Dagblaðið - 10.05.1979, Page 15
14!
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 10. MAl 1979.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 10. MAl 1979.
15
Iþróttir
Bob Paisley f ramkvæmda-
stjóri Liverpool á 40 ára
starfsaf mæli á þessu ári
Á þessu ári eru nákvæmlega 40 ár siðan Bob Pais-
ley, núverandi framkvæmdastjóri Liverpool, hóf
feril sinn hjá félaginu. Hann byrjaði sem leikmaður
1939 og var þá talinn mjög góður. Siðari heims-
styrjöldin gerði það að verkum að beztu ár hans fóru
í súginn en 1947 varð hann enskur meistari með
Liverpool.
Hann tók við stöðu aðstoðarþjálfara liðsins og
var síðar gerður að aðalþjálfara. Haustið 1974 tók
hann við framkvæmdastjórn af Bill Shankly.
Flestir töldu að hann gæti aldrei náð jafn góðum
árangri með Liverpoolliðið og Shankly, en Paisley
hefur þegar, á fimm árum, gert leikmenn Liverpool
þrívegis að meisturum, tvöföldum Evrópumeist-
urum og einu sinni varð Liverpool UEFA meistari
undir hans stjórn.Liverpool hefur unnið sex meiri-
háttar titla undir hans stjórn, en félagið vann 7 titla
undir stjórn Shanklys á 15 árum. Paisley hefur bara
verið með liðið i 5 ár.
Frank McGarvey
kominn í landsliðshópinn
hjá Skotunum
Aðra helgi hefst meistarakeppni Bretlandseyja, eða
Home Championships, eins og keppnin er nefnd á
ensku. í henni taka þátt lið Englands, Skotlands, N-
írlands og Wales. í gærkvöldi var skozki hópurinn
tilkynntur og vakti það mikla athygli að Frank
McGarvey, sem Liverpool keypti í vikunni, skyldi
valinn í 22 manna hópinn.
Derek Parlane, einn helzti markaskorari Rangers,
var ekki valinn og vakti það í senn undrun og reiði
almennings í Skotlandi. Þá er Gordon McQueen
kominn í hópinn á ný, en Alan Hansen frá Liverpool
bolaði honum úr landsliðinu fyrir nokkru. Auk
þessara má nefna John Robertson, Archie Gemmill
og Martin Buchan, sem allir eru örugglega í
hópnum. Endanlegur hópur hafði ekki verið til-
kynntur þegar DB fór í prentun í morgun.
Jafntefli erkif jendanna
Dana ogSvía
Erkifjendurnir Danir og Svíar gerðu jafntefli 2—2
í vináttulandsleik, sem fram fór á Idrætsparken að
viðstöddum 31.000 áhorfendum i gærkvöldi. Staðan
í hálfleik var 1—1. Það voru þeir Ingemar Erlands-
son og Billy Ehlson, sem skoruðu fyrir Svíana en
Benny Nielsen og Sören Lerby svöruðu fyrir
Baunana.
Allir beztu leikmenn beggja liða voru með, utan
að Allan Simonsen átti ekki heimangengt vegna
úrslitaleiks UEFA kcppninnar i Belgrad.
Portúgalar unnu
Norðmenn ígærkvöldi
Portúgalar unnu í gærkvöldi mjög mikilvægan
sigur á Norðmönnum i Osló i 2. riðli Evrópukeppni
landsliða. Eina mark leiksins skoraði Joao Alves á
34. mínútu. Sigurinn þýðir það að Portúgalar eru
nú efstirl 2. riðli.
Norðmenn áttu allan seinni hálfleikinn eins og
hann lagði sig en tókst ekki að skora, utan einu sinni
er Tom Lund kom boltanum í netið. Markið var
dæmt af vegna brots á markverði. Norðmenn fengu
10 hornspyrnur en tókst ekki að færa sér þær í nyt
og 10.000 áhorfendur sneru því vonsviknir heim að
leiknum loknum.
Staðan í riðlinum
Portúgal 4 3 1 0 5—2 7
Austurríki 5 2 2 1 7—5 6
Belgía 4 0 4 0 3—3 4
Skotland 3 1 0 2 5—6 2
Noregur 4 0 1 3 3—7 1
Töpuðu eftir
framlengingu
og vítakeppni
— Skagamenn töpuðu fyrir landsliði
Burma f úrslitum mótsins í Indónesíu
— Þrátt fyrir tapið í úrslitaleiknum
gegn Burma, leikur enginn vafi á að
árangurinn hjá strákunum er hreint út
sagt frábær, sagði Þröstur Stefánsson,
formaður íþróttabandalags Akraness,
við DB í gær.
