Dagblaðið - 19.10.1979, Blaðsíða 25

Dagblaðið - 19.10.1979, Blaðsíða 25
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1979. 29 Læknisbústaðurinn glæsiiegi á Þingeyri stendur ónotaður. Jónas Ólafsson sveitarstjóri Þingeyri: „Hættur að skilja þetta” —einsogviðsémskepnureneWdfólk Þetta ástand er óráðin gáta og ljóst að ekkert rætist úr þennan mánuðinn, hvað sem gerist í þeim næsta, sagði Jónas Ólafsson, sveitarstjóri á Þing- eyri, þegar ástandið i læknamálum bar á góma. Þetta er til skammar fyrir þjóðfélagið og ég er hættur að skilja þetta. Það er ekki eins og við séum fólk heldur skepnur. Nú er alltaf verið að mennta menn og þeir virðast svo hanga syðra og bíða eftir plássum á sjúkra- húsum enda þótt læknislaust sé á lands- byggðinni. Þetta er jú versti tíminn, desember- janúar og þá er oft ekkert nema skip sem geta komið til hjálpar og eru það þá varðskipin sem bjarga okkur. — Nú bjóðið þið nýjan bústað handa lækni og hjúkrunarkonu. Já, það er splunkunýtt hús og ekkert til þess sparað. — Heldurðu, Jónas, að menn veigri sér ekki við einangrun og erflðum skil- yrðum? Vafalaust og þarna spila konurnar mikið inn í, félagslega hliðin er þarna stór þáttur. Um hvað sveitarstjórnin gæti gert frekar svaraði Jónas því til að hann fylgdist með málum og hringdi suður af og ti). MISSÆTTl LANDLÆKNIS OG FÉLAGS UNGRA LÆKNA ÞÁTT- UR í LÆKNAVANDRÆÐUNUM Kristmundur Ásmundsson, læknir á ísafirði, var einmitt staddur á Þingeyri þegar blm. bar að: Menn hafa langt í frá jafngott upp úr sér hér eins og í stóru héruðunum. Við fáum heldur ekki launaálag fyrir það að vera aleinir á stað sem þessum, jafnvel einangraðir hálfan veturinn og á vakt allan tímann, það fælir frá. Svo mæltist Kristmundi aðspurðum um vandamálið. Það er heldur ekki hægt að fara frá með góðu móti, hvort sem maður þarf að skreppa suður til Reykjavíkur eða eitthvað annað. Það er kannski ekki heiftarlega mikið að gera á þessum vöktum en vaktirnar eru fyrir hendi. — Nú hafa læknar hér vestra upp- lýst að snurða sé á þræðinum milli landlæknis og Félags ungra lækna sem kandídatar eru í, hvað viltu segja um það mál? Um það má segja að áður, þegar samvinna var á milli landlæknis og Félags ungra lækna, var yfirleitt útbúin áætlun eitthvað fram í tímann þegar kandídat útskrifaðist. Svo gerðist það að skyldan í héraði var lengd úr þrem mánuðum í sex. Það var að visu skv. lögum en „ómóralskt” að ræða ekki við félagið heldur taka einhliða ákvörð- un. Eftir að þetta gerðist hefur ekki verið um samvinnu að ræða og ung- læknar sögðu landlækni að þeir gætu séð um þetta i framtíðinni og þeir kæmu ekki nálægt því. Það er sem sagt engin samvinna þarna á milli og þar við stendur. — Hvernig gengur þetta þá fyrir sig? Nú, við verðum allir að fara í héruð Kristmundur Ásmundsson læknir. og við höfum samband við landlækni hver og einn um það hvar þörf er á lækni. t. — Þið veljið þá bara úr beztu bit- ana? Það erum við sjálfir sem ráðum okkur eðlilega og það má kannski segja það að við veljum beztu bitana. tökum þau héruð sem ókkur lízt bezt á. — En nú hafa menn oftast verið lengur en þrjá mánuði í héi aði? Já, já, það kom í ljós í kónnun sem gerð var áður en timinn var lengdur að menn voru að jafnaði 6,7 mánuði. — Heldurðu að það hafi haft mikil áhrif að lengja skylduna einhliða? Þeir gerðu þetta alveg einhliða, þeir töluðu ekkert við félagið og þetta hleypti illu blóði í menn en þeir áttu auðvitað að tala við okkur. — Nú er þetta aukaálag á ykkur á ísafirði? Já, við erum fjórir unglæknar þar auk yfirlæknis á sjúkrahúsinu og verðum að fara á fjóra staði þar utan, það er Súðavík, Súgandafjörð, Flateyri og Þingeyri. Þetta kemur náttúrlega niður á þjónustunni þar sem viðerum. — Hvernig farið þið á milli? Eins og stendur með leigubílum en verðum trúlega að nota flugvélar þegar vegir teppast og skammdegið sezt að. Við sinnum neyðartilfellum og komum svo einu sinni í viku á staðina, þetta er lágmarksþjónusta sem landlæknir hefur komið á. — Hvað um þjónustu við skólana? Nú, við munum láta skólaskoðanir sitja á hakanum þar til úr rætist, við vorum reyndar bara þrír þar til nýlega og höfðum Bolungarvík að auki en þar er málið leyst í bili. — Og að lokum um útlitið? Það er verið að leita að mönnum að sjáifsögðu. Spurning dagsins Ertu ánægð(ur) með læknisþjónustuna hér? (Spurt á Þingeyri við Dýrafjörð) Davið Krístjánsson flugvallarstjóri: Nei, síður en svo. Þetta er fyrir neðan allar hellur og engum bjóðandi. Halldór A. Sigurðsson kennari, Núpi: Þetta er rosalegt ástand. Við erum með hundrað nemendur á Núpi en sem betur fer hefur ekkert komið fyrir. Jóhann Sigurðsson, Hvammi, Dýra- firði: Nei, það er eins og að taka mánaðarvixla að fá lækna hingað. Helga Aðalsteinsdóttir, Þingeyri: Ég er alls ekki hress með hana. Við verðum aö aka alia leið til ísafjarðar, um 70 kílómetra, ef eitthvað kemur upp á. Guðmunda Guðmundsdóttir, Þingeyri: Nei, það held ég að enginn sé. Þorkell Þórðarson, Þingeyri: Ég veit það ekki. Ég veit ekki hvernig þessi mál standa.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.