Dagblaðið - 09.10.1979, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1979.
2
r
Enn um ökukennslu:
Ekki trix — heldur
betri þjónusta
Halldór Jónsson ökukennari hafði
samband við I)B vegna nýlcgs les-
endabréfs sem bar yfirskriftina
„Veiðitrix ökukennara":
j DB 20. september er lesendabréf
|rar sem segir að auglýsing min sé
aðeins „trix” til að veiða „kúnna”
og til að hala inn sem mcstan pening.
Einnig að ég haldi nemanda að
nauðsynjalausu eða — litlu í 20—25
lima. Þetta er alrangt og vil ég þess
vegna skýra mál mitt.
í greininni segir orðrétt: „Öku-
kennari einn auglýsir allt að 30—40%
ódýrara ökunárn ef 4 panta saman.
Hvergi kemur l'ram hvcrs vegna slíkt
ætti að vera ódýrara og mig grunar
að hér sé um að ræða „trix” til að
veiða „kúnna".”
Að sjálfsögðu get ég ekki skýrt i
smáauglýsingunni hvers vegna öku-
námið er ódýrara hjá mér, en þeir
sem vilja fá upplýsingar geta auð-
vitað hringt í mig til að fá þær.
Með þvi að taka fjóra til sex
nemendur i einu get ég fært fræðsl-
una inn í skólastofu hjá mér og l'ækk-
að þar með hinum dýru útitímum.
Með því get ég boðið betri þjónustu
þar sem ég hcf komið mér upp tækja-
búnaði og myndaefni til að auka
fræðsluna.
Hin hefðbundna kennsla ökukenn-
ara er að sitja yfir nemanda nokkra
tima úti í bil og ræða við hann um
bilinn sjálfan og fræðsluatriðin.
Ég get hins vegar boðið þcssa
kennslu inni i skólastofu á ódýran
hátt. Ég mundi segja að ég hefði
frekar strangar kröfur til nemandans
og heldur meiri en þarf til að komast í
gcgnum prófið. Ég vil með þvi fræða
nemandann um ýmislegt sem hans
kann að bíða er lengra líður.
Ég hef verið baráttumaður fyrir
því að fræðikennslan verði kennd i
ökuskóla og til að bæta megi kennsl-
una verulega. Það hefur þó verið
kveðið niður hjá Ökukennarafélag-
inu og ég held að það sé fjárhagslegt
spursmál. Ökukennarar halda að þeir
tapi vinnu ef kennsla færi fram I
Ökuskólanum en það þyrfti alls ekki
að vera. Við erum 15—20 árum að
baki öðrum Norðurlöndum hvað
ökukennslu snertir, en það virðist
enginn hafa áhuga á að gera neitt
raunhæft hér á landi.
VERKAMENN ÞÆTTUST FIILL-
SÆMDIR AF LAUNUM BÆNDA
Neytendur hugsa sig margir tvisvar um áóttr en þeir kaupa landhúnaóarvörurnar
á hinu nýja verði. DB-mynd Hiiróur.
Herdís Hcrmóósdóttir skrifar:
Þessa dagana eru komnar á borðið
fyrir neytendur hinir furðulegustu
fréttir og er litt vandað til matreiðsl-
unnar og verðlagið í samræmi við
það. Ætlazt er til að okkur líki vel og
segjum ekki neitt. En nú bregður svo
við að siðasta búvöruverðhækkun
hefur hreyft við mönnum svo um
ntunar og þó seinna en von var á.
Tvennt er svo furðulegt, og þrátt
fyrir allt, óvenjulegt. En það eru yfír-
lýsingar forráðamanna bænda um
hið stórfellda „lap” bænda vegna
dráttar á samþykktum á síðustu af-
rekum „6 mannanefndarinnar” og
útreikningar Gunnars Guðbjartsson-
ar á upphæð dagsins sem hann telur
nema 200 milljónum króna þá 14
daga sem dróst að setja nýja verðið á
búvörurnar. Þvi spyr ég: Átti nú í
fyrsta sinn að skella þessari verðlagn-
ingu sexmenninganna á gamla kjötið
sem ekki hafði tekizt að sclja Færey-
ingum á „slikk"? En ef ekki?
