Dagblaðið - 27.07.1979, Page 23
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1979.
27
Útvarp
Sjónvarp
I
' —:—:--------------------->
OSKALOG SJUKLINGA-útvarp kl. 9,30
ífyrramálið:
„Ánægjulegt þegar
fólk hringir til
að þakka
fyrir kveðjuna”
— segir Ása Flnnsdóttir
Algeng sjón á sumrin, unglingar á götunni vegna atvinnuleysis. Um þaö verður fjallað i þættinum Púkk.
PUKK-útvarpkl. 20,00:
KOL 79 og skemmtana-
möguleikar ungs fólks
Unglingaþátturinn Púkk er á dag- sagðar verða fréttir l'rá útihátíðinni
skrá i kvöld kl. 20.00 að vanda og eru misheppnuðu, Kol ’79. Athugað verður
umsjónarmenn þáttarins þau Sigrún hvernig gengið hefur hjá atvinnu-
Valbergsdóttir og Karl Ágúst Úlfsson. miðlun námsmanna og tveir ungir
í þættinum í kvöld verður, að sögn nienn Jóel Jasonarsson og Óskar P.
Sigrúnar, rætt við Hinrik Bjarnason Héðinsson halda smáfyrirlestur um
um skemmtanamöguleika ungs fólks, daginn og veginn.
Sigrún lofar skcmmtilegri tónlist í
þættinum og lesinn verður ljóðabálkur
eftir stúlkur úr Borgarfirðinum sem
fékk plötuverðlaun að þessu sinni.
Þátturinn stendur í fjörutíu mínútur.
-KI.A-
Útvarpskönnun Hagvangs hf:
FLEST SV0RIN K0MU FRA
FÓLKIA ALDRINUM 26-35ÁRA
í n>aitkominni útvarpskönnun
Hagvangs hf. er yfirlit yfir kyn,
aldur, búsetu og atvinnu þeirra sem
spurðir voru. En það var fólk
hvaðanæva af landinu sem fætt var á
tímabilinu 1.1. 1903—31.12. 1960.
Af þeim er svöruðu voru 54,1%
konur og 45,9% kariar. Enginn á
aldrinum 14—17 ára svaraði en á
aldrinum 18—25 ára svöruðu 26,4%.
Á aldrinum 26—35 ára svöruðu
29,7% og á aldrinum 36—45 ára
svöruðu 15,1%. Á aldrinum 46—55
ára svöruðu 10,4% en á aldrinum
56—75 ára svöruðu 11,3%. Það
virðist því að flest svörin hafi komið
frá fólki á aldrinum 26—35 ára.
Af þeim sem svöruðu voru 37,0%
búsettir i Reykjavik, 20,9% i Reykja-
neskjördæmi, 5,7% á Vesturlandi,
4,3% á Vestfjörðum, 4,7% á
Norðurlandi vestra, 12,8% á Norður-
landi eystra, 5,7% á Austurlandi og
9,0% á Suðurlandi.
46,9% þeirra sem svöruðu voru í
fullu starfi utan heimilis, 17,1% í
hálfu starfi, 23,7% heimavinnandi,
5,7% nemar og 6,6% annað. - F.I.A
I skoðanakönnun Hagvangs kemur m.a.
fram að fréttir eru citt vinsælasta efnið
sem flutt er. Þessi ungi herra á myndinni
setti útvarpstækið upp að eyranu svo
hann heyröi betur fréttirnar.
EPLAMAUK—útvarp kl. 22,50:
Jónas spjallar við
hlustendur
Jónas Jónasson hinn kunni útvarps-
maður lætur móðinn mása í þætti
sinum Eplamauk í útvarpi i kvöld kl.
22,50. Jónas getur á sinn sérstæða hátt
haldið hlustandanum við tækið á
meðan hann talar og spilar létta og
skemmtilega tónlist. í þætti sínum
spjallar Jónas um allt og ckkert að þvi
er hann sjálfur segir. Þó virðist hann
alltaf geta fundið eitthvað að tala um
allt aftur á tíma Önnu Boleyn
Englandsdrottningar. Jónas ætlar að
spjalla i kvöld allt upp í fjörutíu og
fimm mínútur. -ELA-
Jónas Jónasson.
Asa Finnsdóttir kynnir óskalögin fyrir sjúklinga.
DB-mynd Hörður.
Óskalög sjúklinga eru á dagskrá út-
varpsins í fyrramálið kl. 9.30 og er það
Ása Finnsdóttir sem kynnir. Ása er
þekkt sem fyrsta sjónvarpsþulan en
hún sér um óskalagaþáttinn i sumar á
meðan Kristín Sveinbjörnsdóttir cr i
frii.
Ása sagði i samtali við DB að hún
reiknaði rneð að vcra fram á haustið og
að Kristín kæmi þá til baka. Hún sagði
ennfremur að starfið væri skemmtilegt
og það væri sérstaklega ánægjulegt
þegar fólk hringdi i sig og þakkaði
l'yrir kvcðjurnar.
Annars sagði hún að þetta gcngi
svona upp og niður með bréfasending-
arnar, yfirleitt drægi úr þeim yfir
sumarmánuðina, en annars hefði þetta
verið þokkalegt.
Vinsælustu login i þættinum sagði
Ása að hefðu verið síðan hún byrjaði,
Þú ert, með Helga Péturssyni og Ég
fann þig, með Björgvini Halldórssyni.
Þátlurinn stendur yfir til kl. 11.20, þó
með smáhléi fyrir fréttir.
- KI.A
AKRANES
Nýr umboðsmaður Dagblaðsins frá 1/8 verður
Guðbjörg Þórólfsdóttir,
Háholti 31, sími 93-1875.
miAÐin
Frá olivetli
feröareiknivél
með Ijósi
og strimli
Skrifstofutækni hf.
Tryggvagötu Sími 28511
„Án tafar styður þú
á réttu hnappana“
Opel Mantaárg.1976
Rauður að lit, 2ja dyra, með sumar- og vetrar-
dekkjum, útvarpi o.fl. Ekinn 35 þús. km. Verð
kr. 3,9 millj.
HÚS OG EIGNIR
BANKASTRÆTI 6 - SÍMI28611
i