Dagblaðið - 19.10.1979, Síða 2
2
DAGBLADID. FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1979.
FLÓTTAFÓLK OG STÚDENTAR
Einar Örn Thorlacius háskólanemi
skrifar:
VAKA félag lýðræðissinnaðra
stúdenta hefur nú ákveðið hvernig
það vill standa að hálíðahöldum 1.
des. nk. en eins og alkunna er má
heita að stúdentar séu eini þjóð-
félagshópurinn sem á formlegan hátt
hefur minnzt þessa merka dags á
undanförnum árum. Reyndar hefur
litið borið á hátíðablænum undan-
farin ár að dómi allra þeirra sem telja
að deginum sé bezt varið í ræður um
kreppu auðvaldsins og kvenfrelsis-
baráttuna séða frá marxísku sjónar-
horni. Enda er svo komið að u.þ.b.
3/4 allra stúdenta finnst það ekki
ómaksins vert að kjósa í 1. des
kosningum. Þetta er reyndar vanda-
mál sem bæði Félag vinstri manna og
VAKA ættu að hafa áhyggjur af.
Efni Vöku
Þegar þetta er skrifað er enn ekki
vitað hvert efni vinstri manna verður
að þessu sinni en Vökumenn bjóða
nú fram efnið Flóttafólk. Vandamál
flóttafólks hefur verið mikið til um-
ræðu undanfarna mánuði samhliða
mikilli fjölgun þeirra. Hafa menn
vertð skiptra skoðana hvað snertir
lausn á þessu vandamáli og hafa
reyndar sumir talið það hlutverk
flóttafólksins sjálfs að leysa sin
vandamál. Fleiri munu þeir þó sem
telja að alþjóðleg hjálp þurfi að
koma til en þá vilja sumir reyna að
leysa vanda fólksins heima fyrir í stað
þess að flytja það jafnvel heimsálfu á
milli. Þetta mál þarfnast mikillar
umræðu þvi þótt hægt sé að benda á
nokkrar hugsanlegar lausnir er engin
þeirra auðveld og allar krefjast þær
fórna.
Hvað er
flóttafólkið
að flýja?
Margar ástæður liggja að baki
fólksflótta, t.d. fátækt og volæði í
föðurlandinu eða það sem verra er,
pólitískar ofsóknir af hendi stjórn-
valda gegn einhverjum ákveðnum
þjóðfélagshópi. Einnig má benda á-
hóp sem er þó ekki eins illa á vegi
staddur og hinir fyrrnefndu en það er
sá mikli fjöldi fólks sem ekki sættir
sig við þau lifskjör sem föðurlandið
býður, býr e.t.v. við atvinnuleysi og
flýr til rikari landa í leit að atvinnu
um stundarsakir. Má þar nefna fólks-
flótta úr sumum löndum Suður-Evr-
ópu til efnaðri landa í norðri og eins
flótta úr sumum Austur-Evrópuríkj-
um (t.d. Júgóslaviu) vestur fyrir járn-
tjald. Langmesta athygli hefur þó
vakið sú mikla alda flóttafólks sem af
veikum mætti hefur reynt að flýja
ógnir kommúnismans í Suðaustur-
Asíu og er óþarfi að rekja þá sögu
hér.
Takið þátt!
Flóttamenn og aðstoð við þá er
brýnt umræðuefni sem stúdentum
sæmdi að taka fyrir og ræða sín á
milli og við þjóðina alla. Vandamálin
eru mörg og vandleyst en orð eru til
alls fyrst. Stúdentar hafa það nú i
hendi sér hvort þeir vilja einu sinni
enn þurfa að skammast sín 1. desem-
ber fyrir að vera nemendur Háskól-
ans. Með því að gera annað af
tvennu, kjósa vinstri menn eða sitja
heima eru allar likur á að vinstri
menn vinni. Hinn kosturinn er sá að
kjósa andstæðinga kommúnista,
VÖKU, og hefja 1. desember til vegs
á ný.
„Þeir sem vilja komast úr landi verða að greiða hátt lausnargjald. Oft verða þeir að láta af hendi aleigu sina til að fá að fara.”
Framtíðarsæluríkið?
Vesturbæingur skrifar:
Margir þeir erlendu menn sem
hiiigað koma frá öðrum Vestur-
Evrópu ríkjum fyllast undrun er þeir
heyra að í þessu landi lýðræðisins séu
kommúnistar með um og yfir 20% af
fylgi þjóðarinnar. Og þeir spyrja:
Hvers óskar þessi stóri hluti
íslendinga sem styður kommúnista-
hreyfingar? Sækist virkilega I af
hverjum 5 ÍSlendingum eftir
sósialisku þjóðskipulagi þar sem öll
helgustu mannréttindi eru fyrir borð
borin?
Fyrir nokkrum dögum komu
Hirsihmann
Tltvarps-og I
sjónvarpsloftrvet fyrir
litsjónvarpstaeki,-'
magnarakerfi og
tilheyrandi'
loftnetsefni.
Odýr loftnet
og gód.
Áratuga
reynsla.
Heildsala
Smasala.
Sendum i
póstkröfu.
