Dagblaðið - 20.10.1979, Side 1
---------------------------------------------------------------------\
Upplýstíbyrjun „ vikugegn vímugjöfum"
SOLUVERÐMÆTIUPPTÆKRA
FÍKNIEFNA 6-700 MIUJÓNIR
—á síðasta árí — Gæti veríð tíundi hluti raunverulegs magns, skv. erlendum áætlunum
Söluverðmæti dagsins á þeim
lcannabis-efnum sem upptæk voru
gerð hérlendis í fyrra er 600—700
milljónir króna. >á voru gerð upp-
tajk um sjötíu kíló af kannabis-efn-
um, samkvæmt upplýsingum Guð-
mundar Gígju, lögreglufulltrúa í
fikniefnadeild lögreglunnar í Reykja-
vik.
Gangverð á hassi þessa dagana er
talið vera frá 8000 og upp í 10 þúsund
krónur grammið. Erlendis er viða
áætlað að yfirvöld nái í um tíunda
hluta þeirra fíkniefna sem eru á
markaðinum. Guðmundur var
spurður hvort líklegt væri að sama
hlutfall væri hér.
,,Um það þori ég ekkert að segja,”
sagði hann. ,,Ég þori ekki einu sinni
aðgizkaáþað.”
Hann kvaðst enn ekki hafa tölur
um magn upptækra fíkniefna í ár.
Á mánudag hefst „Vika gegn
vímugjöfum” undir forystu íslenzkra
ungtemplara. Inntak þeirrar viku,
sem nýtur stuðnings uppalenda úr
öllum stéttum, er að aUir landsmenn
sameinist um. að neyta einskis þess
sem vímuefni kallast — hvert sem
fíkniefnið er: tóbak, áfengi, kannabis
eða annað — og hugleiði heldur þau
skaðlegu áhrif sem neyzlan hefur á
neytandann og þá sem næstir honum
standa.
- DS
„rí.-j
'W:" ■
skemmtikröftum”
Nokkrir þeirra sem kepptu tU úr-
slita á Hæfileikaralli Dagblaðsins og
Hljómsveitar Birgis Gunnlaugssonar
i haust koma fram á Hótel Sögu
annað kvöld. Kvöld þetta er sér-
staklega ætlað formönnum
skemmtinefnda og öðrum þeim sem
hafa með að gera útvegun á skemmti-
atriðum í einkasamkvæmi. Þegar
hefur um fimmtiu manns verið boðið
að koma og hlýða á hvað hæftleika-
fólkið hefur upp á að bjóða.
Þeir sem koma fram á sunnudags-
kvöldið eru Páll Jóhannesson
söngvari, sigurvegari keppninnar;
Evelyn Adolpsdóttir og Kolbrún
Sveinbjörnsdóttir, sem höfnuðu I
öðru sæti, og Geir Bjömsson gaman-
vísnasöngvari. Þá kemur Grétar
Hjaltason eftirherma einnig fram.
Dágóður hópur þeirra hæfileika-
manna sem tóku þátt í hæfileika-
kvöldunum hefur haft mikið að gera
upp á síðkastið. Til dæmis hafa þeir
Finnbogi Pétursson og Guðgeir
Gunnarsson komið fram á Hótel
Esju og i veitingahúsinu Snekkjunni.
Einnig hafa þær Kolbrún og Evelyn,
sem eru frá Grindavik, nokkrum
sinnum skemmt á samkomum á
Suðurnesjum.
Allir þeir sem hafa það verk með
hðndum að ráða skemmtikrafta i
einkasamkvæmi eru hvattir til að
mæta á þessa „sölusýningu
skemmtikrafta”.
-ÁT-
„Kommarog *
Framsókn hörð-
ustustuðnings-
menn Sólness”
Sjálfstæðismenn á Norðurlandi
eystra ákveða í dag hvort flokkurinn
skuli skipa sæti framboðslista sins
með prófkjörum eða ekki. Jón G.
Sólnes er sagður ákafur stuðnings-
maður prófkjörs og stefnir ótrauður
áefsta sæti listans.
Hvíslað er á Norðurlandi að
margir alþýðubandalags- og fram-
sóknarmenn séu manna ákafastir í
stuðningi við Sólnes sem oddvita
sjálfstæðismanna i kosningunum.
Andstæðingar Sjálfstæðisflokksins
muni hagnast á þvi að Sólnes verði í
forystu flokksins í kjördæminu.
Þá er framboðsslagur kratanna í
fullum gangi. Þar bítast Bragi Sigur-
jónsson, Árni Gunnarsson og Jón
Ármann Héðinsson um efstu sæti
AJþýðuflokkslistans. Einnig er Jón
Helgason, formaður Verkalýðs-
félagsins Einingar, nefndur til sög-
unnar. . . -ARH
— sjá bls. 6
„Sölusýningá
&tarfsmenn Melavallarins höfðu sett sérstakar mottur á völlinn til að auðvelda
leikinn. Venjulega fer slíkur leikur fram á grasi.
DB-mynd Hörður.
Fyrsti „krikket”-leikurinn á íslandi:
Fjörutíu „krikkef’-leikarar
í brúðkaupsveizlu á íslandi
„Þetta er eftir því sem ég veit bezt í
fyrsta skipti sem „krikket” er leikið
hér á landi og það var mjög gaman
fyrir okkur að það skyldi verða á Mela-
vellinum,” sagði Hreiðar Ársælsson,
starfsmaður Melavallar og fyrrum
landsliðsmaður í knattspyrnu, í samtali
við DB.
Eftir hádegi í gær kom saman á
Melavellinum hópur brezkra
,,krikket”-leikara til að iðka þessa
íþrótt sína. Að sögn Hreiðars var þetta
fjörutiu manna fiópur. Þannig stendur
á komu þeirra hingað til lands að einn
félaganna, Peter Salmon, gengur í dag
að eiga 21 árs gamla Reykjavikurmey,
Ólöfu Guðmundsdóttur. Brúðkaupið
verður haldið hér i Reykjavik og þótti
við hæfi að bjóða öllu „krikket-liðinu
til veizlunnar.
„Við útbjuggum aðstöðu fyrir leik-
mennina hér með því að setja mottur á
völlinn og þeir voru mjög ánægðir með
aðstöðuna þó þeim þætti nokkuð
kalt,” sagði Hreiðar.
„Stemmningin var alveg eins og á
landsleik. öll stig voru skráð niður og
leikurinn stóð eitthvað á fjórða
klukkutima. Inn á milli hresstu leik-
mennirnir sig með kaffi, tei og dálitlu
af viskíi. Ég held að þessi leikur hljóti
að eiga framtíð fyrir sér á íslandi,”
sagði Hreiðar að lokum.
-GAJ-
Brúðguminn, Peter Saltnon, afhendir Hreiðari Ársælssyni, starfsmanni M- ■ r,
„krikket”-kylfu að gjöf. Hreiðar lét svo um mælt að þessi leikur ætti öj uggle' n-
tið fyrir sér á íslandi.
DB-myn ;irm.
......