Dagblaðið - 02.05.1979, Side 18

Dagblaðið - 02.05.1979, Side 18
18 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ1979. Helmingi dýrara að tryggja bfl með R-númeri en M-númeri — Ráðherra synjaði tryggingafélögunum að ganga í átt til jöfnunar iðgjalda af bflatryggingum ' Enn er gífurlegur munur á trygg- ingaiðgjöldum af bilum eftir land- svaeðum. Þó tryggingafélögin hafi farið fram á að lægri gjöldin hækk- uðu meira en þau hæstu fengu þau synjun hjá ráðherra og íbúar á Reykjanesi — aðrir en bandarískir varnarliðsmenn — mega því enn greiða miklu hærri gjöld af bílum sínum en aðrir landsmenn og munar þar tugum þúsunda. Tryggingafélögin skipta landinu í þrjú gjaldsvæði. Á dýrasta svæðinu eru bílar með bókstafsnúmerin R, Y, G, ö og J. Á næst dýrasta svæði eru bílar með bókstafsnúmerin A, X, L, E, F, Ó, N og V. Á ódýrasta svæðinu eru bílar sem hafa bókstafsnúmerin M, P, D, B, í, T, H, K, Þ, S, U, Zog JO. Gjöld af miðlungsbíl, t.d. Cortina eru i dýrasta flokki 139.080, 90.600 í miðflokki og 68.640 í ódýrasta flokki. Gjöld af amerískum bíl eru hins vegar 161.200 í dýrasta flokki, 109.920 í miðflokki og 81.960 í ódýr- asta flokki. Verðin eru hér tilgreind með söluskatti en án bónus. Sums staðar er því haldið á lofti að þessi iðgjaldamismunur stafi af tíðni tjóna á hinum ýmsu stöðum, en ef verðflokkarnir eru skoðaðir sést að það er þéttleiki byggðar og um leið umferðar sem öllu ræður. Ýmsum líðst að aka mánuðum og árum saman á Reykjavíkursvæði á bílum sem tryggðir eru i lægsta flokki. Þykir ýmsum það hróplegt ranglæti. Ofan á hærra iðgjald, sem tugþús- undum nemur, sjá nú ibúar Reykja- ness fram á það að greiða stóran hluta oliustyrks til húsahitunar út um land í bensínverði. -ASt. Hann er á dýrasta svæðinu, þessi. Samkvæmt skiptingu tryggingafélag- anna eru dýrustu tryggingarnar á bila með bókstafsnúmerin R, Y, G, Ö og J. DB-mynd: Sv. Þorm. Það cr bæfli stolt or glcfli I svip Sigurieifs Gufljóns- sonar þar scm hann heldur á nýiega bornu lambi á sumardaginn fyrsta. Þessar styrku hendur héldu líka á mömmunni fyrir nokkrum árum þá nýfæddri. „Maflur á erfitt mefl afl hætta þessu, hvafl sem líður öllum stefnum i landbúnafli,” segir Sigurleifur. DH-mynd: Djarnleifur. Viðbrögð við jöf nunargjaldinu EFTA jákvætt, EBE neikvætt „Viðbrögðin við jöfnunargjaldinu hafa verið jákvæð hjá EFTA en nei- kvæð hjá Efnahagsbandalaginu,” sagði Svavar Gestsson viðskiptaráð- herra i viðtali við DB. Sumir sendimanna Islands á fundi ráðherra þessara landa eru komnir heim. ,,Ég býst við mótmælum frá Efnahags- bandalaginu en tel, að þaðláti þarvið sitja,” sagði einn þeirra, Eiður Guðna- son alþingismaður (A). Tilgangur ferðarinnar var að leggja fram pólitísk rök íslendinga fyrir tíma- bundinni hækkun jöfnunargjalds á innfluttar iðnaðarvörur úr 3% í 6% til að styrkja íslenzkan iðnað. Eiður sagði, að EFTA-ríki hefðu tekið þessu vel og Norðurlöndin mjög vel. Hjá Efnahagsbandalaginu hefði verið bent á, að stjórnvöld hér þyrftu að ger,a meira til styrktar iðnaði en þetta eitt, þannig að aðgerðir yrðu víðtækar og samræmdar. -HH. HÖGG- -f-—1T\—V— DEYFAR * ^ * Loftdemparar IUII íflestartegundir bifreiða á ótrúlega hagstæðu verði. Stýrisdemparar • Póstsendum um allt land Gasdemparar HÖGGDEYFIR Dugguvogi 7 — Sfmi 30154 SPENNANDISUMAR EÐA LÆRDÓMSRÍKT ÁR Hefur fjölskylda þín áhuga á aö taka skiptínema frá öðru landi í sumar tíl tveggja mánaða eða í eitt ár, frá og með ágúst? Hafðu samband og kannaðu málið. SIMI: 91-25450 OPIÐ ALLA VIRKA DAGA15-18. Á ÍSLANDI P.O.BOX 753 HVERFISGÖTU 39 121 REYKJAVÍK AFS eru alþjóðlega viðurkennd samtök, sem stunda nemendaskipti milli landa. Steinhljóö! Þversagnir eru eitt af okkar sér- kennum og þær eru óspart notaðar í landkynningu. Helst eru það þær þversagnir móður náttúru, sem hampað er og okkur verður tíðrætt um. Hitt vill stundum fara fram hjá okkur hversu þversagnakennt það er í augum annarra þjóða manna, að við skulum halda hér uppi sjálfstæðu menningarlífi, með öllu sem þvi