Dagblaðið - 20.10.1979, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1979.
5
PRÓFKJÖRIN í REYKJAVÍK:
lón Baldvin í slaginn
um efstu sæti A-lista
Allt er nú komið á fulla ferð í próf-
kjörsundirbúningi Alþýðuflokksins í
Reykjavík. Nokkuð óvænt hefur Jón
Baldvin Hannibalsson ritstjóri tekið þá
stefnu að fara í slaginn um efstu sætin.
Gefur hann kost á sér í 3.—4. sæti i al-
þingisframboðinu.
Benedikt Gröndal forsætisráðherra
gefur kost á sér í 1. sæti. Dr. Bragi
Jósepsson gefur einnig kost á sér í það
sæti.
Vilmundur Gylfason dóms- og
menntamálaráðherra gefur kost á sér i
1.—2. sætið en stefnir á 2. sæti á listan-
um eftir því sem næst verður komizt.
Jóhanna Sigurðardóttir alþingis-
maður gefur að öllum líkindum kost á
sér í 2. og 3. sæti en stefnir á sama sæti
og hún var í við síðustu kosningar, þ.e.
3. sætið.
Jón Baldvin Hannibalsson hefur
þann hátt á að gefa kost á sér í 3.—4.
sætið sem fyrr segir.
„Málið er það að ég hafði ekki
hugsað mér að fara í þennan slag,”
sagði Jón Baldvin i viðtali við DB.
„Eftir þennan sjónvarpsþátt, sem ég
var í um daginn, hef ég ekki haft frið
Kommúnistaflokkurinn:
„Tökum þátt í
kosningunum”
„Við tökum örugglega þátt í
kosningunum en óráðið er á hvern hátt
það verður,” sagði Gunnar Andrésson,
formaður Kommúnistaflokks íslands,
við Dagblaðið.
Flokkurinn bauð fram í Reykjavík í
síðustu kosningum og hafði 128 at-
kvæði upp úr krafsinu. Gunnar skipaði
þá efsta sæti listans.
„Við viljum sameina öflin vinstra
megin við Alþýðubandalagið. Við
vonum að Fylkingin og Eik-arar taki
þátt í víðtæku samstarfi og mér heyrist
menn almennt vera hlynntir hug-
myndinni.
Það er brýnt að hrinda slíku sam-
starfi í framkvæmd. Við höfum vonda
reynslu af vinstri stjórn og
Alþýðubandalagið hefur svikið verka-
fólk,” sagði Gunnar Andrésson.-ARH.
fyrir fólki sem segir mér að ég eigi að
fara í framboð. Ég hef þetta því
eins og margir góðir menn hafa gert.
Ég verð við áskorunum um þátttöku i
prófkjörinu,” sagði Jón Baldvin
Hannibalsson.
Víst er talið að hörð barátta verði um
efstu sætin í prófkjöri Alþýðuflokksins
í Reykjavík og að frambjóðendur reki
kosningaskrifstofur með atbeina stuðn-
ingsmanna sinna, eins og sumir þeirra
gerðu í síðustu kosningum. - BS
Haukur Ingibergs-
son ætlaríframboð
Haukur Ingibergsson skólastjóri
Samvinnuskólans að Bifröst stefnir að
2. sætinu á lista Framsóknarflokksins í
Vesturlandskjördæmi.
Framsóknarmenn eiga tvo þingmenn
í kjördæminu. Halldór Sigurðsson og
Alexander Stefánsson. Halldór gefur
ekki kost á sér aftur. Um hans sæti tak-
ast trúlega á Alexander og Dagbjört
Höskuldsdóttir skrifstofumaður í
Stykkishólmi. í prófkjöri framsóknar-
manna fyrir síðustu þingkosningar
glímdu Alexander og Dagbjört um 2.
sætið. Alexander vann i þaðskiptið.