Akurnesingar léku til úrslita í mótinu
i Indónesiu við landslið Burma og
máttu þola tap eftir vitaspyrnukeppni.
Það var hinn ungi og efnilegi Svein-
björn Hákonarson sem náði forystunni
Jón Hjaltalín
þjálfar ÍA
Fyrr á þessu ári var greint frá þvf i
dagblöðunum, að Akurnesingar
hygðust ráða Jón Hjaltalin, sem
þjálfara og leikmann fyrir næsta
keppnistimabil i handboltanum. Jón
kemur til með að starfa við jámblendi-
verksmiðjuna að Grundartanga og eru
þvi hæg heimatökin.
Fyrir skömmu ræddu forráðamenn
þandknattleiksráðs ÍA við Jón og eftir
þaw viðræður er talið næsta víst að
hann^aki að sér þjálfun liðsins næsta
vetur.
fyrir Skagamenn í fyrri hálfleiknum, en
Burma jafnaði í siðari hálfleik.
Eftir venjulegan leiktíma var enn
jafnt, 1-1, og var þá gripið til framleng-
ingar. Ekki tókst liðunum að skora i
henni og var því enn jafnt 1-1 að henni
lokinni.
Þá varð að fara fram vítakeppni og
þar brugðust taugar Skagamannanna
því þeir létu verja frá sér tvær víta-
spyrnur og Burma stóð þvi uppi sem
sigurvegari i leiknum.
Skagamenn þurfa þó svo sannarlega
ekki að blygðast sin fyrir þennan ár-
angur. Þeir hafa haldið merki is-
lenzkrar knattspymu hátt á lofti f þess-
ari ferð.
Akurnesingum hefur verið boðið i
þessa keppni næsta ár, en að auki hlutu
þeir um 1250 dollara verðlaun eða jafn-
virði tæplega hálfrar milljónar ísl.
króna. Þá hlutu þeir veglegan bikar að
launum fyrir 2. sætið.
Strákarnir koma heim frá Indónesíu
á morgun og cr ekki að efa, að þeim
verður vel tekið við heimkomuna.
Strax um helgina hefst undirbúningur
þeirra fyrir íslandsmótið og fyrsti leik-
urinn verður gegn Keflavík nk. mið-
vikudagskvöld kl. 20.
Reykholt—Islandsmeistarar i 2. fl. stúlkna i körfuknattleik 1979. Aftari röð frá
vinstri: Guðrún Margrét Ólafsdóttir, Elsa Dóra Gísladóttir, Valgerður Hannes-
dóttir, Kristín Eyjólfsdóttir, Arna Hallgrímsdóttir, Laura Hiidur Jakobsdóttir,
Guðrún Margrét Sigurðardóttir og Gunnar Svanlaugsson þjálfari. Fremri röð frá
vinstri: Guðbjörg Sigurgeirsdóttir, Vilborg Tryggvadóttir, Sólborg Alda Péturs-
dóttir og Agnes Guðmundsdóttir.
Góður árangur
Reykhyltinga
— í yngri f lokkunum í körfubolta
Reykholti 24.4.1979.
Þann 7. apríl sl. fór fram úrslita-
leikur i íslandsmóti 2. flokks stúlkna i
körfuknattieik og fór leikurinn fram i
iþróttahúsinu i Borgarnesi. Þar áttust
við Reykholtsskóli i Borgarflrði og ÍR.
Reykholt sigraði i þessum leik með 21
stig I gegn 18. Staðan i hálfleik var 12—
6 IR í vil. Reykholtsstúlkurnar mættu
tviefldar til leiks i seinni hálfleik og
sigruðu sem fyrr segir 21—18. ÍR-ingar
kærðu þennan leik en ekki er búið að
útkljá það mál.
Strákarnir í Reykholti voru meðal
þátttakenda í íslandsmótinu í 2. flokki
pilta í körfuknattleik. Þeir stóðu sig
mjög vel eins og stúlkurnar og lentu í
þriðja sæti.
