Dagblaðið - 20.10.1979, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1979.
Hvítt: Sunye
Svart: Braga
Kóngsindversk vörn
1. c4 g6 2. Rc3 Bg7 3. d4 Rf6 4.
Rf3 0—0 5. Bf4
Óvenjulegur leikmáti gegn Kóngs-
indversku vörninni, sem hefur það
helst sér til ágætis að vera lítt
þekktur.
5. —d66. e3 Rbd7
Sumir segja að 6. —c5 sé örugg-
asta leið svarts til tafljöfnunar. Guð-
mundur Sigurjónsson lék 6. — c6, á-
samt —a6 og —b5 gegn Farago í
Amsterdam 1976 og jafnaði taflið
næsta auðveldlega.
7. Be2 Rh5 8. Bg5 h6 9. Bh4 g5 10.
Rd2! Rf4?!
Eftir 10. — gxh4 11. Bxh5 e5
o.s.frv. er ekki að sjá að svartur hafi
nein teljandi vandamál. Textaleik-
urinn hefur það einungis í för með sér
að aðstaða hvíts á miðborðinu styrk-
ist.
11. exf4 gxh4 12. Rf3 e5 13. fxe5 dr.eS
14. Dd2 exd4 15. Rxd4 Rc5 16. Hdl
c617.0—0
Staðan er opin og því hefur hvítur
góð tök á að notfæra sér veikleikana í
peðastöðu svarts á kóngsvæng.
Hótunin er 17. Rxc6! Dxd2 18.
Re7+.
17. — Df618. De3 Dg5?
Meira viðnám var fólgið í 18. —
Re6. Nú fær hvítur augljósa yfir-
burði.
19. f4 Df6 20. Rf3 Re6 21. g3!
Ekki 21. Re5? Rxf4!
21. —hxg3 22. hxg3 Rc7 23. Re5 De7
24. Bd3 Bxe5?
Eftir að svartur missir biskupinn
úr vörninni, stendur kóngur hans
berskjaldaður. Síðasti möguleiki
svarts var 24. —f6 25. De4 Dc5 + 26.
Kg2 f5! 27. De2 Be6.
JÓN L. ÁRNAS0N
SKRIFAR UM SKÁK ^ —
25. fxe5 Dg5
26. Hf4! Re6 27. Re4 Dg7 28. Rf6 +
Kh8 29. Hh4 Rg5 30. Hd2!
Gegn hótuninni 31. Hdh2 á
svartur ekkert svar.
30. —Rh3+ 31. Khl.
Svarturgafst upp.
Frá Brasilíu víkur sögunni til
Haustmóts TR, sem lauk nú i
vikunni. í síðustu umferð gerði Björn
Þorsteinsson jafntefli við Björn
Sigurjónsson og tryggði sér um leið
sigurinn á mótinu.
Lokastaðan í A-flokki varð þessi:
1. Bjöm Þorsteinsson 9 v.
2. StefánBriem 8 1/2 v.
3. Sævar Bjarnason 8 v.
4. Ásgeir Þ. Ámason 7 v.
5. Björn Sigurjónsson 6 1/2 v.
6. Þorsteinn Þorsteinsson 6 v.
7. -8. Júlíus Friðjónsson og Þórir
Ólafsson 5.
9.-10. Bragi Björnsson og Benedikt
Jónasson3 1/2 v.
11. Guðmundur Ágústsson 3 v.
12. Jóhann Þórir Jónsson 1 v.
B-flokkur: 1. Róbert Harðarson 8
1/2 v. af 10 mögulegum. 2. Björn
Árnason 8 v. Baráttan var fyrst og
fremst milli Róberts og Björns. Björn
byrjaði með miklum tilþrifum, hafði
unnið allar sínar skákir er mótið var
hálfnað. Róbert reyndist hins vegar
sterkari á endasprettinum.
C-flokkur: 1. Eiríkur Björnsson 8
v. 2. Hrafn Loftsson 7 1/2 v. 3. Einar
Þorgrimsson6 1/2 v.
D-flokkur: 1. Birgir örn Stein-
grímsson 9 v. af 11. 2. Áslaug
Kristinsdóttir 8 1/2 v. 3.-4. Rúnar
Sigurðsson og Björn Fr. Björnsson 7
1/2 v.
