Dagblaðið - 19.10.1979, Síða 15
14
DAGBLADID. FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1979.
4
Iþróttir
Iþróttir
Íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íslenzka landsliAið í körfuknattleik, sem mæta
mun Irum um aðra helgi var kynnt á blaðamanna-
fundi hjá KKÍ í gærdag. í liðinu eru fjórir nýliðar,
en liðið er annars skipað þessum
Árni Lárusson, UMFN
Atli Arason, IS
Birgir Guðbjörnsson, KR
Björn Jónsson, Fram
Gísli Gíslason, ÍS
Guðsteinn Ingimarsson, UMFN
Gunnar Þorvarðarson, UMFN
Jón Sigurðsson, KR
Július Valgeirsson, UMFN
Kolbeinn Kristinsson, ÍR
Kristinn Jörundsson, ÍR
Kristján Ágústsson, Val
Rikh. Hrafnkelsson, Val
Simon Ólafsson, Fram
Torfi Magnússon, Val
Þorvaldur Gcirsson, Fram
leikmönnum:
21—180— 0
27— 180— 3
26—172—15
20—187— 0
24— 180— 0
22—185— 4
28— 190—39
28— 185—63
22—189— 0
26—179—32
29— 183—38
25— 192— 8
22— 184—22
23— 200—24
24— 194—32
21 — 194— 4
Tölurnar hér að ofan tákna aldur, þá hæð i senti-
metrum og loks fjölda landsleikja. Kristinn Jörunds-
son mun verða fyrirliði liðsins í þessum leikjum, en
þess ber að geta að Geir Þorsteinsson KR verður
með síðar í vetur en gat ekki gefið kost á sér fyrr en
eftir 30. október.
Leiknir verða þrir landsleikir við írana. Sá fyrsti
verður í Njarðvík á föstudagskvöld eftir viku. Síðan
verður leikið i Laugardalshöllinni á laugardeginum
og svo i Borgarnesi á sunnudag. Mun það i fyrsta
skipti sem landsleikur af einhverju tagi fer fram í
Borgarnesi.
/Ltluinn er að allir leikmennirnir, 16 að tölu, fái
að spreyta sig í fyrstu tveimur leikjunum og verða
því gerðar 6 breytingar eftir fyrsta leikinn. Þriðja
leikinn munu þá væntanlega þeir leikmenn er bezt
hafa staðið sig í hinum tveimur fyrri leika.
Það vekur athygli aðenginn leikmaður í islenzka
liðinu er yfir tveir metrar á hæð. Meðalhæð liðsins
er rétt tæpir 1,87 metrar. Pétur Guðmundsson er
ekki með að þessu sinni en léki hann með myndi
meðalhæð liðsins hækka um tæpa 2 cm.
-SSv.
Kínverjinn nægði
Víkingum ekki
— og Fram vann óvæntan
siguráíSíblakinu
Kínverski blakþjálfarinn hjá Víkingi, Ni Fenggou,
lék sinn fyrsta leik með félagi sinu gegn Þrótti á
Reykjavíkurmótinu i blaki.Ekki nægði það Víking-
um til sigurs. Þróttur sigraði 3-0 (15-5, 15-13 og 15-
8). Ni Fenggou kom gagngert frá Kína til að þjálfa
hér en hann meiddist í byrjun september og hefur
ekki getað leikið fyrr.
Leikur Fram og ÍS var mjög skemmtilegur og tvi-
sýnn og mjög á óvart tókst Fram að sigra Stúdenta i
fimm lotum, 3-2 (13-15, 10-15, 15-13, 15-8 og 16-
14). í síðustu lotunni leit út fyrir sigur Stúdenta. Þeir
komust í 14-9 — en þá sögðu leikmenn Fram:
Hingað og ekki lengra og náðu i öll stigin.
Þá var einn leikur í meistaraflokki kvenna í gær-
kvöld. Víkingur, sem fengið hefur margar stúlkur
frá Húsavík í sínar raðir, vann öruggan sigur á
Þrótti, 3-0(15-1, 15-11 og 15-11). Víkingsstúlkumar
léku nú miklu belur en þcgar þær töpuðu fyrir ÍS í
fyrsta leik sínum á mótinu. Þá má geta þess, að Hall-
dór Jónsson, þjálfari ÍS, er erlendis og gat því ekki
stjórnað liði sínu í leiknum gegn Fram i meistara-
flokki karla.