Þessi tvö lið hafa einnig staðið sig vel
í keppnum sem háðar hafa verið innan
Borgarfjarðar í vetur. Má þar nefna að
þau sigruðu í karla- og kvennaflokki í
hraðmóti í körfuknattleik á vegum
samstarfsnefndar framhaldsskólanna
í Borgarfirði. Það mót var haldið í
byrjun desember. Strákarnir urðu í
öðru sæti i hraðmóti UMSB sem haldið
var í marz. Þeir töpuðu naumlega fyrir
meistaraflokki Skallagríms, sem leikur
í 1. deild, með 19 stigum gegn 21.
Árangur þessara liða er sérstaklega
athyglisverður þegar þess er gætt að
aðstaða til æfinga í Reykholti er ekki
upp á marga fiska. Leikfimisalurinn er
byggður 1931 og hann, og allt sem
honum fylgir, er fyrir löngu úr sér
gengið. Salurinn erinnan við 10 m á
breidd og u.þ.b. 17 m langur.
Sömuleiðis er aðstaða í búnings- og
sturtuklefum mjög bágborin og þar er
allt löngu orðið úrelt.
Þetta sýnir að toppaðstaða er ekkert
skilyrði fyrir velgengni, þó hún sé
auðvitað mjög æskileg í sjálfu sér,
heldur hafa áhugi og góður liðsandi
innan hvers keppnishóps mjög mikið
að segja.
Það er hægt að komast ótrúlega
langt í keppni ef þetta tvennt er fyrir
hendi.
m m
* »
-»■! !«
Lið Liverpool, ensku meistaranna 1979. Efsta röð frá vinstrí: Joey Jones (nú hjá
Wrexham), Ray Clemence, Steve Ogrizovic, Alan Hansen og Phil Thompson. Mið-
röð frá vinstrí: Ronnie Moran (aðalþjálfari), Graeme Souness, David Fairclough, Ray
Kennedy, David Johnson, Phil Neal og Joe Fagan (aðstoðarþjálfarí). Fremsta röð frá
vinstrí: Kenny Dalglish, Steve Heighway, Bob Paisley (framkvæmdastjórí), Emlyn
Hughes, Terry McDermott og Kevin Sheedy. Fyrir framan Bob Paisley stendur
Evrópubikarínn, sem Liverpool vann sl. ár.
Bezta félagslið Eng-
lands fyrr og síðar
DB rekur sögu Liverpool allt frá upphafi, en félagið varð enskur meistari í 11. sinn á miðvikudag
Sem kunnugt er tryggði Liverpool sér
enska meistaratitilinn i 11. skipti á mið-
vikudagskvöld. Kom það alls ekki á
óvart þvi liðið hefur verið i algerum
sérflokki i vetur. Þegar tveir leikir eru
nú eftir á Liverpool enn möguleika á að
bæta stigamet Leeds frá 1969, en það er
67 stig og þykir enn þann dag f dag vera
ævintýralega hátt. Annað met sem er i
hættu er það met sem Liverpool á
ásamt Forest, að hafa minnst fengið á
sig 24 mörk á einu keppnistimabili.
Liverpool afrekaði þetta keppnistíma-
bilið 1968—69 og siðan aftur 1970—71.
Forest jafnaði siðan metið á sl.
keppnistímabili. Liverpool hefur nú
fengið aðeins 16 mörk á sig og nær
óhugsandi er annað en metið verði
bætt. Það er þvi ekki úr vegi að staldra
aðeins við og fara yfir sögu þessa stór-
kostlega félags.
Liverpool Football Club, eins og
félagið heitir fullu nafni, var stofnað
árið 1892. Stofnun félagsins bar að
með nokkuð óvenjulegum hætti.
Þannig var mál með vexti, að hækka
átti leiguna á landi þvt er Everton, sem
var stofnað 1878 og gerðist atvinnu-
mannalið 1885, hafði til afnota. Á
þeim tíma voru öll fjármál í höndum
leikmanna liðsins og nokkrir þeirra
vildu ekki sætta sig við auknar
greiðslur og því klofnaði félagið.
Þannig varð Liverpool F.C. til. Það er
því nokkuð víst, að þá leikmenn sem
hættu hjá Everton hefur aldrei órað
fyrir því hversu mikið veldi Liverpool
áttieftir aðverða.
