Dagblaðið - 26.06.1979, Qupperneq 24
2,6 mill jarðar til orkuspamaðar:
Ríkisstjómin samþykkti
..orkupakka” Hjörleifs
„Ríkisstjómin samþykkti í'gær
áætlun um víðtækar aðgerðir til
orkusparnaðar og hagkvæmrar
nýtingar olíu,” sagði Hjörleifur
Guttormsson iðnaðarráðherra i
viðtali við DB í morgun. Þarna er um
að ræða þann „orkupakka”, sem
iðnaðarráðherra hefur beitt sér fyrir
að undanförnu.
2,6 milljarðar eiga að fara til að
hraða hitaveitu- og öðrum orkufram-
kvæmdum. Raflínuframkvæmdum
verður hraðað til að draga úr
olíueyðslu, dreifikerfi í sveitum
verður bætt, jarðhitaleit efld. Þá eru
almennar sparnaðaraðgerðir,
leiðbeiningar og „áróður”
stjórnvalda fyrir sparnaði.
Kunnugir telja, að spara mætti
milljarð strax á þessu ári með því að
flýta hitaveituframkvæmdum.
Steingrímur Hermannsson dóms-
málaráðherra sagði í morgún, að eftir
væri að vinna út mikið af þessum
fyrirhuguðu aðgerðum. Þær mundu
vafalaust birtast almenningi smátt og
smátt. Bráðabirgðalög þyrftu
almennt ekki til þessara aðgerða, en
þó þyrfti bráðabirgðalög vegna
erlendrar lántöku, sem nauðsynleg
væri til hitaveituframkvæmda.
-HH/GM.
frjálst, úháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 1979.
Flugleiðir:
Flugvirkjum
einnigsagt
uppstörfum
Boðun uppsagna heldur áfram hjá
Flugleiðum. í gær hélt Sigurður Helga-
son forstjóri Flugleiða fund með flug-
virkjum og á fundinum voru einnig
framkvæmdastjórar deilda og blaða-
fulltrúi.
Á fundinum voru boðaðar
uppsagnir bæði flugvirkja og vélstjóra
Flugleiða en engar tölur nefndar um
fjölda. Uppsagnirnar verða tilkynntar
nú 1. júli, en koma til framkvæmda 1.
október. Fjöldinn mun síðan ráðast af
því hvernig tekst að afla Flugleiðum
verkefna í leiguflugi og verða
uppsagnir afturkallaðar ef vel tekst til.
Flugvirkjar hyggjast svara þessu og
benda m.a. á að um 80% af viðhaldi
véla Flugleiða fer fram erlendis.
-JH.
Vlðskiptarádherra
Noregs íheimsókn:
Möguleg olíu-
kaup rædd
ámorgun
„Við munum kanna á hvaða verði
olían verður og hvenær möguleiki
verður á að fá hana,” sagði Svavar
Gestsson viðskiptaráðhera í samtali
við DB í morgun. Viðskiptaráðherra
Noregs, Hallvard Bakke er
væntanlegur hingað til lands í dag til
viðræðna við kollega sinn og ráðamenn
hér á landi.
Sagði Svavar að allar hliðar þessa
máls yrðu kannaðar rækilega og reynt
að fá það hagstæðasta sem völ væri á
fyrir íslendinga í olíuviðskiptum.
-BH.
3% kaup-
hækkun
til ASI-
félaga
1 gær undirrituðu fulltrúar Alþýðu-
sambands íslands annars vegar og
f ulltrúar Vinnuveitendasambandsins
og Vinnumálasambands sam-
vinnufélaganna hins vegar samning um
3% kauphækkun til félagsmanna ASÍ.
Samningurinn gildir frá undirskrifmr-
degi til áramóta og framlengist um þrjá
mánuði í senn, ef hvorugur aðili segir
honum upp með eins mánaðar fyrirvara.
Miðstjórn ASÍ hafði frumkvæði að
samningsgerðinni og sendi við-
semjendum sínum bréfkom í lok
síðustu viku, þar sem málin voru
reifuð. Atvinnurekendur virðast ekki
hafa þurft að velta hlutunum lengi fyrir
sér og niðurstaðan varð stytzta gerð
heildarkjarasamninga sem lengi hefur
sézt.
Guðmundur J. Guðmundsson, for-
maður Verkamannasambandsiris, telur
samningana mikilvæga og í samræmi
við stefnu ASÍ. Þorsteinn Pálsson hjá
Vinnuveitendasambandinu kallar
samningana hins vegar „verð-
bólguprósent og engar kjarabætur”.
Stokkseyri:
2—3milljón
kr. misferli
með olíustyrk
— fyrrverandi sveitar-
stjóri ígæzluvarðhaldi
Fyrrverandi sveitarstjóri á
Stokkseyri var sl. föstudag úr-
skurðaður í allt að sjö daga
gæzluvarðhald hjá embætti sýslu-
mannsins í Árnessýslu, vegna meints
fjármálamisferlis i starfi. Eftir á-
reiðanlegum heimildum Dagblaðsins
mun kæruefnið vera misferli með
olíustyrk, sem greiddur var til sveitar-
stjóra úr ríkissjóði sem sveitarstjóri átti
síðan að jafna niður á húseigendur.
