Dagblaðið - 19.10.1979, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 19.10.1979, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. OKTÖBER 1979. 5 Eitt fyrsta verk hins nýja orkumálaráðherra: r árvirkjun afturkölluð „Akvörðun Hjörleifs byggðist á forsendum sem engin heimildvarfyrir” ,,Ég hefi með bréfi til Rarik aftur- kallað fyrirmæli fyrirrennara mins í embætti orkumálaráðherra um að Rarik hefji framkvæmdir við Bessa- staðaárvirkjun sem fyrsta áfanga í Fljótsdalsvirkjun,” sagði Bragi Sigurjónsson, hinn nýskipaði iðnaðar- og orkumálaráðherra i viðtali við DB i gær. „Ákvörðunin um afturköllun fyrirmæla Hjörleifs Guttormssonar byggist á þvi að hann tengir Bessa- staðaárvirkjun við Fljótsdalsvirkjun, sem Alþingi hefur ekki fjallað um — hvað þá heimilað,” sagði Bragi. „Hann byggir einnig fyrirmæli sín um að hefjast handa um fram- kvæmdir við Bessastaðaárvirkjun á fjárlögum sem ekki er búið að sam- þykkja.” Bragi sagðist ekki sjá hvað lægi á að hefjast handa um Bessastaða- árvirkjun um hávetur og teldi hann því rétt að Alþingi fjallaði um málið. Þá sagði Bragi að þegar væri búið að nota það fjármagn sem á þessu ári var ætlað til undirbúnings Bessa- staðaárvirkjunar. Væri þvi fyrrver- andi orkumálaráðherra að benda á notkun fjármagns sem ekki væri búið að fá veitingu fyrir á Alþingi. Þess má geta að um miðjan júlí- mánuð í sumar féllst iðnaðarráðu- neytið á tillögur Rafmagnsveitna rikisins um að eðlilegt sé að bíða með ákvörðun um framkvæmdir við Bessastaðaárvirkjun þar til niður- stöður fást um stofnun nýrrar Lands- virkjunar síðar á þessu ári. Ákvörðun fyrrverandi ráðherra um að hefjast skyldi handa, tekin aðeins þremur mánuðum siðar, kom því flatt upp á marga, enda tekin á siðustu dögum ráðherraferils hans. Sú ákvörðun gilti aðeins i 18 daga. Vélskólanemar í heimsókn hjá Vilmundi: „Varl hægt að skipta um skoðun í skólastof unum” ,,Ég mun Iáta starfsfólk ráðuneytis- ins gera úttekt sem svarar ykkar spurningum og senda ykkur svörin. Það verður enginn loforðalisti heldur lýsing á ástandinu,” sagði Vilmundur Gylfason menntamálaráðherra við vél- skólanema sem heimsóttu hann í ráðu- neytið í gær. Vélskólanemar gengu fylktu liði frá skólanum til ráðuneytisins við Hverfis- götu og báru kröfuspjöld. Þeir gerðu kröfur um að stjórnvöld veittu fjár- magni til Vélskólans á borð við aðra framhaldsskóla. „Getur þú nefnt dæmi um skóla sem útskrifar nemendur eftir fjögurra ára nám og gerir þá hæfa til að taka á sína ábyrgð vélar og tæki t.d. i skutlogurum sem eru að verðmæti um tveir milljarðar?” spurðu gestirnir Vilmund. ,,Allt of margir nemendur eru í hverjum bekk og sumar skólastofur eru svo litlar að vart er hægt að skipta um skoðun þar!” sögðu vélskólanemar. Við sama tækifæri afhenti fulltrúi kennara Vélskólans menntamálaráð- herranum erindi. Þar benda kennarar á að sakir fjárskorts sé skólinn langt á eftir hliðstæðum skólum á Norður- löndum og ekki hafi einu sinni fengizt peningar til að taka í notkun vélar sem skólinn fékk að gjöf fyrir tveimur árum. Þá vilja kennarar að lausráðnir kennarar fái fastráðningu og að kennarar fái mötuneyti á vinnustað sinn. -ARH „Meira fjármagn — hetri skóli" æplu sclskólamenn hástiifum f>rir utan gluggann hjá Vilmundi. ..Sumir kalla svnna heimsóknir í ráðunevti skrílmennsku. en mér finnst þær fvllilega réttlætanlegar og cðlilcgar." sagði menntamálaráðherránn og þakkaði gestuniim l'irir komuna. l)B-m>nd: llórður. Kennarar við Vélskólann: Launaþrefi lokið Nokkrir kennarar við Vélskóla íslands hafa staðið í þrefi við yfirvöld um launagreiðslur vegna kennslu og uppbyggingar