Árið 1893 tók Liverpool fyrst þátt í
deildakeppninni. Félagið lék í 2. deild
og vann hana með miklum yfirburðum
og tapaði ekki leik. Veran í 1. deildinni
varð þó stutt i það sinnið því liðið féll
niður í 2. deild strax á fyrsta ári. önnur
deildin vannst síðan aftur Jiæsta ár og
leiðin lá að nýju upp i 1. deildina.
Liverpool varð um miöja deild 1898 en
1899 hafnaði liðið í 2. sæti og komst í
undanúrslit bikarsins en tapaði fyrir
Sheffield United eftir þrjá leiki.
Aldamótaárið gekk Liverpool ekki
eins vel og árið áður, en 1901 varð
Liverpool í fyrsta skipti enskur meist-
ari. Liðið hlaut 45 stig úr 34 leikjum.
Dvölin á toppnum varð skammvinn
og þremur árum síðar féll Liverpool í 2.
deildina á nýjan leik. Það varð þó ekki
um langt stopp að ræða í 2. deildinni
fremur venju og Liverpool vann sig
upp strax aftur og varð meistari í annað
sinn 1906. Þaö sama ár tapaði liðið
fyrir Everton í undanúrslitum bikars-
ins. Næstu ár á eftir gekk hvorki né rak
en liðið hafnaði þó í 2. sæti 1910.
Árið 1914 komst Liverpool í fyrsta
sinn í úrslit bikarkeppninnar. Mótherj-
arnir voru Burnley og Liverpool mátti
þola 0-1 tap á leikvelli Crystal Palace.
Wembley kom ekki til sögunnar fyrr en
9 árum síðar. Siðan varð hlé á allri
keppni í 5 ár vegna stríðsins, en 1920
hafnaði Liverpool í 4. sæti í 1. deild.
Þetta var fyrsta keppnistímabilið, sem
leikirnir voru 42 talsins, eins og fyrir-
komulagið er enn í dag.
Árið eftir varð það sama uppi á ten-
ingnum, en 1922 varð Liverpool
meistari í 3. sinn í sögu félagsins. Hlaut
liðið 57 sdg — 6 meira en Tottenham,
sem varð í öðru sæti.
Ekkert var nú gefið eftir og 1923
varð félagið aftur meistari — nú með
60 stig, sex meira en Sunderland. Liver-
pool hafði lengi búið við skrykkjótt
gengi og engin breyting varð þar á eftír
þessa tvo meistaratitla í röð. Liverpool
varð í 4. sæti 1926 og 5. sæti 1929 en
árin þar á milli og næstu ár á eftír voru
slök og var Liverpool iðulega um miðja
deild og fram undir stríð varð Liver-
pool ekki ofar en í 7.—8. sætí.
Hvíldin frá knattspyrnu virtist hafa
góð áhrif á félagið því strax á fyrsta
keppnistímabilinu eftir strið — 1946—
47 — varð Liverpool meistari. Þá var
Bob Paisley, núverandi framkvæmda-
stjóri, leikmaður með liðinu. Þetta
sama ár komst Liverpool i undanúrslit
bikarsins gegn Burnley en tapaði eftir
aukaleik. Strax eftír titilinn fór að halla
undan fæti á ný, en félagið komst þó í
úrslit á Wembley í bikarnum gegn
Arsenal 1950aðeins til aðtapa0-2.
Liverpool slapp naumlega við fall
vorið 1953, en ári síðar varð fallið ekki
umflúið og Liverpool var komið i 2.
deild eftir að hafa verið í þeirri fyrstu í
samfleytt 48 ár. Og nú hófst erfið bar-
átta við að komast upp úr annarri
deildinni.
Árin 1956 og 1957 varð Liverpool í 3í
sæti. Næstu tvö ár, 1958 og 1959', Varð
liðið í bæði skiptin í 4. sæfi. Árin 1960
og 1961 hafnaði Livefþool í bæði
skiptin í 3. sætinu og áhangendur liðs-
ins voru farnir að halda að því ætlaði.
aldrei að takast að komast upp. Bill
Shankly, einn litríkasti framkvæmda-
stjóri enskrar knattspyrnusögu, tók við
liðinu haustið 1959.
Hann byrjaði á að stokka allt upp og
fékk til liðs við sig menn eins og Ian St.