Unglingaflokkur: Efstir og jafnir
urðu þeir Láms Jóhannesson og
Arnór Björnsson með 8 1/2 v. af 9
mögulegum. Þegar stig voru reiknuð
reyndist Láms hafa einu meira (!) og
hlýtur hann því sæmdarheitið
„Unglingameistari TR 1979”.
Björn Þorsteinsson var vel að
sigrinum kominn, flesta sína vinn-
inga fékk hann á sannfærandi hátt. f
skák hans gegn Sævari í næstsíðustu
umferð vom örlagadísirnar honum
þó hliðhollar. Er skákin fór í bið
veðjuðu flestir á Sævar, en með mik-
illi útsjónarsemi tókst Birni að halda
jöfnu. í síðustu umferð gerðu Sævar
og Ásgeir jafntefli, en á meðan
tryggði Stefán Briem sér 2. sætið
með sigri yfir Benedikt Jónassyni.
Stefán teflir sjaldan, en þegar hann
teflir tekst honum yfirleitt velupp.
Viðureignar Björns Þorsteins-
sonar og nafna hans Sigurjónssonar í
síðustu umferð var beðið með mikilli
óþreyju. Þeim fyrrnefnda nægði
jafntefli til sigurs á mótinu, en ljóst
var að það fengi hann ekki á silfur-
fati. Þegar menn em í þannig
aðstöðu tefla þeir oft undir styrk-
leika, en því var ekki að heilsa hjá
jBirni Þ. Þvert á móti tefldi hann af
miklu öryggi og náði fljótlega betri
stöðu. Skákinni lauk undarlega.
Björn Þ. þvingaði nafna sinn til að
þráleika á einkennilegan hátt. Jafn-
vel Hort og Spassky hefðu mátt vera
hreyknir af!
Hvitt: Björn Þorsteinsson
Svart: Björn Sigurjónsson
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 a6 5. Bd3 g6.
Þetta afbrigði er í miklu uppa-
haldi hjá Ulf Andersson.
6.0—0 Bg7 7. c3 Rc6 8. Be3 Rge7 9.
Rbd2 0—0 10. a4 h6 11. Rxc6
Rxc6 12. Be2 Hb8 13. f4 d5 14. Bc5
He8 15. e5 b6 16. Bd6 Ha8 17. Rf3
Ra5 18. Rd4 Rb7.
19. Rc6 Dd7
Auðvitað ekki. 19. — Dh4?? 20.
g3 Dh3 21. Bg4.
20. Rb8! Dd8 21. Rc6 Dd7 22. Rb8
jafntefli.
Hvítur hefði getað reynt 19. Ba3
og stendur þá betur að vígi. Með
tilliti til stöðunnar í mótinu, hefði
slíkt þó verið vanhugsað.
Aðalsveitakeppni félagsins hefst
næstkomandi miðvikudag. Frestur til
að tilkynna þátttöku rennur út á
morgun, sunnudaginn 21. október,
Sími formanns er 19253 og þar er hægt
að tilkynna þátttöku.
FráTBK
A-riðUI:
1. Guðmundur-Bragi
2. Tryggvi-Bernharður
3. Ragnar-Sigurður
4. Gunnar-Sigurjón
B-riðili:
1. Margrét-Jóhanna
2. Hannes-Páll
3. Ólafur-Hilmar
4. Rafn-Þorsteinn
Efstu sæti skipa:
1. Hannes-Páll
2. Margrét-Jóhanna
3. Hjörtur-Guðbjartur
4. Tryggvi-Bernharður
5. Rafn-Þorsteinn
6. Ragnar-Sigurður
7. Óskar-Krístján
8. Þórhallur-Krístján
Lokið er 3 umferðum af
ingskeppni TBK.
