Dagblaðið - 27.07.1979, Page 11

Dagblaðið - 27.07.1979, Page 11
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1979. McDonnell Douglas verksmiðjun- um er mikil nauðsyn á því að vinna aftur upp gott orð á DC—10 þoturnar. Bæði væri mjög slæmt fyrir fyrirtækið ef því tækist ekki að halda nafni sínu sem eitt mesta og öruggasta flugvélaframleiðslufyrir- tæki í heiminum. Auk þess eru verk- smiðjumar ekki búnar að framleiða nægilega margar DC—10 þotur til að fá að fullu upp í hinn gífurlega undir- búnings- og rannsóknarkostnað sem lagt var í áður en framleiðsla þeirra var hafin eða fyrsta DC—10 þotan fór út úr verksmiðjunum snemma á áttunda áratugnum. Enn vantar um það bil sextíu þotna til sölu til að að fullu hafi náðst upp í þennan stofn- kostnað. McDonnell Douglas fyrirtækið eða auglýsingafyrirtæki J.W. Thompson, fyrir þess hönd ætlar einnig að leggja sérstaka áherzlu á að ná til ferðaskrifstofu í Banda- ríkjunum. Samkvæmt opinberum tölum selja þær meira en helming þeirra farmiða sem seldir eru með flugvélum innanlands, þar i landi og þrjá fjórðu af farmiðum frá landinu. Talsmenn flugfélaga hafa sagt að ekki hafi orðið vart neinnar tregðu fólks við að fljúga með DC—10 þotum eftir að þær fengu flugleyfi að nýju. í greininni í Herald Tribune er það haft eftir talsmönnum banda- rísku flugfélaganna American Air- lines og Western Airlines. Segja þeir að flug með þotunum séu fullbókuð og fólk kjósi þær jafnvel fremur en aðrar flugvélategundir. Ekki ber þó öllum saman um þess- ar fullyrðingar. Talsmenn ferðaskrif- stofa eins og Thomas Cook segja að margir mikilvægir viðskiptavinir flugfélaga séu andvígir því að fljúga með DC—10 þotum. Er þar átt við ýmsa kaupsýslumenn, sem ferðast mjög mikið starfs sins vegna. Tals- maður Cooks segir hreinlega að margir þessara manna vilji ekki láta bóka sig í flug með þessum þotum. Talsmaður annarrar ferðaskrif- stofu í New York hefur látið hafa eftir sér að fólki sé ekki vel við að fljúga með DC—10 þotunum. Meðal stærstu viðskiptavina þessarar ferða- skrifstofu eru starfsmenn fyrir- tækisins Union Carbide sem rekur starfsemi sína víðsvegar um Banda- ríkin og heiminn. Segir talsmaður ferðaskrifstofunnar, að reglan sé á- vallt sú, að segja væntanlegum far- þegum með hvaða flugvélagerð ætlunin sé að verði á viðkomandi áætlunarleið. Ef i ljós komi að fljúga eigi með DC—10 þotu þá spyrji margir hvort ekki sé um annað svipað flug að ræða. Ef svo er ekki þá láta viðskiptavinirnir bóka sig í þá vél. En það má heyra það á fólki að það mundi fremur kjósa annað. Enn þarf að selja sextíu DC-10 þotur í viðbót frá verksmiðjunum til að McDonnell Douglas verksmiðjurnar hafi fengið allan þann stofnkostnað greiddan, sem lagt var í áður en bein smíði þeirra var hafin. KGB menn. En hér var ekki leikið, þetta var alvaran sjálf. Handan veggjar beið sendibíll í gangi en mannlaus. Þessir menn þekktu hvern krók og kima og þeim miðaði vel áfram um þröng og tóm strætin þrátt fyrir þok- una og myrkrið. Þeir voru á leið á stefnumót, sem lesendur geta verið vissir um að var mikilvægt. Þetta var takmarkið sem unnið hafði verið að, skipulega, mánuðum saman. Hvert fótmál var skipulagt af samtökum, sem kalla ekki allt ömmu sína. Á þessum slóðum þurfti ekki að nefna meira en fyrsta stafinn í nafni am- takanna, til þess að ótrúlegustu gáttir flygju upp. Á leiðinni fóru þeir yfir áætlunina, lið fyrir lið, eins og flugmenn fyrir flugtak. Vopnin voru yfirfarin. Þótt búið væri að eyða ótöldum fjárhæðum til þess aðmúta fleiri hundruð nianns, allt frá skó- burstara og uppi ráðherra var allur varinn góður. 