Dagblaðið - 10.05.1979, Side 2

Dagblaðið - 10.05.1979, Side 2
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1979. 2 ÆTTLEIÐING í STAÐ FÓSTUREYÐINGAR — óvelkomið barn þitt getur verið velkomið annars staðar Kona hringdi: í lesendadálki Dagblaðsins 8. maí las ég grein um fóstureyðingar eftir „mann sem fékk að lifa”. í þeirri grein bendir hann á þann möguleika fyrir stúlkur sem ala óvelkomin börn að gefa þau til ættleiðingar. Ég varð mjög hrifin þegar ég las þessa grein og vii taka undir það sem í henni stendur. Þetta er nefnilega möguleiki sem allt of sjaldan hefur verið bent á. Ég hef sjálf ættleitt tvö börn, annað íslenzkt hitt útlent. Þessi börn hafa veitt mér mikla gleði í lífinu. Nú er hins vegar ekki hægt að fá ættleidd börn hér, hvorki innlend né erlend. Það þýðir ekkert að láta skrá sig hjá barnaverndarnefnd til þess að fá barn, því að nefndin fær engin börn til ráðstöfunar. Það eru því daufir dagar hjá barnlausum hjónum núna. Ég vil mælast til þess að stúlkum sem ekki vilja eiga börn sem þær ganga með sé betur gerð grein fyrir þessum möguleika en gert er. » Ekki virðist vera hægt aö fá börn ættleidd hér, hvorki innlend né er- lend. Þessi litli snáði er frá Kóreu. Reiðhjóli stolið í Hafnarfirði — á meðan eigandinn lá á sjúkrahúsi Karen Kristjánsdóttir hringdi: 9 ára systir mín varð fyrir því óláni að hjóli hennar var stolið frá Mið- vangi í Hafnarfirði á meðan hún lá á sjúkrahúsi með heilahimnubólgu. Það var leiðinlegt fyrir hana að koma heim og fá þessar fréttir. Hjólið var svo til nýtt amerískt telpnahjól, hvítt á lit, með gulum skreytingum. Mig langar því til þess að biðja fólk að hafa augun hjá sér og ef það sér ein- hvers staðar svona hjói í reiðileysi að hringja þá i síma 53526 og láta okkur vita. Ennþá betra væri að sá sem stal því skilaði því hið bráðasta aftur. Þetta er annað hjólið sem stolið er frá henni. Hitt fékk hún aldrei aftur. Hvorki ráðherrum, þingmönnum né öðrum er heimilt að leggja bílum sínum framan við Alþingishúsið. DB-mynd R.Th.Sig. Bannað að leggja —f raman við Alþingishúsið Axel Ketilsson, Sunnubraut 45, skrif- ar: Ekki alls fyrir löngu átti ég erindi niður í bæ og reyndist mér ómögulegt að fá bílastæði. Sáég þá þingmanna- og ráðherrabíla sem hafði verið lagt upp við gangstéttina fyrir framan Alþingishúsið. Gerði ég því slíkt hið sama því réttur minn og þeirra til þess að leggja bifreið þarna hlýtur að vera sá sami. Er ég hafði lokið erindi mínu og kom til baká hafði ég fengið sekt- armiða á bifreið mína. Við nánari at- hugun kom í ljós að bifreið mín var sú eina sem hafði verið skreytt slíkum miða. Nú langar mig að vita hvernig á þessu standi. Hafa ráðherrar og þingmenn rétt á að leggja bifreiðum sínum þarna en ekki ég? DB hafði samband við Óskar Ólason yfirlögregluþjón: „Þetta held ég að geti ekki verið rétt. Það er engum heimilt að leggja bil sínum þarna og yfirgefa hann og fá því mannlausir ráðherrabílar sem‘ aðrir sektarmiða ef þeir standa þarna. Hitt er annað mál að ekki er bannað að stöðva bil þarna og taka farþega og verður þá einhver að sitja í bílnum og það gerist oft. En P- merki eru bæði við Alþingishúsið og Dómkirkjuna þannig að það ætti að vera öllum ljóst að bannað er að skilja eftir mannlausa bíla þar.” Lumenitio BEZTI MOT- LEIKURIIMN GEGN HÆKKANDI BENSÍNVERÐI HABERG h£ Gefum börnunum hollan mat Skyr