Dagblaðið - 27.07.1979, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ1979.
7
Mexikó:
Olíuflóð þar
tilíoktóber
—fyrri spár rangar og búizt við mestu olíumengun allra tíma
Olíuborholan á Mexikóflóa, sem
síðan í byrjun júní síðastliðinn hefur
mengað hafið, verður að öllum lík-
indum ekki beizluð fyrr en i október
næstkomandi að sögn forstjóra ríkis-
oliufélagsins í Mexíkó. Ef svo fer
verður hún búin að valda mestu oliu-
mengun sem orðið hefur úr borholu á
hafi úti frá því slíkar boranir hófust.
Áður höfðu mexikanskir ráða-
menn í olíumálum sagt að búið yrði
að stöðva olíulekann innan fjögurra
vikna hér frá. Nýjustu upplýsingar
herma að hingað til hafi rúmlega ein
milljón fata af olíu runnið úr olíunni
í hafið. Samkvæmt áætlunum verður
þessi tala komin upp i rúmlega 2,5
milljónir fata i byrjun október næst-
komandi. Auk þess er talið að rúm-
lega tvær milljónir fata hafi þá
brunnið við elda sem loga stöðugt
uppaf hinni biluðu borholu.
Þrátt fyrir þetta mikla magn af
oliu sem rennur út í sjóinn fullyrða
mexíkanskir olíusérfræðingar að
skaðinn sem hún muni valda verði til
muna minni en sá sem varð þegar
olíuskipið Amaco Cadiz strandaði
við Frakklandsstrendur. Segja þeir
sína olíu mun léttari og muni hún
bæði gufa upp og ganga aftur í sam-
band við önnur lífræn sambönd án
þess að valda neinum verulegum
skaða. Sveitir manna vinna stöðugt
að því að hreinsa olíuna af hafinu og
einnig við að reyna að loka hinni bil-
uðu borholu.
Erlendar
fréttir
Rio de Janeiro:
Boeing 707
þota fórst
Boeing 707 þota frá vestur-þýzka
flugfélaginu Lufthansa hrapaði í ljós-
um logum skömmu eftir flugtak frá al-
þjóðaflugvellinum við Rio De Janeiro í
gærkvöldi. Sjónarvottar sögðu að
þotan hafi sprungið um leið og hún
snerti jörðina í um það bil eitt hundrað
kílómetra fjarlægð frá flugvellinum.
Ekki var vitað til að neinn úr hinni
þriggja manna áhöfn þotunnar hafi
komizt af. Engir farþegar voru í þot-
unni en hún flutti fjörutíu tonn af ýms-
um farmi. Áætlaður áfangastaður var
Frankfurt am Main í Vestur-Þýzka-'
landi.
Japan:
521 ungmenni
fyrirfóru sér
Fimm hundruð tuttugu og eitt ung-
menni yngra en tvitugt réð sér bana á
fyrri hluta þessa ars í Japan. Er það
sjötíu fleiri en á sama tima á fyrra ári,
að sögn opinberra aðila í Japan.
Einn skæruliðaforingja sandinista, sem steyptu Somoza fyrrum forseta Nicaragua af
stóli, tekur hér á móti tveim sonum sinum. Þeir feðgar höfðu ekki sézt f tvö ár og
greinilega eru þeir allir hrærðir þegar myndin er tekin á Managua flugvelli.
Moskva:
Dauðadómur fyrir
stríðsglæpi
Maður nokkur að nafni Ionas
Mecislovas Plunge hefur verið
dæmdur til dauða í Sovétríkjunum.
Viðurkenndi hann fyrir rétti að hafa
tekið þátt í að ráða fjörutíu og sex
þúsund manns af lífi á timum heims-
styrjaldarinnar síðari. Aðsögn frétta
stofunnar sovézku, TASS, verður
maðurinn leiddur fyrir sveit her-
manna og skotinn.
Plungi var að sögn liðsforingi í
þýzka hernum á þessum tíma. Réttar-
höldin fóru fram í borginni Viln i
■Litháen, einu núverandi Sovétlýð-
valdanna, sei.. var sjálfstætt riki
fram til ársins 1940.
