Dagblaðið - 02.05.1979, Síða 31
31
DAGBLAÐIÐ: MIÐVIKUDAGUR 2. MAt 1979.
Ct
Utvarp
Sjónvarp
i
LIFIBENOVSKÝ—sjénvarp íkvöld kl. 21.40:
'k
Irskur landnemi
Benovský
ístað
f Benovský vinur okkar frá Slóvakíu
og Ungverjalandi kveður i kvöld áhorf-
endur sjónvarps. í stað hans kemur á
dagskrá myndaflokkur í 8 þáttum sem
nefnist Kaptain and the Kings. Flokk-
urinn er byggður á skáldsögu eftir
Taylor Caldwell.
K
Á leiðarenda nefnist síðasti þátturinn um
Benovský i sjónvarpinu i kvöld.
Raunir Benovskys virðast engan
enda taka. Eftir giftusamlegan flótta
frá Siberiu kemst hann til Parísar og
Maria Teresa, drottning Austurríkis-
Ungverjalands, ákveður að náða hann
af fyrri sökum við sig. Hún sendir
honum náðunarbréf en það var einmitt
það sem Omachel hafði beðið eftir.
Hann brennir bréfið svo Benovský er
enn landlaus. Hann verður því enn á ný
að yfirgefa konu sína og son, sem hann
hafði aldrei séð fyrren þá í París.
Nýi flokkurinn sem kemur í stað
Benovskýs segir frá íra nokkrum sem
kemur til Bandaríkjanna á unglings-
aldri. Honum tekst með frábærum
dugnaði að hefja sig upp til valda og
auðs.
Aðrar fréttir af framhaldsflokkum
sjónvarpsins eru að Húsið á sléttunni er
að verða búið. í stað þess kemur ekkert
og byrja því útsendingar í sjónvarpinu
frá og með miðjum maí klukkan sex á
sunnudögum. Björn Baldursson, dag-
skrárstjóri sjónvarpsins, sagði að sér
væri ekki kunnugt um hvort búið væri
að panta framhald af Húsinu á slétt-
unni en til er annar flokkur þeirra
mynda.
-I)S
________________________________)
MAMMA MÍN VINNUR í BÚÐ - útvarp í dag kl. 17.20:
HVAÐ VITA BÖRNIN UM
STÖRF FORELDRANNA?
Litli barnatíminn verður á dagskrá
útvarpsins klukkan 17.20 i dag. Búið er
að breyta útsendingartima hans frá þvi
rétt eftir hádegið því um sumartímann
þykir sýnt að börn verði þá úti að leika
sér. Þátturinn í dag er í umsjón Val-
dísar Óskarsdóttur og nefnist Mamma
min vinnur i búð. Rætt er við Gunn-
laug örn og móður hans, Sigurbjörgu
Hoffritz.
Valdís sagði að í vetur hefðu verið á
dagskrá ýmsir þættir þar sem börnin
lýsa því hvað foreldrar þeirra gera, ef
þau þá vita það. Flest þau börn sem
spurð hafa verið um vinnu foreldra
sinna vita hvað vinnan heitir en ekki í
K
Valdis Óskarsdóttir, umsjónarmaður
Litla barnatímans. DB-mynd Árni Páll.
hverju hún felst. Einn vissi að pabbi
hans hélt ræður, annar að pabbi las
bækur og litil stúlka vissi að mamma
vann á saumastofu. En hvaða ræður
pabbi hélt, hvaða bækur pabbi las og
hvað mamma var að sauma vissu þau
ekki. Foreldrarnir voru síðan kvaddir í
þáttinn og látnir lýsa þvi fyrir börnun-
um.
Þættirnir voru bæði hugsaðir sem
nokkurs konar starfskynning og eins til
þess að forvitnast um hvernig hinar
ýmsu stéttir eyða tíma sinum, bæði
vinnutíma og frítíma.
Valdís sagði að áður hefði það ekki
verið óalgengt að börn fengu að koma
dag og dag með foreldrum sínum til
vinnu en nú væri það, eftir því sem hún
bezt vissi, að hverfa nær alveg. Bæði
væri að ekki væri hægt að koma með
börn á hvernig vinnustað sem væri og
gæzla barna er orðin önnur en var. . DS
l J
MORGUNTÓNLEIKAR - útvarp ífyrramálið kl. 11.15: '
Schumann fór í mál
til að fá Clöru
í morguntónleikum útvarpsins i
fyrramálið er fyrsta verkið Andante og
tilbrigði fyrir tvö píanó, tvö selló og
horn eftir Robert Schumann. Vladimir
Ashkenazy, Malcolm Frager, Barry
Tuckwell. Amaryllis Fleming og
Terence Weill leika.
Róbert Schumann var uppi á árunum
1810—56. Hann tilheyrir flokki róman-
tískra höfunda í tónlistarsögunni þó
rómantikin hafi verið að syngja sitt síð-
asta er hann var uppi og hann hafi þótt
nokkuð gamaldags. Sérlega hafði sam-
tímamaður hans, Wagner, lítið álit á
Schumann.
Schumann var Þjóðverji og hann
setti mikið mark á þýzka tónlistarsögu
og má segja að hann hafi verið frum-
kvöðull að tónlistargagnrýni. Þegar
V
hann sá að ekkert blað var til sem fjall-
aði um tónlist stofnaði hann^sjálfur
blaðið Neue Zeitschrift fúr Musik og var
ritstjóri þess í 10 ár. Hann skrifaði þar
gagnrýni á tónlist undir dulnefnum og
kynnti jafnframt nýja tónlistarmenn.
