Dagblaðið - 19.10.1979, Page 27
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1979.
Útvarp
31
Sjónvarp
8
Þessi mynd er úr kvikmyndinni A Bridge too Far sem sýnd var hér 1 kvikmyndahúsi fyrir ári. Við fáum hins vegar að sjá
brezka sjónvarpsmynd um sama atburð i sjónvarpinu i kvöld.
ARNHEM - sjónvarp M. 22.05:
Orustan við Amhem
ný brezk sjónvarpsmynd
Arnhem nefnist mynd sem sjón-
varpið sýnir í kvöld. Myndin er bresk
sjónvarpsmynd. Hún greinir frá einni
stærstu harmsögu Breta á stríðsárun-
um. Flóttasögu mætti kannski kalla
myndina því hún lýsir flótta herlæknis,
Graeme Warracks, undan Þjóðverjum.
17. september 1944 voru níu þúsund
fallhlífarhermenn úr liði bandamanna
sendir inn á yfirráðasvæði þýzka hers-
ins i Hollandi. Ætlun þeirra var að ná á
sitt vald brúnni yfir Rín við borgina
Arnhem. Eins og margir eflaust vita
mistókst þessi árás Breta og fimm
þúsund fallhlífarhermenn létu lífið.
Stórfengleg bíómynd hefur verið
gerð um þennan atburð og var hún
sýnd hér i kvikmyndahúsi 1978.
Myndin hét á ensku ,,A Bridge Too
Far” en á íslenzku Orustan við
Arnhem. Muna eflaust margir eftir
þeirri mynd þar sem stærstu Holly-
woodstjörnur fóru með áðalhlutverkin
s.s. Dirk Bogarde, James Caan, Sean
Connery, Ryan O’Neal, Robert
Redford og Liv Ullmann ásamt fjölda
annarra þekktra leikara.
Það má þó engin misskilja það svo
að sjónvarpið ætli að sýna bíómynd-
ina, heldur er það sjónvarpsmynd sem
Bretar hafa gert sem við fáum að sjá.
Með aðalhlutverk fara John
Hallman og leikstjóri er Clive Rees.
Myndin er einnar og hálfrar stundar
löng og þýðandi er Jón O. Edwald.
-ELA.
J
KA
STLIOS—
sjónvarp
kl. 21.05:
NYIR RAÐHERRAR 0G
RJÚPNASKYTTUR
„Tvö mál verða tekin fyrir í Kast-
Ijósi í kvöld,” sagði Guðjón Einarsson
fréttamaður, umsjónarmaður þáttar-
ins. „Við förum niður í ráðuneyti og
ræðum við nýju ráðherrana þrjá, þá
Vilmund Gylfason dóms-, kirkju- og
menntamálaráðherra, Braga Sigurjóns-
son landbúnaðarráðherra og Sighvat
Björgvinsson fjármálaráðherra, um
fyrirætlanir þeirra í embætti.
Ennfremur verður rætt við tvo ráðu-
neytisstjóra, þá Baldur Möller í dóms-
málaráðuneytinu, um hlutskipti ráðu-
neytisstjóra þegar tíð ráðherraskipti
verða og viðhorf þeirra til þess,” sagði
Guðjón.
,,Hitt málið er deilan sem risin er um
rétt skotveiðimanna á heiðalöndum.
En eins og kunnugt er hafa bændur i
Borgarfirði farið fram á að rjúpan
verði friðuð,” sagði Guðjón og taldi að'
einhverjar umræður í sjónvarpssal
gætu orðið um það mál. Ekki kvað
hann þó ákveðið hverjir yrðu fyrir
svörum né hvaða aðstoðarmenn verða
honun) til hjálpar í þættinum.
Kastljós er á dagskrásjónvarpsins kl.
21.05 og er þátturinn klukkustundar
langur.
- ELA
Einnig verður rætt við þá Vilmund
Gylfason dóms-, kirkju- og menntamála-
ráðherra og Baldur Möller ráðuneytis-
stjóra.
