Dagblaðið - 19.10.1979, Side 24
28
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1979.
w
S\^
Sjúkrahús á Akureyri
Tilboð óskast í að reisa og fullgera gas- og súr-
miðstöð við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Húsið er ein hæð, um 600 m3 að stærð og að
mestu niðurgrafið. Verkinu skal að mestu lokið
15. júní en lóðarfrágangi 15. september 1980.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri og
skrifstofu bæjarverkfræðings á Akureyri gegn
50.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á
skrifstofu vorri föstudaginn 2. nóvember 1979,
kl. 11.00.
Nýkomið
mikið úrval af
gönguskóm
Kr. 20.720.-
Kr. 21.200.-
Kr. 25.800,
Póstsendum
SKOSEL
Laugavegi 60 - Sími 21270
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
HARGREIÐSLUSTOFAN
Jheri Redding KLAPPARSTÍG 29
Rauó
svört
brún
litlaus
Henna hárlitun
nærir hárið.
Hárgreiðslustofan Klapparstíg 29
Símapantanir 13010
Neyöarástand ríkir
i læknamálum á
Þingeyri
Öhætt er að segja að neyðarástand
ríki i læknamálum Vestur-lsafjarðar-
sýslu nú í byrjun vetrar. Hvorki er
læknir á Flateyri né Þingeyri en þeir
koma hins vegar einu sinni í viku frá
isafiröi. í neyðartilfellum verða Þing-
eyringar að aka um 70 kílómetra leið til
ísafjarðar og yfir tvo fjallvegi að fara,
Gemlufallsheiði og Breiðadalsheiði,
sem jafnan er ófær vetrartímann. Á
Flateyri er starfandi héraðshjúkrunar-
kona en engin hefur fengizt á Þing-
eyri.
Þar er þó til staðar ljósmóðir sem
fólk hlýtur að leita til þegar i nauðir
rekur.Læknavandræði cru ekki óþekkt
fyrirbæri á þessum slóðum, þó hefur
verið talið að nóg framboð væri á
læknum um þessar mundir. Þá má geta
þess að spánnýr læknisbústaður er á
Þingeyri og hefur ekki enn verið tekinn
í notkun en biður læknisins.
Á Þingeyri er áætlunarflugvöllur
Flugfélags íslands og ekki sannfærandi
öryggi að vita að neyðarþjónusta er
engin fyrir hendi ef slys ber að
höndum. Þá er Héraðsskólinn að Núpi
í Þingeyrarhéraði og þar er nú komið á
annað hundrað manns og ekki vitað til
að neins konar þjónusta læknis sé í
nánd, svo sem skólaskoðun og þvi um
líkt.
<*
I »2% Z"
malum é Þíngevri ,andS ' 'xkna-
i *;enn«- héra0inn »
slvar/egunj aUj;um y°nnm litiO
2? 8'ö8g« kemu* ZL “0i eins
Finnboga. m 1 viðiölum
DB kannaði ástandið á Þingeyri og
hitti að máli Jónas Ólafsson, sveitar-
stjóra, Kristmund Ásmundsson lækni
og Vilborgu Guðmundsdóttur Ijós-
móður sem þar gegnir skyldustörfum
og er eini fulltrúi heilbrigðis-
þjónustunnar á þeim stað, utan læknis
einu sinni í viku.
Vilborg Guðmundsdóttir Ijósmóðir:
r
„Ognvekjandi að búa
við þetta ástand"
• Vilborg Guðmundsdóttir ljósmóðir
er eini fulltrúi heilbrigðisþjónustunnar
á Þingeyri. Tíðindamaður ræddi við
Vilborgu yfir kaffibolla ,,út á Skýli”
svo sem sjúkrahúsið er nefnt:
Já, ég er vist ein hérna en ég er hér
náttúrlega bara milliliður milli læknis
og héraðsbúa. Ég hef enga möguleika
til að leysa vanda sem að steðjar. Ég
sinni auðvitað fyrst og fremst minu
starfi, að taka konur í skoðun og lita
eftir ungbörnum. Hitt reyni ég bara
eftir getu, að vera milliliður milli lækna
og sjúklinga. Sem betur fer ltefur lítið
komið fyrir það sem ég er búin að vera
en ég er hrædd um að ég verði ekkert
brasthörð að þurfa að fara að standa i
því ein ef eitthvað alvarlegt kemur upp
á.
— Hefur slíkt ástand orðið áður?
Já, við bjuggum við þessa aðstöðu
fyrir nokkrum árum og mér finnst það
svo ógnvekjandi miðað við það sem þá
var. Þá þurfti ég að standa í ýmsum
störfunvsem algjörlega voru fyrir utan
minn verkahring og óleyfileg og ég get
ekki hugsað mér að fara út í það aftur.
Það minnkar kjarkurinn og maður
eldist og veit um þetta. Það er algjör-
lega um tómt mál að tala að hafa hér-
aðið svona. Það þarf ekki nema eina
nótt svo maður fái enga fyrirgreiðslu
þegar vegir teppast og þaðer ekki alltaf
flugveður.
— Nú eru annir hjá þér í ljósmóður- •
starfinu?
Já, það munu vera um átta konur
sem vænta sín fram að áramótum en ég
vona að ég sleppi þennan mánuð og
einhver úrlausn verði komin í næsta
mánuði.
— Munu þessar konur fæða hér á
Þingeyri að óbreyttu ástandi?
Ég held að ég muni ekki eggja þær til
þess, ég býst við að maður fari þá leið
að senda þær burtu. Þó er það svo að
þær sem hafa fætt hér áður vilja helzt
KJÓLAR
Smekklegir
Ódýrir
Mikið úrval
Nýjasta tízka
•
Brautarholt 22,
III. hæð, inn-
gangur frá
Nóatúni.
Sími 21196
Vilborg Guðmundsdóttir Ijósmóðir.
ekki fara annaö en maður lætur þær
ekki fæða hér í algjöru öryggisleysi.
— Nú ert þú eini starfsmaður heil-
brigðisþjónustunnar hér?
Já, ég hef lagt tildrög til þess að
mega leita til hjúkrunarkonu sem býr á
Núpi, Guðrúnar ínu. Hún hefur nátt-
úrlega til að bera miklu meiri menntun,
ung hjúkrunarkona.
— Hafa einhver alvarleg tilfelli
orðið það sem af er i læknisleysinu?
Nei, sem betur fer, þetta hefur verið
mjög rólegt.
Haraldur Magnússon,
viðskiptafræðingur.
Höfum fjársterka kaupendur að góðum íbúðum, einbýlis-
húsum og raðhúsum, fullkláruðum eða á byggingarstigi, í
Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi og Garðabæ.
Til sölu stórar og smáar fasteignir á höfuðborgarsvæðinu
og víða út um landið.
Leitið upplýsinga. Látið skrá ykkur.
Leggjum áherzlu á góða þjónustu.
Sími 17374 til kl. 9 á kvöldin.