John og Ron Yeats. Þessir menn ásamt
lan Callaghan og Roger Hunt voru
lykilmenn í sigurliði Liverpool í 2.
deildinni vorið 1962. Livepool vann
deildina með miklum yfirburðum og
hlaut 62 stig, en Orient varð í öðru sæti
með 54 stig. Með þessu mikilvæga
þrepi hófst sigurganga Liverpool, sem
stendurenn.
Fyrsta árið í 1. deildinni var nokkuð
erfitt eftir margra ára fjarveru og liðið
hafnaði í 8. sæti, en komst i undanúr-
slit bikarsins — tapaði þar fyrir
Leicester.
Vorið 1964 kom 6. meistaratitillinn
til félagsins, en í bikarnum tapaði
Liverpoo! 1-2 fyrir Swansea á heima-
velli í 6. umferð og voru það óvæntustu
úrslit í bikarnum í mörg ár.
Árið 1965 hóf Liverpool þátttöku i
Evrópukeppni meistaraliða og síðan
hefur Liverpool leikið í einhverri hinna
Kenny Dalglish
þriggja Evrópukeppna hvert einasta ár.
Árangurinn i 1. deildinni varð þokka-
legur — 7. sæti, en loks eftir langa bið
kom enski bikarinn til Anfield. Liver-
pool vann Leeds í úrslitum á Wembley
2- 1. Þetta sama ár komst félagið í
undanúrslit Evrópukeppni meistaraliða
gegn Inter Milanó. Eftir að hafa unnið
3- 1 á Anfield gerðu menn sér góðar
vonir um sætí í úrslitunum, en þær
hurfu eins og dögg fyrir sólu þegar
Liverpool tapaði 0-3 í síðari leiknum á
San Siro leikvellinum. Fyrri leikurinn
gegn Milanó er enn þann dag í dag tal-
inn einn allra bezti leikur Liverpool frá
upphafi.
Liverpool vann svo enska meistara-
titilinn aftur 1966 — þá í 7. sinn og
komst jafnframt í úrslit Evrópukeppni
bikarhafa, en tapaði fyrir Borussia
Dortmund 1-2 á Hampden Park í Glas-
gow, áhangendum liðsins til sárra von-
brigða.
Það lið sem Shankly hafði byggt upp
i kringum 1960 var nú farið að láta
þálitið á sjá, en engu að síður tókst
felaginu alltaf að standa sig vel í deilda-
keppnipni.
Árið 19?D hófst mikil bylting á An-
field og þá Kóf Shankly uppbyggingu
algerlega nýs liös með leikreyndum
köppum inn á miili, Næstu árin var
liðið nær alltaf þannig, skipað: Ray
Clemence, Chris Lawler, Alec Lindsay,
Tommy Smith, Larry Lloyd, Emlyn
Hughes, Kevin Keegan, ■ Peter
Cormack, Steve Heighway, Jobn
Toshack og Ian Callaghan. Þetta lið
stóð sig mjög vel, varð m.a. meistari,
bikarmeistari og vann UEFA bikarinn
einu sinni.
Síðustu árin hefur Liverpool gert
meira af því að kaupa leikmenn og
hefur liðið þar af leiðandi tekið miklum
breytingum. Emlyn Hughes, sem hefur
verið hjá Liverpool síðan 1967 og hefur
þjónað félaginu betur en flestir aðrir,
er nú að syngja sitt síðasta. Ian Callag-
han, Tommy Smith og Toshack eru nú
allir hjá Swansea og nýir leikmenn hafa
tekið þeirra stöður.
Það tæki allt of mikið rúm að rekja
árangur liðsins sl. 6—7 ár í skrifuðu
máli, þannig að hér á eftir fylgir tafla
yfír árangur liðsins í 1. deildinni og
öðrum keppnumsíðan 1%3. FAtáknar
enska bikarinn, LC deildabikarinn.
Tölurnar fyrir neðan sýna hversu langt
liðið komst hverju sinni (í hvaða um-
ferð það var slegið út). Ú stendur fyrir
úrslit, S fyrir sigurvegara og UÚ þýðir
að liðið hefur verið slegið út í undanúr-
slitum. Þá skal geta þess að keppnin
Fairs Cup er nú það, sem er ÚEFA
bikarinn.
- SSv.
Ár ( 1. deild FA LC Evrópa
1963 8 UÚ — —
1964 16 — —
1965 7 S — UÚ (E.meist.)
1966 I 3 — Ú (E.bik.)
1967 5 5 — 2(E.meist.)
