Dagblaðið - 27.07.1979, Síða 10

Dagblaðið - 27.07.1979, Síða 10
10 Útgefandi: Dagblaðið hf. Framkvœmdastjóri: Sveinn R. Eyjótfsson. Ritstjóii: Jónas Kristjónsson. Ritstjómarfulltrúi: Haukur Holgason. Skrtfstofustjórí ritstjómar Jóhannes Reykdal. Fréttastjóri: Óma Valdimarsson. 'lþróttir Hallur Símonarson. Menning: Aðalstoinn Ingóífsson. Aðstoðarfréttastjórí: Jónas Haraldsson. Handrít Ásgrímur Pélsson. Blaðamonn: Anna Bjarnason, Ásgeir Tómasson, Atli Steinarsson, Bragi Sigujðsson, Dóra Stefánsdótt ir, Gissur Sigurösson, Gunnlaugur A. Jónsson, Ólafur Geirsson, Sigurður Sverrisson. Hönnun: Guðjón H. Pálsson. Hilmar Karísson. Ljósmyndir Ámi Páll Jóhannsson, Bjarnloifur Bjamlotfsson, Hörður Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurðsson, Svoinn Þormóðsson. Skrtfstofustjórí: Ólafur Eyjótfsson. Gjaldkeri: Þráinn Þoríetfsson. Sölustjórí: Ingvar Sveinsson. Dreifing- arstjórí: Már E.M. HalkJórsson. Ritstjóm Siðumúla 12. Afgreiðsla, áskriftadeild, auglýsingar og skrtfstofur Þvorholti 11. Aðalsími blaðsinser 27022 (10 Ifnur). Juúiiny og umbrot Dagblaðið hf., Siðumúla 12. Mynda og plötugerð: Hilmir jif., Síöumúla 12. Prentun: Árvakur hf., Sketfunni 10. Verð í lausasölu: 180 krónur. Verö i áskrift innanlands: 3500 krónur. Mælirinn er fullur Jafnframt því sem landsmenn fá álagningarseðlana sína að þessu sinni, lesa þeir í blöðum fréttir um, að nýir skattar séu yfirvofandi. Ríkisstjórnin stefnir að hækkun skatta fyrir fyrsta september, en ekki er frágengið, hvaða skattahækkanir það verða. Ríkisstjórnin væri vafalaust búin að ganga frá hin- um nýju álögum, ef ekki kæmi til ótti við, að mönnum þætti mælirinn fullur. Það þykir ekki pólitískt heppi- legt að leggja nýja skatta fullmótaða á borðið í þann mund sem menn fá álagningarseðlana með gífurlegri hækkun skattbyrði. Tekjuskattur á einstaklinga hækkar nú í Reykjavík, svo að dæmi sé tekið, um rúmlega sjötíu og fímm af hundraði frá fyrra ári. Tekjuskattur á félög í Reykja- vík hækkar frá fyrra ári um nærri sjötíu af hundraði. Sáralítil fjölgun hefur orðið í röðum skattgreiðenda, svo að hækkun skatta er langt umfram verðbólguna, sem hefur verið um fjörutíu af hundraði. Þrátt fyrir það telur fjármálaráðherra gatið á ríkiskassanum svo stórt, að hann reynir að „svelta” samráðherrana til hlýðni við skattatillögur sínar með því að stöðva fjár- veitingar fram yfir fjárlög til annarra ráðuneyta. Fjármálaráðherra hefur á réttu að standa, þegar hann bendir á, að hallarekstur ríkissjóðs sé einn aðal- valdur verðbólgunnar. Hann sagði í fjárlagaræðu síðastliðið haust, að nýja stjórnin stefndi að hallalaus- um ríkisrekstri, þegar fyrsta sextán mánaða tímabil stjórnartímans yrði tekið sem heild. Þá þegar var á það bent, í Dagblaðinu, að hætt væri við, að dæmið gengi ekki upp hjá fjármálaráðherranum. í rauninni fælist í fjárlagafrumvarpi hans, að ríkisbúskapurinn yrði rek- inn með halla en ekki afgangi. Þetta hefur síðar komið á daginn. Fjármálaráðherra fékk framgengt, að ríkið hélt sinni skattprósentu af bensínverðinu þrátt fyrir gífurlega hækkun verðsins. Fyrir það bættist hálfur milljarður í ríkiskassann, en það var sem dropi í hafið. Síðan sagði fjármálaráðherra, að enn væri fimm milljarða gat á ríkissjóði, sem þyrfti upp í að fylla. Þetta var raunar sama talan og nefnd var, áður en hann fékk hálfa milljarðinn frá bifreiðaeigendum. Nú er ennfremur rætt um, að ekki eigi að standa við gefin loforð ráðherra um minnkun niðurgreiðslna. Fjármálaráðherra skortir þá enn nokkra milljarða til að greiða halla ríkissjóðs frá fyrra ári. Samkvæmt efnahagslögunum frá í vetur átti ennfremur að skera ríkisútgjöld niður á ákveðnum sviðum um einn millj- arð, en engar líkur eru til, að það verði gert. Gatið sem fjármálaráðherra þarf að fylla virðist því vera að minnsta kosti tíu milljarðar. Hallarekstur ríkisbúskaparins væri stórhættulegur á þessum tíma óðaverðbólgu. Nú stefnir í, að verðbólgan æði áfram með fimmtíu prósenta hraða á ársgrund- velli. Við höfum næga reynslu frá síðustu árum af sam- henginu milli hallarekstrar ríkisins og verðbólgunnar og þurfum að læra af því. Lausn fjármálaráðherra og ríkisstjórnarinnar, að leggja enn þyngri skatta á herðar skattborgaranna, er hins vegar engin lausn. Skattklyfjar hins opinbera eru að verða fjörutiu og sjö af hundraði af tekjum þjóðar- innar. Skattgreiðendur munu þessa dagana telja mæl- inn fullan. Eina úrræðið væri að skera ríkisbáknið niður nægilega til að gera hlut skattgreiðenda bærileg- an og draga um leið niður í verðbólgunni. .......... Bandaríkin: DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1979. V Núáaðbæta oröstírDC-10 þotunnar ,,Við munum stefna að því, að fullvissa almenning um að DC—10 þoturnar eru framleiddar hjá fyrir- tæki, sem ræður yfir fjölþættri og öruggri tækni tii að framleiða örugg- ar farþegaþotur,” sagði John Bickers auglýsingastjóri McDonnell Douglas fyrirtækisins bandaríska nýlega. 