Radíóvirkinn
Týsgötu 1 - Simi 10450
hingað til lands þeir þjáðu flótta-
menn sem flúið höfðu „sæla
kommúnista” í Vietnam og i einu
dagblaðanna (þó að sjálfsögðu ekki í
Þjóðviljanum) birtist viðtal við einn
þeirra. Hann var spurður um ástand-
ið i sæluríkinu sem hann hafði flúið
með konu og 5 ung börn. Gefum
honum orðið:
„Við fengum aldrei nógan mat og
urðum að hlýða á endalausa fyrir-
lestra um dásemdir kommúnismans.
Okktr var lofað að landið skyldi
blómstra og allir hafa það gott en
þau ár sem ég bjó undir stjórn
kommúnista kynntist ég aðeins fá-
tækt, vesöld og kúgun. Nei, ég
kynntist aldrei þessum gæðum
kommúnistanna sem voru að endur-
hæfa okkur en hinsvegar kynntist ég
grimmd þeirra. Þeir sem vilja komast
úr landi verða að greiða hátt lausnar-
gjald. Oft verða þeir að láta af hendi
aleigu sína til að fá að fara og þeir
eru oft blekktir. Lausnargjaldið var
hirt og svo var fólkið myrt.”
Einhverntíma hefði ofangreint
verið kallað i Þjóðviljanum Mogga-
lygi og borgaralegur áróður. En hér
höfum við nú meðal vor fólksemaf
eigin reynd hefur kynnst sæluríkjum
kommúnismans og lýsingar þess eru
vissulega hryllilegar. — En — við
höfum einnig meðal vor annað fólk
— fólk sem býr við öll helztu mann-
réttindi — en vill þó öllu fórna til að
sæluríkið rauða megi verða að
raunveruleika meðal íslcndinga.
Sumir blindir fá aldrei sýn.
OÞOLANDIGOR-
GEIR í ÍHALDINU
Arndis Guðbjartsdóttir hringdi:
Mér leiðist að hlusta á gorgeirinn I
íhaldinu í útvarpinu þessa dagana
þegar það er að bölsótast yfir
viðskilnaði vinstri stjórnarinnar.
Raddir
lesenda
Áð gefnu tilefni >skal þeírh]
sem senda Dagblaðtnu les-
endabréf bent á að þau eru
ekki birt nema nafn ogj
heimilisfang ásamt nafn-
númeri sendanda fylgi með.í
Þeir hefðu átt að reyna að gera
meira þegar þeir héldu um stjórnar-
taumana. Þá gátu þeir ekkert gert.
Enda hugsa þessir flokkar ekkert um
hag almennings. Það er sameiginlegt
með Framsókn, Alþýðubandalagi og
Sjálf stæðisflokk i. Eini flokkurinn
sem stendur upp úr er Alþýðu-
flokkurinn. Hann reynir a.m.k. að
standa við það sem hann hefur boðað
fyrir kosningar.
Uppgötvun þing-
manna í vegamálum
Jónmundur Kjartansson, Bolungar-
vík hringdi:
Þingmenn hafa mikið talað um
það að undanförnu að erfitt sé að
kjósa í desember. Þeir hafa aldrei
viljað taka eftir því að neitt geti verið
að samgöngumálum okkar sem búum
úti á landsbyggðinni.
En núna þegar þeir sjálfir þurfa að
ferðast um með sina kosningafundi
þá er eins og þeim verði þetta skyndi-
lega Ijóst. Yfirleitt hafa þeir gert lítið
úr þessum vandamálum en nú er eins
og þeir séu að gera nýja uppgötvun af
því að þetta snertir þá sjálfa i þetta
sinn.
Sfófc þjónusta
Borgarfógeta■
embættisins
Jón Auðunsson hringdi:
Ég get ekki orða bundizt yfir
lélegri þjónustu Borgarfógeta-
embættisins á Skólavörðustíg. Ekki
eru nema tvö ár síðan fólk var
afgreitt strax og það kom en núna er
það svo að það tekur 2—5 daga að fá
þjónustu.
Nýlega þurfti ég að fá þarna þjón-
ustu í sambandi við lán og þing-
lýsingu og hélt ég að það gæti varla
verið mikið mál en raunin varð sú, að
þetta tók nokkra daga. Þetta er engin
þjónusta að mínu mati og ekki
sæmandi opinberri stofnun.
ÓlafThorsá
Reykjanesið
Nokkrir Suðurnesjamenn skrifa:
Áhugi fer nú ört vaxandi suður
með sjó að fá Ólaf B. Thors í fram-
boð í Reykjaneskjördæmi fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn. Nú þegar okkar ást-
sæli þingmaður, Oddur Ólafsson,
lætur af þingmennsku eru stuðnings-
menn flokksins farnir að lita aivar-
lega í kring um sig eftir nýjum manni
á lista flokksins í næstu kosningum.
Að margra dómi uppfyllir Ólafur B.
Thors öll skilyrði ákjósanlega. Hann
hefur góða reynslu af sveitarstjórnar-
málum, en slíkt er nauðsynlegt í
okkar kjördæmi, kemur vel fyrir á
mannamótum eins og ættmenni hans
mörg en slíka framkomu hefur lengi
skort í kjördæminu. Þá er ljóst að
goðsögnin um Ólaf Thors heitinn lifir
enn sterku lífi í kjördæminu og nafni
hans og frændi yrði öðrum mönnum
líklegri til að vinna Sjálfstæðis-
■flokknum nýtt fylgi sem aðrir fram-
bjóðendur draga ekki til.
Semsagt: Ólaf B. Thors á Reykja-
nesið!
Ólafur B. Thors.