Síðustu leikirnir á mótinu verða á mánudag í
Hagaskóla, kl. 18.30 leika ÍS og Þróttur i meistara-
flokki kvenna. Um kl. 20.00 hefst úrslitaleikurinn í
meistaraflokki karla milli ÍS og Þróttar og að lokum
verður leikur Fram og Víkings í meistaraflokki
Karla.
Brian Clough
baðst af sökunar
Brian Clough, framkvæmdastjóri Evrópumeist-
ara Nottingham Forest, hefur beðið stjórnarmenn
félagsins afsökunar vegna ummæla sem hann lét
falla um þá á dögunum og skýrt var frá hér í blaðinu
á sínum tíma. Sagði þá einskis nýta. Eitt af stórblöð-
um Englands skýrði frá því nú i vikunni að vegna
þessara ummæla Clough myndi Forest lcyfa honum
að fara til annars félags — Aston Villa.
í gærkvöld var hins vegar stjórnarfundur hjá
Forest i tæpa þrjá tíma og eftir hann sagði Clough
að hann hefði beðizt afsökunar. ,,Ég sé cftir að hafa
látið þetta frá mér fara, það hæfir ekki ábyrgum
framkvæmdastjóra. Það hvarflaði ekki að mér að ég
nyti algjörs trausts stjórnarmanna eins og nú hefur
komið á daginn. Ég er mjög ánægður hjá félaginu
og vona að mér auðnist að Ijúka samningi mínum
við það,” sagði Clough eftir fundinn. Rúm þrjú ár
eru eftir af samningi hans við félagið.
görpunum.
Axel Axelsson — hæst meðaltal i landsleikjum.
Geir Hallsteinsson —
flest mörk i landsleikjum.
Markakóngarnir ílandsleikjum íslands:
Markahlutfall Axels einum tíu-
þúsundasta betra en hjá Geir!
Landsliðsleikurinn við Tékka á
þriðjudag var 230. landsleikur íslands i
handknattleik. í þessum leikjum hefur
ísland skoraði 4362 mörk — fengið á
sig 4275. Það orð hefur löngum farið af
íslenzkum handknattleiksmönnum að
þeir séu með afbrigðum skotharðir.
Gegnum árin hafa margar ,,stór-skylt-
ur” verið í handknattleik á íslandi. Það
skrítna er að oftast er þó vitnað til
hinna miklu skotmanna hér á árum
áður i umræðum manna á milli, þó
staðreyndir sýni og sanni hins vegar að
mestu „skyttur” íslenzka landsliðsins
eru leikmenn, sem enn eru í „fullu
fjöri” — þeir Geir Hallsteinsson, FH,
log Axel Axelsson, llankersen.
Geir hefur leikið 118 landsleiki fyrir
ísland og hel'ur skorað miklu fleiri
mörk en nokkur annar leikmaður
landsliðsins eða 534. Axél, sem leikið
hefur mun færri leiki en Geir eða 78,
kemur næstur í röðinni með 353 mörk.
Þeir eru tvimælalaust markakóngar
Íslands gegnum árin — og þegar meðal-
tal er tekið á markaskorun hjá þeim í
leik kemur i Ijós, að Axel hefur aðeins
‘vinninginn. Hefur skorað einum tíu
þúsundasta úr marki meira en Geir í
leik!!!
Meðaltalið hjá Axel í hinum 78 leikj-
um er 4,5255 í leik. Hjá Geir 4,5254.
Hér á eftir fer skrá yfir 15 marka-
hæstu leikmenn íslands frá upphafi.
Fyrst mörk — siðan leikjafjöldi.
Geir Hallsteinsson, FH, Göppingen,
534/ 1 18
Axel Axelsson, Fram, Dankersen, 353
/78
Ólafur H. Jónsson, Val, Dankersen,
292/ 118
Viðar Símonarson, Haukar, FH, 231 /
103
Ólafur Einarsson, FH, Donsdorf, Vik-
ingur, 208 / 63
Björgvin Björgvinsson, Fram, Vik-
ingur, 194 / 106
Jón H. Karlsson, Valur, 191 /67
Gunnlaugur Hjálmarsson, IR. Fram.
