Dagblaðið - 29.06.1979, Page 28

Dagblaðið - 29.06.1979, Page 28
VandiFlugleiða: Oska eftir niðurfell- ingu lendingargjalda á Keflavíkurflugvelli og í Luxemborg, sem gæti staðið undir20—25% af tapinu einsogþaðvarífyrra Flugleiðir hafa ekki farið fram á neitt framlag frá íslenzka ríkinu vegna þeirra erfiðleika, sem nú steðja að fyrirtækinu. Hið eina i þá átt er að sögn Sigurðar Helgasonar forstjóra fyrirtækisins að farið hefur verið fram á niðurfellingu lendingar- gjalda bæði á Keflavíkurflugvelli og í Luxemborg. Gætu þar hugsanlega sparazt um það bil sjö hundruð milljónir króna en þar er um það bil fjórðungur þess rekstrartaps, sem varð hjá Flugleiðum á liðnu ári. Stjórnvöld landanna hafa ekki tekið afstöðu til þessarar beiðni. Athygli vekur í þessu sambandi að lendingar- gjöld í Luxemborg eru aðeins rúmlega 70% lendingargjalda á Keflavíkurflugvelli. Sigurður Helgason sagði á blaða- mannafundi í gær, að til að endar næðu saman i Atlantshafsflugi Flug- leiða þyrftu fargjöld að hækka um u.þ.b. tíu af hundraði. Það flug er nú og hefur verið um nokkurt skeið rekið með beinu tapi. Ekki væri þó’ ætlunin að hætta flugi á neinum aðalflugleiðum félasins. Uppbygging nýrra leiða í Bandaríkjunum svo sem til Baltimore hefði tekið lengri tíma en ráð var fyrir gert í byrjun. Vegna þeirra illu tíðinda, sem riðið hefðu yfir nú á siðustu vikum um að olía væri síhækkandi eru allar horfur á því að tap Flugleiða verði jafnvel enn meira en í fyrra, að sögn forráðamanna þess. Vegna þessa erfíða ástands hefði verið ákveðið að segja upp hluta starfsfólks og ef uppsagnir tækju gildi hinn 1. október næstkomandi þá mundi starfsfólki fækka um tvö hundruð manns samtals. Er það um það bil 16% fækkun. -ÓG. Sjá frekari Flugleiðafréttir á blaðsíðu 5. Húsið stöðvaðist eftir 100 m —og hef ur stöðvað alla umferð um götuna Eins og DB greindi frá nýlega átti að flytja elzta hús Húsavíkur, faktors- húsið svonefnda um set. Flutningar þessir hófust um kl. 9 í gærkvöldi. Var búið að smíða heljarmikinn sleða undir húsið, og síðan voru fengnir tveir veg- heflar til að draga húsið á hinn nýja áfangastað en vegalengdin sem húsið átti að fara var um 250 metrar. Þegar vegheflunum tókst ekki að koma húsinu af stað var kölluð til heljar- mikil jarðýta og kom hún húsinu tæpa 100 m en þar stöðvaðist það og vildi ekki lengra. Stendur húsið nú á miðri götu og bílaumferð um götuna því ekki möguleg. í morgun var ekki vitað, hvernig eða hvort hægt yrði að koma húsinu ááfangastað. -GAJ- DUNGAN0N 0G FJÖLSKYLDA FAFELAGSSKAP — fjórar bréfdúfur, sem tóku sérfar með Fylki NK úr Norðursjónum, fá nýtt heimili í Kópavogi Hún varð heldur glöð í gær, hún Hróðný litla Huldarsdóttir á Kópa- vogsbraut 113 í Kópavogi, þegar henni voru færðar fyrir milligöngu DB — fjórar fallegar bréfdúfur í það dúfnasafn, sem þegar er fyrir heima hjá henni. Dúfurnar komu með togaranum Fylki frá Neskaupstað, sem var að koma úr sölutúr til Bret- lands. „Tvær þeirra settust á skipið hjá okkur í Norðursjónum og tvær aðrar á leiðinni milli Skotlands og Íslands,” sagði Gísli Garðarsson, skipstjóri á Fylki, þegar DB ræddi við hann í gærkvöld. „Þær voru heldur illa til reika og hraktar, svo við tókum þær inn og höfðum í gang- inum hjá okkur. Við gáfum þeim mat og vatn og eftir um hálfan sólarhring voru þær orðnar hinar sprækustu.” Gísli sagðist ekki hafa „kunnað við” að bana dúfunum og því hafði hann samband við DB og óskaði eftir