er búið til úr undanrennu. DB-mynd R. Th. Sig. — t.d. skyrí morgunverð 9867—0254 skrifar: Margendurteknar umræður um smjörfjall okkar íslendinga minna mig á að í fáfræði sinni forðum daga þjáðust íslendingar af sjúkdómi sem skyrbjúgur nefnist og orsakast af C- vítamínskorti. Löngu eftir að njólinn var vaxinn í varpanum, auðugur af C-vítaminum, þjáðist fólkið og vissi ekki að því liði betur og læknaðist er það æti njóla. I þessu sambandi lang- ar mig til þess að minnast á það að mörg börn fara oft svöng í skólann og borða svo eingöngu kex þegar þau koma heim.Þeir sem senda börn- in matarlaus í skólann vita ekki hvað þeir eru að gera. Allir vita hve skyr er gott og að flestir krakkar eru hrifnir af því. En hvers vegna er ekki búið til skyr úr nýmjólk? Það er mikið betra heldur en skyr úr undanrennu. Við það sparast líka vinnan við að skilja mjólkina. Ég ber því fram þá ósk að búið verði til sérstakt skyr fyrir börn til morgunverðar. Ég hef heyrt að skyrgerð okkar sé séríslenzkt fyrir- bæri og ekki vitaö hvaðan hún sé komin. Útlendingar kunna vel að meta það og væri því ekkert til fyrir- stöðu að flytja það út eins og ost ef vel væri unnið. Hentug pakkning er vitanlega forsendan þvi það má eng- inn vera að þvi að hræra skyr heima hjá sér. En við verðum að borða hvað sem hver segir. Svangir krakkar geta ekki lært, ekki vaxið og líður illa. Það hefnir sín að ala ungviðið illa og neyzluvenjur okkar íslendinga eru orðnar þjóðinni til skammar. Neyðin rekurfólk til að hugsa 4969—8577, tölvunúmer i sálarlausu þjóðfélagi, skrifar: í gegnum fortið og nútíð skal spá í framtíð. Neyðin i dag rekur fólk til að hugsa um það hverju stefna skal að. Ef það er óbreytt ástand um tíma skaltu líta á barnið þitt fína og spyrja það hvort nokkuð sé að þótt þú veðsetjir það. Og lífsstarf þitt er og var að veita því það sem þú arfleiðir að. Þú óskar þess ei að það saklausa grey þurfi að líöa neinn skort þegar þú kallast brott. Mér flökrar við því hvað við leiðum þau í, inní skítugan heim þar sem líftð er geim. Líttu nú á hvað hér er að fá. Ef áheit eru góð verður hamingja þín stór. Og hvar er hún í dag? Þú spyrð þig um það. Hún týnist víst oft ofan í eigingjarnt kofort. Þegar græðgin er sem mest líkar skrattanum bezt. Enda brennur samvizkan bezt þegar líkaminn ferst. Að uppskera eins og menn sá þið sjáið það þá, þegar skaparinn spyr: hvað gerðuð þið? Þú svara því ei þarft, hann sér það víst allt. Hugsaðu hátt því frjálsan vilja þú átt. Og leir- burður sá, sem hér fer mér frá, er til að minna þig á lögmálin hárfín og smá sem svipta lífinu til og frá. Heimilis- læknir Raddir lesenda taka við skilaboðum til umsjónar- manns þáttarins „Heimil- islæknir svarar" 1 sima 27022, kl. 13-15 alla virka daga. Símar: 29330/29331 Mercury Comet árg. ’73, grænsans. 6 'VW Golf árg. ’78, ekinn 28 þús. Gull- Dodge Charger árg. ’73, 8 cyl., 400 Simca Matra árg. ’74, ekinn 27 þús., 3 sjálfsk. Verð 2,3. Einnig Snapper fallegur bfll f toppstandi. Skipti á ódýr- cub., sjálfsk., brúnsans, sumard., afl- stólar frammi f, gulur, sumard. 18 1/2 fet ónotaður á vagni m/80 ha. ari koma til greina. stýri + -bremsur, útvarp. Bill i sér- Sérstakur eyðslugrannur sportbill sem vél, rafmagnsstart, powertrim + tal- flokki. Verð3,5millj.Skiptimöguleg. marga langar f. Istöð.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.