Bridgeklúbbur
Akraness
Aðalfundur BKA var haldinn 27.
september í Röst. Þar var kosin ný
stjóm sem eftirtaldir menn skipa: Einar
Guðmundsson formaður, Guðjón
Guðmundsson gjaldkeri og Ingi Steinar
Gunnlaugsson ritari. Vetrarstarfið
hófst 4. október með tveggja kvölda
einmenningskeppni sem jafnframt var
firmakeppni. 36 spilarar mættu til leiks
og urðu úrslit í firmakeppninni sem hér
segir:
Spilari
l.H.B.&Co. Björa Viktorsson 85
2. Sjóvá ÓlafurG. Ólafsson 84
3.S.F.A. Baldur Ólafsson 83
4. Heimskagi Hjalti Hrólfsson 80
5. Röst Guðjón Finnbogason 78
Einmenningsmeistari BKA varð
Bjarni Guðmundsson sem hlaut 156
stig.
2. ÓlafurG. Ólafsson
3. Björn Viktorsson
4. Hörður Jóhannesson
5. Baldur Ólafsson
6. Halldór Sigurbjörnsson
7. -8. Björgvin Bjamason
Hermann Guðmundsson
9. Ingi Steinar Gunnlaugsson
10. Jósef Fransson
Meðalskor 132
18. október hófst fjögurra kvölda
tvímenningur. Spilað er eins og áður á
fimmtudögum í Röst og byrjar spila-
mennskan 19.45 stundvíslega.
154
151
150
149
147
142
142
141
140
188
187
183
131
209
188
179
174
551
542
522
522
507
506
505
501
5 í tvímenn-
Barðstrendinga-
félagið í Reykjavík
5 kvölda tvímenningur. Árangur 8
efstu eftir 3 umferðir er þessi:
1. Viðar Guðmundsson, Haukur Zophoniasson 364
2. Þórarínn Ámason, Ragnar Björasson 363
3. ísak Sigurðsson, Ámi Bjaraason 353
4. Jón Karisson, Pétur Karísson 349
5. Viðar Guðmundsson, Birgir Magnússon 348
Jón Páll Sigurjónsson frá Bridgesam-
bandi íslands afhendir Þórarni Sig-
þórssyni fyrirliða bikarinn mikla.
Næstur kemur Óli Már Guðmundsson,
þá Stefán Guðjohnsen og sonur hans,
Egill.
6. Ólatur Jónsson, Valur Magnússon 342
7. Baldur Guflmundsson, Óll Valdimarsson 340
8. Siguröur Kristjúnsson, ttermann Ólafsson 335
Frá Bridgefélagi
Kópavogs
Fimmtudaginn 11. okt hófst 3
kvölda tvímenningskeppni hjá Bridge-
félagi Kópavogs. Spilað var í 2 10 para
riðlum. Bezta árangri náðu:
A-rlðll:
Sigurður Sigurjónsson — Jóhanno Áraason 135
Bjarai Pétursson — Sævin Bjarauson 117
Aðalsteinn Jörgensen — Ásgeir Ásbjörasson 109
B-riflUI:
Sigurður Vilhjálmsson — Vllhjálmur Sigurðsson 130
Hrólfur Hjaltason — Jón P. Sigurjónsson 124
Guðm. Krístjánsson—Hermann Finnbogason 113
Sverrír Þórísson — Haukur Margeirsson 113
Keppninni var fram haldið sl.
fimmtudag í Þinghól Hamraborg 11.
Bridgefélag Selfoss
Úrsiit í tvímenningskeppni, sem var
11/10 1 979. Meðalskor 156.
1. Bjarai Jónsson — Eríingur Þorsteinsson 203
2. Haraldur Gestsson — Halldór Magnússon 197
3. Tage R. Olesen — Sigfús Þórðarson 179
4. Hannes Ingvarsson — Gunnar Þórðarson 177
5. Stefán Larsen — Guðjón Einarsson 174
6. Sigurður Sighvatsson — Krístján Jónsson 170
7. Haukur Baldvinsson — Oddur Einarsson 156
8. Gunnar Andrésson — Brynjólfur Gestsson 154
Fimmtudaginn 18. okt. hófst
meistaramót félagsins í tvímennings-
keppni, 4 kvöld. Þátttaka er öllum
heimil og óskast tilkynnt sem allra fyrst
til Halldórs Magnússonar, sími 1481.
Frá Bridgefélagi
Vestmannaeyja
Aðalfundur félagsins var'haldinn ný-
lega. í stjórn fyrir næsta starfsár voru
kosnir: Sigurgeir Jónsson formaður,
Gunnar Kristinsson varaformaður,
Leifur Ársælsson ritari, Haukur Guð-
jónsson gjaldkeri og Sveinn Magnús-
son áhaldavörður.