Hinn dænidi tók þátt í fjölda-
morðunum i borginni Minsk og voru
þeir sem féllu bæði af rússnesku og
pólsku bergi brotnir. Að lokinni
heimsstyrjöldinni tók Plunge sér
annað nafn og skipti oft um störf.
Hann var einnig fundinn sekur um að
hafa tekið þátt í aftökum á and.-
spyrnumönnum gegn nasistum á
þessum tíma.
Skattskrá Reykjavíkur
ÁRIÐ1979
Skattskrá Reykjavíkur árið 1979 liggur frammi í
Skattstofu Reykjavíkur, Tollhúsinu við Tryggva-
götu, frá 26. júlí til 9. ágúst nk., að báðum dög-
um meðtöldum, alla virka daga nema laugar-
daga, frá kl. 10.00 til 16.00.
1 skránni eru eftirtalin gjöld:
1. Tekjuskattur.
2. Eignarskattur.
3. Sóknargjald.
4. Kirkjugarðsgjald.
5. Sjúkratryggingagjald.
6. Sérstakur eignarskattur á skrífstofu- og verzlunarhúsnæði.
7. Útsvar.
8. Slysatryggingargjald atvinnurekenda.
9. Lifeyrístryggingargjald atvinnurekenda.
10. Slysatryggingargjald vegna heimilisstarfa o.fl.
11. Iðgjald til Atvinnuleysistryggingarsjóðs.
12. Launaskattur.
13. Iðniánasjóðsgjald.
14. Iðnaðarmáiagjald.
15. Aðstöðugjald.
16. Iðnaðargjald.
Barnabætur svo og sá hluti persónuafsláttar,
sem kann að koma til greiðslu útsvars, og sjúkra-
tryggingagjalds er einnig tilgreint í skránni.
Innifalið í tekjuskatti og eignarskatti er 1 % á-
lag til Byggingarsjóðs ríkisins.
Jafnhliða liggja frammi í Skattstofunni yfir
sama tíma þessar skrár:
Skrá um skatta útlen.iinga, sem heimilis-
skráðir eru í Reykjavík og greiða forskatt.
Skrá um skatta íslenzkra ríkisborgara, sem
fluttu hingað frá útlöndum árið 1978.
Skrá um skatta dánarbúa. Skrá vegna tví-
sköttunarsamninga.
Aðalskrá um söluskatt í Reykjavík fyrir árið
1978.
Skrá um landsútsvör árið 1979.
Þeir, sem kæra vilja yfir gjöldum samkvæmt
ofangreindi skattskrá, skattskrá útlendinga,
skattskrá heimfluttra, skrá vegna tvísköttunar-
samninga og dánarbúa, verða að hafa komið
skriflegum kærum í vörzlu skattstofunnar eða í
bréfakassa hennar í síðasta lagi kl. 24.00 9.
ágúst.
Reykjavfk 25. júli 1979
Skattstjórinn í Reykjavík
Gestur Steinþórsson.
SKYNDIMYNDIR
Vandaðar litmyndir
i öll skirteini.
barna&fjölskyldu-
AUSTURSTRÆTI 6
SIMI 12644
Manuel Benitez El Cordobes, ninn irægi spænski nautabam, er snuinn anur l nring-
inn eftir nokkurra ára hlé. Hann var dáðasti nautabani Spánar og raunar heimsþekkt-
ur þegar hann hætti árið 1972 algjörlega uppgeflnn á nautaatinu. Nú hefur El Cordo-
bes snúið aftur, fjörutiu og þríggja ára að aldrí.
Toppurinn frá Finnlandi
50ÁRA
, •
SENDUM UM
ALLT LANDIÐ
26 T0MMUR
60% BJARTARI MYND
EKTA VIÐUR: PALESANDER, HN0TA j
100% EININGAKERFI
GERT FYRIR FJARLÆGÐINA 2-6 M
3 ÁRA ÁBYRGÐ Á MYNDLAMPA
FULLKOMIN ÞJÖNUSTA
SÉRSTAKT KYNNINGARVERÐ
VERÐ: 578.800.-
STAÐGR.: 556.648.-
BÚÐIN
SKIPHOLT119. SÍMI298UU