Fjölskylda Schumanns var ekki
mikið fyrir tónlist. Eftir að faðir hans
dó mátti móðir hans ekki heyra á það
minnzt að Schumann legði stund á tón-
list, en krafðist þess að hann lærði lög-
fræði. Lengi lét hann að vilja hennar
og las lög bæði í Leipzig og Heidelberg
en lærði jafnframt að leika á píanó.
Kennari hans í Leipzig var Friedrich
Wiech sem var mikill og vel metinn
píanókennari.
Wiech átti dóttur sem einnig var
góður píanóleikari. Hún hét Clara og
vildi Schumann fá hana fyrir konu.
Wiech gamli þvertók fyrir að það kæmi
til mála. En Schumann gerði sér lítið
fyrir og fór í mál við hann og vann það
og fékk Clöru. Hæfni Clöru til að leika
á píanó kom honum vel því sjálfur
hafði hann laskazt á fingri við að reyna
einhvern kínalífselexir sem átti að gera
hann að betri píanista. Eftir það gat
hann ekki leikið opinberlega. Þau
Clara fóru um allt, jafnvel alla leið til
Rússlands og virtist það ekki draga úr
þeim kjark að þau áttu átta börn.
Schumann vann eins og forkur en að
lokum fór svo að hann biluði á sönsum
af of miklu álagi og eyddi hann tveim
síðustu æviárum sínum á geðveikra-
hæli.
- DS
_____________________________________)
I
í
Sjönvarp
Miðvikudagur
2. maí
18.00 Barbapapa. Endursýndur þáttur úr Stund-
inni okkar frá síðastliðnum sunnudegi.
18.05 Búrnin teikna. Kynnir Sigríöur Ragna
Sigurðardóttir.
18.15 Hláturleikar. Bandarískur teiknimynda
flokkur. Þýöandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.40 Knattleikni. 1 þriðja þætti lýsir Colin Todd
hlutverki vamarleikmanna. Þýðandi og þulur
Guðni Kolbeinsson.
19.05 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Nýjasta tækni og visindi. Umsjónarmaður
Ornólfur Thorlaciuls.
21.00 jþifi Benovský. Lokaþáttur. Að leiðarlok-
um. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.
22.05 Fjallabjörninn. Þýsk mynd um bjamdýrs-
veiðar i Himalajafjöllum. Þýðandi Jón Hilmar
Jónsson.
22.50 Dagskrárlok.
^ Útvarp
Miðvikudagur
2. maí
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
Vlð vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Só nótt gleymist aldrei’’
eftir Walter Lord Gísli Jónsson les þýðingu
sína (9).
15.00 Miðdegistónleikar: Margaret Ritchie
söngkona og Halléhljómsveitin ílytja
„ Suöurskautshljómkviðuna” (Sinfonia
antarctica) cftir Vaughan Williams; Sir John
Barbiolli stj.
15.40 tslenzkt mál. Endurtekinn þáttur Jóns
Aöalsteins Jónssonar frá 28. f.m.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregn-
ir).
16.20 Popphorn: Halldór Gunnarsson kynnir.
17.20 Litli barnatiminn. Stjórnandi: Valdis
Óskarsdóttir. „Mamma mín vinnur i búð":
Rætt við Gunnlaug örn og móður hans,
Sigurbjörgu Hoffritz verzlunarstúlku.
17.40 Tónlistartimi barnanna. Stjórnandi: Hgí)!
Friðleifsson.
17.55 Tónlcikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöklsin.
19.00 Fréttir. Fréttaauld. Tilkynningar.
19.35 Einsöngur I útvarpssal: Siegiinde Kahm-
ann syngur tvö tónverk eftir Schubert, „Salve
Regina’* og „Hjarðsveininn á hamrinum”.
Hijóðfæraundirieik annast Ásdis Þorsteins-
dóttir, Helga Hauksdóttir, Helga Þórarinsdótt
ir, Viktoria Parr, Siguröur I. Snorrason og
Guðrún Kristinsdóttir.
20.00 (Jr skólalífinu. Kristján E. Guðmundsson
stjórnar þaettinum.
20.30 CJtvarpssagan: „Fórnarlambió" eftir
Hermann Hesse Hlynur Ámason les þýðingu
sina (4).
21.00 Hljómskálamúsik Guðmundur Gilsson
kynnir.
21.30 „F.inn sit ég yfir drykkju" Sigriður
Eyþórsdóttir og Gils Guðmundsson lesa Ijðð
cftir Jóhann Sigur ónsson.
21.50 Sónata I F-dúr op. 5 eftir Ludnig van
Beethnven. Lynn Harrell og Christoph
Eschenbach leika saman á selló og píanó
(Hljóðritun frá Hailartónleikum í Ludwigs
borg).
22.10 Loft og láð. Pétur Einarsson sér um flug
málaþátt, þar scm talað verður við Lárus
Gunnarsson framkvæmdastjóra Iscargos um
vöruflutninga innanlands og utan.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun
dagsins.
22.50 (Jr tónlistarlifinu. Knútur R. Magnússon
sér um þáttinn.
23.05 Svört 'önlist. Umsjón: Gerard Chinotti.
Kynnir: Jórunn Tómasdóttir.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Afgreiðslustarf
Stúlka óskast hálfan daginn (kl. 1 —6) í silfur-
búð, æskilegur aldur 25—40 ár. Tilboð merkt
„FramtíðarstarF’ sendist auglýsindadeild Dag-
blaðsins fyrir 5. maí.
Vinsælustu _
herrablöðin
MmhCjsio
Laugavegi 178 - Sími86780
n