Fleiri koma til greina í slaginn um
efstu sæti Framsóknar á Vesturlandi,
þeirra á meðal Jón Sveinsson dómara-
fuiltrúi á Akranesi. - ARH
Framsökn:
Krisf inn Ágúst
feríframboð
,,Ég hef fengið áskorun frá hópi
ungra manna innan flokksins um að ég
gefi kost á mér og hef ég ákveðið að
verða við þeirri áskorun,” sagði
Kristinn Ágúst Friðfinnsson,
guðfræðinemi og félagi í FUF, í
samtali við DB.
„Þetta þýðir þó ekki að ég sé að
berjast við einn eða neinn, og ég stefni
ekki á neitt ákveðið sæti. Ég treysti
fullkomlega þeim sem eiga að taka á-
kvörðun um skipan listans,” sagði
Kristinn Ágúst. -GAJ-
***■" SJALFSTÆÐIS-
NIENN í REYKJAVÍK
Kjörnefnd sjálfstæðismanna i
Reykjavík gekk frá endanlegum fram-
boðslista til prófkjörsins sem haldið
verður dagana 28. og 29. október.
Framboðin, sem bárust kjörnefnd
fyrir kl. 17 á fimmtudag, eru talin hér á
eftir að viðbættum þeim nöfnum sem
kjörnefndin fyllti listann með í gær.
Ágúst Geirsson símvirki, Albert
Guðmundsson alþingismaður, Bessí
Jóhannsdóttir kennari, Birgir ísl.
Gunnarsson borgarfulltrúi, Björg
Einarsdóttir skrifstofumaður, Elín
Pálmadóttir blaðamaður, Ellert B.
Schram alþingismaður, Erna Ragnars-
dóttir innanhússarkitekt, Finnbjörn
Hjartarson prentari, Friðrik Sophus-
son alþingismaður, Geir Hallgrímsson
alþingismaður, Guðmundur H.
Garðarsson viðskiptafræðingur,
Gunnar S. Björnsson trésmíðameistari,
Guðmundur Hansson verzlunarmaður,
dr. Gunnar Thoroddsen alþingis-
maður, dr. Gunnlaugur Snædal yfir-
læknir, Hallvarður Sigurðsson raf-
virkjanemi, Haraidur Blöndal héraðs-
dómslögmaður, Hreggviður Jónsson
fulltrúi, Jóna Sigurðardóttir húsmóðir,
Jónas Bjarnason efnaverkfræðingur,
Kristján Guðbjartsson fulltrúi,
Kristján Ottósson blikksmiður, Pétur
Sigurðsson sjómaður og Ragnhildur
Helgadóttir alþingismaður.
- BS
Tveir strætisvagnar í 7 bfla árekstri
„Hreyfum ekki bfí-
ana aftur í hálku”
„Ef þessi staða kemur upp aftur er
klárt mál að ég og fleiri vagnstjórar
munum ekki hreyfa vagnana út,”
sagði Magnús Skarphéðinsson vagn-
stjóri hjá SVR í samtali við DB í gær.
Magnús var svo óheppinn að
morgni fimmtudags, er hann ók sína
leið í Breiðholtinu, að verða aðili að
sjö bíla árekstri. „Ég ók Stekkjar-
bakkann er stúlka kom á litlum bíl
niður Skógarselið. Þarna er mjög
hættuleg beygja og höfum við vagn-
stjórar hvað eftír annað farið fram á
breytingu, án þess þó að á okkur
væri hlustað. Líklega er beðið eftir
banaslysi fyrst. Þarna var mjög hált,
gangandi vegfarendur áttu jafnvel
erfitt með að fóta sig. Stúlkan missti
vald á bílnum og lenti hann framan á
vagninum hjá mér. Svo mikill var
skellurinn að flytja varð stúlkuna á
slysadeild vegna höfuðhöggs. Annar
bíll kom að og missti ökumaðurinn
einnig vald á honum og lenti hann á
bil stúlkunnar. Enn einn kom að, en
hann tókst að stöðva. Þegar fimmti
bíllinn hins vegar kom rennandi
niður brekkuna, lenti hann á þeim
bíl. Loks kom strætísvagn sem átti að
taka mína farþega. Þrátt fyrir að
vagnstjórinn vissi fyrirfram að þarna
væri hálka missti hann einnig vald á
bílnum, hann snerist þversum á
götunni og lenti utan í einum bíl enn.