1 grein í dagblaðinu International Herald Tribune á þriðjudaginn var er einnig haft eftir Bickers að DC—10 þoturnar flytji meira en hundrað þúsund farþega til hundrað og sextíu borga í áttatíu og átta löndum. Auglýsinga- og kynningarher- ferðin, sem á að leiða til endurnýjaðs trúnaðar á DC—10 þotunum verður í höndum J. Waler Thompson þekkts, bandarísks auglýsingafyrirtækis. I greininni í Herald Tribune er sagt að herferð þessi verði ein af stórtækari /^Pf\ Ctd7 aðgerðunum til að fullvissa fólk um að þessi þotugerð sé örugg. í raun er DC—10 þotan í dag sömu gerðar og sú þota, sem fórst við Chicago í maí síðastliðnum, og sú sem fórst við Paris fimm árunt áður, þegar farmdyr rifnuðu af. í báðum þessum atvikum varð verulegt mann-, tjón en auk þess hefur DC—10 þotan svo oft lent í óhöppum að vegur tegundarinnar hefur mjög farið minnkandi. í Herald Tribune er full- yrt að orðstír hennar sé svo lítill að engu sé til að jafna nema óvinsældum Lockheed Electra skrúfuþotunnar á sjötta áratugnum. Aldrei tókst að vinna upp veg hennar eftir nokkur alvarleg flugslys sem siíkar vélar lentu i. r NÆTURVINNA í NÍGERÍU Það var niðaþoka í borginni þetta kvöld og útvarpsþulurinn hvatti öku- menn til þess að halda kyrru fyrir heima hjá sér. Það voru því fáir á ferli. Á barnum luku þrír fremur skuggalegir menn úr glösunum sam- tímis, þeir sátu þó ekki saman — þetta var merkið. Með þjálfuðu fasi atvinnumanna liðu þeir, hver af öðrum út úr barnum. Einn fór að móttökuborðinu og afhenti lykilinn sinn og gekk út í nóttina, annar tók lyftuna uppá loft, sá þriðji fór upp stigann. Þeir hittust að húsabaki og notuðu örsmá vasaljós með blikkara til þess að fara ekki á mis í drunga- legum bakgarðinum. Tveir höfðu komið niður neyðarstigann utan á húsinu. Nú stóðu þeir grafkyrrir og hlustuðu. Það var morð í loftinu. Breim kattar og skvaldur frá hóru- húsinu handan götunnar voru einu hljóðin. Þeir víxluðu fatnaði, einn limdi á sig hökutopp og setti upp hanska, annar setti upp hippahár- kollu — það var hálfgerður hrollur í þeim. Á slaginu hálf tvö fikruðu þeir sig að veggnum. Svolítinn tima tók að finna kaðalstigann, sem var liður í áætluninni. Eftir nokkrar tilraunir tókst að húkka krók uppá vegg- brúnina og þeir tóku að læsa sig yfir með æfðum en öruggum handtökum. Hefði verið dagsljós og þessir menn leikið listir sínar fyrir áhorfendur, hefðu þeir gert það fyrir framan kvikmyndavélar i Hollywood, og enginn efast um að þar fóru þjálfaðir Skipt er um skip til að auka aflann Hræsni Morgunblaðsins: Mikið er búið að segja og skrifa að undanförnu um að fískiskipafloti okkar sé alltof stór og afköst langt umfram það sem hagkvæmt er. Há- mark þessarra skrifa er aukablað Morgunblaðsins fyrir stuttu, þar sem spekingar Háskólans komust að þeirri niðurstöðu að minnka ætti flotann um allt að 65%. Nú þegar loksins á að spyrna við aukningu flotans t fullri alvöru, ætlar allt af göflunum aðganga. Mogginn gengur þar lengst eins og hans er vandi, ef tækifæri gefst til þess að ala á ófriði, aukablaðið alveg gleymt. Vandlega valin vitni eru leidd fram á siðum blaðsins og slik er hræsnin að ætla mætti að Sildar- vinnslan á Neskaupstað væri óska- barn Morgunblaðsins. Að sjálfsögðu er fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, Matthías Bjarnason, höfuðvitni blaðsins. i Hann talar meðal annars um að með kaupum á garnla Júlíusi Geirmunds- syni hafi reglur þær sern hann setti um skipakaup verið brotnar og er greinilega stórhneykslaður á framferði Kjartans Jóhannssonar núverandi sjávarútvegsráðherra. Reglur Matthíasar voru á þann veg að Fiskveiðasjóður skyldi Iána til • „Þessi 50 tonna bátur er eina fleytan, sem farin er úr landi á móti öllum þeim skipum, sem flutt voru inn eftir Matthíasar-regiunni...”

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.