Dagblaðið - 20.10.1979, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1979.
BINDINDIBORGAR SIG
Spurning
dagsins
Ása Benediktsdóltir skrifur:
Laugardaginn 1. sept. síðastliðinn
birtist i Dagblaðinu kjallaragrein
eftir Árna Larsson. Ritar hann þar
um áfengismál og kemur víða við.
Þar þakkar hann m.a. SÁÁ fyrir að
hjálpa drykkjusjúkum og þar er ég
honum hjartanlega sammála. Árni
verður þó að gera sér það ljóst, að
drykkjusýki er ekki hægt að lækna
að neinu marki nema með algjöru
bindindi og aðeins þeir sem neyta
áfengis eiga það á hættu að verða
áfengissjúklingar. Ef landið yrði
áfengislaust myndi það hugsanlega
verða einn allsherjar geðveikraspítali,
segir Árni í grein sinni. Ekki trúi ég
að hann meini þetta sem hann
skrifar. Einnig telur Árni, að fólk fái
ekki útrás sinna hjartans mála nema
með hjálp áfengis! Ekki er það nú
björgulegt.
Þá vitum við sem sé, hvernig á að
koma í veg fyrir geðveiki, sem stafar
með öðrum orðum af brennivíns-
leysi. Þess vegna virðist bráðnauð-
synlegt að hafa þessa aðkeyptu veiki
áfengisins og ýmsa fylgikvilla þess til
hjálpar þjóðarheildinni.
Þá kem ég næst að okkur vatns-
rónunum úr Góðtemplarareglunni,
þessu stórskrítna fólki sem boðar
bindindi. Ekki hef ég heyrt að
templarar og annað bindindisfólk sé
haldið fleiri geðrænum kvillum en
aðrir eða dvelji oftar á sjúkrahúsum
vegna brennivínsleysis, en Árni veit
það kannski betur svo vitnað sé í
fyrri ummæli hans. Sannleikurinn er
sá, það vitum við bindindisfólkið
bezt, að það er vel hægt að fá útrás
sinna hjartans mála og skemmta sér
ágætlega án hjálpar áfengis. Fólk
bara vill ekki reyna það, þvi það
þykir ekki fínt að skemmta sér alls-
gáður, og engum dettur í hug að
stöðva áfengisflóðið meðan gróða-
sjónarmiðið og tizkan ráða ríkjum.
Að mínu mati er vart hægt að
hugsa sér betri lýsingu á drykkjuvenj-
um landans en þá sem birtist í niður-
lagi greinar Árna. Að lokum vil ég
halda fram þeirri trú minni að bind-
indi borgi sig bæði andlega og efna-
lega, hvort sem um er að ræða
bindindisfólk eða vatnsróna í
Góðtemplarareglunni.
Bréfritari heldur þvi fram að bindindi
borgi sig og vist er um það, að þær
guðaveigar sem hér gefur að lita kosta
sinn skilding.
r -1 f * m
A '^41
USI61EB UF^y,
Fegrið heimilið með LISTGLERI
— blýlagt gler í ótal mynstrum og
litum.
Tilvalið í svalahurðir, forstofu-
hurðir, útihurðir og alls konar
glugga til skrauts og nytja.
Vinnum gler eftir pöntunum. —
Hringið eða komið vestur á
Granda og kynnið ykkur liti,
mynstur og verð. Gerum föst
verðtilboð.
Athugið: Blýlagt gler má tvöfalda
í verksmiðju eða setja fyrir innan
tvöfalt gler.
Nýjung: Úrval af fallegum ljósa-
krónum með blýlögðu LIST-
GLERI
Seljum alls konar
hamrað, glært og
reyklitað gler.
Leitið ekki langt
yfir skammt, úr-
valið er hjá
okkur. Nú er
hver að verða
síðastur fyrir
jól.
LIST-
GLER
Grandagarði
5
(Við hliðina á Geira í Sjóbúðinni)
Sfmi
29412
Hver verður sigur-
vegari í næstu
kosningum?
Hríngur Hjörleifsson, vinnur í fiski:
Ég get ekkert sagt um það. Sjálfsagt
þó Framsóknarflokkurinn.
Sigurgeir Bjarnason pípulagningar-
maður: Það má guð vita. Sjálfsagt
Sjálfstæðisflokkurinn.
Grétar Krístinsson pípulagningarmað-
ur: Sjálfstæðisflokkurinn. Hann nær
hreinum meirihluta á þingi.
Guðrún Guðmundsdóttir verzlunar-
maður: Ég hef ekki hugmynd um það.
Ég þoriekkiaðveðjaáneinn.
Davíð Jensson byggingaeftirlitsmaður:
Ég vil ekki segja til um það. Óskandi að
við fáum bara betri stjórn, þó ég hafi
litla trú á því.
'EGr ER ÞREVTTUp.' MIG-
VERKJAR j STRUMPlNN 1 PESSAR Tl LRAUMASTRVHP- UR HANS VFVRSTRUMPS ae> para 1 —£inn Á MÉR 1 J HEVRÐuX í SÉrðu ? )
)Vi\ y X x
(s~s^'Q
Ólafur Valur Sigurðsson sjómaður:
Gvendur jaki. Hann stjórnar þjóð-
félaginu.