Þriggja kvölda tvímenningskeppni
hófst sl. miðvikudag. 14 pör taka þátt í
henni og efdr fyrsta kvöldið er röð
þeirra efstu þannig:
Guðlaugur Gislason — Jóhannes Gíslason 210
Anton Bjarnasen — Gunnar Krístinsson 181
Baldur Siguriásson — Jónatan Aðalsteinsson 174
Helgi Bergvins — Oddur Sigurjónsson 167
Magnús Grímsson — Sigurgeir Jónsson 159
Benedikt Ragnarsson — Sveinn Magnússon 157
Hilmar Rósmundsson—Jakobína Guðld. 157
Frá Bridgefélagi
Hafnarfjarðar
Lokið er fyrstu umferð í aðaltví-
menningskeppni félagsins. Spilað er í
tveimur 12 para riðlum og er röð efstu
parasemhérsegir:
1. Ægir Magnússon — Stefán Pálsson 207
2. Krístófer Magnússon — Vilhjálmur Einarsson 193
3. Ragnar Halldórsson — Jón Pálmason 192
4. Haukur ísaksson — Karí Adólfsson 191
5. Aðalsteinn Jörgensen — Ólafur GLslason 187
6. Árai Þorvaldsson —S ævar Magnússon 186
Meðalskor 165
Mikil gróska er nú í vetrarstarfi BH
sem sést bezt á því að fleiri pör eru nú
mætt til keppni en mörg undanfarin ár.
Þar á meðal eru mörg ný andlit sem
ekki hafa áður sézt og einnig gamlar
kempur, sem eftir langa fjarveru koma
sumar hverjar sterkar til leiks.
Athygli vekur frammistaða tveggja
af yngstu og efnilegustu spilurum
félagsins, þeirra Stefáns og Ægis, sem
ekki alls fyrir löngu voru byrjendur í
faginu. Þetta ætti einmitt að hvetja
hina nýju spilara félagsins til að missa
ekki móðinn þótt á móti blási í byrjun.
Bridgefélag
Breiðholts
Á þriðjudaginn var spilúð 2. umferð
í þriggja kvöldn tvímennirigskeppni -.em
nú stendur yfir hjá félaginu. Efstu skor
kvöldsins voru:
Baldur—Kristinn 196
Helgi — Leifur 187
Bjarai — Magnús 185
Magnús — Vilhjálmur 175
Kjartan — Guðmundur |70
Meðalskor 156
Staðan eftir tvær umferðir er þessi:
1. Helgi —Leifur 381
2. Bjarai — Magnús 364
3. Guðbjörg — Jón 353
4. Baldur — Krístinn 345
5. Helgi — Hjálmar 339
Meðalskor 321
Næsta þriðjudag verður seinasta um-
ferðspiluð. Þriðjudaginn 30. okt. hefst
fjögurra kvölda hraðsveitakeppni og
eru væntanlegir þátttakendur beðnir að
láta skrá sig hjá keppnisstjóra næsta
þriðjudagskvöld eða í síma 74762
(Kristinn). Spilað er í húsi Kjöts &
fisks Seljabraut 54 og hefst kl. 7.30
stundvíslega.
Bridgedeild
Víkings
Önnur umferð tvímenningskeppn-
innar var spiluð sl. mánudagskvöld 15.
okt. og er röð efstu para þessi:
1. Guðm. Samúelsson — Daníel Benjamínss. 306
2. Sigurður Egilsson — Lárus Eggertsson 299
3. -4. Ingibjörg Björasdóttir — Ágnar Einarsson 297
3.-4. Jón ísaksson — Ingólfur 297
5. Sigfús Áraason — Magnús Theódórsson 293
6. Guðbjörn Ásgeirsson — Magnús lngólfsson 289
7. Jón ólafsson — Ólafur Jónsson 285
Næstkomandi mánudagskvöld 22.
okt. verður þriðja umferð spiluð í
félagsheimili Víkings v/Hæðargarð kl.
19.30. Mætiðstundvíslega.
Vinningur
í merkjahappdrœtti berklavarnar-
dagsins 7. október sl. kom á
númer
29386
SÍBS