til- heyrir, eða þykjumst gera það, að minnsta kosti. Skemmtileg vitleysa Steinhljóð er ein af þessum þver- sögnum, ekki aðeins nafnið, samsett úrSteinar ogHljóðriti, nöfnum fyrir- tækjanna sem að því standa, heldur framtakið og tilgangur þessa fyrir- tækis. Það hlýtur mörgum mannin- um að finnast skemmtileg vitleysa að ætla að gefa út alvarlega tónlist á íslenskum markaði. En það gerði Steinhljóð sl. fimmtudag. Músíkalskur hvalreki Á plötu 1001 leika þau Manuela Wiesler og Julian Dawson-Lyell Divertimento eftir Jean Francaix, Intermezzo úr Dimmalimm eftir Atla Heimi Sveinsson, Chant de Linos eftir André Jolivet, Sonatine eftir Pierre Boulez og Calais eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Með þessari plötu leggur Manuela fram enn eitt sönnunargagnið fyrir því að hún sé snillingur. Það er að bera í bakkafutl- an lækinn að hrósa Manuelu. Sjaldan hefur okkur íslendingum fallið til öllu stærri „músíkalskur hvalreki” en þegar hún batt trúss við ungan klarínettuleikara og fluttist með hon- um heim til íslands. Julian Dawson — Lyell er okkur orðinn að góðu kunnur af hljómleikum hér heima. Hann er skemmtilegur slaghörpuleik-' ari, sem fylgir hinni glettnu túlkun Manuelu vel eftir en tranar sér ekki fram að óþörfu. Það er ekki öllum gefið að leika undir flautuleik, svo vel fari. Divertimento Francaix er vel til upphafs fallið á plötunni. Mér var skemmt og auðheyrt er að svo var um Manuelu og Julian einnig. Litla milli- þáttaspilið úr Dimmalimm þykir mér ein af perlum íslenskra tónbók- mennta. Sú trú mín styrktist við að hlýða á það leikið á plötunni. Varð- andi Sönginn um Linos, þennan fyrsta píslarvott tónmenntakennar- anna, er svolítið fyndið, að Jolivet skuli nota veikbyggt hljóðfæri eins og flautu til að tjá hugrenningar sínar um barning Linosar við að kenna Heraklesi hljóðfæraslátt. En Tónlist stundum er hið einfaldasta og veik- asta sterkast. Sonatina Boulez þykir mér þurr formúlutónsmíð og raunar furðulegt hversu þeim tekst að gæða hana lífi. Calais samdi Þorkell Sigur- björnsson fyrir flautusnillinginn Robert Aitken. Var það mál margra, að það væri ekki á færi annarra en Roberts eins að flytja þetta verk, svo vel væri. Á þessari plötu er allt slíkt hjal afsannað, og það rækilega. Tækni er samt ekki allt og með leik sínum tekst Manuelu að gæða verk- ið þeirri seiðmögnun, sem nægir til að lokka fisk úr sjó og kannski fleira. Tamin villimennska Á plötu Steinhljóðs 1002 leika þeir Gísli Magnússon og Halldór Haralds- son á tvær slaghörpur verkin Til- brigði um Stef Witolds Lutoslawskis um stef eftir Paganini og Vorblót Igors Stravinskis. Paganinitilbrigðin eru afar skemmtilega unnin slag- hörpuverk, hnitmiðuð og þeir félagar leika það hressilega. Vorblót Strav- inskis er hugleiðing um ákveðið minni, alþekkta flökkusögu um stúlkuna, sem dansaði sig i hel. Slíkir viðburðir þekktust um allar álfur á tímum dansæðisins mikla „Tarantellunnar”, eftir að svarti dauði hafði gengið yfir. Hér uppi á okkar kalda landi eigum við svo eina skýrustu mynd þessarar flökkusögu í þjóðsögunni af „Dansinum í Hruna”. — í Vorblóti notar Stra- vinski hljómsveitina sem eitt alls- herjar ásláttarhljóðfæri. Þess vegna nýtur það sín ekki síður í útgáfunni fyrir tvær slaghörpur. Þeir Gísli og Halldór eru í leik sínum eins og sam- vaxnir tvíburar. Með þeim er algjört jafnræði. í túlkun þeirra á Vorblóti finnst mér einmitt gæta þessarar tömdu villimennsku sem þetta stór- kostlega verk endurspeglar. Til sóma Útgáfuröð sú sem Steinhljóð hefur nú með þessum tveimur hljómplöt- um ætlar að fara vel af stað og gaman verður að sjá hvernig fram- haldið verður. Umsjónarmenn útgáf- unnar, þeir Jón Þór Hannesson og Karl Sighvatsson, og upptökumenn þeir Máni Sigurjónsson og Sigþór Marinósson á plötu 1002 og Gudrun Gardsjord og Alan O. Lucas á plötu 1001, hafa unnið verk sitt vel. Þeim og flytjendum óska ég til hamingju með árangurinn. EM. I a jólfur Mclsled

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.