vitaspyrnu á 64. mínútu eftir að Vilhjálmur Kjartansson hafði brotið klaufalega á Heimi Guðmundssyni í vítateignum. Víta- spyrna var umsvifalaust dæmd og úr henni skoraði Gunnar Örn af öryggi á móti vindinum. Víkingar léku undan vindinum í fyrri hálfleiknum en tókst ekki að skapa sér umtalsverð tækifæri frekar en Vals- mönnum. Valsmenn voru mun atkvæðameiri í seinni hálfleiknum en tókst ekki að skapa sér nein verulega hættuleg tækifæri. Valsmenn hefðu unnið mótið með sigri í leiknum en nú geta Framarar krækt í titilinn með sigri yfir Val en liðin mætast á sunnudaginn kl. 14. Staðan í Reykjavíkurmótinu er nú þessi: Valur 5 4 0 1 10—3 9 Fram 5 3 2 0 9—5 8 KR 6 3 12 10—6 8 Fylkir 5 2 12 6—6 5 Þróttur 5 113 6—7 4 Víkingur 5 12 2 4—8 4 Ármann 5 0 1 4 2—11 1 Bflasala Eggerts, Borgartúni 24 Enginn ergóður ekill án bíls frá Bílasölu Eggerts HK stendur vel að vígi — með að halda sæti sínu í 1. deild eftir Verðlaunahafar og nokkrir aðrir þátttakendur taka á móti verðlaunum sinum i verzluninni Sportvali — lengst til hægri er Jón Aðalsteinn Jónasson, formaður Vikings, sem gaf verðlaunagripina. DB-mynd Bjarnleifur. Keppendur 57 f hópgöngu Skíðafélags Reykjavíkur — og keppt um sjö verðlaunagripi, sem Jón Aðalsteinn í Sportval gaf 18-15 sigur í Vestmannaeyjum Hópganga Skíðafélags Reykjavíkur haldin i Bláfjöllum laugardaginn 21. apríl. Gengnir voru 5 km í kvenna- og karlaflokkum. Kvennaflokkar voru tveir, 40 ára og yngri og 41 árs og eldri. Karlaflokkar voru fimm, 40 ára og yngri, 41—45, 46—50, 51—55 og 56 og eldri. Keppnin fór fram á flötunum vestan og ofan við Borgarskálann. Þátttaka var mjög mikil eða 57 samtals, 23 konur og 34 karlar. Veður var eins gott og bezt varð á kosið, logn og sólskin, hiti var 2—5 gráður, færi mjög gott. Formaðurinn, Matthías Sveinsson setti mótið með hvatningarræðu og síðan voru allir ræstir i einu. Göngubrautin var mjög góð og vel lögð af þeim Guðmundi Sveinssyni og Ingólfi Jónssyni. Það var mjög mikil ánægja með þessa fjölmennustu skíðagöngu sem haldin hefur verið sunnanlands. Keppt var um mjög fallega verðlaunabikara í 7 flokkum sem gefnir voru af Jóni Aðalsteini Jónassyni, eiganda verzlun- arinnar Sportvals. Verðlaunaafhending var á mótsstað, ennfremur var þar páskaeggjahapp- drætti. Framkvæmd mótsins var í höndum Skiðafélags Reykjavíkur. Konur 40 ára og yngri tími 1. Guðbjörg Haraldsdóttir 16.37 2. Lilja Þorleifsdóttir 18.05 3. Unnur B. Guðmundsdóttir 19.28 4. Þyri Laxdal 20.45 5. Elín J. Jónsdóttir 23.52 Konur 41 árs og eldri tími 1. Inga Árnadóttir 20.33 2. Jarmila Hermannsdóttir 21.12 3. Guðrún Andrésdóttir 22.40 4. Sigriður Pétursdóttir 22.43 5. Anna H. Sveinsdóttir 23.26 Karlar40 ára og yngri tími 1. Heiðar Árnason 14.37 2. Kristján Snorrason 14.57 3. TraustiSveinbjörnsson 15.57 4. Ólafur Pálmason 16.05 5. Gunnar Gunnarsson 18.14 6. Jón Friðriksson 21.50 7. Einar Þórðarson 25.51 Karlar 41—45 ára tími 1. Matthias Sveinsson 13.11 2. SveinnKristinsson 15.43 3. Pétur Pétursson 16.08 5. Elías Hergeirsson 17.30 6. Þorsteinn Hjaltason 18.28 7. Úlfar Sigurmundsson 20.42 Karlar46—50ára