1 þessum viðskiptum er aldrei að vita hverjum keppinautarnir hafa mútað, enda guðfeðurnir ófáir. Einn mannanna föndraði við upptökubúnað aftur í bílnum. Hann bað félaga sína að reyna innbyggðu hljóðnemana í brjóstvösunum. Að þvi loknu tilkynnti hann að græjurnar væru i lagi, jafnvel 250 metra frá bílnum. Kæmi eitthvað fyrir þá þremenninganna ættu sam- starfsmenn þeirra að geta gengið að spólunum síðar meir og notað þær til þess að gera viðeigandi ráðstafanir gagnvart réttum aðilum. Allt i einu varð þeim ljóst að þeir voru eltir — Ijós bílsins á eftir voru gul. Þeir settu Paxton forþjöppuna í gang og 8 gata Hemi vél Dodge sendibílsins tók kipp. Þeir voru staddir á breiðgötu og þrátt fyrir þokuna sýndi veg- mælirinn að 498 metrar voru að næstu gatnamótum — botngjöf. Ekki batnaði skyggnið fyrir aftan við gúmbræluna frá „Kelly Super Charger” dekkjunum, Dodsinn negldi afturstuðarann í malbikið svo neistarnir flugu og húddið krumpaðist við inngjöfina. Stefnuljós til hægri, beygt á 125 km hraða til vinstri á næstu krossgötum, þá til hægri og svo aftur til hægri inn á hring og til baka á þvergötuna. Bíllinn þrumaði nú í austurátt á 100 km hraða í þokunni. Væri einhver tík að þvælast á veginum þyrfti ökumaður hennar ekki að kemba hærurnar, því Dodsinn var með sér- byggðum stuðara, sem haldið var úti með vatnsdempurum. Sá sem elti var á bak og burt. Sat sennilega hálf- dauður úr reykeitrun einhvers staðar á eftir. Liður í þjálfun þessara manna er glæpakeyrsla við vonlausar skipakaupa utanlands 50% í stað 67% áður og auk þess yrði að selja úr landi hliðstætt skip. Gamli Júlíus Geirmundsson er keyptur án nokkurs Iáns úr Fiskveiðasjóði og upp í kaupin gekk m/s Hamravík. Þau kaup taka því langt fram, fram- kvæmd Matthíasar á eigin reglugerð, enn sem komið er. Fyrir Þorlákshafnartogarann fór nú úr landi togari sem Matthias hafði áður metið gildan til slíkra skipta Hegranes, Skagaströnd en leyfði, þegar til kom, sölu á honum innanlands. Þetta eru þau einu skip sem Kjartan hefur í raun leyft innflutning á. Þótt endanlega hafi verið gengið frá kaupum á Portúgaltogurunum í tið þessarar ríkisstjórnar, var fyrri stjórn búin að gefa loforð fyrir þeim og í hennar tíð farið að flytja út salt- fisk út á það loforð. Ýmir mun keyptur utan við öll kerfi og án nokkurrar fyrirgreiðslu hérálandi að minnsta kosti. „Skip seld á móti skipi:" Áður en Matthias gaf út reglugerð sína um skorður við innflutningi fiskiskipa úthlutaði hanrifélögumsín- um á Tálknafirði einn togara og lét Lúðvik vin sinn hafa annan fyrir Norðfirðinga (systurskip þess sem þeir eiga nú kost á). Fljótlega fóru skip að koma til landsins eftir nýju reglugerðinni, t.d. ný Eldborg, sú gamla átti að fara úr landi en lenti á Bolungavik. Bolvíkingar létu í staðinn aflóga riðkláf sem enn liggur i Hafnarfirði ásamt fleiri svipuðum skiptiskipum. Nýr Grindvíkingur, stærsta loðnuskip flotans ber um 1500 tonn. Sá gamli (ber um 600 tonn) átti að fara til Sviþjóðar, en var seldur Fisk- iðjunni i Keflavík, hún lét upp í Geir Goða um 160 tonn. Þegar Geir Goði hafði legið i Hafnarfirði um hríð þótti fyrri eigendum ráð að skipta aftur og nú létu þeir tvo 50 tonna báta upp í. Annan fundu þeir austur á fjörðum en sá reyndist ósjó- fær þegar til átti að taka og var dæmdur ónýtur, hinn er nýlega far- inn út og er því það eina sem fór upp í nýja Grindviking á endanum. í dag standa málin þannig að þessi 50 tonna bátur er eina fleytan sem farin er úr landi á móti öllum þeim skipum, sem flutt voru inn eftir aðstæður og alltaf hafa þeir sloppið hingað til. Það varð ekkert vart við frekari eftirför það sem eftir var leiðarinnar. Þeir athuguðu taugagashylkin og handsprengjurnar. Stefnumótið Eftir 23 mínútna akstur voru þre- menningarnir komnir að kirkjugarði í einu af úthverfum borgarinnar. Við suðurhliðið hleypti bílstjórinn þeim með hippahárið út og var hann óðara horfinn út í myrkrið, sem var ennþá svartara undir háum trjám gang- stíganna milli leiðanna. Á ákveðnum stað fann hann það sem hann leitaði að — bréf limt á legstein. Við austurhlið beið Dodsinn. Þeir lásu leiðbeiningarnar mcð hjálp litlu vasa- Ijósanna. Einn mannanna tók að troða sér í froskmannsbúning á meðan keyrt var að ákveðnumstað þar sem hægt er að komast niður í manngeng holræsi borgaiinnar. Þeg- ar þangað var komið hjálpuðu hinir honum niður um opið. Hann