Dagblaðið - 19.10.1979, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 19.10.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1979. 7 Rjúpnaskyttirí gott fyrir heilsuna: Núorðið erþaö oftarég sem á pening fyrirmatnum —segir nýi fjármálaráðherrann, Sighvatur Björgvinsson Sighvatur Björgvinsson, nýskipaður fjármálaráðherra, getur ekki tekið mið af heimilisbókhaldi sínu við ríkisbú- skapinn. Því fjármál þeirra hjóna eru ekki byggð á neinni áætlanagerð heidur borgar það þeirra matinn sem á ptening það og það skiptið. „Nú orðið er það oftar ég,” segir Sighvatur, er við hitt- um hann í hádeginu á skrifstofu hans í Arnarhvoli. ,,Á námsárum minum vorum við jafnari,” segir hann, ,,og jafnfátæk, áttum stundum ekki fyrir mat síðustu viku mánaðarins. ..Siðan hefur bilið breikkað jafnt og þétt, því hún vinnur hálfan daginn á skrifstofu. Eins og þú veizt er kaupið fyrir það lítið upp í ráð- herralaun. En þetta er ekki hlutafélag byggt á prósentugrundvelli,” segir Sighvatur, „heldur samvinnubúskapur.” Hann segist aldrei mundu láta sér detta í hug að skammta konu sinni fé, eins og sumir menn gera. Né heldur að álíta það bera vott um skort á karl- mennsku að afhenda frúnni allt kaupið, ef svo ber undir, það geri margir ágætis menn, segir hann og nefnir dæmi. Börnin læra að bruðla ekki Uppáhaldsmaturinn hans er nauta- kjöt, helzt sem allra minnst steikt ,,en það verður að vera gott kjöt.” Gjarna rauðvín með. „Mér líkar bezt við bragðmiklu ítölsku sveitavínin, eins og Chianti eða Ruffino, en ég veit að þau þykjaekki fín.” I sambandi við vindrykkju segist hann sem blaðamaður hafa vanizt á að vinna í skorpum og halda þeim sið. En helzt megi maður ekki drekka strax þegar slíkri vinnuskorpu lýkur. Ekki einu sinni með mat. „Það er betra að sofa fyrst og hvíla sig. Áfengis á maður ekki að neyta nema manni líði mjög vel. Það er ekki meðal, hvorki við þreytu né vonbrigðum.” Þar með kveðjumst við, því hann er að þjóta vestur á Súgandafjörð á fram- boðsfund. Nýi fjármálaráðherrann á Alþingi: Sigh\alur Björgsinsson ásaml Kjarlani Jóhannssyni sjávarúlvegsráðhcrra. Hjork Melav meö vngsla soninn, Rúnar Stanlcy. Það lendir ol'lasl á henni að hjálpa krökkunum við heimalærdóminn, en þennan dag höfðu Ivii þeirra eldri skroppið mcð loður sinum á Iramhoðslund lil Súgandal jarðar. l>H-in\ndir: llorður. Við spurðum fjármálaráðherrann hvort hann hefði átt sparigris sem krakki. „Ekki grís,” sagði hann en Landsbankabauk, sem var eins og bók ílaginu.” Sighvatur og Björk, kona hans, eru sammála um að unglingar eigi helzt að vinna sjálfir fyrir eyðslufé sínu. Elzta dóttirin, sextán ára, var í fiskvinnu í sumar („Ég veit að það eru ekki allir unglingar svo heppnir,” segir faðir hennar) og kostar sig sjálf í skóla. Hún deilir sumarkaupinu niður á vetrar- mánuðina og lætur það endast. Þrettán ára dóttirin og ellefu ára sonur hafa fengið ákveðna upphæð undanfarið fyrir að gæta yngsta barnsins, sem er sjö ára, meðan móðirin vinnur, en hafa ekki vasapeninga að öðru leyti. Og það stendur ekki til að breyta þessum uppeldisháttum þótt kaup föður þeirra hækki. En börnin gera sér líka fulla grein fyrir verðbólgunni. Ellefu ára strákur- inn ætlaði að safna sér fyrir hjóli með barnagæzlunni og blaðasölu, en gafst upp þegar hjólið var búið að hækka þrisvar, þar sem það stóð kyrrt í búð- inni, svo hvað sem hann bætti miklu við spariféð var það alltaf tíu — tuttugu þúsund krónum of lítið! Pappírsflóðiö á þinginu Það sem Sighvati þykir verst við þingstörfin segir hann að sé að siðan hann settist á Alþingi 1974 hefur hann lítið getað fylgzt með nýjum bókum. „Aður las ég mjög mikið af íslenzku bókunum. En pappirsflóðið á þinginu er svo mikið að enginn heilvita maður kemst yftr það allt. Hver einastanefnd skilar skriflegri skýrslu, því lengri sem hún álítur sig merkilegri. Og allar ríkisstofnanirnar senda frá sér frum- skóg af skýrslum. Þótt ég sé hraðlæs er ég alveg uppgefinn þegar ég er kominn gegnum þetta allt saman. En honum vex ekki í augum að taka að sér fjárhag ríkisins eftir að hafa mátt basla við reikninga Alþýðublaðs- ins, þar sem hann var ritstjóri í mörg ár. „Fá verkefni vildi ég síður leysa af hendi en standa í fjármálavafstri stjórnmáladagblaðs á íslandi,” segir hann. Áfengi er ekki þreytumeðal Hann hætti að reykja fyrir fáum árum og síðan má hann gæta þess að fitna ekki. „Sem þingmaður sit ég kyrr í stól frá átta á morgnana til sjö á kvöldin, stundum lengur,” segir hann. Til að hreyfa sig kýs hann helzt að fara á rjúpnaskyttirí,” „fyrir feftka loftið, en ekki til aðdraga björg í bú.” NÝKOMIÐ OPNUM Á MORGUN Laugavegi 17

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.