166/47
.lón H. Magnússon. Vikingur. I ugi,
155/54
Einar Magnússon, Víkingur, Ham-
borg, 151 /69
Páll Björgvinsson, Víkingur, 124 / 46
Ingólfur Óskarsson, Fram, 118/45
Þorbjörn Guðmundsson, Valur, 110/
54
Viggó Sigurðsson, Víkingur, 98/48
Ragnar Jónsson, FH, 96 / 28
Það er mikill fróðleikur í þessum töl-
um. Axel og Geir eru með næstum
mark meira í leik að meðaltali en sá
lcikmaðurinn, scm kcnuir í þriðja
sæli Gunnlaugur Hjálmarsson. sá
mikli garpur, eflaust litrikasti leik-
maður íslands gegnum árin. Meðaltal
„Labba” í 47 leikjum er 3,53 mark i
leik. Skammt á cftir kemur landsliðs-
félagi hans Ragnar Jónsson með 3,4
mörk að meðaltali.
Pálmi Pálmason, Fram, sem lék ekki
nema 11 landsleiki er fimmti i röðinni
hvað meðaltalið snertir. Hann skoraði
3,36 mörk í leik — og alveg á hæla hans
er Ólafur Einarsson með 3,3 mörk í
leik.
Jón Hjaltalín Magnússon, sem var
markahæsti leikmaður íslenzka lands-
liðsins á ólympíuleikunum í Múnchen
1972, er með 2,87 mörk að meðaltali í
leik. Jón lék mun færri landsleiki en
efni stóðu til vegna náms og síðan
starfs i Svíþjóð og því fáir „léttir”
leikir til að hækka meðaltal hans. Jón
H. Karlsson. scm ckki hcfur vcrið lal-
inn í hópi íslenzkra stórskytta, er með
prýðilegt meðaltal eða 2,85 mörk í leik.
Enginn komizt nálægt Jóni H. í þvi að
„lauma” boltanum inn — helzt Viðar
Símonarson, sem þó er með mun lægra
hlutfall eða rúmlega 2,2 mörk i leik.
Páll Björgvinsson er með gott hlut-
fall eða 2,7 mörk í leik — leikmaður,
sem nú væri að nálgast 100 leikja
markið ef meiðsli hefðu ekki heft feril
hans. Ingólfur Óskarsson er aðeins
lægri en Páll eða með 2,6mörk í leik.
Af línu- og hornamönnum er Ólafur
John Gidman
til Everton
Everton snaraði út 600 þúsund
sterlingspundum í gær fyrir enska
landsliðsbakvörðinn John Gidman.
Það er hæsta verð, sem greitt hefur
verið fyrir varnarmann í ensku knatt-
spyrnunni. Gidman hefur um langt ára-
bil verið hjá Aston Villa — einn bezti
bakvörður Englands. Hann er fæddur i
I. iverpool og hóf feril sinn hjá Liver-
poolliðinu fræga án þess að komast
þar nema í unglinga- og varalið. Hann
var leystur þar frá samningi og fór til
Birmingham-liðsins, sem ekkert þurfti
að borga fyrir hann. Ekki er víst að
hann geti leikið með Everton í
Liverpool-derbíinu á laugardag, þar
sem hann á við smámeiðsli að striða.
Listahjónin kunnu, Sigrún
Guðjónsdóttir og Gestur Þorgríms-
son, hafa undanfarin tvö ár verið
að vinna að mikilli veggskreytingu á
stúku Laugardalsvallar. í síðustu
viku var byrjað á því að setja hluta
hennar upp — og við birtum mynd
af því hér á siðunni fyrir viku.
En þau hafa einnig unnið að gerð
styttu, sem bezta íþróttamanni
Reykjavikur er veitt árlega. Á DB-
mynd Bjarnleifs halda þau á stytt-
unni.
H. Jónsson með langbezt hlutfall, 2,57
mörk í leik, sem er afbragðs árangur.
