Dagblaðið - 10.05.1979, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 10.05.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 10. MAl 1979. 7 Erlendar fréttir ÖLAFUR ! GEIRSSON. Ökumaður bifreiðarínnar blindaðist af sólinni og ók yfir á brautarteinana i veg fyrir lestina. Þetta var í Danmörku fyrir nokkrum dögum. Allir sem í bifreiðinni voru, ökumaðurinn og tvö ung börn hans, létust 1 slysinu. Meira en tvær klukkustundir iiðu þar til tókst að ná iíkunum úr flakinu. Washington: Tilkynnt um Saltsamkomu- lagið fgær Talið er víst að harðar umræður verði í öldungadeild bandaríska þings- ins um hið svonefnda Saltsamkomulag. Tilkynnt var um að niðurstöðu væri náð í áralöngum umræðum sovézkra og bandarískra embættis- og stjórn- málamanna um takmörkun kjarnorku- vigbúnaðarkapphlaupsins. Var þetta tilkynnt í Washington í gær en ekkert hefur heyrzt um málið opinberlega í Moskvu. Margir öldungadeildarþingmenn eru sagðir andvígir samkomulaginu og telja að Sovétmenn hafi snúið á samninga- menn Jimmy Carters. Til að samningurinn verði fullgildur verða tveir þriðju hinna eitt hundrað öldungadeildarþingmanna að sam- þykkja hann. Þykir nokkur vafi á að Carter Bandarikjaforseta og aðstoðar- mönnum hans takist að fá nógu marga þingmenn til samþykktar. Ætlunin er að formlega verði gengið frá samningunum á fundi þeirra forset- anna Brésnefs og Carters í júní næst- komandi. Líklegast er talið að sá fund- ur verði í Stokkhólmi, Genf eða Vín. Menn hafa nokkrar áhyggjur af heilsu- fari Brésnefs forseta Sovétríkjanna og er jafnvel óttazt að hann geti ekki komið til fundar við starfsbróður sinn vestra. Kínverjar hafa lýst yfir vanþóknun sinni á Saltsamkomulaginu. Segja þeir að þarna sé enn eitt dæmið um laumu- spil stórveldanna, sem beinist gegn öðrum þjóðum heimsins. Öldungadeild sam- þykkir skömmtun Heimild til forseta Bandaríkjanna um að taka upp skömmtun á bensíni í neyðartilvikum var samþykkt í öldungadeild þingsins í Washington í gær. Yfirvöld í Kaliforníu höfðu þó ekki séð sér fært að bíða eftir sam- þykktum opinberra ráðamanna alríkis- stjórnarinnar en þar var tekin upp bensinskömmtun i gærmorgun. Málið fer nú til fulltrúadeildarinnar en þar er búizt við hörðum umræðum. Ekki eru allir sannfærðir um nauðsyn slíkrar heimildar til handa forsetanum. Ekki hefur fyrr verið gripið til bensínskömmtunar síðan árið 1973, þegar hin svonefnda orkukreppa stóð sem hæst. Bandarísk olíufélög telja sig hafa orðið fyrir miklum skakkaföllum, er olía frá íran hætti að berast. Aðrir benda á að slíkt geti tæpast staðizt þar sem aldrei hafi borizt meira en 7% af heildaroliunotkuninni þar vestra frá íran. ísraelsher í Líbanon Herlið ísraelsmanna hertók í gær þorp eitt innan við landamæri Líbanon. Fór lið fimm hundruð ísraelskra hermanna inn fyrir landa- mærin á hæla hóps skæruliða, að eigin sögn. Eru skæruliðarnir sagðir hafa ráðizt inn í ísrael og unnið þar skemmdarverk. Hópar þjóðvarðliða hinna svo- nefndu kristnu hægri manna í Líbanon, sem ráða mestu i suður- hluta landsins, aðstoðuðu ísraelsku hermennina. Tóku þeir þorp eitt og höfðu það á sinu valdi i nokkrar klukkustundir. ísraelskir hermenn hafa ekki ráðizt inn í Líbanon síðan i marz í fyrra. Þá fór tuttugu þúsund manna herlið yfir landamærin og tók stóran hluta landsins á sitt vald. Þessi vandaði danski pylsuvagn er til sölu vegna breytinga. Söluleyfi á Lækjartorgi fylgir ekki. Vagninn er rafdrifinn, með allar lagnir og teng- ingar, töflu og mæli. Fjórir pylsu- pottar, tveir vaskar ásamt vatnshit- ara og hlifðarskildir fyrir fjórar sölu- lúgur. Loftræstivifta, fataskápur og fjórar útiluktir. Stærö 2X3 metrar og 2,50 m lofthæð. Hjólabúnaður fylgir. Hentar vel sem alhliða sölu- vagn meðfram þjóðvegum jafnt sem í þéttbýli. Upplýsngar í síma 74575 og hjá aug- lýsingaþjónustu DB, sími 27022. Nýtt á markaðinum! Innkaupastjórar athugiö! Mjög hagstætt verð á Olivia Shampoo frá mSYCAT JÚLÍUS SVEINBJÖRIMSSON HEILDVERZLUN LAUGAVEGI26 - SÍMI20480

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.