timi 1. Bjarni Einarsson 17.38 2. Haukur Hergeirsson 18.41 3. Sigurkarl Magnússon 19.03 4. Magnús Hallfreðsson 19.53 5. Páll Samúelsson 23.47 6. Kristófer Jóhannesson 24.19 7. Brynleifur Steingrímsson 24.54 Karlar51—55ára tími 1. Haráldur Pálsson 14.08 2. Hörður Hafliðason 17.16 3. Þorsteinn Bjarnar 18.44 4. Stefán Kristjánsson 19.26 5. Magnús Eyjólfsson 22.44 6. Þór Þorsteinsson 24.00 Karlar56 og eldri tími 1. Tryggvi Halldórsson 16.38 2. EinarÓlafsson 17.25 3. Árni Kjartansson 20.04 4. Ingólfur Guðjónsson 23.25 5. Gunnlaugur Björnsson 23.51 6. Jón Arason 26.20 7. Þórður Árnason 28.40 Fyrri leikur Þórs, Vestmannaeyjum, og HK um sæti í 1. deild karla í hand- knattleiknum, fór fram í Eyjum á mánudagskvöld. Leikurinn var afar skemmtilegur og spennandi og stemmning mikil með 500 áhorf- endum, sem þó sneru vonsviknir heim eftir að Þór hafði tapað 3ja marka for- skoti í síðari hálfleik niður í 3ja marka lap. Leiknum lauk með sigri HK 18— 15. Eftirleikurinn ætti því að vera auð- veldur fyrir HK i síðari leik liðanna að Varmá nk. laugardag. Þórarar byrjuðu strax með miklum krafti — komust í 4—1 í byrjun og höfðu yfir í hálfleik. Þeir komust í 13—10 í s.h. en HK náði að jafna í 13 —13 og komst síðan yfir í fyrjsta sinn á 50. mín., 14—13. Leik- menn HK voru síðan heppnari á enda- sprettinum og sigruðu 18—15. HK-menn geta án nokkurs vafa þakkað markverði sínum, Einari Þor- varðarsyni, sigurinn í leiknum. Hann varði frábærlega lokakaflann á sama tíma og vörnin og markvarzlan brást hjá Þór. Bezti maður vallarins í leiknum var Böðvar Bergþórsson — mjög vaxandi leikmaður i liði Þórs. Hann barðist eins og ljón allan timann og skoraði góð mörk úr hornunum. Aðrir leikmenn Þórs áttu flestir góðan dag en liðið gaf nokkuð eftir í lokin. Beztu menn HK auk markvarðarins voru gamla kempan Karl Jóhannsson, sem skoraði mjög mikilvæg mörk. Þá voru Hilmar Sigur- gíslason og Stefán Halldórsson friskir. Mörk Þórs skoruðu Böðvar 5, Hannes Leifsson 5, Andrés Bridde 2, Þórarinn Ingi 2 og Ragnar Hilmarsson 1. Mörk HK Stefán 9, Karl 4, Kristinn Ólafsson 2, Hilmar, Jón Einarsson og Ragnar Ólafsson eitt hver. Gunnlaugur Hjálmarsson og Rögn- vald Erlingsson dæmdu leikinn og voru þeir HK-mönnum hagstæðir. Eyja- menn voru hissa á þvi að Gunnlaugur skyldi dæma þennan leik. HK fékk fimm víti i leiknum — Þór eitt. Tveimur leikmönnum HK var vikið af velli i fjórar mínútur — tveimur leik- mönnum Þórs, einum tvívégis, í sex minúmr._____________FÓV'. Tékkarunnu íLuxemborg Tékkar hafa nú örugga forystu 1 5. riðli Evrópukeppni landsliða i knatt- spyrnu eftir öruggan sigur á Luxem- burg i gærdag. Luxemborgarar vörðust vel í leikn- um en eftir að Masny hafði skorað á 21. mínútu var aldrei neinn vafi um sig- urvegara i leiknum. Meunier bætti öðru marki Tékka við á 67. mín. og minútu síðar fullkomnaði Stambacher sigurinn. Leikurinn fór fram i Luxem- borg. Staðan i riðlinum er nú þessi: Tékkóslóvakía 3 3 0 0 8-16 Frakkland 4 2 118-55 Svíþjóð 2 0 113-51 Luxemburg 3 0 0 3 1-9 0 Þá kom að því að Valur féll

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.