Ólafur hefur þó ekki verið „fasta-
maður” á línunni eins og til dæmis
Björgvin Björgvinsson. Enginn „dans-
að á linunni” eins og Björgvin eða lent
þar í eins kröppum sjó. Ólafur Vik-
ingur Jónsson er mestur skorari horna-
manna með 39 mörk í 24 leikjum —
félagi hans Erlendur Hermannsson er
með hærra meðaltal en aöeins leikið
þrjá leiki. skorað 7 mörk. Gunnsteinn
Skúlason, Val, skoraði 73 mörk í 58
leikjum sem hornamaður og línu-
maðurinn Árni Indriðason, Gróttu,
Vikingur, 54 mörk i 60 leikjum. Sigur-
bergur Sigsteinsson, Fram, 66 mörk í
85 leikjum sem hornamaður og Stefán
Gunnarsson Val hefur leikið 57 leiki og
skorað 29 mörk. Vert er að geta
Sigurðar Einarssonar, Fram, sem
skoraði sem línumaður 62 mörk i 51
leik. Þá eru flestir leikmenn íslands
taldir, sem leikið hafa yftr 50 landsleiki
nema markverðirnir Ólafur Benedikts-
son, Valur, Olympia, með 94 lands-
leiki, Hjalti Einarsson, FH, með 76,og
Gunnar Einarsson, Haukur, Aarhus
KFUM, með 55 landsleiki.
Rétt er að geta þess, að Konráð Jóns-
son, Þrótti, sem nú leikur með KR,
hefur leikið einn landsleik. Skoraði i
honum fimm mörk — og Hermann
Gunnarsson, Val, er með hátt marka-
hlutfall. Skoraði 42 mörk í 15 leikjum
eða 2,8 mörk i leik.
Af frægum görpum fyrri ára má
nefna, að Karl Jóhannsson, KR,
skoraði 65 mörk í 31 leik, Örn Hall-
steinsson, FH, 61 mark í 31 leik, Birgir
Björnsson, FH, 52 mörk í 29 leikjum,
Guðjón Jónsson, Fram, 29 mörk i 25
leikjum, Einar Sigurðsson, FH, 16
mörk í 23 leikjum, Hörður Kristinsson,
Ármanni, 43 mörk í 22 leikjum.
- hsim.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1979.
19
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
D
Formaður Örgryte í Gautaborg kominn til samninga:
Fjórir landsliðsmenn gera
samninga við sænsk félög
Ragnar Margeirsson, Sigurður Björgvinsson og Örn Óskarsson til Örgryte. Þorsteinn Ólafsson til IMaimö FF
„Formaður sænska knattspyrnu-
félagsins Örgryte í Gautaborg kom til
Keflavikur i dag ásamt öðrum stjórnar-
manni félagsins og íslendingnum Ottó
Laufdal, sem er búsettur i Gautaborg.
Þeir höfðu strax samband við okkur
Ragnar Margeirsson og við erum
ákveðnir í að gera samning við félagið
til eins árs,” sagði Sigurður Björgvins-
son, knattspymumaðurinn kunni í
ÍBK, þegar DB hafði samband við
hann í gærkvöld, þar sem hann var að
æfa með félögum sinum á íþróttavellin-
um fyrir UEFA-leikina við Tékkana.
Þeir Sigurður og Ragnar skrifuðu þó
ekki undir samning við sænska félagið í
gær, „en ég reikna fastlega með því að
það verði gert á laugardag, þegar Sví-
arnir koma aftur frá Vestmannaeyj-
um,” sagði Sigurður í gær.
Svíarnir ætluðu í morgun til Vest-
mannaeyja til að ræða við og gera
samning við örn Óskarsson, landsliðs-
bakvörðinn kunna, sem er eins og þeir
Sigurður og Ragnar ákveðinn í þvi að
leika með sænska liðinu næsta leik-
tímabil. örgryte, sem er eitt af þekkt-
ustu knattspyrnufélögum Svíþjóðar
þótt það leiki nú í 2. deild og er þar um
miðbik deildarinnar eins og „íslend-
ingaliðin” Grimsas og Jönköping, fær
þvi þarna þrjá sterka íslendinga til liðs
við sig. Sigurður hefur eins og örn
leikið i íslenzka landsliðinu í knatt-
spyrnu og Ragnar hefur leikið í ungl-
ingalandsliðinu að undanfömu og
vakiðgífurlegaathygli. •
„Þetta verður stökkbr^tti hjá okkur
fyrir framtíðina og þess vegna gerum
við aðeins samning við Örgryte til eins
árs,” sagði Sigurður. Hann er aðeins
tvítugur að aldri og hefur áður leikið
erlendis — i Danmörku. Ragnar er
/2
HALLUR
SÍMONARSON,
V2
aðeins 17 ára og eitt mesta efni, sem hér
hefur komið fram í knattspyrnunni.
