Dagblaðið - 06.07.1979, Síða 12
12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1979.
SUMARBÚSTAÐUR
á einum bezta stað við Þingvallavatn er til
söiu. Stærð um 65 fermetrar, auk báta-
skýlis. Rafmagn til ljósa og upphitunar.
Vel girt og ræktuð lóð. Tilboð sendist
auglýsingadeild Dagblaðsins fyrir 13. júlí
merkt „Sumarbústaður við Þingvalla-
vatn.”
Skrifstofuhúsnæði tii leigu
4 herbergi nálægt Hlemmtorgi. Tilboð óskast og sendist
auglýsingadeild Dagblaðsins merkt „Skrifstofuhúsnæði
4500”.
ROADSTAR RS 2150
SKYNDUNYNDIR
Vandaðar litmyndir
i öll skirteini.
barna&f jölsky Idu -
Ijósmyndir
AUSTURSTRÆTI 6
SIMI 12644
í bílinn þegar á reynir
BHaveggir
raðaðir uppaftir
óskumkaupenda
• \
Verðtilboð
Sími 84630
Mikið úrval af bílloftnetum og hátölurum. ísetn-
ing samdægurs. Verð 75.947.- kr.
Beztu kaup landsins.
SKIPHOLT119
SÍMI 29800.
UngviAifl á Bíldudal i leik i fnrláta leikgrind, sem varfl eftir vegna bryggjusmiðar.
DB-myndir JH
r m ; i
1] V ! . i í . j
Sveitarstjórínn Bfldudal:
Togari væntan-
leguríhaust
„Hcr á Bildudal het'ur íbúafjöldi
sveiflazt í takl við atvinnulífið,” sagði
Theódór Bjarnason, sveitarstjóri á
Bildudal. ,,Nú búa hér um 400 manns
og hefur fjölgað upp á siðkastið. Mikið
afvinnuleysi var hér árin 1976 og '77 og
þá fór allt í mola. Fólki fækkaði um
17% á staðnum áeinu ári.
En þegar frystihúsið fór i gang og
keypti tvo vertíðarbáta fóru hjólin að
snúast aftur og við höfttm náð ttpp
fyrri ibúafjölda á hálfu öðru ári.
Það scnt skipti mestu máli var að at-
vinnumálin voru brotin til mergjar.
Frystihúsið var alveg endurbyggt. Það
náðist svo góður árangur að framleiðn-
in er með því bezta sem gerist á land-
inu.
Nú er verið að vinna að því að fá tog-
ara til Bildudals. Raunar hefur verið
unnið að þvi allt frá árinu 1975. Við
höfum þó ekki fengið hljómgrunn hjá
ráðuneytinu. Nú er útlitið hins vegar
þannig að allar líkur eru á því að
hingað komi togari í haust eða um ára-
mót. Útgerðarmaður á Tálknafirði,
Ársæll Egilsson, sem á togara í smiðum
á Akranesi hefur gert athugun á því að
Theódór Bjarnason, sveitarsljóri
Bíldudal.
gera skipið út frá Btldudal og allar líkur
eru á þvi að svo verði.
Þetta yrði lausn á hráefnisvanda
okkar og lausn sem stjórnvöld hafa lagt
blessun sína á.
Tekjuleysi hjá sveitarsjóði undan-
farið, vegna slæms atvinnuástands,
— kemurtil með að
hafamikiloggóð
áhrrf á atvinnuiíf
staðarins
hefur valdið því að ekki hefur verið
hægt að ráðast í dýrar framkvæmdir.
Olíumöl hefur t.d. ekki verið lögð á
götur. En þetta kemur til með að breyt-
ast fljótt, ef hráefni verður nægt og þar
með nóg atvinna. Þá ætti jafnvel að
vera hægt að ráðast í slíkar fram-
kvæmdir á næsta ári.
Höfnin hér er sæmileg, en ekki hefur
verið lokið við fyrirhugaðar fram-
kvæmdir. M.a. þarf að dýpka höfnina.
Gert er ráð fyrir að það verði gert á
næsta ári.
Þá hefur verið byggl fjölbýlishús á
vegum sveitarfélaganna. í húsinu eru
sjö íbúðir og verða fimm þeirra seldar,
en tvær leigðar. Búið er að byggja
geysimikið á Bíldudal frá árinu 1974.
Húsnæði á staðnum hefur verið endur-
nýjað um þriðjung á þessu tímabili.
Nóg landrými er fyrir ný hús hér. í
sumar verður síðan unnið við seinni
áfanga fjölbýlishússins.
Það eru því allt aðrar horfur en verið
hafa og bjart fram undan. Annar stóri
báturinn hefur verið seldur og í staðinn
endurnýjaðar vélar í frystihúsinu og
þannig undirbúin koma togarans.”
- JH
Stemma hin nýja er glæsilegt hús sem byggt er úr steyptum einingum. Litla myndin er af Kristjáni Gústafssyni verk-
stjóra. DB-myndirTrausti
Ný stemma risin úr rústum
í nóveaber brann til káldra kola
„Það er tómt mál að tala um það að
við heföum þurft lengri tíma. Við
verflum að koma húsinu upp áður en
vertíðin byrjar,” sagði Krtstján
Gústafsson framkvæmdastjóri sildar-
söltunarinnar Stemmu á Höfn i Horna-
firði. Hús stöðvarinnar brann til kaldra
kola i nóvember i vetur. En i stað þess
að leggja upp laupana hófu menn að
byggja á nýjan leik. Byggt var á grunni
gömlu Stemmu og er nú risið upp nýtt
18 hundruð fermetra hús.
Inni er hins vegar margt eftir. Þar er
verið að leggja síðustu hönd á loftið,
leggja rafmagn og verið er að innrétta
skrifstofur og matsali. Við húsið vinna
núna 12 manns, þar af 3 rafvirkjar.
. Talið var, þegar Stemma brann, að
tjónið næmi hundruðum milljóna. En
húsið var það vel tryggt að skaðinn
kemur litið niður á þeim 30—40 hlut-
höfum sem eru i fyrirtækinu. Verst var
útkoman hvað varðar tækin. Þau
voru tryggð fyrir 15 milljóniren taliðer
að allt að 80 milljónir muni kosta að
endurnýja þau.
Úti á hlaði við Stemmu stóð mikið af
síld i tunnum þegar brann en tókst að
bjarga henni allri. Við brunann sáu
menn að nauðsynlegt væri að byggja
yftr sildina. Þvi er áætlað að byggja 2
þúsund fermetra vöruskemmu þegar
framleiðsluhúsið er búið. Búið er að út-
hluta lóð undir skemmuna rétt hjá
framleiðsluhúsinu.
Þegar Stemma er í fullum gangi hafa
um 90 manns vinnu við söltun sildar
auk þess sem örlítið er saltað af þorski.
-DS.