lagðist til sunds í ojbjakkinu. Eftir að hafa farið um göng eftir göng fikraði hann sig upp járnþrep sem múruð voru inn í vegginn og kom upp um op inni á miðri lóð herragarðs. Hann setti sig í keng og skauzt inn í limgerði og skreið á maganum upp að húsinu. Ekkert hljóð, ekkert Ijós í glugga. Eftir að hafa dírkað upp kjallarahurð fór hann eftir gangi og upp stiga og inn i herbergi, eins og hann hefði átt heima í húsinu i áratug, nema hann gaf ekki frá sér minnsta hljóð — þrautþjálfaður maður. í herberginu lá kelling í fasta- svefni. Hann skellti á hana klóróformi og hvislaði að henni, á Kjallarinn Leó M. Jónsson ensku, að steinhalda kjafti. Mcð kellínguna fór hann eins og leið lá út úr húsinu (þessir menn eru yfirlcitt heljarmenni að burðum) og að litlum garðskúr. Hann tók fram scnditæki. Þegar hann hafði gengið úr skugga um að félagar hans voru á réttum stað og tilbúnir, tók hann lítinn fjar- stýrðan gírókopta með eins strokka Briggs & Stratton mótor og hagan- lega "i'ið i fjirstýringu, lagði kellinguna á magt.nn steinsofandi og spcnnti ,nm úkopter á bakið á henni, ræsti hreyfilinn. Kellíngin tókst á loft og sveif steinsofandi út í náttmyrkrið. 10 mínútum síðar fékk viðskipta- ráðherra Nigeríu, Swabbi Visitors, símhringingu. Draugaleg rödd sem talaði bjagaða ensku (Indian talk) sagði: „Við finna út mútur no good. Við hafa þina kellingu í haldi stein- sofandi. Við búnir að biða fullt af mánuðum eftir að selja en aldrei neinn borga. Ef þið ekki kaupa íslenzku skreiðina nú strax þá kannski aftur verða mannshaus á þorskinum, þú skilja við íslendingar þreyttir að bíða, nú skreið eða aldrei meir skreið. Við hringja eftir 4 mínútur.” Leó M. Jónsson, tæknifræðingur. y Matthiasar reglunni í hans ráðherra- tið. Margt fleira fróðlegt mætti tiunda um þær kúnstir sem viðhafðar hafa verið í skipa-skiptum síðan sá skrípa- leikur var uppfundinn, en þetta ætti að nægja til þess að sanna, að ekki var vanþörf á að taka skipainn- flutning til endurskoðunar. Hafi stærð fiotans verið vandamál áður, sem flestir vilja meina, þá hefur sá vandi margfaldazt nú með þeim gífurlegu hækkunum sem orðið hafa á oliunni. Út af fyrir sig eru þau skipakaup sem Norðfirðingar vilja gera, kostakaup, ekki sízt ef þeir losna við skipið sem þeir lýsa í Mogganum fyrir stór fé , enda hafa fleiri en þeir viljað ná i það skip og eiga um það umsóknir sem engin svör hafa fengizt við. En óvíst er að tllir sem vilja skipta um skip ætli þar með að ná í meiri fisk. Og moldin rýkur í logninu Framkvæmdastofnun eða öllu heldur nefnd sérfræðinga á hennar vegum skipaði síðastliðið haust skýrslu um útgerð og fiskvinnslu á Suðurnesjum. Niðurstaðan var sú að til þess að halda 11 af 23 frystihúsum á Suðurnesjum gangandi þyrfti að minnsta kosti að fá þrjá togara. Kjallarinn Ólafur Björnsson Hinum 12 vildu þeir láta loka þar til frekar rættist úr með afla. Þetta á- stand hafði skapazt í tið Lúðvíks og Matthíasar ckki hvað sízt fyrir tilverknað kjördæmapotara lands- byggðarinnar. Núverandi sjávarút- vegsráðherra á trúlega staírSta þátt- inn í að nú hefur einn togari komið á svæðið, margnefndur gamli Július Geirmundsson, keyptur í fyllsta samræmi við þær reglur sem i gildi voru. Lengra fæst ráðherrann ekki til að ganga þrátt fyrir dllögur sér- fræðinganna og að þetta ástand er í hans kjördæmi. Þó gerist það að „Kommiser” S' -rrir Hermannsson, forstjóri stofnunarinnar sem lagði til að 3 togarar yrðu keyptir, er eitt vitni „Moggans”. Sverrir hneykslast mjög á framferði ráðherra og telur það fá- heyrt kjördæmapot. „Kommiser” Sverrir ætti að gefa sér tíma til þess að lesa skýrslur og tillögur eigin sérfræðinga. Ef hann læsi ársskýrslur Framkvæmda- stofnunarinnar sem hann sjáll'ur hefur undirritað ætti hann að komast að raun um hverjir eru og hafa verið kjördæmapotarar hér á landi, út- komuna mætti hann svo gjarnan birta i Morgunblaðinu. Ólafur Björnsson ulgerðarmaður, Keflavik. y

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.