Dagblaðið - 29.06.1979, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1979.
9.
Bandaríkin:
Síamstvíburar
létusttveim
dögum eftir
fæðingu
Síamstvíburar, stúlkur samvaxnar á
brjóstinu, létust á sjúkrahúsi í
Pennsylvaniufylki í Bandaríkjunum i
gær, aðeins tveim dögum eftir að þeir
fæddust. Var verið að kanna
möguleika á að þær yrðu aðskildar.
OPEColíu-
hækkunin 18%
að meðaltali
Niðurstaðan á ráðstefnu OPEC-
ríkjanna í Genf varð sú að
meðalverðhækkun á olíu frá
olíusöluríkjunum verður um það bii
átján af hundraði. Verðið verður þó
mismunandi eða frá 18$ dollurum
tunnan fyrir oliu frá Saudi Arabiu og
upp i 23,5 dollara fyrir tunnuna af
olíu frá Alsír, Nígeriu og Libýu.
Spánn:
Skæruliðar
hóta að lama
ferðaiðnaðinn
— með þvíað sprengja
uppþrjá
stórferðamannastaði
Skæruliðar aðskilnaðarhreyfmgar
Baska á Spáni hafa hótað því að
leggja ferðamannaiðnað landsins i
rúst með þvi að sprengja sprengjur
sinar á þrem tilteknum ferðamanna-
stöðum nú um næstu helgi. Hafa þeir
jafnvel tiltekið hvar sprengingarnar
yrðu en skæruliðarnir segjast þegar
hafa komið sprengjunum fyrir.
Fyrsta sprengjan á að sögn tals-
manna hinna öfgafullu Baska að
springa á tilteknum stað á sólar-
ströndinni Benidorm.
Slíkar sprengihríðir á fjölsótta
ferðamannastaði gætu haft mjög al-
varlegar afleiðingar fyrir efnahag
Spánar. Síðasta ár komu um það bil
fjörutíu þúsund ferðamenn til Spánar
og ferðaiðnaðurinn er ein meg-
ingjaldeyristekjulind landsins. Ef
svo færi að skæruliðum Baska tækist
að hrekja stóran hluta þessara
ferðamanna fra Spáni mundi það
hafa mjög alvarlegar afleiðingar fyrir
efnahagslíf landsins, sem fyrir er i
heldur bágbornu ástandi.
Sprengjur eru þegar farnar að
springa á ferðamannastöðum. Var
það á þriðjudaginn og
miðvikudaginn síðastliðna að
sprengjur sprungu á ferðasvæðunum
góðkunnu Torremolinos og
Fuengirola, sem báðir eru á Costa del
Sol. Báðar sprengjurnar sprungu
nærri fjölförnum gististöðum.
Nokkrar skemmdir urðu en engir
særðust.
Skæruliðar hafa einnig krafizt
þess að félagar þeirra sem eru nú í
haldi í fangelsi nærri Madrid og eru
um það bil hundrað að tölu verði
samstundis fluttir aftur í fangelsi í
Baskahéruðunum.
HongKong:
Slitu akkerísfesti
og sigldu í strand
—örþrífaráð skipst jómarmanna með 2600 víetnamska f lóttamenn um borð
Flutningaskipi með tvö þúsund og
sex hundruð flóttamenn frá Víetnam
innanborðs var rennt upp í fjöru á
eyju einni í höfninni í Hong Kong i
gærkvöldi. Var ljóst að sögn sjónar-
votta að skipsmenn höfðu áður slitið
akkerisfestar og síðan látið reka að
eynni.
Hundrað flóttamenn stukku þegar
frá borði og komust upp á eyna en
voru skjótlega reknir um borð aftur
af lögreglu Hong Kong borgar, sem
sendi liðsauka á vettvang.
Flutningaskip þetta hefur legið í
höfninni í Hong Kong síðan 7.
febrúar eða nærri fimm mánuði.
Tókst skipstjórnarmönnum að
laumast inn i skjóli myrkurs en
annars eru hafðar miklar gætur á, að
skip hlaðin flóttamönnum komist
ekki inn á höfnina.
Flóttamennirnir tvö þúsund og sex
hundruð hafa ekki fengið heimild til
að stíga á land í Hong Kong vegna
þess að yfirvöid þar segjast ekki hafa
neitt rými fyrir þá né húsaskjól. Þar
eru nú fimmtíu og átta þúsund
flóttamenn frá Víetnam. Yfirvöld í
borginni segja að skipsmennirnir,
sem eru að mestu frá Taiwan og
lndónesíu hafi höggvið á akkeris-
festarnar. Dráttarbátar eiga að reyna
að draga skipið á flot.
Fyrr í þessum mánuði syntu um
það bil hundrað flóttamannanna frá
skipinu í land. Við það drukknaði
einn þeirra. Áður hafa þeir farið í
hungurverkfall til að vekja athygli
kjörum sínum. Fimmtán konur hafa
verið fluttar í land til að ala börn.
Staður hagstæðm
stórinnkaupa
AuaysNGAsrnMN Hf gg
Kjöt, mjólk, brauð, pakkavörur
og niðursuðuvörur. Pappírsvörur,
kerti-leikföng og gjafavörur.
STORMARKAÐURINN
SKEMMUVEGI 4A KÓPAVOGI