Eftir því sem Dagblaðið kemst næst
mun sveitarstjórinn fyrrverandi hafa
gefið upp fleiri olíustyrkþega en um var
að ræða og stungið mismuninum und-
an. Upphæðin mun nema á milli tveim-
ur og þremur milljónum. Maður sá sem
hér um ræðir var sveitarstjóri Stokks-
eyrarhreppsá árunum 1975—78.
-GAJ/GV, Stokkseyri.
Steingrímur Hermannsson.
HVER FER SVO SEM AÐ PANTA
BÍL í SVONA VEÐRf?
Nú, já, hvergi friöur — en skítt með það, hér ligg ég og get ekki annað. Sólin loksins farin að sýna sig og hver haldiði svo að
fari að panta bil til að flytja I svona blíðu.
DB-mynd Árni Páll.
Lipur f undur um hvalveiðimál
Stjómaríiðarglaðin
„Vínnth
friöur
tryggður”
„Ég er mjög ánægður yfir þessum
samningum og tel, að afstaða láglauna-
hópanna sé til fyrirmyndar. Bara að
fleiri launþegahópar væru svo
skynsamir að semja um þetta,” sagði
Steingrimur Hermannsson dómsmála-
ráðherra í morgun um samningana um
3% grunnkaupshækkun í gær.
„Þessir samningar tryggja vinnufrið
fram á byrjun næsta árs,” sagði Ólafur
Ragnar Grímsson alþingismaður (AB) i
morgun. „Það er ánægjulegt, að
Vinnuveitendasambandið og Vinnu-
málasambandið skuli hafa séð, að þétta
er bezta leiðin. Ríkisstjórnin hefur
þannig að heita má tryggt vinnufrið í
eitt og hálft ár alls. Eftir lausn verk-
fallanna, sem hér voru fyrir skömmu,
og þessa samninga hefur ríkisstjórnin
treystst í sessi og möguleikar skapazt til
að ráða við efnahagsvandann.”
„Ég tel að vinnufriður sé tryggður
nema hópar utan ASÍ ríði á vaðið,”
sagði Karl Steinar Guðnason alþingis-
maður (A) í morgun. „Það verður að
teljast kostur fyrir ríkisstjórnina, að
þetta skyldi leysast í samningum frekar
en, að krafizt verði löggjafar um 3%.”
-HH.
Starfshópur Náttúruverndarfélags
Suðvesturlands um hvalavernd gekkst
fyrir fundi á Hótel Loftleiðum í gær-
kvöldi um hvali og hvalavernd. Fram-
söguræður héldu Erlendur Jónsson líf-
fræðingur sem mælti fyrir friðun hvala
og Þórður Ásgeirsson, formaður
alþjóða hvalveiðiráðsins sem mælti
fyrir áframhaldandi veiðum íslendinga
á hvölum.
Allmargar fyrirspumir komu frá
fundargestum til frummælenda og
gekk fundurinn lipurlega fyrir sig.
Hluti af áhöfn Rainbow Warrior kom
til fundarins frá skipi sínu sem nú
liggurá ytri höfninni.
-BH.
Funa-ofnar reyndust ekki eftirlíkingar Runtals:
„Áskiljum okkur
rétt til skaðabóta”
— segir forstjóri Ofnasmiðju Suðurlands
Runtal-málið svonefnda var tekið
fyrir hjá embætti sýslumannsins í
Árnessýslu í gær. Að sögn Karls F.
Jóhannssonar fulltrúa sýslumannsins
en hann er dómari í málinu, þá
óskaði Páll S. Pálsson lögmaður
gerðarbeiðanda eftir því að málið
yrði fellt niður þegar yfirmat lá fyrir.
Eins og kunnugt er snerist mál
þetta um hvort Ofnasmiðja Suður-
lands (Funa-ofnar) hefði í fram-
leiðslu sinni farið inn á einkaleyfis-
vemdaðan rétt Runtal-ofna. Yfir-
matið mun hins vegar hafa staðfest
fullyrðingar gerðarþola um að ekki
hafi verið um að ræöa eftirlíkingar
Runtal-ofna en það hafði áður orðið
niðurstaða undirmatsins. „Okkur
finnst furðulegt ef hægt er að fara í
svona lögbannsmál og þurfa síðan
ekki að bera neina ábyrgð á því,”
sagði Bjarni Kristinsson forstjóri
Ofnasmiðju Suðurlands í samtali við
Dagblaðið í morgun. „Við höfum
lagt í mikinn kostnað í sambandi við
þetta mál og við kröfðumst þess, að
þeir greiddu málskostnað. Því var
mótmælt af Páli. Dómari á eftir að
úrskurða í því máli. Við áskiljum
okkur einnig allan rétt til skaðabóta
vegna óbeins kostnaðar,” sagði
Bjarni að lokum.
-GAJ