Vegna þessa áreksturs og fjölda
annarra á fimmtudagsmorgun urðu
geysilega miklar tafir á akstri strætis-
vagnanna. Okkur sárnar að vonum
því að þegar nagladekkin voru tekin
undan bílunum var okkur lofað að
allar götur yrðu saltaðar jafnóðum
og háit yrði, áður en vagnarnir
v.-.V.V...- ■■■■ .. w,- - .v:_,.....y .
■
ímuxnur—-
Svona leit leið 14 út eftir sjö bila áreksturinn i Breiðhol(i. DB-mynd: R.Th.
byrjuðu akstur. Eitthvað virðist þó
ganga erfiðlega strax i vetrarbyrjun
að standa við það loforð,” sagði
Magnús.
DB hafði samband við Ólaf
Guðmundsson, fulltrúa gatnamála-
stjóra, sem gegnir störfum í fríi þess
síðarnefnda. Ólafur sagði að allt yrði
gert í vetur til þess að salta götur í
tíma. Hálkan á fimmtudagsmorgun
hefði verið óvenju snemma á ferð og
vetrarvaktin ekki komin tíl starfa.
Salti hefði verið dreift strax og
vitneskja barst um hálkuna, eða upp
úr klukkan sjö. Þá hefðu vagnstjórar
látið vita um hálkuna en það'væru
yfirleitt annaðhvort vagnstjórar eða
lögreglan sem kæmi vitneskju um
hálku á framfæri. Vetrarvaktin tæki
til starfa um 20. október og yrði það
þá hluti af starfi hennar að fylgjast
með veðurfregnum og vera viðbuin
söltun eldsnemma á morgnana.
-DS.
2. deildin í skák:
Vestfirðingar taka forystuna
Keppni í 2. deiid í deildakeppni
Skáksambandsins hófst um síðustu
helgi. Reiknað var með 8 þátttökulið-
um en sveit Skáksambands Suðurlands
gekk úr skaftinu á síðustu stundu og
Taflfélagið Nói þáði ekki boð SÍ um að
tefla sem „gestalið”.
Úrslit í leikjum helgarinnar urðu
þessi:
Skáksamband Vestfjarða — Tafl-
félag Reykjavíkur b-lið: 2,5—3,5. Tafl-
félag Húsavíkur — Taflfélag Vest-
mannaeyja: 5—1. Skáksamband
Vesturlands — Taflfélag Vestmanna-
eyja 3,5-2,5, Skáksamband Vestfjarða
— Taflfélag Húsavíkur: 4—2. Skák-
samband Vestfjarða — Taflfélag Vest-
mannaeyja: 4,5—1,5. Skáksamband
Vesturlands — Taflfélag Húsavíkur:
5—1.
Staðan (leikjafjöldi tilgreindur í
sviga):
Vestfirðir 11 vinn. (3), Vesturland
8,5 (2), Húsavík 8 (3), Vestmannaeyjar
5 (3), TR-b 3,5 (1) Hreyfill 0 (0).
-GAJ
LOKSINS
ER
OPTIC FOAMIÐ
KOMIÐ
KOMIÐ
Fyrir þá sem ganga með
dlerauau — Fæstfflestum
Y /X sportvöruverzlunum,
Sjonauka — ^ apótekum og
myndavéla- 0N snyS:
Hnsur ,
350 %
skammtar ^4
OPTIC
FOAM
LENS CLEANER
• anti-fog - anti-static
• nospill - no run
•350 precise applicatlon*
•tnvironmentally safe
í túbunni.
Fæst í flestum
gleraugnaverzlunum og
Ijósmyndaverzlunum landsins
FORVALHF ■ Laugavogi84.
Pantanasími: 24170