Þeir hjá Örgryte urðu mjög spenntir að
fá hann til sín, þegar þeir sáu hann í
leik ÍBK í Kalmar í UEFA-keppninni.
Sem stendur er Ragnar atvinnulaus en
Sigurður vinnur hjá varnarliðinu á
Keflavikurflugvelli.
„Við förum ti! Gautaborgar í janúar
ef allt gengur samkvæmt áætlun — og
Örn fer þá einnig,” sagði Sigurður enn-
fremur í gær.
Það er mikið áfall fyrir ÍBK og ÍBV
að missa þessa snjöllu leikmenn til Sví-
þjóðar — og ekki nóg með hjá ÍBK að
Sigurður og Ragnar fara til Örgryte,
heldur hefur Þorsteinn Ólafsson,
landsliðsmarkvörður ÍBK, gengið frá
samningi við sænska stórfélagið
Malmö FF. Fer til þess um áramótin.
ÍBK missir því þrjá sína beztu menn.
Eins og kunnugt er af fréttum í DB
frá því í sumar kom þjálfari Örgryt
hingað til lands og fylgdist þá með
mörgum leikjum í 1. deild. DB fékk
strax fréttir af komu þjálfarans og gat
skýrt frá áhuga hans á einstökum leik-
mönnum. Það varð til þess að sá
sænski hafði hljótt um sig og hafði
ekki samband við leikmenn. Forustu-
menn ísl. félaganna, sem í hlut áttu,
sögðu líka, að þeir myndu kæra hann
til UEFA — Evrópusambandsins — ef
hann reyndi að tæla til sín leikmenn á
miðju leiktímabili.
Margir snjallir íslenzkir knattspyrnu-
menn leika nú í Svíþjóð við góðan orð-
stír og nú bætast enn við fjórir lands-
liðsmenn í þann hóp. Teitur Þórðar-
son, Akranesi, leikur með öster, Árni
Stefánsson, Fram, og Jón Pétursson,
Fram, með Jönköping, og Eiríkur Þor-
steinsson, Víkingi, með Grimsas. Allir
þessir leikmenn hafa leikið i ísl.
landsliðinu. Jón er sennilega væntan-
legur heim eftir þetta leiktímabil. Þá
leikur Stefán Halldórsson, Víkingi,
með Kristianstad, eftir atvinnu-
mennsku áður í Belgíu, og þeir Jóhann
Torfason, Víkingi, og Karl Sveinsson,
ÍBV, leika með liðum úr 3. deild.
Þá má einnig geta þess, að flogið
hefur fyrir, að landsliðsmaðurinn Dýri
Guðmundsson úr Val hyggi á fram-
haldsnám í Svíþjóð. Ef til kemur mun
hann áreiðanlega leika með sænsku liði
og jafnvel eru möguleikar á því, að
ifleiri leikmenn úr Val gerist atvinnu-
imenn í knattspyrnu á næstu mánuðum.
-hsím.
Sigurður Björgvinsson með verðlaun sin
sem „bezti knattspyrnumaður Keflavíkur”.
50 stig Trent Smock
dugðu ekki til sigurs
—og Njarðvíkingar sigruðu ÍS85-80 í æsispennandi leik í gærkvöld
Þrált fyrir að Trenl Smock skoraði
50 stig fyrir Stúdenta dugði það ekki til
sigurs gegn UMFN í gær.
Njarðvíkingar, sem voru á allan hátt
jafnari og samhentari, voru sterkari á
endasprettinum og uppskáru sætan
sigur. Lokatölur urðu 85—80 eftir að
Njarðvik hafði leitt 48—38 i hálfleik.
Eftir þennan leik eru því aðeins tvö lið
ósigruð i deildinni. — Valur og ÍR. Þau
mætast I Hagaskólanum á sunnudag og
það er þvi öruggt að eftir tvær umferðir
verður aðeins eitt lið án taps i úrvals-
ír
• Á*9
deildinni. Spennan enn meiri en í fyrra
Leikurinn í íþróttahúsi Kennarahá-
skólans var oft á tíðum mjög fjörugur
þótt mikið væri um mistök — einkum
hjá Stúdentum, sem gáfu knöttinn
hvað eftir annað til mótherja.