1968 3 6 2 3 (Fairs Cup)
1969 2 5 4 1 (Fairs Cup)
1970 5 6 3 2 (Fairs Cup)
1971 5 Ú 3 UÚ(FairsCup)
1972 3 4 4 2 (E.bik.)
.1973 1 4 5 S(UEFA)
1974 2 S 5 2(E.meist.)
1975 2 4 4 2(E.bik.)
1976 1 4 3 S(UEFA)
1977 1 Ú 2 S(E.meist.)
1978 2 3 Ú S (E.meist.)
1979 1 UÚ 2 1 (E.meist.)
Sjálfsmark varð Rauðu
stjörnunni að falli
— Rauða stjarnan náði aðeins 1—1 jafntef li gegn Borussia
Sjálfsmark varnarmannsins Ivan
Juristic á 60. mínútu reyndist Rauðu
stjörnunni frá Belgrað ærið dýrmætt í
fyrri úrslitaleik UEFA-keppninnar.
Forysta Rauðu stjörnunnar var aðeins
eitt mark og með marki sinu jafnaði
Juristic metin fyrir Borussia. Mark
Rauðu stjörnunnar skoraði hins vegar
Sestic á 21. mínútu.
Það var geysimikil stemmning á leik-
velli Rauðu stjörnunnar í gærkvöldi og
rúmlega 90.000 áhorfendur voru með á
nótunum allt frá upphafi. Fyrir leikinn
hafði þjálfari Rauðu stjörnunnar sagt,
að hans menn myndu örugglega vinna
leikinn, en slikt grobb borgar sig ekki
fyrirfram.
Miklar rigningar voru nóttina fyrir
leikinn og var völlurinn því flugháll.
Leikmenn áttu í erfiðleikum með að
fóta sig i upphafi en náðu smám saman
tökum á verkefni sínu. Leikmenn
Rauðu stjörnunnar sóttu ákaft allt frá
fyrstu mínútu — vel studdir af hinum
90.000 áhorfendum. Borussia, með
Berti Vogts í broddi fylkingar, varðist
KV0DDU DEILDINA
MEÐGÓDUM SIGRI
— Blacburn vann Fulham 2—1 ígærkvöldi
Blackburn Rovers, sem er kolfallið f
3. deild, kvaddi 2. deildina með sigri í
gærkvöldi er liðið fékk Lundúnaliðið
Fulham í heimsókn á Ewood Park.
Lokatölur urðu 2—1 fyrir Blackburn
og sá sigur undirstrikar enn hversu
undarlegt fall Blackburn er í 3. deild-
ina.
Blackburn hefur á lokasprettinum í
deildinni lagt þrjú af fimm efstu liðum
deildarinnar. Leikmenn Sunderland
urðu illilega fyrir barðinu á liðinu er
þeir töpuðu 0—1 fyrir því á eigin
heimavelli og sömu sögu er að segja
um Stoke. Stoke mátti þola 0—-2 tap á
heimavelli. Sl. laugardag gerði Black-
burn síðan endanlega út um vonir West
Ham með því að vinna 1—0. Hreint
undarlegt að liðið skuli falla með slíka
sigra í pokahorninu.
Úrslit í gærkvöldi.
1. deild
Nottingham F-Manchester C 3—I
2. deild
Blackburn-Fulham
3. deild
Lincoln-Bury
T ranmere-Colchester
2—1
1—5
„Hef ekki
hugsað mér
að fara”
— Nei, ég hef ekkert hugsað mér að
fara frá Njarðvík, sagði landsliðs-
maðurinn i körfuknattleik, Gunnar
Þorvarðarson, er DB bar undir hann
þann orðróm að hann væri að ganga
yfir í Val.
— Ég hef reyndar sjálfur heyrt
þennan orðróm, sagði Gunnar, en
hann á ekki við nein rök að styðjast. —
Ég ætla örugglega að verða áfram hér
hjá Njarðvík og sömu sögu er að segja
um alla okkar leikmenn, utan Geirs
auðvitað, sem er genginn i KR.
Þrálátur orðrómur hefur verið hér i
höfuðborginni, þess efnis að Gunnar
ætlaði aðgangayfirí Val. Þá hefurþað
einnig heyrzt sterklega að miklar líkur
séu á, að Ármenningarnir Atli Arason
og Jón Björgvinsson hyggist ganga í
Val en vera má að ekki sé meira til í
þeim orðrómi en þeim sem spannst um
Gunnar Þorvarðarson.