V_________________________________
, - - ••• ■ --------------------------------------------------------------------------
1 Kastljósi I kvöld verður rætt við þá Braga Sigurjónsson landbúnaðarráðhcrra og
Sighvat Björgvinsson fjármálaráðherra. DB-mynd Hörður.
)
t--------------------------------------\
AÐ LEIKA 0G LESA - útvarp kl. 11.20
ífyrramálið:
Þjóðleikhúsið skoðað
Að leika og lesa nefnist barnatími i
umsjá Jóninu H. Jónsdóttur sem er á
dagskrá útvarpsins í fyrramálið kl.
11.20.
„I þættinum fer ég og tveir ungl-
ingar, Benedikt Stefánsson og Edda K.
Hauksdóttir, í skoðunarferð um Þjóð-
leikhúsið með Gunnari Eyjólfssyni
leikara,” sagði Jónína í samtali við
DB. Meðal þess sem þau heimsækja í
Þjóðleikhúsinu er saumastofan, her-
bergi þar sem leikarar maska sig,
smíðasalur og ýmislegt fleira. Enn-
fremur verða í þættinum leikin nokkur
lög úr barnaleikritum. Þátturinn er
fjörutiu mín. langur.
- ELA
m ■ >
Gunnar Evjólfsson leikari fer i
skoðunarferð um Þjóðleikhúsið í fyrra-
málið I barnatimanum.
V_________________________________
fcsKALÖG SJÚKUNGA—útvarp kl. 9.30 '
ífyrramálið:
Aðeins sjúklingar
mega senda kveðjur
—ogþaraðauki verða þeiraðliggjaá
sjúkrahúsi
Óskalög sjúklinga eru að vanda á
dagskrá útvarpsins i fyrramálið kl.
9.30. Það er Ása Finnsdóttir sem
kynnir. Sú nýbreytni verðureftir næstu
mánaðamót að Kristin Sveinbjarnar-
dóttir, sem er að góðu kunn fyrir að sjá
um óskalögin, kemur aftur og verða
þær þá saman með óskalögin, hún og
Ása.
„Kveðjurnar eru yfirleitt miklu færri
á sumrin en á veturna svo það er farið
að glæöast hjá okkur,” sagði Ása
Finnsdóttir í samtali við DB er hún var
spurð hvernig gengi með óskalögin.
„Ég get leikið svona að meðaltali 23
lög í hverjum þætti en það er misjafnt
eftir því hve lögin eru löng. Skrýplarnir
eru langvinsælastir. í einum þættinum
var beðið um fimm lög af skrýplaplöt-
unni og ég held að það sé met að svo
mörg lög séu leikin af einni plötu í ein-
um þætti.
Það er alveg óhætt að hvetja fólk til
að skrifa en það eru aðeins sjúklingar
sem geta sent kveðjur,” sagði Ása enn-
fremur og bætti við að mörg bréf
kæmu frá fólki sem vildi senda ætt-
ingjum á sjúkrahúsum kveðjur en
bannað væri að lesa þær kveðjur. Ekki
var Ása alveg viss um af hverju það
stafaði en einhverjar reglur hafa verið
settar um það mál og eftir þeim verður
að fara. Einnig sagði Ása að nauðsyn-
legt væri að sjúkrahúsin stimpluðu
bréfin áður cn þau væru send svo
öruggt væri að sjúklingar hefðu skrifað
þau.
Fyrir utan að kynna kveðjur í óska-
lagaþættinum les Ása mikið inn á aug-
lýsingar í sjónvarpi. Hún sagði það
skemmtilegt starf þó hún fengi yfirleitt
ekki að sjá þær myndir sem hún væri
að lesa inn á. Þær virðast vinsælar.
auglýsingarnar sem Ása les inn á, að
minnsta kosti hefur ein gengið í lOár.
- EI.A
Ása Finnsdóttir, kynnir óskalaganna I
fyrramálið.
Kristin Sveinbjarnardóttir kemur aftur i
óskalögin I næsta mánuði og munu þær
stöllur skipta kynningununt með sér.