Dagblaðið - 26.06.1979, Síða 6

Dagblaðið - 26.06.1979, Síða 6
6 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 1979. BÍLAMÁLARAR! BÍLALÖKK í ÚRVALI: SADOKRYL — Akrylolía — SADOLYN — Olíulakk — SADOLYN — Herðir fyrir olíulökk — dropinn Hafnargötu 80, Keflavík, sími 2652 Wagoneer Custom • árg. ’74, 8 cyl., sjálfskiptur með öllu, skipti á nýlegum og góðum bíl koma til greina. Uppl. í síma 20339 eftir kl. 7 á kvöldin. AUSTURVERI Háaleitisbraut 68 Heimilis-eldavélin frá Rafha er landsþekkt islcnzk framleiðsla. Frá stofnun fyrirtækisins 1936 hafa verið fram- lciddar yfir 60.000 clda- vélar. Um tvær gerðir af sambyggðri vél er að ræða. Gerð HE fyrir sökkul, og gerð E frístandandi í 90 cm borðhæð. Hægt cr að fá vélina með klukkubaki. Ennfremur cldavélasctt. 40 ÁRA REYNSLA 2ja ára ábyrgð á eldavélum. 6 litir Ennfremur seljum við: RAFMAGNSHEIMILISTÆKI frá heimsþekktum fyrirtækjum, svo sem frá Zanussi, kæli- og frysti- skápa, frystikistur, uppþvottavélar, þvottavélar, þurrkara, gufu- gleypa, ennfremur ryksugur, rakatæki, brauðristar, straujárn, hrað suðukatla, háfjallasólir og m.m.fl. K3L.fijL~Jní—i*g£_ viöisrkennH varahluta- og viðgerðarþjónusta £ /. í Austurveri, Háaleitisbraut 68, sími 84445 og 86035 Belgía: Haigslappá furðulegan hátt við sprengjuna —sem sprakk andartaki eftír að bifreið hans ók yf ir hana og særði tvo lögreglumenn og einn lífvötð Lögreglan í Casteau í Belgíu og öryggisverðir eru furðu lostnir yfir því hvernig tekizt hefur að koma fyrir fjarstýrðri sprengju, sem Alexander Haig fráfarandi yfirmaður herja Atlantshafsbandalagsins í Evrópu slapp naumlega við er hann fór um borgina í gær. Þykir það ganga kraftaverki næst að hershöfðinginn skyldi sleppa. Ekki fór þó svo að sprengjan skildi ekki eftir sig nein sár og meiðsli enda mun hún hafa verið af mjög vandaðri gerð. Tveir belgískir lögreglumenn og einn bandarískur öryggisvörður hers- höfðingjans særðust nokkuð. Þeir voru í bifreið, sem ók næst á eftir bifreið hershöfðingjans. Sprengjan, sem mun hafa verið hlaðin um það bil 135 kílógrömmum af sprengiefni sprakk aðeins nokkrum andartökum eftir að bifreið Haig ók yfir ræsið þar sem henni hafði verið komið fyrir. Lögreglan fann fljótlega sprengileiðslur, sem lágu til staðar í um það bil hundrað og fimmtíu metra fjarlægð en þar var einnig fullkomin fjarstýriútbúnaður. Lögreglan fann einnig i nálægð við sprengistaðinn, öryggishjálm svip- aðan eins og byggingaverkamenn nota auk sendistöðvar. Lögreglan telur líklegast að einn tilræðismannanna hafi verið staðsett- ur þar sem sást til bifreiðalestar hers- höfðingjans og hann síðan gefið merki um að kveikja á sprengjunni, þegar bifreið hans var við ræsið þar sem hún var. Fréttamanninum Bill Stewart var skipað að leggjast á jörðina en þar var hann síðan umsvifalaust skotinn i höfuðið. Myndin hér að ofan er fremur ðgreinileg en þð má sjá hvar Stewart liggur á jörðinni og þjóðvarðliðar Somoza einræðisherra beina að honum byssum sinum. Brussel: Samkomulag um aðstoðina nálgast —í viðræðum Efnahagsbandalags- og þróunarríkja Samningaviðræður um efnahags- aðstoð ríkja Efnahagsbandalagsins við fimmtiu og sjö af þróunarríkjun- um næstu árin virðast hafa þokazt nokkuð i samkomulagsátt. Fundir um þetta mál standa nú yfir í Brussel. Ríkin, sem njóta mundu þessarar aðstoðar eru fyrrum nýlendur og sambandsríki Evrópuríkjanna í Afríku, Karabíska hafinu og á Kyrra- hafssvæðinu. Viðræður voru teknar aftur upp á milli aðila en þær fóru út um þúfur í síðasta mánuði. Helzta umræðuefnið hingað til hefur verið upphæð þeirrar aðstoðar, sem Evrópuríkin skyldu leggja fram til ríkjanna fimmtíu og sjö næstu fimm árin. Núgildandi aðstoðaráætlun gekk í gildi 1975 og rennur út í april næstkomandi. Auk fjárupphæðarinnar er mikið rætt um ákvæði um mannréttindi í rikjunum, sem aðstoðarinnar skulu njóta. Vilja Efnahagsbandalagsríkin að viss trygging fáist fyrir mannrétt- indum þar. Auk þess krefjast þau vissra trygginga fyrir því, að fjárfest- ingar evrópskra aðila í þróunarlönd- unum fimmtíu og sjö fái að vera þar áfram óáreittar. Nokkur áherzla hefur verið lögð á að ljúka mikilvægum liðum samningaviðræðnanna áður en Jean Francois Pnocet utanríkisráðherra Frakka heldur til stórveldaráðstefn- unnar í Tókíó. Þangað er áætlað að hann fari i kvöld.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.