Hvernig fengu þeir þá út þessa tölu?
Mér sýnist að ef það er rétt að
bændur tapi 200 milljónum á 14
dögum geri það 400 milljónir á
ntánuði og þar af leiðandi 4 þúsund
og 8 hundruð milljónir á ársgrund-
velli. Skyldi það ekki þykja þó
nokkur búhnykkur hjá „viðmiðunar-
stéttunum” að fá slíka aukagetu við
allt hitt til skipta milli 4000 meðlima.
Þá er ótalið annað „tap” hjá
bændum sem forráðamenn þeirra
hafa haft tima til að reikna út og aug-
lýsa cn það er harðæristapið vegna
tveggja kílóa rýrari dilka. Trúlega
ntiða þeir við 14 kílóa skrokkþunga
----------------—\
og telja að nemi I 1/2 milljón á
bónda.
Hvað segir þetta okkur? Aðeins
það að þá væru eftir 12 kiló sem
hljóta eftir þessum útreikningum að
gera 9 milljónir króna. Og þetta
aðeins fyrir kjötið. Þá er eftir ull og
gærur (með yfir 100% hækkun) og
slátur. Hætt er við að verkamaður
þættist fullsæmdur af slíkum launum
þó gleymzt haft að geta um arð af
nautpeningi. hrossum og ýmsum
hlunnindum, t.d. án- og \atnaleigu.
Svo segir landbúnaðarráðherra að
þetta „tap” skuli bætt. Og ég spyr:
„Hver á að borga það?”
Og enn spyr ég: „Er það meiningin
að láta okkur neytendur taka á okkur
þyngri skattabyrði til að borga bú-
vörurnar ofan í erlenda neytendur,
þegar vitað er að innlendir neytendur
geta ekki keypt þær sökum hins ríkis-
verndaða okurs sem á þeim er?”
í þriðja sinn spyr ég: „Hver á að
greiða hinar 10 verðlaunamilljónir
sem lofað hefur verið fyrir auxna
markaðsöflun fyrir landbúnaðaraf-
urðir?”
Að endingu þetta. Nú þegar
bændur sjá sjálftr að boginn hefur
verið spenntur of hátt og búast má
við aukinni sölutregðu heimta þeir að
semja beint við „ríkið”. En ég segi:
„Varið ykkur, neytendur. Þið ættuð
nú fyrst undir högg að sækja þangað
til áð hægt væri að knýja fram hag-
kvæmari innkaup búvara erlendis
frá.
Svo þakka ég DB ómetanlegan
stuðning við neytendur og tek heils
hugar undir mótmæli Neytendasið-
unnar gegn matvælaokrinu og eins
hitt að Neytendasamtökin skuli ekki
eiga neinn fulltrúa í 6 manna nefnd-
inni. Veit ég að Neytendasamtökin
eiga fullan stuðning „Eskifjarðar-
deildar Neytendasamtakanna” við
mótmælin, því nú hafa þau sýnt svo
ekki verður um villzt að þau eru sá
bakhjarl sem almenningur þarf á að
halda og getur treyst á. Enda eflast
þau nú dag frádegi og er það vel.
Hirsihmann
'Útvarps-og
sjcmvarpsloftnet fyrir
litsjónvarpstæki,-'
magnarakerfi og
tilheyrandi'
loftnetsefni.
Ódýr loftnet
og gód.
Áratuga
reynsla.
Heildsala-
Smásala.
Sendum i
póstkröfu.
Radíóvirkinn
Týsgötu 1 - Slmi 10450
Hvað heitir páfinn eiginlega
—Jón eða Jóhannes?
