Dagblaðið - 19.10.1979, Blaðsíða 1
f
i
i
i
i
i
i
Í
Í
i
i
i
i
i
i
i
í
t
t
í
t
i
i
t
i
i
i
t
i
i
5. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1979 — 230. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI ll.-AÐALSÍMI 27022.
mmr ■ r
TlU SjO-
mönnum
bjargað
Tiu skipverjum af sildarbátnum
Þorra SU frá Fáskrúðsfirði var
bjargað i gærkvöldi um borð í
Gunnar SU frá Reyðarfirði, eftir að
Þorri sökk skyndilega og veður var
að rjúka upp. Var Þorri á heimleið
með 70 tonn af miðunum við Ingólfs-
höfða, en Þorri er 170 tonn að stærð,
úr stáli og hét áður Náttfari.
DB tókst ekki i morgun að afla
upplýsinga um orsakir slyssins, enda
sendi skipstjóri Þorra ekki út
neyðarskeyti, hvort sem ekki vannst
tími til eða tæki hafa bilað.
-GS.
Tófuvinafélagið
fagnarbændum:
Tófan fær
þá meira
aðéta
— þegarbændur
hafa friðað rjúpuna
____ — sjá bls. 5
Ráðastdönsku
kosningamaraf
afstöðufólksins?
— sjábls.9
f Er ekki volg’
— segirSjöfnum
prófkjör
„Ef satt skal segja, þá er ég
ekki mjög voig,” sagði Sjöfn
Sigurbjömsdóttir i morgun er DB
spurði hana hvort hún ætiaði sér í
prófkjör Alþýðuflokksins i
Reykjavík. „Ég tek endanlega á-
kvörðun á sunnudag,” sagði
Sjöfn. -JH.
Þrír lands-
Mðsmenn til
Örgryte
— sjá íþróttir
Prófkjörin nálgast:
Sólnes vill
prófkjör—
Halldór til
íslaginn
— sjá viðtöl við f ram-
bjóðendurábls.6
Bragi afturkallar
ákvörðun
Hjörleifs "J.
„Glundroða-
kenningin
sýnd og
sönnuð”
— segir Birgir ísleifur
,,Ég er ánægður með málalokin
efnislega. Þarna var um að ræða
samning sem var mjög óhagstæður
fyrir Reykvikinga,” sagði Birgir
ísleifur Gunnarsson, fyrrum borgar-
stjóri, í viðtali við DB um Lands-
virkjunarsamninginn og afdrif hans i
borgarstjórn.
„Þetta sýnir og sannar það sem
við höfum haldið fram, að hér myndi
rikja stjórnleysi og giundroði, með
stjórn vinstri flokkanna á borginni,"
sagði Birgir ísleifur. „Það er of
snemmt aðdæma um framhaldið.”
-BS.
Atkvæðagreiðslan um Landsvirkjun íborgarstjóm:
FJÓRAR MÁLAMIÐLUN-
ARTILLÖGUR FELLDAR
,,Ég er mjög ánægður fyrir hönd
Reykvíkinga, að lyktir urðu þessar í
Landsvirkjunarmálinu,” sagði
Magnús L. Sveinsson, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks, i viðtali við DB.
Hann sagði að loftið á borgar-
stjórnarfundinum, sem hófst kl. 5 í
gær, hafi verið rafmagnað með há-
spennustraumi. Það lá’t loftinu að
allt gæti gerzt þegar Sjöfn Sigur-
björnsdóttir lagði fram tillögu um
fjölgun stjórnarmanna i Lands-
virkjun úr 9 í 13 menn. Tillagan hlaut
ekki stuðning.
Alþýðuflokkur og Fram-
sóknarflokkur lögðu til, að af-
greiðslu málsins yrði frestað til 1.
nóvember. Sú tillaga hlaut ekki
stuðning.
Sjálfstæðismenn gerðu dagskrár-
tillögu um að málinu yrði vísað frá.
Það var fellt.
Þá lögðu þeir fram tiliögu um að
málinu yrði frestað fram yfir alþing-
iskosningar. Það var fellt á jöfnu,
7:7.
Loks lögðu þeir til að allsherjarat-
kvæðagreiðsla yrði um málið í
Reykjavík. Það var og fellt á jöfnu.
„Þegar hér var komið var ekkert
annað að gera en leggja fram til-
löguna eins og hún var. Við atkvæða-
greiðsluna sat Sjöfn hjá og tillagan
var felld á jöfnum atkvæðum 7:7,”
sagði Magnús.
Fráfarandi vinstri stjórn sam-
—oglokssjálf
aðaltillagan
— sjá nánar
ábaksíðu
þykkti fyrir sitt leyti þá tilhögun sem
í aðaltillögunni fólst, á fimmtu-
daginn í síðustu viku. Þá lá fyrir sam-
þykki bæjarstjórnar Akureyrar við
málið.
Hjáseta Sjafnar kom eins og
reiðarslag, að því er virtist jafn
óvænt fyrir alla borgarstjórnarmenn.
-BS.
Sjöfn ímorgun:
Þettaer
ekkimein-
hlutamál
—ogégkýsallsekkiadstarfameö
Sjálfstæðisfíokknum
„Ég er undrandi á þessum um-
mælum Björgvins Guðmundssonar,
að hætta sé á að meirihlutasamstarfið
bresti,” sagði Sjöfn Sigurbjörns-
dóttir í morgun. „Hann hefur mælt
þetta í augnabliks reiðikasti, en þetta
er ekki meirihlutamál.
Þá get ég ekki kallað þetta
óheiðarleika eins og Kristján
Benediktsson borgarfulltrúi Fram-
sóknarflokks gerir. Við búum hér í
lýðræðisþjóðfélagi og á meðan ekki
er komið á einræði samkvæmt stcfnu
A-Evrópuríkja þá hljóta borgarfull-
trúar að geta komið með tillögur í
borgarstjórn og gert sínar athuga-
semdir.
Ég kýs alls ekki frekar að starfa
með Sjálfstæðisflokknum í borgar-
stjórn ög óttast ekki að þessi afstaða
mín stefni meirihlutasamstarfinu í
hættu. Ég er í meirihlutasamstarfi
sem stendur að fjárhagsáætlun og við
hana hef ég staðið, þannig að ég hef
staðið við mitt.
Ég kom með breytingartillögu um
fjölgun fulltrúa Reykjavíkur i stjórn
Landsvirkjunar og með því taldi ég
hagsmunum Reykjavíkur borgið,
hafði áður gert tillögu um að Kröflu-
greinin yrði felld á brott þannig að
Reykvíkingar þyrftu ekki að greiða
Kröfluvirkjun.”
-JH.
Ég óttast ekki að meirihlutastarfið sé i hœttu, sagði Sjöfn Sigurbjörnsdóttir / morgun. Björgvin Guðmundsson hefur sagt
það í augnabliks reiðikasti. DB-mynd Hörður.