Dagblaðið - 19.10.1979, Page 8
8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1979.
Peugeot 504 station, 7 manna árg. 77 og 78
Peugeot 504 station, 7 manna árg. 77
Peugeot 504 L dísil árg. 78
Peugeot 504 station, disil árg. 77
Peugeot 504 USA árg. 76
Peugeot 504 GL árg. 73 og 77
Peugeot 304 S árg. 74
Peugeot 504 árg. 70
Qpið laugardaga. '
HAFRAFELL H/F
VAGNHÖFÐA 7 SÍMI85211.
Til stuðningsmanna
Braga Jósepssonar
Chevrolet Malibu Súper Sport '66
8 cyl., 283 cub., 4 glra gólfskipting (orginal), gódur bill. Tilboð. Sími 25464
" um helgina.
Undirbúningsfundur fyrir prófkjörið verður
haldinn að Hótel Sögu 2. hæð á morgun,
laugardag 20. október, kl. 14.
Nefndin.
Læknaritari
óskast til starfa frá og með 1. janúar nk. við Heilsugæzlu-
stöðina í Árbæ, Hraunbæ 102. Laun samkv. kjarasamningi
Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Reykjavíkur-
borgar.
Upplýsingar um starfið veitir hjúkrunarforstjóri í síma
71500.
Umsóknum sé skilað til framkvæmdastjóra Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur, Barónsstíg 47, fyrir 1. nóvember nk.
Heilbrigðisráð Reykjavíkurborgar.
TILSÖLU
DÍSIL BENZ 307 D
ÁRGERÐ 1978.
Ekinn 26 þús. km, orangelitur. Uppl. í
síma 72965 og hjá auglþj. DB í síma
27022.
þessum skelfilegu afleiðingum. Hundinum var gcfið uppsölumeðal og læknarnir gátu saumaö nefið á aftur. Þrátt fyrir að
hægt sé að sauma hluiaaftur á fólk er nauðsynlegt fyrir foreldra að brýna það fyrir börnum sinum að klappa ekki ókunnugum
hundum.
Kaupmannahöfn:
MISSTINEFH) EN
FÉKK ÞAÐ AFTUR
Það sýnir sig æ betur dag frá degi
hve læknavísindin eru komin á hátt
stig. Eitt nýlegt dæmi er frá Kaup-
mannahöfn. Tveggja ára stúlka varð
fyrir því nýlega að hundur beit
af henni nefið. Með nýjum
plastikaðferðum fékk litla stúlkan
nefið sitt aftur.
Það leiðir hugann að því hve langt
er hægt að ganga í skurðlækningum
nú til dags. Er hægt að setja hendur,
fætur, fingur, tær og flcira aftur á
sinn stað eftir að þcr hlu.ai hafa einu
sinni farið af? Jú, það er hægt. Með
öðrum orðum, það iiægt að gera
manneskju heila aftur.
Að vísu er hér um að ræða mis-
munandi skurðaðgerðir. Þegar nef er
sett á aftur þarf að koma vefjum
saman. Það er gert með plastikskurð-
lækningum. En það þarf mjög mikla
nákvæmni og gott samstarf svo
aðgerðin heppnist.
Sá hluti sem af hefur farið verður
að vera dauðhreinsaður og kældur.
Það er mikill misskilningur að maður
skuli setja fingur sem rifnað hefur af,
í munninn þangað til hann verður
settur á aftur. Það má aldrei gera
vegna þess hve munnurinn er
óhreinn. Það er bezt að setja hann i
dauðhreinsaðan poka með klaka og
röku stykki. Þar fyrir uian er
nauðsynlegt að aðgerðin geti orðið
sem fyrsl. Báðir hlutar verða að vera
frískir svo ekki komi blóðeitrun i
sárið.
Sú aðferð sem notuð er við
aðgerðir sem þessar er aðeins 3—4
ára gömul í Danmörku. Hún er kom-
in frá Kínverjum, sem hafa notað
hana i fleiri ár. Nú er hins vegar orðið
vanalegt að nota þessa plastikskurð-
aðgerð i flestum löndum heims.
Áðgerðir sem þessar eru gerðar
með stækkunargleri og nálin og
tvinninn, sem notuð eru eru um 4—8
sinnum fínni en það sem nota er i
venjulegum uppskurðum. Verkið
verður að vinna með mjög mikilli ná-
kvæmni, annars er hætta á að
aðgerðin heppnist ekki.
Ef það kemur í ljós að aðgerðin er
ekki nógu góð á litlu stúlkunni er
hægt að taka húð á öðrum stað á
líkamanum og græða við. Þó ekki af
maganum því hann þarf oft að opna,
en til dæmis er hægt að taka húð af
lærinu, og eftir kannski tíu ár þarf
enginn að sjá að litla stúlkan hafi
nokkru sinni misst nefið sitt. Þökk sé
læknavísindunum.
hm íbridge: Bandaríkjamenn taka forystuna
í úrslitaeinvigi um heimsmeistara- Er úrslitaeinvígið hófst höfðu Italir Þessi staða þýðir þó engan veginn
titilinn í bridge milli Bandaríkja- 37 stiga forskot yfir Bandaríkjamenn - að úrslitin séu ráðin, enn 64 spil eftir.
manna og ítala hafa Bandaríkjamenn frá því í undankeppninni en nú hafa Sveit Bandarikjanna skipuðu Mal-
nú tekið forystuna með 106 stigum Bandaríkjamenn sem sé unnið upp colm Brachman, Mike Passell, Paul
gegn 81 eftir heldur rólega byrjun. það forskot oggott betur. Soloway og Boby Goidman.
Skákmótið í Rio de Janeiro:
Portisch, Petro-
sjan og Timman
berjast um sigur
Vestur-þýzki stórmeistarinn
Robert Húbner náði jafntefli við
íranska meistarann Harandi í ákaf-
lega varasömu drottningarendatafli
þar sem Húbner var peði undir.
Hann hefur því tryggt sér réttinn til
að halda áfram keppni um rétt til
þess að skora á heimsmeistarann.
Hefur hann nú hlotið II l/2 vinning
eftir 18 umferðir.
Aðeins Ungverjinn Portisch á nú
möguleika á því að verða hærri að
vinningum en Húbner. Hann gaf í
vonlausri stöðu á móti Kagan frá
ísrael i 18. umferð.
Aðeins þeir Petrosjan og Timman
gela orðið jafnir Húbner. Aðrir en
þessir fjórir meistarar koma ekki
lengur til greina í áframhaldandi
keppni um áskorendaréttinn.
Eftir 18. umferð hefur Portisch
fengið ll vinninga, Petrosjan og
Timman 10 l/2. Ivkov hefur 9 l/2 og
Sax 9 vinninga.
Titillausi Brasilíumaðurinn Jaime
Suye hefur unnið sér alþjóðlegan
meistaratitil með frammistöðu sinni á
millisvæðamótinu í Rio de Janeiro.
Hann átti ólokið skák við Smejkal,
sem hann vann í gær. Þrátt fyrir að
hann tapaði fjórum skákum í röð,
þangað til hann vann skákina við
Smejkal, hefur hann nú 8 l/2 vinn-
ing.