Sleinarspyr:
Þessa dagana hefur mikið verið
rætt og ritað um páfann i fjölmiðlum
vegna heimsókna hans út um allar
koppagrundir. Hann er alltaf kall-
aður Jóhannes Páll á islenzku en á
ensku er hann kallaður John Paul.
Hvað heitir þessi páfi réttu nafni?
Af hverju er hann kallaður
Jóhannes á íslenzku en ekki bara
Jón? Getur hugsazt að það sé vegna
þess að þegar biblían var á sínum
tima þýdd á islenzku var Jóhannes
skirari, kallaður Jóhannes en senni-
lega heitir páfinn í höfuðið á honum?
Jóhannes skirari heitir John thc
baptist áensku.
Ég man hinsvegar ekki eftir að
John F. Kennedy, fyrrunt Banda-
rikjaforseti, hafi nokkrun tíman
verið kallaður Jóhannes forseti á
íslenzku.
Hvað veldur?
Jóhannes Páll páfi. Heitir hann Jón
eða Jóhannes? spyr bréfritari.
V
ökukcnnara^eg'
| Kru ökukennarar .0 h.U inn pening.
Myndin er frá ökuskoUnum.
ÖkSnnar::nn auglýsir „am að
V°-ytSÍTr-. "vers
h:^r^„kúnna”Su^
i „emendum sinum?
nemendur.MargirUllafynr^þessum
k^nnski'Tð nauðsynjatauvu cða -litlu
^2n0nik25 tima til að hala inn sem
mcsta peninga.
MJÓLKIN Á EGILS-
STÖÐUM 0G
ÞAKKIR TIL ÓMARS
Ásthildur Pétursdóttir Ullartanga 6 í
Fcllum hringdi:
Mikið hefur verið skrifað um að
mjólkin á Egilsstöðum sé bæði súr og
fúl. Ég hef nú ekki orðið neitt vör við
það upp á siðkastið. Hitt er annað
mál að um jólin siðustu þá var mjólk-
in hér alveg ódrekkandi.
Svona til gamans langar mig að
segja frá fólki sem bjó hér skammt
frá, það hreinsaði mjólkurilátin með
joði fyrir og eftir notkun svo það yrði
hreint til sálar og líkama eftir
mjólkurdrykkjuna. Þetta fólk var að
vísu mjög trúað.
Sumt fólk er þó alltaf óánægt, það
væfi dýrt ef senda ætti okkur allar
nauðsynjavörur að sunnan. En ég vil
taka undir orð Egilsstaðahúsmóður
er hún talar um lélega þjónustu hér.
Það er sérstaklega léleg þjónusta hér i
Kaupfélaginu og er þar mikill munur
á og i Reykjavík. Starfsfólkið i Kaup
félaginu er heldur leiðinlegt vægast
sagt en það erágætt i Verzlunarfélag-
inu.
Í leiðinni langar mig til að senda
honum Ómari Ragnarssyni kveðju
fyrir þættina hans af landshornun-
um. Hann á heiður skilið fyrir hve vel
hann vinnur að þáttunum og að hann
skúli lýsa því sem illa fer hjá bændum
eins og hann gerði um daginn. Það
mættu margir taka hann til fyrir-
ntyndar.
Ómar fær kærar þakkir frá bréfritara
fyrir skcmmtilcga þætli af lands-
hornunum.
ATHUGASEMD FRÁ
HJARTAVERND
Athugasemd frá Hjartavernd:
Að gefnu tilefni vill Hjartavernd
koma því á framfæri að simi sá sem
er gefinn upp á happdrættismiðum,
83947, er tengdur simsvara frá
stöðvargrind borgarinnar og er hann
þar með úr okkar umsjá. Álag á
þessu númeri hefur verið geysilega
Raddir
lesenda
mikið. Vinningsnúmerin hafa verið
birt i öllum dagblöðum og hefur yðar
blað birt þau þrisvar sinnum sem við
metum mikils og þökkum fyrir.
Upplýsingar hafa lika verið gefnar á
skrifstolunni og þeim sent þess óska
verið send vinningaskrá.
/