Njarðvikingar byrjuðu betur en síðan
tókst ÍS að jafna, 10—10. Njarð-
víkingar náðu fljótlega forystunni á
nýjan leik og bilið smábreikkaði fram
að leikhléi og í hálfleik leiddu Suður-
nesjamennirnir með lOstigum.
Það var greinilegt að Stúdentar
hugðust ekki gefast upp fyrr en í fulla
hnefana og þeir tóku strax að saxa á
forskot Njarðvíkinga. Þegar 8 mín.
voru af síðari hálfleiknum munaði að-
jeins þiemur stigum og rúmum þremur
mín. Eftir það komust Stúdentarnir
.yfir í fyrsta sinn í leiknum, 63 —62. Allt
|gekk Njarðvíkingunum í óhag á þess-
• um tima og þeir virtust hreinlega vera
að brotna eins og svo oft i spennandi
jleikjum. (jS komst í 68—64 og leiddi
Isiðan þar til tæp mínúta var til leiks-
jloka. Þá komust Njarðvíkingar yfir á
;nýjan leik, 80—78. Stúdentamir fengu
rétt á eftir vítaskot og Gisli skoraði úr
þeim báðum. Jafnt 80—80, þegar 46
jsek. lifðu af timanum og allt var á
jsuðupunkti.
, ÍS sneri vörn í sókn og Atli Arason
reyndi skot úr vonlitlu færi. Beið
greinilega eft’ir því að dómararnir
dæmdu brot á Njarðvík. Það var flaut
sem aldrei kom og Njarðvíkingarnir
brunuðu upp og Jónas Jóhannesson
skoraði. Brotið var á honum í leiðinni
og hann fékk vítaskot, sem hann skor-
aði úr af öryggi. Undir lokin fékk Atli
knöttinn í upplögðu skotfæri en
mistókst að laga stöðuna fyrir ÍS.
Skipti í raun engu máli þar eð leikurinn
var tapaður.
Njarðvíkingarnir léku lengst af
mjög yfirvegað en svæðisvörnin i síðari
hluta leiksins virtist henta þeim verr en
maður-á-mann vörn, sem þeir léku
lengst af. Liðið er ákaflega vel á sig
komið, líkamlega og í því eru margir
ungir og bráðefnilegir leikmenn.
Njarðvíkingar misstu þá Geir Þor-
steinsson og Þorstein Bjarnason á
siðasta vetri en ungu mennirnir virðast
ætla að fylla skörð þeirra með prýði.
Ekki má gleyma þeim reyndari og eru
þar fremstur í flokki Gunnar Þor-
varðarson og Guðsteinn Ingimarsson,
sem báðir áttu mjög góðan leik. öryggi
Gunnars mikið. Ted Bee er greinilega
að koma mikið til og sýndi góð tilþrif
þrátt fyrir vafða ho d .
Leikur Stúdentanna byggist um of á
einstaklingsframtakinu. Trent Smock
sér um að skora og Gisli Gíslason
heldur spilinu gangandi. Aðrir koma
oft á tíðum lítt við sögu. Breiddin í
liðinu er ekki mikil og það hlýtur að
koma niður á liðinu síðar. Annars eru
Stúdentarnir mun sterkari en fyrirfram
var búizt við og þeir eiga eftir að standa
fyrir sinu í vetur þótt varla vinni þeir
til verðlauna.
Stigin skiptust þannig: Njarðvík:
Gunnar Þorvarðarson
J -''anncsson F. Tcd
IGuðsteinn Ingimarsson
26.
Bee
16.
Jónas
16,
Jon V.
^Matthiasson 4, Árni Lárusson 2, Valur
tlngimarsson 2 og Brynjar Sigmundsson
i2- '
j Stig ÍS: Trent Smock 50, Gísli
Gislason 11, Jon llcðmsson 9, lljarni
Gunnar Sveinsson 5, Atli Arason 3 og
ÓlafurThorarensen 2.
Dómarar voru þeir Guðbrandur
Sigurðson og Jón Otti Ólafsson. Þeim
urðu nokkrum sinnum á mistök en
samræmi var í dómum þeirra og þeir
voru sjálfum sér samkvæmir.
-SSv.
40 tegundir af rúmum sem
ekki fást annars staðar.
Líttu inn þegar þú mátt vera aö
Bíldshöfða 20 - Sv81410 - 81199
Sýningahöllin - Artúnshöfða