Dagblaðið - 29.06.1979, Side 25
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1979.
„Togarinn gerbreytir
atvinnuástandinu hér”
íbúar Tálknafjarðarhepps eru 306
og hefur þeim fjölgað um 14 frá síðustu
talningu. Búast má við áframhaldandi
fjölgun, því atvinnuhorfur eru bærileg-
ar og Tálknfirðingar fengu í vor skut-
togara, Tálknfirðing, sem aflað hefur
vel frá byrjun og er mikil búbót.
DB var á ferð á Tálknafirði nýlega
og var Björgvin Sigurbjörnsson oddviti
tekinn tali og rætt um ástand og
horfur. Björgvin sagði að mikið hefði
verið um byggingar á Tálknafirði und-
anfarin ár, þótt ekki hefði verið byrjað
á mörgum húsum nú í ár.
,,En togarinn kemur til með að ger-
breyta atvinnuástandinu hér,” sagði
Björgvin. Öll vinna verður mun jafnari
en áður. Þá er báturinn Frigg og
gerður út héðan, en báturinn hefur
verið á útilegu. Hlutafélagið Tálkni
gerir Frigg út, en nú er verið að byggja
nýtt skip fyrir Tálkna á Akranesi. Þá
eru hér og smábátar og gert út á grá-
sleppu.
Höfnin hér er góð, en okkur vantar
viðlegupláss. Það hefur verið á áætlun í
6—8 ár, en alltaf verið frestað.
Þjónustu verða Tálknfirðingar að
sækja að mestu til Patreksfjarðar.
Sveitarfélagið er fámennt og því
ekki úr miklu fé að spila. En helztu
framkvæmdir hafa verið hefðbundnar,
gatnagerð, holræsi og undirbúningur
félagsheimilis og íþróttahúss. Olíumöl
ágötur kauptúnsins hefur ekki komist
á dagskrá enn, en til greina kemur að
byrja á slíkum framkvæmdum árið
1981.”
,,En það er óhætt að segja að
hljóðið er gott í mönnum,” sagði
Björgvin. ,,Þótt alltaf séu sveiflur í at-
vinnulífi staðar, sem byggir nær
eingöngu á sjávarútvegi og þjónustu í
—segiroddviti
Tálkna-
fjarðarhrepps
kringum hann, þá eru horfur nú
góðar.”
-JH.
<c
Björgvin Sigurbjörnsson, oddviti
Tálknafjarðarhrepps.
DB-mynd JH.
Fullkomin heilsugæzlustöð rísin íBúðardal:
KOSTAÐI130
MILUÓNIR KRÓNA
Risin er i Búðardal fullkomin
heilsugæzlustöð sem kostar upp komin
um 130 milljónir. DB-menn skoðuðu
stöðina á ferð sinni um Vesturland fyrir
skömmu og ræddu við Sigurbjörn
Sveinsson, heilsugæzlulækni í
Búðardal.
Heilsugæzlustöð þessi var opnuð 1.
nóvember sl. Hún er byggt samkvæmt
nýjustu og ströngustu kröfum heil-
brigðisyfirvalda. Stöðin á að þjóna
allri Dalasýslu og þrem hreppum í A-
Barðastrandarsýslu líka. Þetta er þvi
eitt víðáttumesta læknishérað landsins
og er það oft erfitt yfirferðar á
vetrum. Tveir læknar eiga að þjóna
þessari stöð og sitja þeir báðir í Búðar-
dal. Auk Sigurbjörns var þarna starf-
andi Eirikur Þorgeirsson, læknanemi
er DB var þarna á ferð. Að sögn Sigur-
björns er í stöðinni aðstaða til að gera
minniháttar aðgerðir og framkvæmá
röntgenrannsóknir. Einnig er verið að
setja þarna upp fullkomin tann-
lækningatæki en ekki er neinn
tannlæknir í Búðardal enn sem komið
er. Öll er stöðin hin glæsilegasta,
tækjabúnaður hinn fullkomnasti og
ekkert virðist til sparað. Læknarnir í
Búðardal eru með læknamóttöku á
Reykhólum í Barðastrandarsýslu einu
sinni i viku. Komið hefur fyrir, að sú
móttaka hafi farið fram eftir
miðnætti þar sem farartálmar eru oft,
miklir frá Búðardal og að Reykhólum
að vetrinum. íbúum Búðardals varð
fljótlega ljós þörfin á sjúkrabíl í svo
viðáttumiklu læknishéraði og í vetur
gaf hvert heimili að meðaltali um 5
þúsund krónur til bílsins. Bifreiðin
hefur nú verið keypt ög á
Heilsugæzlustöðin 6/10 hluta hennar
en Rauði krossinn 4/10. „Aðstaðan
hér er orðin eins og stefnt var að. Nú er
það starfsfólksins að notfæra sér
hana,” sagði Sigurbjörn. -GAJ-
Krakkarnir eru þátttakendur i öllu sem gerist þegar brúðubillinn kemur I heimsókn á „Gxzló” og er ekki annað að sjá á
þessari mynd en þau fylgist með af athygli. DB-mynd: Árni Páll.
Brúðubíllinn aftur á „gæztó" ísumar
Starfsemi íslenzka brúðuleikhússins
er að hefjast á nýjan leik og er það
þriðja sumarið sem leikhúsið ferðast
um gæzluvelli borgarinnar. Að þessu
sinni eru brúðurnar frá Leikbrúðulandi
og eru stjórnendur þær Sigríður
Hannesdóttir og Bryndís Gunnars-
dóttir.
Sýningarnar verða með sama sniði
og áður og eru börnin þátttakendur í
öllu sem gerist. Brúðuleikhúsið mun
konta fimm sinnum á hvern völl í
sumar og hefur dagskránni verið dreift
á vellina.
-ELA.
Hópur áhugafólks um útiveru á
Akureyri hélt yfir Sprengisand um
síðustu helgi. Lögðu ferðalangarnir
upp frá Akureyri suður sandinn og
um Sprengisand
fóru alla leið að Tungnafellsskála. orðin fær öllum jeppabifreiðum, en
Var þar dvalið um nóttina, áður en hins vegar má búast við þvi eftir
haldið var til baka sömu leið til Akur- e.t.v. tvær til þrjár vikur.
eyrar. Enn er Sprengisandsleið ekki -BH.
Hin nýja og glæsilega heilsugæzlustöð I
Búðardal. Á smærri myndinni er Eirikur
Þorsteinsson, læknanemi við rann-
sóknarstörf i stöðinni.
DB-myndir Árni Páll.
SANDSPYRNA
KYARTMÍLUKLÚBBSINS
Kvartmíluklúbburinn heldur sandspyrnukeppni sína sunnu-
daginn i. júlí á söndunum við ósa Ölfusár í landi Hrauns.
Keppnin hefst kl. 2. og verður keppt í 6. jeppaflokkum
4. fólksbílaflokkum og mótorhjólaflokk.
Keppendur eiga að mæta kl. 11 f.h.
Komið og sjáið hressilega
bifreiðaríþróttakeppni.
stjórnin.
IK