Stúdentar hafa ákveðið að ráða
Trent Smock til sín áfram, að því bezt
er vitað, og mun hann hefja æfingar i
ágúst með liðinu.
Eftir því sem DB hefur frétt mun vera
mikil hreyfing á mönnum á milli félaga
og hefur aldrei verið meiri en í ár.
Þessar auknu hreyfingar koma sjálf-
krafa í kjölfar þeirrar þróunar sem
hefur verið undanfarin 2—3 ár. Liðin
leggja allt upp úr góðum árangri í
úrvalsdeildinni því góður árangur er
undirstaðan fyrir góðum rekstri deild-
anna. í vetur skilaði körfuboltinn af sér
hagnaði hjá mörgum deildanna og
hefur slíkt ekki gerzt hérlendis í manna
minnum að neinu ráði.
4. deild
Halifax-Hereford
Rochdale-Torquay
Skotland — 1. deild
Montrose-Dumbarton
1—0
1—0
0—2
Sigur Forest yfir Manchester City var
mjög öruggur, en Forest er nú að berj-
ast við WBA um annað sætið í deild-
inni og stendur þar mun verr að vígi.
Hefur stigi minna og með leik fleira.
Lincoln og Tranmere töpuðu bæði
mjög illa á heimavelli í 3. deildinni og
falla bæði í 4. deild. Upp úr 4. deild-
inni koma hins vegar Grimsby,
Reading, Barnsley og Wimbledon.
aftur á mjög vel og gaf ekki mörg færi
til þess að skora. Vörnin opnaðist þó
iililega á 21. mínútu og framherjinn
Sestic var ekkert að hika við hlutina
heldur sendi boltann í netið með föstu
skoti af stuttu færi.
Allan hálfleikinn hafði Rauða stjarn-
an undirtökin án þess að geta bætt við
mörkum og þegar flautað var til hlés-
var staðan óbreytt — 1-0.
Greinilegt var á öllu í upphafi seinni
hálfleiks að nú hygðist Borussia leggja
allt i sölurnar til þess að reyna að jafna
metin. Tveir tengiliðanna voru færðir
framar á vellinum og sóknin varð beitt-
ari fyrir vikið.
Á 60. mínútu brunaði Daninn litli,
Allan Simonsen, upp hægri kantinn :>g
gaf vel fyrir markið. Ivan Juristic
ætlaði ekki að taka minnsta snefil af
áhættu — kastaði sér fram og hugðist
skalla knöttinn í horn. Ekki tókst þó
betur til en svo en þrumuskalli hans
söng í netmöskvunum og hann hafi
jafnað metin fyrir Borussia með gull-
fallegu sjálfsmarki ef hægt er að tala
um að sjálfsmörk séu gullfalleg.
Markið kom sem köld vatnsgusa
framan í leikmenn Rauðu stjörnunnar
jafnt sem áhorfendur og um tíma
heyrðist ekkert nema í áhangendum
Borussia. Markið virtist setja leikmenn
Rauðu stjörnunnar algerlega út af lag-
inu því þeir misstu algerlega tök sín á
leiknum og Borussia, drifið áfram af
stórgóðum leik Simonsen, sótti stift
lokakaflann. Nokkrum sinnum komst
mark Júgóslavanna í verulega hættu,
en alltaf tókst að bjarga. Borussia
hefur því pálmann í höndunum þegar
liðin mætast að nýju í síðari leik lið-
anna.
Bílamálarar!
Viljum ráða bílamálara og nema í bílamálun.
Upplýsingar hjá verkstjóranum.
EGILL VILHJÁLMSS0N
LAUGAVEG1118 - SÍMI22240.
ÍGNBOGIII
a 19 ooo
GREGORY and LAURENCE
PECK OLIVIER
IAMES
MASON
|. SCHAFFNER FIL
THE
BOYS
FROM
BRAZIL
ULU PALMER ‘THE BOYS FROM BRAZIL”
ROBLRT (EJUtY
Executive Producer FRYER Music bv GOLDSMITH
Drengirnir frá Brasilíu
Afar spennandi og vel gerð.
Leikstjóri: FRANKLIN J. SCHAFFNER.
Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 3,6 og 9.