endurmenntunarnám- skeiðs fyrir starfandi vélstjóra sl. sumar. Engar greiðslur hafa fengizt og einn kennari hafði tilkynnt uppsögn vegna þessa. Síðdegis i gær féllst svo launadeild fjármálaráðuneytisins á að taka reikningana frá kennurum gilda. Búizt er við að kennarinn umræddi dragi uppsögn sína til baka. Kennarar Vélskólans mótmæltu í gær við Vilmund Gylfason mennta- málaráðherra „gegndarlausum niður- skurði á fjármagni til skólans.” Bentu þeir á að nemendur skólans fengju í hendur tæki sem jafngiltu milljörðum króna að verðmæti og „minnstu mistök, sem stafa af vankunnáttu, kosta margfalt meira en sem nemur fjárveitingu til skólans.” -ARH Einar H. Ágústson var einn af 5 kennurum sem staðið hafa I þrefi við yfirvöld um launagreiðslur. Hann tók þátt I mótmælaaðgerðum vélskóla- manna i gær. DB-mynd: Hörður. Álfheiður Ingadóttir: „Ekkert slíkt á prjónunum” „Nei, ég hef ekkert siíkt á prjónunum,” sagði Álfheiður Inga- dóttir, blaðamaður á Þjóðviljanum, í gær. Undir hana var borinn orðrómur um að hún hyggist bjóða sig fram til sætis ofarlega á lista Alþýðubandalagsins í Reykjavík. „Alþýðubandalagsfólk svarar auk þess ekki slíkum spurningum frá aðilum úti í þæ. Það er kjörnefndar okkar að spyrja þegar réttur timi kemur. Og þá fæst svarið.” -ARH Islen/ka skaksveitin. sem tekur þessa dagana þáll i f>rslu heimsmeislarakeppni unglingasseila i skák sent haldin er i \ ihorg i Danmörkn: Krá xinstri Klvar Guðmundsson. Jóhann lljarlarson, Olal'ur II. Ólafsson, fararstjóri. .lóhannes Gísli Jónsson, Karl Þorsteins og Björgi in .lónsson. DB-m>nd: Bjarnleifur. íslendingar sterkir í hraðskák: KOMUST ALLIR í ÚRSUTAKEPPNINA Af 16 piltum sem komust í úrslit i óformlegri heimsmeistarakeppni sveina í hraðskák, sem haldin var í fyrrakvöld, voru 5 íslendingar. Keppni þessi var haldin í Viborg í Danmörku í tengslum við fyrstu heims- meistarakeppni unglingalandsliða sem haldin er þar þessa dagana. Engin þjóð átti eins marga keppend- ur í úrslitunum og íslendingar. Allir keppendur íslands komust i úrslit, en þeir eru sem kunnugt er Jóhann Hjartarson, Jóhannes Gísli Jónsson, Elvar Guðmundsson, Karl Þorsteins og Björgvin Jónsson. Lengst íslendinganna i úrslitakeppn- inni náði I. borðsmaðurinn Jóhann Hjartarson. Hann hlaut 2. sætið í mótinu eftir að hafa tapað úrslitaein- vígi við Bretann Short 1 —2. Short þessi hefur lengi verið álitið undrabarn í skákinni og hefur þegar náð áfanga alþjóðlegs titils. -GAJ- Tófunni tryggð afkoma með verndun rjúpunnar —ánægja með ákvörðun bænda á aðalfundi Tóf uvinafélagsins „Það er i samræmi við margyfirlýsta stefnu Aílagsins að vernda beri rjúpuna og skapa þannig tófunni tryggari lífs- afkomu,” segir í ályktun Hins íslenzka tófuvinafélags. Var hún samþykkt á aðalfundi á tveggja ára afmæli félagsins. Lýst var fullum stuðningi við ákvörðun bænda í uppsveitum Bórgar- fjarðar og éíðar, að vernda rjúpuna gegn skotgleðimönnum. Fundurinn harmaði hins vegar viðbragðsleysi stéttarfélags bænda við bréfi H.Í.T. dagsettu 15. mai síðastliðinn, þar sem tísku óvissu í þjóðfélaginu, ályktaði mælzt var til stuðnings við tófuna. fundurinn að stjórninni væri nauðsyn- Verulegur ágreiningur kom fram um legt að boða til blaðamannafundar ýmis málefni á aðalfundi félagsins. innan tiðar. Vegna þessa ágreinings og hinnar póli- -BS. SVÍÞJÓÐ - FISKUR Vil kaupa frosna ýsu-lúðu-síld, svo og laus- frysta rækju í venjulegum pakkningum, einnig saltfisk í neytendapakkningum. Upplýsingar um verð og magn sendist til: ISLAND SEAFOOD Box 313, S-12403 Bandhagen Sweden. Tel. 084-76177.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.