hjálp til að koma þeim í fóstur. Með aðstoð Ævars Petersen, fugla- fræðings hjá Náttúrufræðistofnun- inni, hafði blaðið upp á Huldari Smára Ásmundssyni sálfræðingi, sem er mikill áhugamaður um dúfna- rækt og bauð honum dúfurnar. Hann þáði boðið umsvifalaust og i gegnum símann mátti finna brosið breiðast út um andlit hans. Dóttir hans, Hróðný, fór siðan með DB-mönnum til Þorlákshafnar, þar sem Fylkir lá í gær, og tók á móti dúfunum. Líklega gleymir hún þeim degi aldrei. í fyrra náði Hróðný og bróðir hennar bréfdúfu — sem líklega er komin frá Skotlandi eins og getum er leitt að um þessar fjórar — í gildru heima á Kópavogsbrautinni. „Þaðer kall.skozkurog gengur undir nafninu Dunganon,” sagði Huldar Smári. „Við fengum síðan kellingu hjá kunningjafólki okkar og nú er kominn ungi og allir dafna vel.” Það ætti því að fara vel um bréf- dúfurnar fjórar sem komu með Fylki NKyfir Atlantshafið til (slands. -ÓV. Hróðný Huldarsdóttir tckur við bréfdúfunum frá Gisla Garðarssyni skipstjóra á FylkiNK. frjálst, óháð dagblað FÖSTUDAGUR 29, JÚNl 1979 Vöknuðu viðvondan draum — þegarmaðurstóðvið höfðalagiðogstakk af með peningana Íbúar í tveim húsum innst við Soga- veg vöknuðu upp við vondan draum í nótt. í báðum tilvikum var ungur maður kominn inn í svefnherbergi og í báðum tilfellum komst hann undan með peninga. Lögreglunni barst til- kynning um þetta um kl. 3 í nótt og fór þegar á staðinn og handtók fljótlega mann í nágrenninu eftir lýsingu fólks- ins. Var hér um að ræða ungan pilt fæddan 1961 og var hann ölvaður. Á honum fundust rúmlega 100 þúsund krónur í peningum og 40 þúsund króna ávísun sem var stíluð á eiganda annars hússins. í fyrra tilfellinu hafði þjófur- inn farið inn um stofuglugga og inn i tsvefnherbergi og tekið þaðan veski á náttborði. í veskinu voru um 100 þúsund í peningum og ávísun á um 40 'þúsund krónur. í síðara tilfellinu vaknaði fólkið við, að. maðurinn var kominn inn í svefnherbergið. Gat fólkið þar gefið lýsingu á manninum, sem síðan leiddi til handtöku hans. Þar höfðu horfið um 20 þúsund krónur í peningum og ullarjakki. Pilturinn var færður í fangageymslur lögreglunnar. -GAJ- Andrés veitti Hinrik stöðuna Staða forstöðumanns lista og skemmtideildar sjónvarpsins (LSD) hefur verið veitt, að sögn Andrésar Björnssonar útvarpsstjóra, og hlaut hana Hinrik Bjarnason fram- kvæmdastjóri Æskulýðsráðs Reykja- víkur. Losnar nú staða Hinriks Bjarna- sonar hjá Æskulýðsráði og eru uppi getgátur um hver verði þar ráðinn. Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, formaður Æskulýðsráðs, sagði í samtali við DB í morgun að sennilega yrði staða framkvæmdastjórans auglýst laus til umsóknar á mánudaginn. Um eftir- mann Hinriks í starfi vildi hún ekkert tjásig. Heimildir DB telja ekki ólíklegt að fulltrúi Hinriks hjá Æskulýðsráði, Ómar Einarsson, hreppi hnossið. Nafn Kristins Ágústs Friðfinnssonar, fulltrúa Framsóknarflokksins i ráðinu, hefur einnig heyrzt nefnt. -BH/GM. Bflveltur íDölum Mjólkurbíll frá Mjólkurbúinu í Búðardal valt á miðvikudag skammt frá Búðardal. Vegkantur gaf sig og fór bíllinn heila veltu. Bíllinn var með fullan tank af mjólk, um 7 þúsund lítra og fóru um 2 þúsund lítrar niður. Hinu tókst að bjarga. Þá valt stór vörubíll frá Vegagerð- inni ofan í þriggja metra djúpan skurð í Svínadal. Þar var unnið við viðgerð á ræsi. Bíllinn skemmdist en engin meiðsliurðu. -JH/AF. Búðardal.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.