Dagblaðið - 29.06.1979, Side 27
UAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1979.
<§
Utvarp
31
Sjónvarp
»
Eddie Money er meöal þeirra sem koma fram i lokaþætti Skonrokks.
SKONROK(K) - sjónvarp í kvöld kl. 21.25:
EFTIRLEGU-
KINDUR
í SÍÐASTA
ÞÆTTINUM
í kvöld er þrettándi og síðasti
Skonrokksþátturinn á dagskrá sjón-
varpsins. Þorgeir Ástvaldsson
umsjónarmaður þáttarins sagði í sam-
tali við Dagblaðið, að þessi þáttur væri
fullur af eftirlegukindum, lítið væri um
nýtt efni. Engu að síður væri margt
bitastætt í þættinum. í upphafi þátt-
arins flytur bandaríski jazzistinn
George Benson Ástarballöðuna. Þá er
teiknimynd með Elvis Costello þar sem
hann flytur lag sitt Slysin gerast. Því
næst kemur Eddie Money og flytur sitt
þekktasta lag, Baby Hold on. Kate
Bush flytur það lag sem hún sló í gegn
með, Wuthering Heights. Þá koma hin-
V________________________________
í--------------------------------
ar gömlu kempur úr Rolling Stones og
flytja tveggja ára gamalt lag, Miss you.
Þeir félagar eru komnir fast að fertugu
en láta enn engan bilbug á sér finna.
Því næst kemur nýgræðingurinn
Bobby Caldwell og spyr: Hvað gerir
maður ekki fyrir ástina? Billy Joel
bregður sér á barinn og flytur þar 6—7
ára gamalt lag, Piano Man. Þátturinn
endar með því að hljómsveitin Foxy,
sem nýtur mjög vaxandi vinsælda um
þessar mundir, kemur og flytur lagið
Hot Number. Lag þetta var á toppnum
í Hollandi til skamms tíma, en hljóm-
sveitin er bandarísk.
-GAJ-
______________________________)
------------------------------^
Hér er Rakel þeirra Pruðu leikaranna i öruggum höndum eins af frumherjum mannkynsins i kvikmyndinni One Million
YearsB.C.
Þátturinn Græddur var geymdur
eyrir er á dagskrá sjónvarpsins kl.
21.05 í kvöld. Umsjónarmenn eru Sig-
rún Stefánsdóttir, fréttamaður, og
Guðni Björn Kjærbo, ritstjórnar-
fulltrúi á Alþýðublaðinu.
í þættinum verður fjallað um gildi
og framkvæmd verðkannana.
Rætt verður við forsvarsmenn neyt-
endasamtakanna í Borgarnesi og á
Akranesi og Karl Steinar Guðnason,
formann Verkalýðsfélagsins í Keflavik,
en það gerist nú æ algengara, að verka-
lýðsfélögin sinni neytendamálum,
þ.á m. verðkönnunum.
Rætt verður við fólk á förnum vegi
og í verzlunum í Borgarnesi og það
spurt um álit á gildi verðkannana.
í lok þáttarins verður talað við
Jónas Bjarnason, fulltrúa Neytenda-
samtakanna og Magnús Finnsson
framkvæmdastjóra Kaupmannasam-
takanna.
Hverju ætti að breyta og hvernig á
að framkvæma verðkönnun, eru m.a.
spurningar sem leitast verður við að
svara, að sögn Guðna Kjærbo.
-GM.
\____________________________________
Karl Steinar Guðnason, alþingismaöur,
er meðal þeirra sem koma fram i
þættinum i kvöld.
GRÆDDUR VAR GEYMDUR EYRIR
—sjónvarp kl. 21.05:
Verkalýðsfélög
sinna verðkönnunum
íturvaxinn gestur
kemur í heimsókn
tíl Prúðu leikaranna
Horrenglumar og silakeppimir i
Prúðu leikurunumfá aldeilis íturvaxinn
gest til sín i þáttinn i kvöld. Þar verður
á ferðinni kynbomban og -táknið
Raquel Welch. Ætlar hún að spjalla
(við) Prúðu leikarana ogleika listir sínar
V______________________________
fyrir þá og sjónvarpsáhorfendur. Ekki
er gott að vita í hverju listir Raquel
Welch eru fólgnar, hingað til hefur hún
leikið í kvikmyndum almennt, ekki
sýnt af sér sérstaka hæfileika i t.d. söng
eða látbragðsleik. Þó er ekki gott að
segja hvað hún muni taka til bragðs
þegar brúðustóðið verður í kringum
hana í þættinum í kvöld og til alls víst.
Þátturinn hefst klukkan 20.40 •’
kvöld og þýðandi er að vanda Þrándut
Thoroddsen. -BH.
________________________________)
GOLFTEPPI ^
fyrir y
—stigahiís—skrifstofur
AXMINSTER
Grensásvegi 8—Sími 82499